Dataset Viewer
Auto-converted to Parquet
text
stringlengths
0
19.2M
Öllum nautgripum á bænum Ármótum í Rangárvallahreppi, 104 talsins, hefur verið fargað. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Katrínu Andrésdóttur, héraðsdýralækni í Suðurlandsumdæmi. " Þetta voru gripir sem voru smitaðir af salmonellu og mjög ólíklegt að þeir hefðu nokkurn tímann orðið til einhvers nýtir, " sagði Katrín. Að sögn Katrínar tók Gunnar Jóhannsson, forstjóri Fóðurblöndunnar, sem er núverandi eigandi Ármóta, ákvörðun um að farga dýrunum og af fyrrgreindum ástæðum sagði hún ákvörðunina hafa verið rétta. Dýrunum var lógað á bænum og hræin flutt á urðunarstaðinn Strönd. Katrín sagði að Þorkell Steinar Ellertsson, fyrrverandi bóndi á Ármótum, hefði síðan sjálfur fargað 13 hundum af 20, en þeir, eins og önnur dýr á bænum, hefðu verið smitaðir af salmonellu. Í janúar var 45 hrossum lógað vegna vanhirðu og því hefur alls 162 dýrum af bænum verið fargað. Enn um 300 hross á jörðinni Katrín sagði að enn væru sjö hundar og um 300 hross á jörðinni. Hún sagði að líklega væru öll hrossin smituð og því vissi hún ekki hvað nýr eigandi þeirra, Jónas Ingi Ketilsson, hygðist gera við þau, en farbann er á öllum dýrum frá bænum. Hún sagði að hægt væri að losa dýrin við salmonelluna, en að sú aðgerð krefðist mikillar vinnu. Jónas Ingi sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki nema hluti af hrossunum væri smitaður og að verið væri að ná salmonellunni úr þeim eftir ákveðnu kerfi. Hann sagðist hafa keypt hrossin fyrir stuttu en vildi ekki gefa upp kaupverðið.
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir að synjun sænskra stjórnvalda á því að ríkislögreglustjóra sé heimilt að kyrrsetja innistæður á reikningum þar í landi geti haft áhrif í öðrum sambærilegum málum sem nú eru til rannsóknar. Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu ríkislögreglustjóra um heimild til að leggja hald á 1,7 milljarða króna innistæður tveggja félaga á bankareikningum hjá Skandinaviska Enskilda Banken ( SEB ) í Svíþjóð. Málið gengist rannsókn á brotum á gjaldeyrislögum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður fallist á kröfu ríkislögreglustjóra um að leggja hald á féð en sænsk stjórnvöld höfnuðu beiðni um að framfylgja þeim úrskurði á þeirri forsendu að meint brot væru ekki refsiverð þar í landi. Segir Hæstiréttur, að af þessum sökum verði úrskurðinum ekki framfylgt. Málið tengist rannsókn á meintu broti félags og einstaklinga því tengdu vegna gruns um að hafa stundað ólöglega milligöngu um gjaldeyrisviðskipti. Eru viðkomandi grunaðir um að hafa hagnast gífurlega með því að hafa ólöglega milligöngu, fyrir útflytjendur og aðra eigendur gjaldeyris, um skipti á erlendum gjaldeyri í íslenskar krónur á svonefndum aflandsmarkaði. Helgi Magnús segir að efnahagsbrotadeild sænsku lögreglunnar hafi talið að hægt væri að krefjast kyrrsetningar og farið með beiðnina fyrir dóm. Ekki gildi sömu lög í Svíþjóð og hér hvað varðar ólögmæt viðskipti með gjaldeyri. Í Svíþjóð teljist slík mál ekki refsimál líkt og hér á Íslandi. Í málinu var beitt nýju ákvæði í almennum hegningarlögum um peningaþvætti. Hins vegar hafnaði dómari í Svíþjóð því og þá var reynt að krefjast handlagningar innistæðna á reikningunum. Helgi Magnús segir að niðurstaðan nú hafi áhrif á sambærileg mál sem lúta að innistæðum á bankareikningum í Svíþjóð og í þeim ríkjum sem eru með sambærilega löggjöf og Svíar. Hann segir að því sé ekki hægt að leggja hald á þessar innistæður þar til að fullnusta dóms liggur fyrir. Litlar líkur séu á að nokkuð verði inni á þessum reikningum þegar þar að kemur. Að sögn Helga hafa um 100 milljónir króna verið kyrrsettar hér á landi vegna rannsóknarinnar. Hann segir að beita þurfi kyrrsetningu strax á frumstigum rannsóknar enda gert í tryggingaskyni. Það hafi litla þýðingu að beita kyrrsetningu þegar menn hafi haft tíma til að meta stöðu sína og skjóta undan ávinningi.
Kynferðisofbeldi friðargæsluliða er ólíðandi Í liðinni viku bárust fregnir af nýrri skýrslu, þar sem kom fram að ásakanir um kynferðisbrot á hendur friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna hefðu aukist um þriðjung í fyrra. Þá var tilkynnt um 69 tilfelli en hætt er við að raunveruleg tala sé jafnvel hærri. Skýrslan hefur orðið til þess að auka gagnrýni á Sameinuðu þjóðirnar, fyrir það hversu slælega samtökin hafa brugðist við síendurteknum ásökunum af þessu tagi. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-Moon, hvatti þjóðir heims til þess að breyta lögum sínum, þannig að hægt yrði að sækja friðargæsluliða til saka fyrir kynferðisbrot sem þeir fremdu, en friðargæsluliðar lúta alltaf lögum heimaríkis síns. Sum ríki hafa meira að segja sett sérstök lög sem veita friðargæsluliðum friðhelgi. Þá hvatti framkvæmdastjórinn til þess að tekinn yrði upp gagnagrunnur með DNA-upplýsingum allra friðargæsluliða og að flýta ætti rannsókn slíkra mála. Óvíst er hvort þessar umbótahugmyndir verða samþykktar, en ljóst er að til einhverra ráða verður að grípa. Sameinuðu þjóðunum ber að koma í veg fyrir slíkt ofbeldi, ekki aðeins til að koma í veg fyrir að fórnarlömbum friðargæsluliða fjölgi, heldur einnig til að gæta að eigin orðspori.
Bayern München vann Hansa Rostock með sjálfsmarki en fengu þrjú stig og eru búnir að koma sér þægilega fyrir, fyrir ofan Dortmund sem gerðu markalaust jafntefli við Arminiu Bielefeld. Þórður Guðjónsson og félagar í Bochum töpuðu enn einu sinni í dag og var það fyrir Wolfsborgurum. Kaiserslautern heldur sinni siglingu áfram og varð hið fallna veldi Leverkusen fyrir barðinu á þeim og var það hinn þýsk-pólsi Klose sem skoraði eina mark leiksins. Önnur úrslit eru sem hér segir og eru hálfleikstölur inni í sviga. Laugardagur, 22. mars. Bor. M'gladbach - Hamburger SV 2 : 0 ( 0 : 0 ) VfL Wolfsburg - VfL Bochum 2 : 0 ( 2 : 0 ) FC Schalke 04 - 1860 München 1 : 1 ( 1 : 1 ) Bayern München - Hansa Rostock 1 : 0 ( 0 : 0 ) Arminia Bielefeld - Borussia Dortmund 0 : 0 Werder Bremen - Hannover 96 1 : 2 ( 1 : 1 ) 1. FC Kaiserslautern - Bayer Leverkusen 1 : 0 ( 1 : 0 ) Sunnudagur, 23. mars VfB Stuttgart - 1. FC Nürnberg 0 : 2 ( 0 : 1 ) Hertha BSC - Energie Cottbus 3 : 1 ( 0 : 1 ) Eftir 26 umferðir er röð liða í bundesligunni svona og eru stig í fyrir aftan. 1 Bayern München 62 2 Borussia Dortmund 47 3 VfB Stuttgart 46 4 Hertha BSC 42 5 Hamburger SV 40 6 FC Schalke 04 39 7 Werder Bremen 37 8 VfL Wolfsburg 35 9 1860 München 34 10 Hannover 96 32 11 1. FC Kaiserslautern 31 12 Arminia Bielefeld 31 13 Hansa Rostock 31 14 VfL Bochum 30 15 Bor. M'gladbach 29 16 1. FC Nürnberg 28 17 Bayer Leverkusen 27 18 Energie Cottbus 23
Eftir Andrés Skúlason Djúpivogur | Nýr vegur um Öxi er nú í hönnunar - og matsferli. Mikil ánægja er með þetta verkefni og stuðning samgönguráðherra við það, á opnum fundi sem Kristján Möller efndi til á Djúpavogi. Ráðherra fór yfir stöðu vegamála á svæðinu og framkvæmdir næstu árin, ásamt Guðmundi Heiðrekssyni frá Vegagerðinni. Athygli heimamanna beindist mest að nýrri stórframkvæmd á veginum um Öxi sem ráðherra sagðist afar stoltur að geta tilkynnt heimamönnum að væri ákveðin. Vegurinn um Öxi hefur lengi verið baráttumál íbúa Djúpavogs. Stefnt er á að útboð á veginum geti farið fram á haustdögum 2009 og eru verklok áætluð síðla árs 2011. Á fundinum var einnig farið yfir stöðu fjarskiptamála, en mikil þörf er m.a. á átaki í háhraðanettengingum í dreifbýli á svæðinu svo bæði bændum og ferðaþjónustunni séu sköpuð heilbrigð samkeppnisskilyrði á þessu sviði. Ráðherra greindi frá því að útboð væru að fara í gang vegna háhraðanettenginga í dreifbýli víða um land og vænta mætti byltingar á þessu sviði á næstu misserum. Fundurinn var vel sóttur og fóru gestir hinir ánægðustu af honum. Segja má að í Djúpavogshreppi ríki meiri bjartsýni meðal heimamanna í málefnum samgöngu - og fjarskiptamála eftir heimsókn ráðherra.
Ólíklegt er að þingkosningar verði haldnar í Írak í janúar eins og stefnt hefur verið að. Þetta sagði Faraj Haidari, formaður yfirkjörstjórnar í Írak, í morgun.
Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, hefur ákveðið að láta af störfum 1. apríl nk. Embætti ríkissaksóknara verður auglýst á næstu dögum. Valtýr sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði fyrir alllöngu átt rétt á að hætta störfum og hann hefði nú ákveðið að óska eftir að hætta. Það gerir hann með vísun til ákvæða laga. Réttindi ríkissaksóknara við starfslok eru þau sömu og hæstaréttardómara. Valtýr verður 66 ára á þessu ári. Hann hefur verið ríkissaksóknari í þrjú ár. Þar áður var hann forstöðumaður Fangelsismálastofnunar og þar á undan borgarfógeti og dómari. Embætti ríkissaksóknara verður 50 ára í sumar. Þegar embættið var stofnað var ákæruvaldið flutt frá dómsmálaráðuneytinu til þessa nýja embættis. Tilgangurinn var að auka sjálfstæði ákæruvaldsins.
Tvær konur og einn karl voru handtekin í gærkvöldi í Mölndal í Svíþjóð. Þau eru grunuð um að hafa reynt að myrða karlmann. Hann fannst með áverka sem benda til að hann hafi verið stunginn. Fórnarlambið var flutt á sjúkrahús en er ekki talið í lífshættu. Tilkynnt var um slagsmál við hús í Mölndal um klukkan 22 í gærkvöldi. Þegar lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir særða manninn. Mann var meðal annars með áverka á höfði og handlegg. Hann var fluttur á sjúkrahús en er ekki í lífshættu. Tvær konur og karl voru handtekin á vettvangi. Þau sögðu að maðurinn hefði dottið og meiðst en hann sagði sjálfur aðra sögu. Við handtökuna fannst hnífur á annarri konunni. Aftonbladet skýrir frá þessu.
„ Ég kann vart önnur dæmi um svo mikil áhrif eins viðburðar í íslenskum stjórnmálum, “ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, um Icesavedóminn í janúar, sem hann telur að hafi haft úrslitaáhrif á kosningabaráttuna sem lýkur formlega í dag með alþingiskosningum. Fyrstu kjörstaðir opna nú kl 9 og verður þeim síðustu lokað kl. 22 í kvöld. Um leið má búast við fyrstu tölum. Fylgst verður með þróun mála á kosningadag og kosninganótt á Eyjunni og Pressunni í fréttum og beinum textalýsingum, sem hafa notið svo mikilla vinsælda. Gunnar Helgi fjallar um kosningabaráttuna í samtali við Morgunblaðið í dag. Hann segir að framan af kosningabaráttunni hafi Sjálfstæðisflokkurinn haft nokkra yfirburðastöðu, en með Icesave-dómnum hafi hlutföll milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks raskast. Framsókn tók afgerandi forystu og aðeins á síðustu dögum hafi sjálfstæðismönnum tekist að stöðva minnkandi fylgi, ekki síst í kjölfar umtalaðs viðtals við Bjarna Benediktsson, formann flokksins, í Ríkissjónvarpinu. Í könnun Capacent Gallup, sem greint var frá í Ríkisútvarpinu í gærkvöldi, hefur Sjálfstæðisflokkurinn nú tekið forystuna og mælist með 27,9% fylgi, Framsókn 24,7%, Samfylkingin 14,6%, Vinstri græn með 10%, Björt framtíð 6,6% og Píratar 6,1%. Eins og staðan er nú, bendir flest til þess að stærsti ósigur kosninganna falli í skaut Samfylkingarinnar. Gunnar Helgi telur sig hafa skýringar á því : „ Ég hugsa að Samfylkingin hafi gleymt að undirbúa sig fyrir kosningabaráttuna. Hún veðjaði miklu á stjórnarskrármálið og lofaði í raun og veru stuðningsmönnum sínum mjög miklu í því máli, sem hún stóð svo ekki við. Það er eins og hún hafi verið þess fullviss að hún þyrfti ekkert annað í kosningum. Það held ég að hafi verið mikil mistök. Fylgi Lýðræðisvaktarinnar sýnir að kjósendur eru mun uppteknari af öðrum málum núna og stjórnarskrármálið var alls ekki jafnlangt komið og ýmsir af forystumönnum Samfylkingarinnar vildu vera láta, “ segir hann. Gunnar Helgi bætir því við að Samfylkingin hafi sýnt dómgreindarbrest í aðdraganda kosningabaráttunnar að halda að á tímum mikillar kreppu myndu kjósendur leggja megináherslu á stjórnarskrármálið. „ Það held ég að hafi verið eitt stærsta glappaskot sem ég man eftir í pólitík, “ segir hann.
Á hverjum mánudegi eru kynntir til sögunnar Tvífarar vikunnar hér á fótbolti.net. Þá finnum við tvífara einhvers sem tengist fótboltanum og birtum myndir af þeim hlið við hlið. Þessi liður er mjög vinsæll hér á síðunni en tillögur að tvíförunum koma frá lesendum. Að þessu sinni höfum við fundið tvífara Steve McManaman leikmanns Real Madrid sem að öllum líkindum er á förum frá félaginu. Smellið á Tvífarar til að sjá tvífara McManaman. Endilega sendið tillögur að tvíförum vikunnar á [email protected]. '
Ágúst Ingi Jónsson [email protected] Vísindin eru í forgrunni í loðnuleiðangri Kap VE 4, skips Vinnslustöðvarinnar, sem hófst á miðvikudagskvöld. Fylgst verður með hrygningu loðnunnar auk þess sem sýni verða tekin fyrir sunnan, vestan og norðan land, sem nýtast við líffræðilegar rannsóknir. Ekki eru væntingar um að leiðangurinn leiði til þess að veiðikvóti verði gefinn út, að sögn Guðmundar J. Óskarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunnar. Um samvinnuverkefni stofnunarinnar og útgerða uppsjávarskipa er að ræða og er Birkir Bárðarson, fiskifræðingur, leiðangursstjóri um borð í Kap. Byrjað var út af Vík, en ekki hafa verið fréttir um loðnu síðustu daga þar fyrir austan. Í gær var Kapin komin vestur fyrir Reykjanes og er ráðgert að skipið fikri sig með ströndinni vestur á bóginn og inn á Faxaflóa og Breiðafjörð. Síðan verður farið norður fyrir land og er ráðgert að leiðangrinum ljúki í lok næstu viku. Leita upplýsinga í kjarna í kvörnum loðnunnar Síðustu ár hefur orðið vart aukinnar hrygningar fyrir norðan land, en hefðbundið hrygningarsvæði loðnunnar síðustu áratugi hefur verið fyrir sunnan land og vestan. Guðmundur segir að miðað við breytileika á milli loðnumælinga í febrúar sé líklegast töluvert umfangsmikil hrygning norðan lands. Hann segir að reynt verði að kortleggja hrygninguna og hvað mikið hrygni á hvaða svæðum. Reynt verður að fá samanburð á loðnu sem hrygnir fyrir norðan land og á öðrum svæðum. Í því skyni verður ýmsum efnafræðilegum sýnum safnað, að sögn Guðmundar. Meðal annars sé rannsókn í gangi þar sem reynt er að lesa upplýsingar um klaksvæði loðnunnar úr kjarna í kvörnum hennar. Efnasamsetning í kjarna kvarna geti verið breytileg milli svæða og mögulega hægt að rekja hvar fiskurinn hafi klakist út sem lirfa og alist upp. Rannsókn á loðnulirfum sé einnig í gangi og þegar upplýsingar liggi fyrir um hversu mikil hrygning sé verði vonandi hægt að setja það í samhengi við hversu mikið lifir af á hvoru svæði.
Benedict Andrews leikstýrði uppfærslu á Cat on a Hot Tin Roof eftir Tennessee Williams í Young Vic leikhúsinu í London. Sýningin verður í beinni útsendingu í Bíói Paradís á laugardags - og sunnudagskvöld. Benedict Andrews er ástralskur leikstjóri, búsettur í Reykjavík en starfar í London og víðar um veröldina. Aðspurður um ástæðu þessa heimshornaflakks segir hann svarið auðvitað vera ástina. En þrátt fyrir að hann starfi mest erlendis gefst Íslendingum nú um helgina kostur á að sjá sýningu á Cat on a Hot Tin Roof eftir bandaríska leikskáldið Tennessee Williams í leikstjórn Andrews. Sýningin verður í beinni útsendingu frá Young Vic leikhúsinu í London í Bíói Paradís bæði laugardags - og sunnudagskvöld kl. 20. Cat on a Hot Tin Roof ( Köttur á heitu blikkþaki ) er eitt þekktasta verk Tennessee Williams og Andrews segir að óneitanlega feli þetta í sér mikla áskorun. „ Minn skilningur felur það í sér að allir í þessu verki eru undir hælnum á persónunni Big Daddy sem minnir einna helst á Lé konung þar sem allt er knúið áfram í gegnum hann. Þetta er eins og risavaxin vél í meðförum Williams þar sem tannhjólin eru óstöðvandi og persónurnar fá lítið sem ekkert við ráðið. Fyrir vikið verður þetta eins og línudans fyrir persónurnar og línan er strengd yfir hyldýpi. Williams sér líka til þess að persónurnar skynja þetta hyldýpi og með sama hætti þá verða leikararnir líka tæknilega meðvitaðir um að fallið er hátt. Þeir verða stöðugt að leggja allt í sölurnar tilfinningalega. “ Hlutverk leikstjórans Fbl _ Megin : Andrews bætir við að innan hefðbundinna þriggja þátta verksins sé engu að síður mjög sérstök uppbygging. Persónurnar streymi fram á sjónarsviðið í fyrsta þætti og áherslan sé á fund Maggie og Bricks. En innkoma Big Daddy og átökin á milli hans og Bricks í öðrum þætti séu líkast til besti leiktexti nútíma leikritunar. Þriðji þátturinn er svo um margt mjög sérstakur uppgjörsþáttur. „ Ég nálgaðist þetta óneitanlega aðeins út frá því að ég hef tvisvar leikstýrt A Streetcar Named Desire eftir Williams, einu sinni í Þýskalandi og svo í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Mér finnst að það hafi gefið mér ákveðna tilfinningu fyrir skáldskap hans og hvernig hann nálgaðist leikhúsið sem tæki til þess að rannsaka manneskjuna. Mér fannst vera fólgið í þessu ákveðið tækifæri til þess að skoða hvað er líkt með þessum verkum og taka þetta svo þaðan. Hvað leikarana varðar þá vildi ég skapa þeim rými og svigrúm til þess að takast á við þessar stóru amerísku erkitýpur. Þessar sterku, sjálfmiðuðu og karllægu amerísku persónur sem á sama tíma eru svo brothættar og jafnvel brotnar undir sinni hörðu skel. Þarna nálgumst við kjarna verksins sem er hvernig fólk sem lifir í lygi er þvingað til þess að horfast í augu við sannleikann. Mitt markmið er að hjálpa frábærum leikurum til þess að finna sannleikann í þessu á sama tíma og ég reyni að setja á svið þessa afhjúpun og láta hana tala inn í okkar samtíð. Taka þetta í sundur og afhjúpa þessa mannlegu eiginleika sem ná langt yfir öll tímaskeið og landsvæði ef út í það er farið. Það er hlutverk leikstjórans að taka verkið inn í samtímann og láta það enduróma þar. “ Eflir leikhúsið Fbl _ Megin : Leikhús er upplifun sem, eins og Andrews segir sjálfur, snýst um að vera á staðnum en hvernig finnst honum það samræmast því að vera með beina útsendingu þaðan? „ Leikhúsið er staður sem við förum á til þess að vera á sama stað og leikararnir og allt sem þeim fylgir. Ég elska leikhúsið en ég elska líka kvikmyndalistina en þetta eru tvö gjörólík listform. Fbl _ Megin : Þessi nýja leið, að sjónvarpa leikhúsinu, er eitthvað annað og eitthvað nýtt. Það er eitthvað alveg sérstakt við þetta og ég svona sannfærðist um þetta þegar ég horfði á útsendingu á minni eigin uppfærslu á A Streetcar Named Desire ásamt fullt af leikhúsfólki og vinum hérna heima. Þetta vakti með mér bæði einhverjar sjálfselskar tilfinningar út frá því að fólk í Sydney og Reykjavík gæti verið að horfa á uppfærslu eftir mig í London og taka þátt í umræðunni. En hitt sem er mikilvægt við þessa leið er að hún þykist ekki vera eitthvað annað en hún er. Bein útsending frá viðburði. Þegar Ísland fer og spilar á HM í Rússlandi og gengur vonandi vel þá er hætt við að við komumst ekki öll á völlinn. Sum okkar verða á Arnarhóli eða fyrir framan sjónvarpið. Þessar sýningar í Bíói Paradís eru einmitt þetta. Leið til þess að vera nánast á staðnum og taka þátt í upplifuninni og mér finnst það frábært. Ég held meira að segja að þetta hvetji fólk til þess að fara svo meira í leikhús. “ Andrews leggur áherslu á að hann sé ekkert að leikstýra þessu sérstaklega. „ Ég vann mína vinnu í leikhúsinu og svo kemur allt annað teymi inn til þess að sjá um þessa útsendingu. Við ræddum bara mínar áherslur, ég fékk að sjá prufutöku og gaf mínar nótur og þar með var þetta komið. Þannig að á laugardagskvöld verð ég með mínu fólki í Bíói Paradís á sýningunni og ég er bara farinn að hlakka til. “ Þess má geta að eftir sýninguna á laugardagskvöldið verður spurt og svarað með Benedict Andrews en Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagnrýnandi Fréttablaðsins, stýrir umræðunum.
Kamilla er íslenskt kvenmannsnafn.
Dreifing á Íslandi.
Rappstjarnan The Game gæti átt yfir höfði sér kæru eftir að hann birti símanúmer lögreglustöðvar í Compton í Los Angeles á Twitter-síðu sinni. Rapparinn sem heitir réttu nafni Jayceon Terrell Taylor lét þau skilaboð fylgja Twitter-færslunni til rúmlega 580 þúsund fylgismanna sinna á samskiptasíðunni að ef þeir vildu gerast lærlingar hjá honum yrðu þeir að hringja í númerið. Númerið reyndist, sem fyrr segir vera, neyðarlína lögreglunnar í Compton og fór símkerfið gjörsamlega á hliðina í rúmar tvær klukkustundir. Lögreglan staðfestir í samtali við vef Los Angeles Times að Taylor gæti verið kærður og síðar ákærður þegar lögreglan væri búin að senda málið til saksóknara líkt og til stendur að gera.
Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en þar bar helst að Utah mátti þola 45 stiga tap fyrir Houston á heimavelli. Þetta er mesta tap Utah á heimavelli í sögu félagsins en liðið hafði unnið síðustu sex leiki sína á undan í Salt Lake City. Gamla metið var 33 stiga tap fyrir Milwaukee árið 1980. Það gekk fátt upp hjá Utah í leiknum og skotnýtingin var aðeins 39,5 prósent. Houston hafði örugga forystu allan leikinn og jók forystuna eftir því sem á leið. James Harden skoraði 25 stig fyrir Houston og Omer Aik var með nítján fráköst í leiknum. Randy Foye var stigahæstur í liði heimamanna með 12 stig. Denver vann nauman sigur á Indiana, 102 - 101, þar sem Andre Iguodala tryggði sigur liðsins af vítalínunni á lokasekúndu leiksins. Hann hafði stolið boltanum skömmu áður. Hann var alls með þrettán stig, tíu fráköst og sjö stoðsendingar í leiknum. Chicago vann sinn sjöunda sigur í níu leikjum þegar að liðið vann Charlotte, 93 - 85. Jimmy Butler skoraði nítján stig sem er persónulegt met. Úrslit næturinnar : Toronto - Golden State 102 - 114 Philadelphia - Memphis 100 - 103 Washington - Sacramento 94 - 96 Brooklyn - Orlando 97 - 77 Chicago - Charlotte 93 - 85 Denver - Indiana 102 - 101 Utah - Houston 80 - 125
Ali Abdullah Saleh, forseti Jemens, hefur samþykkt að láta af embætti eftir 32 ár við völd. Samkvæmt sáttatillögum verða honum og fjölskyldu hans gefnar upp sakir og þeim veitt friðhelgi ævilangt.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flaug út til Svíþjóðar í morgun ásamt Svein Harald Øygard seðlabankastjóra til þess að ræða lánasamninga sem Norðurlöndin hafa heitið okkur. Jón Sigurðsson, formaður viðræðunefndar íslenska ríkisins um gjaldeyrislánasamninga, er einnig með í för en í þessari lotu er rætt við hóp sem samanstendur af hinum Norðurlöndunum fjórum. Það eru semsagt Noregur, Finnland, Danmörk og Svíþjóð en Svíar fara fyrir þessum hópi. Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir ráðgjafi fjármálaráðherra segir að um sé að ræða lán sem vinaþjóðir Íslands hafi heitið að veita okkur. Hún segir ennfremur að þeir félagar komi heim á morgun.
Tólf ára drengur lést í Greenwich í New York í dag en hann var að byggja snjóvirki þegar hann varð undir snjóbakka. Yfirvöld segja mögulegt að snjóruðningsmenn hafi óafvitandi losað hundruð kílóa af snjó á hann. Annar drengur var grafinn lifandi úr snjónum. Strákarnir voru að leika sér á lóð þar sem snjó er vanalega skilað eftir mokstur, þegar opinberir starfsmenn losuðu snjófarg dagsins. Að sögn drengsins sem lifði, heyrði hann bakkhljóð í bíl áður en allt varð svart. Leit hófst þegar drengjanna var saknað en leitarhundur fann sleðann þeirra. Lögreglustjórinn George Bell sagði að leitarmenn hefðu líklega fjarlægt um sjö tonn af snjó á tíu mínútum þegar þeir hófu að grafa eftir strákunum. Drengurinn sem lést var meðvitundarlaus þegar hann fannst. Lífgunartilraunir báru ekki árangur og var hann lýstur látinn á Saratoga-sjúkrahúsinu. Í frétt Washington Post er rifjað upp annað atvik þar sem dauðsfall varð af völdum snjómoksturs. Þá lést hinn 56 ára David Perrotto í bifreið sinni, eftir að snjómokstursvél gróf snjó yfir bílinn og útblástursrörið. Bifreiðin var í gangi.
Japönsk hlutabréf lækkuðu um 0,47% í dag, Nikkei-vísitalan lækkaði um 53,17 stig og er því 11.217,45 stig.
„ Það er vandasamt að ræða og fjalla um erfið og viðkvæm mál, ekki síst kynferðisbrot. Kirkjan getur ekki, frekar en nokkur annar, leyft sér að stinga höfðinu í sandinn og það er afar mikilvægt að hún reyni stöðugt að bæta viðbrögð sín og spyrji sjálfa sig áleitinna spurninga, “ skrifar Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands í tilkynningu sem birt er á Facebook-síðu biskupsembættisins í dag. Þar bregst hún við umfjöllun DV um mál séra Þóris Stephensen sem viðurkenndi kynferðisbrot gegn barni sem átti sér stað er hann var ungur. Engu að síður veitti kirkjan honum vettvang til predikana eftir játninguna og hann tók þátt í athöfnum kirkjunnar. Séra Agnes skrifar : „ DV gerir í dag að umfjöllunarefni mál frá miðri síðustu öld, þar sem ungur maður braut kynferðislega gegn barni. Atvikið varð ekki opinbert á sínum tíma, en markaði djúp spor í sál þolandans. Gerandinn varð síðar prestur og starfaði fyrir kirkjuna í áratugi. Fyrir fáeinum árum – eftir að maðurinn lét af preststörfum – leitaði þolandinn til fagráðs kirkjunnar um meðferð kynferðisbrota og óskaði eftir hjálp við að græða sárið sem ekki hafði lokast á rúmum 60 árum. Fagráðið tók beiðni þolandans vel, enda er það ófrávíkjanleg regla okkar að veita þolendum alla þá aðstoð sem þeir óska eftir. Í umfjöllun sinni gagnrýnir DV, að kirkjan hafi ekki tekið fastar á þessu gamla máli. M.a. er gagnrýnt að gerandinn skuli ekki útskúfaður úr kirkjulegu starfi, að honum sé boðið að mæta til viðburða sem allir fyrrverandi prestar eru boðnir til o.s.frv. Slíka gagnrýni tökum við til okkar. “ Yfirlýsinguna má lesa í heild hér.
Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, er væntanlegur í heimsókn til Íslands á fimmtudag til viðræðna við íslensk stjórnvöld um ýmis mál, þar á meðal um Evrópumál. Í tilkynningu frá norska utanríkisráðuneytinu segir, að það séu einkum málefni tengd heimskautinu, sem verði á dagskrá funda Gahr Støres á Íslandi. Einnig muni hann ræða um norræna samvinnu, Evrópska efnahagssvæðið og Evrópumál. Hann mun m.a. eiga fund með Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og utanríkismálanefnd Alþingis. Þá mun ráðherrann taka þátt í opnum fundi í Háskólanum á Akureyri um norðursvæðið og opna sýningu um norska landkönnuðinn Fridtjof Nansen.
Bikarkeppni karla í knattspyrnu lýkur í dag með viðureign Þórs og KR á Laugardalsvellinum. Þór á nú í fyrsta sinn möguleika á að hampa bikarmeistaratitli og dómari flautaði til leiks núna fyrir fáeinum sekúndum klukkan fjögur. Haukur Harðarson er á staðnum. Haukur, í blíðu veðri, hvernig er stemmingin? Haukur Harðarson : Já, það er rétt, það er nánar tiltekið 39 sekúndur síðan Valgeir Valgeirsson, dómari, flautaði hérna til leiks. KR-ingar eru í appelsínugulum varabúningum á meðan Þórsarar eru í hvítum. Stemmingin er eins og þú heyrir væntanlega alveg frábær. Það er fullt, fullt af rauðklæddum Norðanmönnum í stúkunni og þeir hafa eiginlega látið mun betur í sér heyra ef ég á að segja alveg eins og er en það er kannski aðeins betur mætt í svarthvíta helmingnum enda styttra að fara en það er ljóst að Akureyringar hafa verið duglegir að fjölmenna hér og styðja við sitt lið. Leikurinn byrjar bara með talsverðum látum og hérna rétt í þessu var Þór hreinlega í ágætis marktækifæri en það eru slæmar fréttir fyrir KR-inga því rétt fyrir leik þá ákvað Bjarni Guðjónsson að hann gæti ekki verið með í þessum leik vegna meiðsla, fyrirliði KR-inga og það er heldur betur skarð fyrir skildi en annars er allt í góðum gír hér á Laugardalsvellinum, blíðviðri, góð stemming og aldrei of seint að mæta á völlinn og við skiptum yfir í Efstaleiti aftur.
Einn maður gisti fangageymslur lögreglunnar á Akranesi um helgina sökum ölvunar. Lögregla var kölluð til að skemmtistað þar sem maður var sagður æstur og ógnandi í hegðun. Þegar lögreglu bar að garði réðist maðurinn að lögreglubifreiðinni og lamdi hana utan og ógnaði svo lögreglumönnunum sem höfðu komið á vettvang. Var hann því handtekinn og færður í fangaklefa þar sem hann svaf úr sér mestu vímuna. Aðfaranótt 21. apríl var tengdamömmubox á bifreið, sem stóð við Jaðarsbraut, brotið upp og þaðan stolið skíðabúnaði. Tvennum barnaskíðum, skóm og öðrum búnaði sem var í boxinu var stolið. Ef einhver hefur orðið var við einhvern sem gekk um götur bæjarins með skíðabúnað aðfaranótt 21. apríl er viðkomandi beðinn að setja sig í samband við lögregluna á Akranesi.
Yfirtraka íslenska ríkisins á lífeyrisskuldbindingum starfsmanna Sementsverksmiðjunnar, frá því hún var í ríkiseigu, braut ekki í bága við EES-samninginn, að mati Eftirlitsstofnunar EFTA ( ESA ). Stofnunin telur að um hafi verið að ræða ríkisstyrk sem veittur var vegna endurskipulagningar fyrirtækisins. Þessi aðgerð hafi verið í samræmi við leiðbeinandi reglur um aðstoð vegna björgunar eða endurskipulagningar rekstrar frá 1999. Aalborg Portland kærði söluna Íslenska ríkið seldi Sementsverksmiðjuna árið 2003 fyrirtækinu Íslensku sementi hf. sem nú er í eigu BM Vallár, Björgunar, Brúar Venture Capital og norsku sementsverksmiðjunnar Norcem AS. Söluverðið var 68 milljónir króna en ríkissjóður yfirtók m.a. lífeyrisskuldbindingar sem metnar voru á rúmar 400 milljónir. Þessar skuldbindingar höfðu stofnast meðan verksmiðjan var í opinberri eigu. Aalborg Portland kærði sölu Sementsverksmiðjunnar til ESA sem gerði ekki athugasemd við hana. Þá kærði Aalborg Portland yfirtöku ríkisins á fyrrgreindum lífeyrisskuldbindingum. Þorsteinn Víglundsson, forstjóri BM Vallár og stjórnarmaður í Sementsverksmiðjunni hf., var mjög ánægður með að niðurstaða væri loksins fengin. Hann sagði það hafa tekið langan tíma að ljúka málinu. " Eins og við héldum alltaf fram var niðurstaða ESA á þá leið að þótt ríkisstyrkur hafi verið fólginn í þessari niðurfellingu lífeyrisskuldbindinga þá hafi hann verið óverulegur og innan þess ramma sem heimilt er, " sagði Þorsteinn. Bjarni Ó. Halldórsson, framkvæmdastjóri Aalborg Portland Ísland ehf., kvaðst fagna því að fengin væri niðurstaða í málinu eftir langan tíma. Hann sagði niðurstöðu ESA vekja sér meiri furðu en vonbrigði.
Loðnuvertíð eftir áramót er í óvissu. Talið er að loðnustofninn sé í lægð og hefur Hafrannsóknastofnun ekki fundið nægilegt magn af loðnu til þess að mæla með upphafsaflaheimildum á vertíðinni í vetur en henni lýkur venjulega á útmánuðum. Þá fannst ekkert af loðnu sem ætti að bera uppi veiðina haustið og veturinn 2009 - 2010 í leiðangri nýverið. Hið jákvæða við loðnurannsóknirnar nú er hins vegar að í haust fannst talsvert af loðnuseiðum, sem koma inn í veiðina á vertíðinni 2010 - 2011. Vísbendingar eru um að þorskstofninn sé að braggast. Fiskifræðingar vilja þó ekki enn slaka á klónni hvað varðar aukna veiði, enda markmiðið með uppbyggingu stofnsins enn ekki í höfn. Þeir telja einnig meiri rannsóknir nauðsynlegar áður en ráðlegt sé að auka þorskaflann. Meta þurfi öll fyrirliggjandi gögn um stofninn og bíða þurfi niðurstöðu umfangsmeiri stofnmælingar í mars til að sjá betur hver hin raunverulega aukning á hrygningarstofni sé. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, segir að í haustmælingum á botnfiski hafi komið í ljós að heldur meira hafi verið af loðnu í maga þorsks en þegar minnst var fyrir nokkrum árum. Hins vegar hafi magn loðnuseiða í mælingum í haust takmarkað spágildi um hvað verður þegar árgangurinn ætti að koma inn í veiðina eftir tvö ár þótt mikil mergð seiða sé alltaf jákvæð vísbending. mbl.is
Einn þekktasti skíðamaður heims um þessar mundir, Ivica Kostelic frá Króatíu, er á leið hingað til lands og tekur þátt í fismótaröð í Bláfjöllum sem haldið verðu á vegum Skíðaráðs Reykjavíkur ( SKRR ) og hefst á morgun. Kostelic hafnaði í 4. sæti í heimsbikarkeppninni á skíðum sem er nýlokið. Systir hans, Janica, verður með bróður sínum í för en hún er hætt keppni. Janica vann allt sem hægt var að vinna í skíðaheiminum á sínum ferli. Einnig kemur Urs Imboden en hann er frá Sviss en keppir í dag fyrir Makedóníu. Imboden hefur hann verið einn af fremstu svigmönnum heims í mörg ár. Einnig koma " Íslandsvinirnir " þeir Magnus Anderson og Fredrik North frá Svíþjóð, en þeir hafa átt fast sæti í Evrópubikarliði Svíþjóðar undanfarin ár. Þeir kepptu á nokkrum heimsbikarmótun í vetur, þar fyrir utan koma keppendur frá Slóveníu, Kosovo, Noregi og Úsbekistan svo eitthvað sé nefnt. Í kvenna flokki koma þær Anna Maria Muller frá Noregi og Sara Hjartman frá Svíþjóð. Mótin verða eftir hádegi á þriðjudag og á miðvikudag brautarskoðun hefst kl 15.00 báða dagana í svigi þannig að skíðaáhugafólk ætti að drífa sig í Bláfjöll til að horfa á þessa frábæru skíðamenn og konur etja kappi við okkar besta skíðafólk.
645 féllu fyrir hendi brasilískra lögreglumanna í fyrra. Mannréttindasamtökin Amnesty International vara við vaxandi ofbeldi af hálfu lögreglunnar í aðdraganda sumarólympíuleikanna sem hefjast í Ríó de Janeiro 5. ágúst. Í frétt á vef Amnesty Internationalkemur fram að í fátækrahverfum borgarinnar hafi að minnsta kosti ellefu fallið fyrir skotum lögreglu það sem af er þessum mánuði. Í borginni allri hafi að minnsta kosti 307 fallið síðasta árið fyrir skotum lögreglu. Eitt af hverjum fimm manndrápum og morðum í borginni, er framið af lögreglunni. Þeir ábyrgu séu þó sjaldan dregnir til ábyrgðar og yfirleitt fari engin rannsókn fram á drápum lögreglunnar. Þá segir Amnesty að brugðist sé við friðsamlegum mótmælum af sífellt meiri hörku. Gúmmíkúlum, höggsprengjum og jafnvel byssukúlum er beitt gegn mótmælendum. Amnesty International segir að yfirvöld komi fram við mótmælendur eins og óvini ríkisins. Engar reglur eða leiðbeiningar séu í gildi um beitingu vopna sem ekki eru banvæn. Mjög skorti einnig á þjálfun lögreglumanna í að beita öðrum ráðum að að skjóta að fólki. Amnesty bendir á að hætt sé við að nýjum lögum gegn hryðjuverkum verði beitt gegn mótmælendum og baráttufólki. Lögin voru samþykkt í febrúar á þessu ári. Amnesty segir að lögin þrengi að fundafrelsi og feli þannig í sér ógn við mótmælendur og fjöldahreyfingar.
Mikill titringur er innan Vinstri grænna eftir að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lýsti yfir að hann vilji fella niður ákæruna gegn Geir Haarde. Samflokksmenn ráðherrans segja hann á hálum ís og einn þeirra kallar eftir afsögn. Ögmundur lýsti því í blaðagrein í gær að hann styðji tillögu þess efnis að málið gegn Geir Haarde fyrir Landsdómi verði fellt niður. Sjálfur hafi hann gert mistök með því að styðja það að Geir yrði einn ákærður. Þessi afstaða hans hefur valdið miklum titringi innan flokksins. „ Mér finnst það snúið fyrir dómsmálaráðherra að vera þeirrar skoðunar að það sé hægt að hafa áhrif á dómsmál með þessum hætti, “ sagði Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG í viðtali við fréttastofu RÚV. Aðspurður hvort hann hafi ekki sagt að þessi afstaða jafngildi afneitun á hruninu sagði hann : „ Ef stjórnmálamenn ætla ekki að gera upp sinn þátt í hruninu, hver sem hann er og hver sem niðurstaðan af því verður, getum við ekki krafist þess af öðrum, “ sagði Björn Valur. Þráinn Bertelsson, þingmaður VG, lýsti þeirri skoðun sinni í dag að Ögmundur ætti að segja af sér fyrst hann, sem ráðherra dómsmála telur eðlilegt að stöðva dómstól sem tekinn er til starfa. Ögmundur segir Landsdómsmálið ekki sambærilegt við önnur dómsmál. „ Landsdómur lýtur allt öðrum lögmálum en önnur dómsmál gera. Hér er ákærandinn Alþingi. Og ef ég get ekki tekið afstöðu sem alþingismaður til málsins, þá er aldeilis illa komið, “ sagði Þráinn í viðtali við fréttastofu RÚV. „ Ég er ekki þeirrar skoðunar að mér beri að segja af mér. Ef einhver er þeirrar skoðunar eigum við ekki að greiða atkvæði í þinginu? “ sagði Ögmundur Jónasson. En er afstaða Ögmundar afneitun á hruninu, eins og Björn Valur hefur lýst? „ Það er bara hlægilegt, það er bara rugl, “ sagði Ögmundur.
Stjórn VALITOR hefur gengið frá ráðningu Viðars Þorkelssonar í stöðu forstjóra félagsins. Í tilkynningu segir að Viðar Þorkelsson hafi að undanförnu gegnt stöðu forstjóra Reita fasteignafélags. Hann hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu jafnt úr fjármálageiranum sem og rekstrarfélögum. Hann var um árabil svæðisstjóri og útibússtjóri Landsbanka Íslands og hefur gegnt stjórnunarstöðum hjá rekstrarfélögum eins og Vodafone og 365. Viðar lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Peter F. Drucker Management Center í Bandaríkjunum 1993. Hann er giftur Sigríði Svövu Þorsteinsdóttur og eiga þau 3 börn. „ Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að taka við stjórn VALITOR, sem er öflugt fjármálafyrirtæki með sterkan hóp starfsfólks og stjórnenda. Mín bíður það hlutverk að halda áfram að þróa starfsemi og stefnu félagsins í samstarfi við stjórn og starfsfólk og byggja á þeim góða grunni sem fyrir er. Það er í senn spennandi og krefjandi verkefni, " Viðar Þorkelsson, nýr forstjóri VALITOR í tilkynningunni. Stjórn VALITOR þakkar Höskuldi H. Ólafssyni fráfarandi forstjóra mjög góð störf í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
CELTIC lagði Glasgow Rangers í grannaslagnum í Skotlandi á laugardag með tveimur mörkum gegn engu á Celtic Park. Thomas Gravesen skoraði fyrra mark Celtic á 35. mínútu og Kenny Miller bætti við öðru markinu stundarfjórðungi fyrir leikslok. Celtic er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 19 stig en Rangers situr í því þriðja með 12 stig. Gordon Strachan, knattspyrnustjóri Celtic, var hæstánægður með sigurinn og hrósaði báðum liðum í hástert. " Þetta var frábær leikur og sá besti sem ég hef orðið vitni að. Bæði lið sóttu af krafti og gáfu ekkert eftir. Rangers voru frábærir fyrstu 20 mínúturnar en við vörðumst þeim vel. Þetta er ánægjuleg staða en ekkert meira en það. Það er allt opið í baráttunni um titilinn, " sagði Strachan. Thomas Gravesen meiddist á hendi í leiknum og gæti verið handarbrotinn en Strachan gerði þó lítið úr meiðslunum og gerði góðlátlegt grín að Dananum knáa. " Thomas heldur að hann hafi brotið sér hendina en ég sagði honum að það skipti ekki máli því hann spilar knattspyrnu með fótunum en ekki höndunum. "
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, á von á geysilega erfiðum leik gegn Liverpool í kvöld en liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni á Etihad-leikvanginum í Manchester klukkan 20.00. Hann sagðist hiklaust gera nokkrar breytingar á liðinu eftir tapið gegn Sunderland á nýársdag, 1 : 0. " Ég geri nokkrar breytingar fyrir leikinn við Liverpool. Við erum með breiðan hóp og getum valið á milli manna í nokkrum stöðum. Þetta eru allt topp leikmenn. Leikurinn verður afar erfiður því við fengum stuttan tíma til að jafna okkur og Liverpool er virkilega gott lið, " sagði Mancini á vef City. " Liverpool kemur hingað til að sækja og þetta ætti að verða góður leikur. Endurkoma Stevens Gerrards í liðið er stórmál því hann er magnaður fótboltamaður, en Liverpool er sterkt lið, hvort sem hann leikur með eða ekki. Við verðum að nýta heimavöllinn í þessum leik. Við höfum spilað vel á heimavelli það sem af er tímabilinu og verðum að halda áfram að safna stigum. Það er ekki ólíklegt að við þurfum 45 stig til viðbótar seinni hluta tímabilsins ef við ætlum að vera á toppnum í maí, " sagði Mancini ennfremur.
SÉRA Lára G. Oddsdóttir, sóknarprestur á Valþjófsstað, messaði við Snæfell síðasta sunnudag. Messan var haldin í Snæfellsnesi skammt innan við Hafursárufs. Séra Lára segir að sig hafi langað til að hafa eina guðsþjónustu úti og lá beint við að hafa hana í Valþjófsstaðarprestakalli enda land Valþjófsstaðar víðfeðmt og nær yfir allt Snæfellssvæðið inn að Jökli milli Jökulsár í Fljótsdal og Jökulsár á Brú. Markmiðið með að hafa messuna þarna var að hitta fólk sem er á ferðinni ásamt heimamönnum og " ræða guðs góðu sköpun við það ". Messugestir komu víða að á landinu en flestir voru þó af Austurlandi og úr Valþjófsstaðarsókn, alls um 60 manns. Veður var hlýtt, þurrt og bjart þótt ekki hafi verið full fjallasýn, nokkuð hvasst var en það kom ekki að sök. Messukaffið var með nokkuð sérstæðu sniði, en nokkrir létu sig hafa það að að setjast út í vindinum og drekka þar kaffið. " Það var alls ekki kalt að sitja úti. Þetta var gaman og ég er þakklát fyrir það hvað margir komu, " sagði séra Lára. Norður-Héraði. Morgunblaðið.
Kjartan Henry Finnbogason og félagar í Horsens eru væntanlega grautfúlir þessa stundina. LIðið spilaði við Bröndby í dönsku úrvaldeildinni í dag og fékk skell! Finninn Teemu Pukki var búinn að skora þrennu eftir 55 mínútur en þá var staðan orðin 4 - 0 fyrir Bröndby. Kjartan Henry byrjaði fyrir Horsens en sýndi lítið sem og aðrir leikmenn liðsins í dag. Kjartan, sem á nokkuð góðan möguleika á því að fara á HM með Íslandi, var tekinn af velli á 56. mínútu. Horsens minnkaði muninn í 4 - 1 en Bröndby svaraði þegar lítið var eftir. Varamaðurinn Lasse Vigen Christensen innsyglaði 5 - 1 stórsigur Bröndby á 86. mínútu leiksins. Geggjaður sigur fyrir Bröndby. Varnarmaðurinn Hjörtur Hermannsson lék ekki með þeim gulu í dag en hann lenti í háskalegri tæklingu í bikarleik í síðustu viku. Bröndby er á toppi dönsku deildarinnar með þriggja stiga forskot á Midtjylland sem á leik til góða. Horsens er í sjötta sæti.
Fyrirtækið IVF Iceland sem rak Art Medica, einu stöðina sem sinnti tæknifrjóvgunum hér á landi, hagnaðist um 51,9 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaðurinn dróst saman um rúmlega fjórar milljónir milli ára. Eigendur Art Medica tóku út 56 milljónir króna í arð vegna ársins 2015. Þetta er mun minna en árið áður þegar greiddur var út arður upp á 265 milljónir króna, en meira en þegar greiddar voru út 44 milljónir króna vegna ársins 2013. Hluthafar í IVF Iceland voru tveir í árslok 2015, þeir Guðmundur Arason og Þórður Óskarsson, og áttu þeir 50 prósent hlut hvor. Gjaldskrárhækkanir urðu hjá fyrirtækinu í september árið 2015. Þá hækkaði glasameðferð um 37 þúsund krónur, úr 376 þúsund krónum í 413 þúsund krónur. Greint var frá því að mikil óánægja væri með hækkanirnar. Sjá einnig : Gagnrýnir gjaldskrárhækkanir Art Medica Í desember á síðasta ári var svo greint frá því að sænska fyrirtækið IVF Sverige myndi opna nýja tæknifrjóvgunardeild í Reykjavík, IVF klíníkin Reykjavík. Fyrirtækið keypti Art Medica og var sú starfsemi lögð niður. Rekstrartekjur IVF Iceland námu 64 milljónum króna og jukust um fjórar milljónir milli ára. Eignir í árslok námu 94,7 milljónum króna, samanborið við 120,3 milljónir króna árið áður. Eigið fé í árslok var 58,8 milljónir króna, samanborið við 62,9 milljónir árið áður.
Engin kórónuveirusmit greindust innanlands í gær samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum. Síðustu tvo daga hafa 120 af 170 manns lokið sóttkví. Nýgengi innanlandssmita það er af fjöldi smitaðra á hverja 100.000 íbúa undanfarnar tvær vikur er nú 1,9 sami fjöldi og í gær.
Eftir Jón Gunnar Ólafsson [email protected] Við vorum byrjuð að vinna að þessu verkefni áður en Vesturporti var boðið að fara til London að sýna Rómeó og Júlíu. Ég ákvað að fara með þeim og búa til heimildamynd um ferðina svo að við gætum haldið áfram að vinna með persónurnar í myndunum. Ég hef unnið með flestum af þessum leikurum áður. Vesturport er hópur sem er tilbúinn að gera það sem hann langar til. Þetta er hugsjónafólk, " segir Ragnar Bragason, leikstjóri myndanna Börn og Foreldrar, sem frumsýndar verða á næstunni. Sex leikarar úr Vesturporti leika í myndunum tveimur. Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir og Ólafur Darri Ólafsson leika aðalhlutverkin í Börn og Ingvar E. Sigurðsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Víkingur Kristjánsson leika aðalhlutverkin í Foreldrar. " Ég fékk Vesturport í lið með mér í þetta verkefni eftir að ég fékk þá hugmynd að vinna handrit og bíómynd í samvinnu við leikara. Ég byrjaði á því að vinna einn með hverjum leikara fyrir sig. Í þessari vinnu fæddust persónurnar og þróuðust. Leikararnir máttu ekkert vita um hinar persónurnar sem verið var að skapa. Við unnum þetta á þennan hátt í tæpt ár með hléum, " segir Ragnar og útskýrir að hann hafi haft grófa hugmynd um það hvernig mynd hann vildi gera. " Upphaflega átti þetta að vera ein bíómynd og grunnþemað sem ég vildi vinna með var fjölskyldutengsl, en ég hef áður unnið út frá því. Það þróaðist síðar í þessum myndum meira út í samskipti foreldra og barna. Börnin eru á öllum aldri, þau elstu á fertugsaldri. Grunnþemað var haft til hliðsjónar þegar verið var að skapa persónurnar og ég útskýrði fyrir leikurunum að einu reglurnar væru þær að persónurnar þyrftu að vera á sama aldri og leikararnir sjálfir og búsettar á höfuðborgarsvæðinu í nútímanum, " segir Ragnar og tekur fram að sköpunarferlið hafi verið mislangt. Sumar persónurnar hafi mótast mjög fljótt en að aðrar hafi verið lengi að fæðast. " Þegar ég var kominn með á annað þúsund blaðsíður með ævisögum og nótum um þessar persónur þá settist ég niður og bjó til nokkurs konar spunalista, þar sem finna mátti um hundrað mismunandi aðstæður sem ég vildi prófa með persónunum. Í þessu ferli urðu til þessar tvær sögur og spunaferlið varð daglegt æfingaferli í einn og hálfan mánuð. Þá urðu til tengingar á milli persónanna og í framhaldi urðu til sögur. " Ragnar segir að undirbúningsferlið hafi verið óvenjulangt. Yfirleitt gefist leikstjórum ekki langur tími til að vinna með leikurum sökum peningaskorts og að megnið af vinnunni fari því fram fyrir framan myndavélina. " Þá vill það oft verða svo að leikararnir eru í raun að fara með textann sinn eins og páfagaukar og þekkja persónur sínar ekki út og inn. Ég ákvað að handritin yrðu ekki með skrifuðum texta fyrir leikarana. Senurnar voru skrifaðar, það var upphaf, miðja og endir en línur voru ekki mataðar ofan í leikarana. Þær voru allar spunnar á staðnum. Þegar þeir eru búnir að vinna þetta lengi með persónur sínar þá eru þeir farnir að þekkja sitt fólk út og inn. Öll viðbrögð eru því mjög eðlileg, " segir Ragnar og telur að þetta skapi vissan realisma sem yfirleitt sé ekki til staðar í íslenskum bíómyndum. " Án þess að ég sé eitthvað að monta mig þá verð ég að segja að leikurinn er á allt öðru plani en í flestum íslenskum kvikmyndum. Ég bað leikarana að byggja persónurnar eins langt og það næði á fólki sem það þekkir eða kannast við. Til að ná enn sterkari raunveruleikatengingu. " Ragnar segir að fjárhagur persónanna hafi ráðið því að ákveðið var að gera tvær myndir. " Persónurnar skiptast í raun í tvo hópa. Annars vegar í undirmálsfólkið í myndinni Börn, sem býr í félagsmálaíbúðum, er á örorkubótum, einhverjir eru þar smáglæpamenn o.s.frv. og svo hins vegar í nýríka liðið í Foreldrum sem býr í úthverfunum. Myndirnar eru alveg sjálfstæðar en ég kalla þær tvíburamyndir, því þær fjalla báðar um samskipti foreldra og barna, það er sami strúktúr og sami stíll, " segir Ragnar. Börn verður frumsýnd á Íslandi 9. september nk. og til stendur að frumsýna Foreldra í lok október. Börn hefur þegar verið valin til þátttöku á kvikmyndahátíðum erlendis, nú síðast á stærstu kvikmyndahátíð í Asíu, Pusan International Film Festival í Suður-Kóreu í lok október. Hátíðin skiptir sköpum fyrir evrópskar kvikmyndir ef þær vilja komast inn á Asíumarkaðinn. Lokapunktur vinnunnar er nú í sjónmáli en þrátt fyrir þetta langa ferðalag segir Ragnar að vinnan hafi aldrei verið erfið. " Við gerðum þetta á okkar forsendum. Við fjármögnuðum þetta sjálf og þurftum því ekki að skila myndunum á einhverjum tilteknum tíma. Þær eru framleiddar á ódýran hátt, teknar upp stafrænt og hver dagur kostaði ekki mikið. Við gátum því leyft okkur að gera myndirnar á eins löngum tíma og við vildum. Ég hef getað leyft mér að liggja yfir eftirvinnslunni í níu mánuði fyrir hvora myndina, sem er miklu lengri tími en maður yfirleitt fær hér á landi. Þetta hefur verið skemmtileg vinna frá fyrsta degi. Ég er með mörg börn í myndunum, en flestir leikstjórar hræðast það. Að vinna með börnum á þessum forsendum var algjör sæla. " Fjölskyldulíf " Án þess að ég sé eitthvað að monta mig þá verð ég að segja að leikurinn er á allt öðru plani en í flestum íslenskum kvikmyndum. "
Russell Westbrook, leikmaður Washington Wizards, var allt annað en sáttur með stuðningsmann Philadelphia 76 ers í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum NBA-deildarinnar í körfuknattleik í Philadelphia í nótt. Westbrook fór meiddur af velli í leiknum en á leið sinni inn í leikmannagöngin tók einn stuðningsmaður Philadelphia sig til og helti fullum poka af poppkorni yfir leikmanninn. Leikmaðurinn gjörsamlega brjálaðist og ætlaði að rjúka í stuðningsmanninn en öryggisverðir í Wells Fargo Center þurftu að halda aftur af Westbrook. „ Það myndi enginn voga sér að gera þetta við mig á götum úti því hann vissi á hverju hann ætti von, “ sagði Westbrook í samtali við fjölmiðla eftir leikinn. „ Það þarf að vernda leikmennina í höllunum og vonandi gerir NBA-deildin eitthvað róttækt í málinu, “ bætti Westbrook við.
' Ragnheiður Ríkharðsdóttir segir að það ríki ekki traust milli þjóðar, þings og Seðlabanka. Því verði að breyta : " Nú ríkir hvorki traust né trúnaður gagnvart seðlabankastjórum né bankaráði Seðlabankans og þess vegna ættu allir er þar sitja að víkja. " ' EFNAHAGSVANDINN er gífurlegur og vindur hratt upp á sig. Ástæður vandans eru margar og verður að rannsaka strax af þar til bærum fagaðilum. Hins vegar þarf nú að grípa til allra tiltækra ráða til að hjól atvinnulífsins snúist og koma í veg fyrir gríðarlegt atvinnuleysi. Ríkið verður að gefa skýr og afdráttarlaus svör til fyrirtækja um að þau njóti á þessum erfiðleikatímum rýmri lána – og greiðslukjara en áður. Jafnframt verður að veita einstaklingum og fjölskyldum í landinu rýmri greiðslukjör en áður og skoða þá bæði verðtryggð lán og gengistryggð. Við höfum sem þjóð ekki efni á öðru, hvorki siðferðislega né efnahagslega. Samhliða verðum við ræða hvernig við komumst hjá slíkum kollsteypum í framtíðinni. Krónan og peningamálastefnan hafa beðið hnekki, eru rúnar trausti innanlands sem utan. Því þarf að endurskoða og gera úttekt á peningamálastefnunni og taka næstu skref. En hvert liggja þau? Við eigum tvo kosti, annars vegar að byggja krónuna upp á nýtt eða taka upp evru. Í dag er æði langsótt að ætla að byggja upp traust á krónunni til framtíðar litið. Alþjóðatengslum þarf að ná á ný og alþjóðleg viðskipti verða stunduð í framtíðinni og ég hygg að fáir hafi trú á krónunni sem framtíðargjaldmiðli í slíkum viðskiptum. Allar aðrar greinar í íslensku atvinnulífi verða einnig að geta vaxið og dafnað í umhverfi sem byggist á stöðugleika og hann er vart að finna í núverandi umhverfi. Við þurfum hreinskiptna umræðu um gjaldmiðilinn, nýjan gjaldmiðil og stöðu Íslands í samfélagi þjóða. Traust og trúnaður ríkir ekki milli þings og þjóðar það er kristaltært. En þingmenn og sveitarstjórnarmenn sitja eða víkja, meirihluti hverfur og nýr er myndaður, þannig virkar lýðræðið og er það vel. Hins vegar verðum við þingmenn að endurskoða störf okkar og í ljósi atburða síðustu vikna vakna ýmsar spurningar. Hefði þurft að fara betur í gegnum áhrif tilskipana EES-samningsins á íslenskt samfélag? Uppfylltu frumvörp eingöngu lágmarkskröfur eða var gengið lengra en skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum gáfu tilefni til? Hefðu lög um eignarhald á fjölmiðlum og um eignarhald á bönkum getað breytt einhverju? Átti að breyta lögum um Seðlabanka Íslands? Ég er ekki í vafa um að klárlega hefði verið hægt að gera betur, öllu eftirliti, jafnt þinglegu sem öðru, var ábótavant. Ég hef ætíð haft þá skoðun að fyrrverandi stjórnmálamenn ætti ekki að skipa í stjórnir ríkisfyrirtækja. Nú ríkir hvorki traust né trúnaður gagnvart seðlabankastjórum né bankaráði Seðlabankans og þess vegna ættu allir er þar sitja að víkja svo hægt verði að byggja upp traust og trúnað á ný og samhliða á að breyta lögum um Seðlabanka Íslands, stjórnskipulag bankans, stöðu og markmið. Sjálfstæðisflokkurinn hefur á síðustu 17 árum verið í ríkisstjórn og staðið með öðrum að mörgum framfarabreytingum. Íslenskt efnahagslíf hefur tekið stakkaskiptum, fyrirtæki verið stofnuð innanlands sem utan, bankageirinn blómstraði og við landsmenn tókum þátt í góðærinu. En annar veruleiki blasir við og nú ríkir reiði í garð Sjálfstæðisflokksins og forystumönnum hans er kennt um ófarir sem þjóðin hefur ratað í. Það er eðlilegt og við sjálfstæðismenn verðum að líta okkur nær, skoða frelsið og breytingaferli því tengt og sérlega eftirlitið sem brást. Enginn á að skorast undan því að endurmeta, læra af mistökum og gera betur. En grunngildi Sjálfstæðisflokksins eru nú sem fyrr gulls ígildi og um þau þarf að standa vörð. Það er hins vegar afar sérkennilegt að svo virðist sem gömlu kommarnir hlakki yfir ástandinu og hrópi víða að nú sé kapítalisminn dauður og það sé vel. Þeirra skoðanir eru hættulegri efnahagskerfinu en kollsteypur. Ég vitna í orð dr. Jóns Daníelssonar er hann segir : " Stóra hættan er aftur á móti sú, að þeir sem eru á móti frjálsum markaði sem skipan efnahagsmála, muni notfæra sér tækifærið til þess að koma á þungbæru regluverki, sem mun takmarka eða valda langtímatjóni á efnahagsbata. Eina leiðin til þess að hafa sæmilega sterkt hagkerfi er að vera með sterkt og virkt markaðskerfi. Eina leiðin til þess að koma í veg fyrir bólur og hrun er að búa í Norður-Kóreu eða Kúbu. " Það er ískyggilegt að slíkar hugmyndir og skoðanir skuli fá brautargengi í núverandi efnahagsróti og þótt ég finni og skilji reiði fólks og sé sjálf öskureið vegna ákvarðana og ástandsins, trúi ég því ekki að íslensk þjóð vilji kalla yfir sig slík höft, boð og bönn alræðis forsjárhyggjunnar. Við stöndum á alvarlegum tímamótum og þurfum að vinna okkur út úr þeim kollsteypum sem við og aðrar þjóðir tökum nú og ákveða hvaða skref verða stigin á næstu mánuðum og árum. Hvar viljum við vera í samfélagi þjóða og hvernig ætlum við að byggja upp traust og trúnað, annars vegar á milli þjóðarinnar innbyrðis og hins vegar á alþjóðavettvangi? Þessum spurningum verða allir að svara, ekki í ótta, kvíða og reiði heldur af yfirvegun. Höfundur er þingmaður.
Cristiano Ronaldo verður fjarri góðu gamni með Real Madrid á morgun þegar liðið sækir Real Sociedad heim í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Portúgalinn frábæri gengur ekki heill til skógar en meiðsli í hné hafa verið að angra Ronaldo um nokkurt skeið. Hann verður ekki í leikmannahópi Real Madrid og spilar ekki með Portúgölum á föstudaginn þegar þeir mæta Albönum í undankeppni EM. Alfreð Finnbogason verður sömuleiðis fjarri góðu gamni í liði Real Sociedad en hann er að jafna sig eftir að hafa farið úr axlarlið í leik með liðinu fyrir þremur vikum.
11. júlí 2014 Áfram stuðst við gildandi merki um vistvæna framleiðslu Sjávarútvegs - og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða reglugerð númer 504 / 1998 um vistvæna landbúnaðarframleiðslu. Hópinn skipa fulltrúar atvinnuvega - og nýsköpunarráðuneytisins, Bændasamtaka Íslands og Sölufélags garðyrkjumanna. Auk þess hefur Neytendasamtökunum verið boðið að skipa fulltrúa. Hópurinn mun fara yfir reglugerð um vistvæna landbúnaðarframleiðslu í heild sinni, meðal annars allar skilgreiningar á framleiðslunni og reglur um eftirlit. Tillögum hópsins er ætlað að byggja nýjan grunn að reglum um vistvæna landbúnaðarframleiðslu. Þar til þeirri vinnu lýkur verður stuðst við núgildandi reglugerð og þeir framleiðendur sem áður hafa fengið vottun geta á grundvelli reglugerðarinnar fengið viðurkenningu á því að þeir standist skilyrði hennar. Áfram verður stuðst við gildandi merki um vistvæna framleiðslu. Samkvæmt 4. grein reglugerðarinnar geta framleiðendur óskað eftir viðurkenningu á vistvænni landbúnaðarafurð til viðkomandi búnaðarsambands. Framleiðendur sem nú nýta sér merkið eru hvattir til að óska sem fyrst eftir úttekt til búnaðarsambands á sínu starfssvæði. Framleiðendum, sem óska þess að fá framleiðslu sína viðurkennda sem vistvæna, er á sama hátt bent á að sækja um til búnaðarsambands við fyrsta tækifæri. Atvinnuvega - og nýsköpunarráðuneytið mun halda skrá um þá sem fá slíka viðurkenningu og birta á heimasíðu sinni. Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið vill með aðgerðum sínum núna, í samstarfi við samtök framleiðenda og neytenda koma reglum um vistvæna landbúnaðarframleiðslu í betra horf svo ekki þurfi að leika vafi á því í hugum neytenda, hvaða framleiðsla hefur rétt til að nýta sér það heiti.
Hey, þú! Þú sem lest þessi orð núna. Ég veit fátt um lífið þitt. Þótt þú segðir mér allt um þig myndi ég lítið skilja. Maður skilur ekki sjálfan sig. Hvað þá aðra. Eitt veit ég þó : Við erum að anda að okkur sama súrefni og þurfum ca. 13 kíló af því á sólarhring. Annað veit ég líka : Þú þráir öryggi og heilsu fyrir þig og þína líkt og ég. Við erum sem sagt stödd í sama loftmassa með sams konar hagsmuni. Kannski ættum við að tala saman. Hefur þú tekið eftir því hvað fólk fer óvenju varlega þessa daga og reynir að brosa hvert til annars bak við andlitsgrímurnar? Getur verið að við séum öll að hugsa það sama bak við grímuna? Við sem höfum vanist þeirri hugsun að hver rembist við að hámarka eigin árangur í vinnu, líkamshreysti, fjármálum, ástamálum og öllu öðru. Allt í einu erum við ekki ein að rembast heldur komin í úníform og þjóðfélagið orðið að allsherjar heræfingu. Óvinurinn er ósýnilegur og gerir engan mannamun svo ekkert dugir nema virk samstaða í þágu heildarinnar. Við sem ætluðum að vera frjáls á eigin vegum sjáum í hendi okkar að ekkert frelsi mun fást nema því sé deilt með öllum. Um leið og við æfum veiruvarnir útvíkkum við hugann og uppgötvum hvað allt er innbyrðis tengt og háð hvað öðru á hnettinum bláa. Landamæri og peningar eru til hliðsjónar en loftstraumar og hafstraumar eru öflin sem ráða. Erum við kannski öll að hugsa að nú sé tíminn kominn? Tíminn til að leggja saman af stað inn í breytingaferli þar sem við gerum það sem gera þarf svo að við ekki bara komumst út úr Kófinu heldur varðveitum loftmassann okkar og höfin heilbrigð og tryggjum þannig ófæddum kynslóðum öryggi og heilsu? Erum við tilbúin?
GESTUR á vörusýningu, sem haldin var á vegum stjórnar fjárfestingamála í Bangkok í Taílandi, tyllir sér hér áhugasamur við hlið skúlptúrs af tölvunotanda sem unnin hefur verið í fullri stærð. Um 800 fyrirtæki víðsvegar að úr heiminum kynntu tækninýjungar sínar á sýningunni, sem er liður í tilraun Taílands til að koma fótum undir hagkerfi landsins á ný eftir kreppu sl. þriggja ára.
Það er bersýnilegt að dómstólar telja umfang Baugsrannsóknarinnar og þær ákærur sem gefnar voru út alls ekki í samræmi við tilefnið. Íslensk stjórnvöld hljóti að draga lærdóm af þessari útkomu. Þetta segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra. Ingibjörg Sólrún sendi í dag frá sér yfirlýsingu um Baugsdóminn. Þar segir að með dómi Hæstaréttar í gær hafi verið bundinn endir á víðfeðmustu opinberu rannsókn síðari ára. Hún hafi kostað ríkið ógrynni fjár. Málið hafi hafist með útgáfu kreditreiknings og Hæstiréttur hafi veitt öllum sem að þeirri útgáfu komu sýnilega jafna og réttláta málsmeðferð. Þá segir í tilkynningu utanríkisráðherra að það sé bersýnilegt að dómstólar kveði upp úr um að umfang rannsóknarinnar og ákæranna sem gefnar voru út í upphafi málsins hafi alls ekki verið í samræmi við tilefnið. Loks segir að óhjákvæmilega hljóti íslensk stjórnvöld að draga lærdóm af þessari útkomu. Í frægri ræðu sem Ingibjörg Sólrún hélt á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Borgarnesi í febrúar fyrir 5 árum sagði hún að það hefði skaðað orðspor Íslenskrar erfðagreiningar að lenda undir verndarvæng Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra. Þá spurði hún hvort gagnrýni og rannsókn á Baugi byggðist á málefnalegum og faglegum forsendum eða flokkspólitískum. Þá sagði Ingibjörg í ræðunni : Ertu í liði forsætisráðherrans eða ekki. Þarna er efinn og hann verður ekki upprættur nema hinum pólitísku afskiptum linni og hinar almennu gagnsæju leikreglur lýðræðisins taki við. Ingibjörg Sólrún vildi ekki veita fréttastofu Útvarpsins viðtal um Baugsdóminn þegar eftir því var leitað. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns Baugs, segir að kostnaður ríkisins vegna Baugsmálsins hljóti að vera orðinn nálægt einum milljarði króna. Þar með séu talin laun saksóknara, sérfræðinga, lögreglumann sem hafa sinnt rannsókn málsins og kostnaður sem greiddur hafi verið sakborningum.
Á miðvikudagskvöldið gerði norska lögreglan húsleit á heimili í Notodden. Þar fannst mikið magn vopna, skotfæra og sprengiefnis. Bæði frá hernum og einkaaðilum. En það sem gerði lögreglumennina orðlausa var að í húsinu var rússneskt flugskeyti, ætlað til að skjóta niður þyrlur. Magnið var þvílíkt að það tók lögregluna og sprengjusérfræðinga hennar alla nóttina að flytja það á brott. Ekki er talið að nágrönnunum hafi stafað hætta af vopnunum og skotfærunum. Sprengjusérfræðingar hersins aðstoðuðu lögregluna og hófust strax handa við að eyðileggja skotfæri sem ekki voru talin örugg. Norska ríkisútvarpið hefur eftir talsmanni lögreglunnar að ekki sé talið að sprengihætta hafi verið á staðnum og að ekki hafi stafað hætta af flugskeytinu. Lögmaður hins handtekna sagði að skjólstæðingur hans væri vopnasafnari og hafi haft heimild til að safna vopnum. flugskeytihúsleitNoregurvopnasafn
Spánn Benidorm – Barcelona 25 : 28 • Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 3 mörk fyrir Barcelona. Danmörk KIF Kolding – GOG 34 : 28 • Aron Kristjánsson þjálfar KIF Kolding. Aalborg – Lemvig 30 : 20 • Ólafur Gústafsson var ekki með Aalborg. Mors-Thy – Skanderborg 33 : 25 • Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 4 mörk fyrir Mors-Thy og Róbert Aron Hostert eitt. Aarhus – Midtjylland 23:23 • Vignir Svavarsson skoraði 1 mark fyrir Midtjylland. SönderjyskE – Odder 28 : 25 • Daníel Freyr Andrésson varði 8 af 10 skotum sem hann fékk á sig í marki SönderjyskE. Noregur Nötteröy – Stord 33 : 19 • Einar Rafn Eiðsson skoraði 8 mörk fyrir Nötteröy og Gísli Jón Þórisson 1. Haslum – Arendal 17:18 • Einar Ingi Hrafnsson skoraði ekki fyrir Arendal. Svíþjóð Skövde – Guif 29 : 31 • Atli Ævar Ingólfsson skoraði 6 mörk fyrir Guif. Aron Rafn Eðvarðsson ver mark Guif og Kristján Andrésson þjálfar liðið. Alingsås – Ricoh 29 : 25 • Tandri Már Konráðsson skoraði 4 mörk fyrir Ricoh. Spårvägen – Heid 31 : 23 • Sunna Jónsdóttir skoraði 5 mörk fyrir Heid. Austurríki Bambach – Westwien 28 : 39 • Erlingur Richardsson þjálfar Westwien. Meistaradeild kvenna Leipzig – Krim 30 : 24 • Þorgerður Anna Atladóttir var ekki í hópnum hjá Leipzig. Sävehof – Györ 21:38 • Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Sävehof.
Þingmenn Hreyfingarinnar vilja að Alþingi aflétti með öllu trúnaði af gögnum þingmannanefndar Alþingis um bankahrunið og birti þau á netinu. Upphaflega voru gögnin hulin almennum þingmönnum, en á föstudag var ákveðið að gefa þingmönnum kost á því skoða gögnin án þess að birta þau opinberlega. Þingmenn Hreyfingarinnar vilja að gengið verði lengra, þannig að almenningur fái að sjá umrædd gögn. Yfirlýsing þingmannanna í dag er svohljóðandi : ,, Á fundi þingamannanefndarinnar, s.l. föstudag lagði Birgitta Jónsdóttir til að trúnaðargögn þingmannanefndarinnar yrðu sett á netið svo almenningur gæti kynnt sér þau. Því var hafnað á forsendu trúnaðar við fræðimenn og sérfræðinga. Við, þingmenn Hreyfingarinnar, viljum hér með ítreka tillöguna og förum þess á leit við nefndina að hún beiti sér fyrir því að umrædd gögn verði gerð opinber með leyfi þeirra fræðimanna og sérfræðinga sem um ræðir. Það er mikilvægt vegna þeirrar umræðu sem hefur skapast inni í þingsölum og varpað tortryggni á störf nefndarinnar að sem flestir hafi aðgengi að þessum gögnum til að sýna fram á að ekkert er að finna í þessum gögnum sem gefur tilefni til tortryggni á heilindi þeirrar vinnu sem þar fór fram. “
Víða erlendis eru starfræktir sérstakir naflastrengsblóðbankar, ef börn veikjast af alvarlegum sjúkdómum er hægt að sækja stofnfrumur úr frystu naflastrengsblóði og nota í ígræðslur. Til greina kemur að opna slíkan banka hérlendis í náinni framtíð. Rúmlega 60 manns hér á landi hafa farið í stofnfrumuígræðslu á síðastliðnum 20 árum. Líkurnar á því að systkini sjúklings sé í sama vefjaflokki er 25% en ef stofnfrumur úr naflastrengs viðkomandi eru til reiðu passa þær 100%. Þetta kemur fram í tímaritinu Fyrstu skrefin sem kom út fyrir skömmu. Naflastrengs - og fylgjublóð inniheldur töluvert magn af blóðmyndandi stofnfrumum. Sigrún Reykdal, sérfræðingur í blóðsjúkdómum : Stofnfrumurnar úr naflastrengsblóði eru mun óþroskaðri heldur en fullorðnar stofnfrumur, þannig að það er minni hætta á alvarlegum aukaverkunum eins og hýsilsýki og höfnun og slíku þegar er verið að nota þessar stofnfrumur. Í um 30 ár hafa þessar stofnfrumur verið notaðar til að endurmynda blóðfrumukerfi einstaklinga með ýmsa sjúkdóma, til dæmis hvítblæði, eitlakrabbamein og arfgenga blóðsjúkdóma. Sigrún Reykdal : Það sem að menn hafa verið að gera síðustu árin er að nota stofnfrumurnar við mergskipti, einkum hjá börnum, en allra síðustu ár hafa menn einnig verið að nota naflastrengsstofnfrumur við mergskipti hjá fullorðnum en þá þarf að nota sem sagt blóð úr fleiri en einum naflastreng því að þetta er ekki nægilegt magn af stofnfrumum fyrir fullorðinn einstakling. Vissulega höfum við áhuga á að hafa okkar naflastrengsblóðbanka en í dag þá er verið að byrja að setja upp stofnfrumugjafaskrá með fullorðnum einstaklingum og ég held við þurfum að setja það í fullan gang fyrst áður en við byrjum á þessu máli.
Samhliða úrhellisrigningu og hláku á þriðjudagskvöld og í gær um vestanvert landið ruddu árnar í landshlutanum sig. Klakastíflur hlóðust í ár og læki og vatn flæddi yfir bakka sína. Ekki er vitað til að vegir hafi skemmst svo neinu nemur af þeim sökum. En eitthvað var þó um stífluð vegræsi og að grafist hafi úr vegköntum. Meðfylgjandi myndir eru úr Borgarfirði í gær. Giljafoss í Reykjadalsá var óárennilegur í gær. Ljósm. Jósefina Morell.
Lögreglan í Reykjavík er með mikinn viðbúnað á Menningarnótt og að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns, eru á milli 70 og 80 lögregluþjónar á vakt. Segir Geir Jón að vel verði fylgst með unglingadrykkju. Mikill mannfjöldi er í miðborginni og er áætlað að á milli 50 - 60 þúsund manns séu á miðborgarsvæðinu en Geir Jón segir að mannfjöldinn sé mun dreifðari í ár heldur en undanfarin ár enda uppákomur á stærra svæði heldur en áður.
Fjármálaöngþveitið veldur mörgum áhyggjum, kvíða og vanlíðan. Heilbrigðisþjónusta, sveitarfélög og fleiri undirbúa nú aukinn stuðning og fjölgun úrræða fyrir almenning í vanda. Eftir Guðna Einarsson [email protected] Fagfólk á vegum Landspítalans mun opna nýja þjónustu við fólk sem líður illa vegna fjármálaöngþveitisins. Móttakan verður í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg og á að opna hana á morgun eða vonandi í síðasta lagi á mánudaginn kemur, að sögn Engilberts Sigurðssonar geðlæknis. " Þetta verður mats - og ráðgjafarþjónusta fyrir fólk sem glímir við kvíða, depurð eða veruleg streitueinkenni, " sagði Engilbert. " Við verðum ekki með félagsráðgjafa eða fjármálaráðgjafa heldur bjargráð og ráðgjöf fyrir fólk sem glímir við sálarlega vanlíðan. Þar verður lagt mat á þörf fyrir frekari hjálp og hægt verður að vísa fólki áfram í heilbrigðiskerfinu. " Í ráðgjafarþjónustunni verður móttökuritari auk tveggja stöðugilda fagaðila sem líklega verða sálfræðingar. Þeir sem óska eftir viðtali þurfa að panta tíma og verður símanúmerið á heimasíðu Landspítalans og eins mun hjálparsími Rauða krossins ( 1717 ) hafa númerið. Óvenju annasamir dagar hafa komið á geðsviði Landspítalans upp á síðkastið. Þar hefur fremur verið um að ræða aðsókn fólks sem áður hefur sótt heilbrigðisþjónustu til sviðsins fremur en fólk úr fjármálageiranum. Engilbert sagði að bankar hefðu fengið ráð hjá geðsviði spítalans og boðið starfsfólki sínu upp á sálfræðiþjónustu upp á síðkastið. Opnun ráðgjafarþjónustunnar er viðbragð við því þegar Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fól Landspítala " að hefja undirbúning að því að styrkja og undirbúa geðsvið spítalans þannig að það geti sem best þjónað þeim einstaklingum sem þurfa aðstoð til að takast á við erfiðleika sem upp koma vegna núverandi aðstæðna á fjármálamarkaði ". Ráðherrann beindi því einnig til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að koma á fót bráðaþjónustu, eða samsvarandi úrræðum, " vegna umrótsins sem nú ríður yfir ". Búist við auknu álagi Yfirmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafa skipulagt viðbrögð og er búið að hafa samband við alla stjórnendur í heilsugæslunni, yfirlækna og yfirhjúkrunarfræðinga, vegna undirbúningsins, að sögn Svanhvítar Jakobsdóttur forstjóra. Hún sagði að ákveðið hefði verið að greiða götu fólks að heilbrigðisstarfsmanni. Þeir sem hafa samband við móttöku, í síma eða koma á heilsugæslustöð, munu fá samband við hjúkrunarfræðing. Hann mun síðan ákveða hvort þörf er á frekara úrræði, t.d. viðtali við lækni. " Við höfum farið þess á leit við lækna okkar og hjúkrunarfræðinga að þeir verði viðbúnir því að þurfa að hliðra til og mæta auknu álagi vegna þessa. Ennfremur að stjórnendur okkar taki til endurskoðunar ráðgerð leyfi starfsmanna vegna hugsanlega aukins álags á næstu vikum og mánuðum, " sagði Svanhvít. Velferðarráð Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti í gær aðgerðaáætlun vegna aðstæðna í efnahagslífinu. Ákveðið hefur verið að fjölga fundum ráðsins og verða þeir vikulega ef þörf krefur. Sviðsstjóri velferðarsviðs hefur þegar haft samband við félagsmálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið vegna samstarfs um aðgerðir. " Við viljum auka samvinnu við Ráðgjafarstofu heimilanna, heilsugæsluna, Vinnumálstofnun, Rauða krossinn og stéttarfélögin sem eru mörg með fjármálaráðgjöf, " sagði Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs. Þá á að bæta aðgengi að ráðgjafarþjónustu þjónustumiðstöðva og efla ráðgjöf. " Það er nokkuð ljóst að fólk mun leita til þjónustumiðstöðvanna sem hefur ekki gert það áður. Líklegt er að það hafi orðið fyrir alvarlegum fjárhagslegum áföllum og glími við úrlausn þeirra, " sagði Jórunn. Ætlunin er að veita því sálfræði - og félagsráðgjöf. Vandi þeirra sem notið hafa stuðnings velferðarsviðs til þessa hefur einnig aukist, að sögn Jórunnar. Ástæður þess eru m.a. almennar verðhækkanir. " Við viljum endurskoða fjárhagsaðstoðina með tilliti til núverandi aðstæðna, " sagði Jórunn. Norðlingar í gleðigírnum STARFSFÓLKI Norðlingaskóla, grunnskóla í einu yngsta hverfi Reykjavíkur, þótti sem ákveðinn drungi hvíldi yfir skólanum á þriðjudagsmorgun. " Við ákváðum því að setja í gleðigírinn og glöddumst yfir öllu mögulegu. Okkur fannst það vera rétta leiðin, " sagði Sif Vígþórsdóttir skólastjóri. Hún sagði efnahagsástandið ekki vera rætt sérstaklega við nemendur nema þeir óski eftir því. Skólinn er í hverfi þar sem allar fjölskyldur eru nýbúnar að kaupa sér húsnæði. Því er ekki ólíklegt að á flestum heimilum þurfi fólk að takast á við breyttar aðstæður í fjármálunum. Sif sagði að þótt börnin láti áhyggjur sínar ekki í ljósi þá fylgist þau engu að síður vel með. Þau lesi svipbrigði fullorðna fólksins og skynji meira en fullorðnir geri sér oft grein fyrir. " Börn eru svo skynsamt og viturt fólk að þau skynja þessa umræðu og áhyggjur sem alls staðar svífa í loftinu. Þess vegna skiptir svo miklu að við sem vinnum með þeim séum bjartsýn og kát og gerum í því að auka gleðina og bjartsýnina, " sagði Sif. Hún sagði starfsfólkið hafa rætt sín á milli um að leggja þurfi áherslu á það jákvæða. " Við þurfum að leggja áherslu á það sem við erum stolt af og ánægð með. Vera jafn bjartsýn og við erum vön að vera! " Sif sagði að orðsending frá Kennarasambandinu fyrir síðustu helgi hafi verið þörf. Þar segir m.a. : " Ofgnótt vátíðinda, í sumum tilfellum ofan á erfiðar aðstæður barna, geta verið mjög skaðlegar heill þeirra og heilsu. Kennarasamband Íslands beinir því til kennara og skólastjórnenda að leggja sitt af mörkum til að vinna gegn því að atburðir og málflutningur þeim tengdur um efnahagsmál skaði nemendur. " Líðan fólks ALÞJÓÐLEGI geðheilbrigðisdagurinn er á morgun. Yfirskrift hans er " Hlúðu að því sem þér þykir vænt um ". Á þessu ári er lögð áhersla á geðheilbrigði ungs fólks. Geðheilbrigðisdagurinn hefur fengið eigin heimasíðu og er hana að finna á slóðinni : www.10okt.com. " Ég tel að mikilvægi þessa dags geti falist í að beina athyglinni frá fjárhagsmálunum og að líðan fólks. Hvað maður getur gert til þess að rækta líðan og heilbrigði, " sagði Einar G. Kvaran, verkefnisstjóri hjá Geðhjálp. Hann sagði að þau hjá Geðhjálp fyndu fyrir því að efnahagssviptingarnar undanfarna daga hefðu haft áhrif á líðan fólks. Fjölbreytt dagskrá Í tilefni geðheilbrigðisdagsins verður fjölbreytt dagskrá í Perlunni frá kl. 16 til 18 á morgun. Hún hefst með ávarpi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Á laugardag verða Geðhlaup Geðhjálpar í Nauthólsvík og skákmót í Perlunni í tengslum við geðheilbrigðisdaginn. Í tilkynningu kemur fram að eitt af lykilmarkmiðum alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins sé að brjótast út úr hugsun sem hefur ríkt, það er að geðheilbrigðismál snúist fyrst og fremst um geðræn vandamál. " Með þessu er ekki verið að gera lítið úr geðsjúkdómum og þjáningum af þeirra völdum heldur er verið að halda þeirri staðreynd á lofti að andleg heilsa er nauðsynleg undirstaða farsældar. Geðheilbrigðisdagurinn á að vera dagur allra, " segir í tilkynningunni.
Ráðherrar og alþingismenn fá skerðingu eftirlauna bætta með launahækkun frá kjararáði. Þetta er mat þingmanna að muni gerast. Með breytingum á hinum umdeildu eftirlaunalögum, sem líklegt er að Alþingi samþykki á morgun, skerðast lífeyrisréttindi ráðherra um sextíu prósent og alþingismanna um tuttugu prósent. Í umræðum í þinginu í gær kom fram það mat að samkvæmt lögum um Kjararáð muni skerðing lífeyrisréttinda verða bætt með launahækkun. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknar : Þá er alveg ljóst að kjararáð hlýtur að hækka laun þingmanna og ráðherra, annað væri mjög sérstakt, og alls ekki í takt við lögin að mínu mati, og ég tel að það sé bara eðlilegt það er bara eðlilegt að kalla hlutina það sem þeir heita og það á ekki að vera að fela kjörin í einhverjum lífeyrisréttinum. Það er eðlilegra að kaupið sé þá hærra en lífeyrisréttindin þá að sama skapi lægri. Formaður Frjálslynda flokksins hvatti til þess að málinu yrði frestað. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins : Það er nauðsynlegt að vanda þessa umræðu og það eru nokkur atriði meðal annars í þessu frumvarpi og öllum öðrum tillögum sem hér hafa komið fram sem þurfa miklu betri könnunar við og hvaða afleiðingar það hefur og ég bendi á lögin um kjararáð í því sambandi.
Hugrún Dögg Árnadóttir er smekkvís kona og rekur skóbúðina Kron. Hún er líka fatahönnuður og er með merkið Scandinavian tourist ásamt Þuríði Rós Sigurþórsdóttur. Leikkonan Cate Blanchett er meðal aðdáenda hönnunar þeirra. Stutt pils, síð pils eða buxur? Er sjálf mest fyrir pils og kjóla. Hælar eða lágbotna skór? Hvort tveggja, nauðsynlegt að eiga bæði háa sem lága. Uppáhaldsflík? Ég á margar uppáhaldsflíkur, kjóll frá Scandinavian tourist er í uppáhaldi þessa dagana auk kjóls frá Martine Sitbon. Bestu fatakaup? Sennilega þegar ég keypti upp gamlan kjólalager úr Hattabúð Reykjavíkur. Fyrsta flíkin sem þú manst eftir úr æsku? Ætli það sé ekki röndótti fangelsisbúningurinn. Verstu tískumistök sem þú hefur framið? Gular buxur sem voru keyptar nýlega til notkunar innan veggja heimilins en get ekki hugsað mér að fara í þær. Hvað áttu mörg pör af skóm? Mörg pör en aldrei of mörg því einhverra hluta vegna langar mann alltaf í nýja skó. Af hverju er mest í fataskápnum? Skóm, kjólum og skarti. Uppáhalds fylgihlutur? Allt sem er fallegt, fer allt eftir hvernig liggur á mér. Uppáhalds hönnuður? Það er nú breytilegt eftir " collection " en verð þó að nefna Comme des Garcons, Marc Jacobs, Martine Sitbon og Scandinavian tourist. Eru alltaf í uppáhaldi. Hvar kaupirðu föt? Kron, Spútnik, ásamt öðrum verslunum í miðbænum. Og svo erlendis. Gerviefni eða náttúruleg efni? Helst náttúruleg. Litagleði eða svarthvítt? Hvort tveggja. Þú verður að ganga um í miðbæ Reykjavíkur í einn dag í alklæðnaði úr leðri eða blúndum? Hvort yrði fyrir valinu? Helst myndi ég vilja blanda því saman, annars myndi leður verða fyrir valinu. Þú neyðist til að hverfa til fortíðar og festast þar. Tímavélin er stillt á 1955, 1965, 1975 og 1985? Hvaða ár myndirðu velja? Ekki spurning, 1955.
Bandaríkjamaðurinn Jordan Spieth náði að sýna sitt rétta andlit á öðrum hring Sentry Tournament of Champions mótsins sem fór fram í nótt í Hawaii. Spieth lék á 66 höggum eftir að hafa leikið þann fyrsta á 75 höggum. Eftir hringina tvo er Spieth jafn í 13. sæti á 5 höggum undir pari en Marc Leishman og Brian Harman deila forystunni á 10 höggum undir pari. Spieth lék sérstaklega vel um miðbik annars hringsins þar sem hápunkturinn var án efa örn á 9. holu. Hér fyrir neðan má sjá allt það helsta frá öðrum hringnum hjá Jordan Spieth. Ísak Jasonarson [email protected]
Ólafur Haukur Símonarson og Guðlaug María Bjarnadóttir hafa sett miðbæjarslot sitt við Spítalastíg 8 á sölu. Ásett verð er 89.900.000 kr. Húsið er 312 fm að stærð og stendur á eignalóð. Hjónin festu kaup á húsinu 1992 og er það eins og ævintýrahús og býður upp á allskonar möguleika. Framkvæmdaglaðir gætu útbúið tvær aukaíbúðir í húsinu en á lóðinni er rúmur byggingarréttur. Húsið er á tveimur hæðum en á fyrstu hæðinni er forstofa, þrjár stofur, eldhús og baðherbergi og á annarri hæð eru fjögur svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, fataherbergi og baðherbergi og í kjallaranum er þvottahús og vinnuherbergi ásamt geymslum. Þegar Ólafur Haukur og Guðlaug María festu kaup á húsinu var það endurbyggt, skipt var um flesta glugga og húsið einangrað og klætt með timburvatnsklæðningu. Auk þess var skipt um járn á þaki. HÉR er hægt að skoða húsið nánar. Hér fyrir neðan má heyra Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur syngja lagði, Er hann sá rétti, en lagið er úr leikritinu Gauragangi sem er eftir Ólaf Hauk. Hann samdi einmitt textann við þetta lag.
Vitnaleiðslum fyrir landsdómi, í máli Geirs Haarde, lauk í dag. Fjörutíu vitni komu fyrir dóminn en síðasta vitnið var Steingrímur J Sigfússon sem sagðist hafa varað við yfirvofandi hættu í nokkur ár fyrir hrun en talað fyrir daufum eyrum. Árni M Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, og Steingrímur J Sigfússon, sem var stjórnarandstöðuþingmaður árið 2008, gáfu skýrslu í dag. Árni sagði efnahags - og bankamál hafa verið rædd reglulega á fundum ríkisstjórnarinnar en Geir Haarde er meðal annars ákærður fyrir að hafa ekki haldið ráðherrafundi um mikilvæg málefni. Árni segir að öllum hafi verið ljóst fyrir hrun að það væri yfirlýst stefna stjórnvalda að það þyrfti að draga úr stærð bankakerfisins og að það hafi verið rætt á fundum hans og Geirs með bankamönnum. Árni segir að ákæruefnin haldi ekki vatni. „ Ég held að þau séu þess eðlis að það sé engin leið að sakfella Geir. “ Árni sagði að til að koma í veg fyrir hrunið hefði þurft að grípa til aðgerða gagnvart bönkunum árið tvöþúsund og þrjú. Vitnisburður Árna er að þessu leyti sambærilegur við það sem aðrir ráðherrar úr ríkisstjórn Geirs Haarde hafa sagt fyrir landsdómi. Steingrímur J Sigfússon sagðist hafa haft áhyggjur og varnaðarorð frá árinu 2005 en oftast talað fyrir daufum eyrum ráðamanna, stofnana og fjölmiðla. En í ljósi reynslu hans á ráðherrastóli, telur hann að stjórnvöld hefðu getað brugðist við árið 2008? „ Það er alltaf mjög erfitt að meta það, þarna voru aðstæður orðnar mjög erfiðar. Það var ekki auðveld staða sem þarna var komni upp og ef til vill má segja, eins og margir hafa sagt, að menn hefðu þá þurft áður og fyrr að vera með meiri meðvitund gagnvart þeim hættum sem steðjuðu að Íslandi. Ég var og er þeirrar skoðunar að allt frá árinu 2005 höfum við stefnt í ógöngur og reyndi á hverju einasta ári að vekja athygli á því. En það er erfitt að svara því síðan hvað menn hefðu getað gert á árinu 2008, það sem ekki er einu sinni prufað, það kemur ekki í ljós hvort það var hægt. “ Þegar búið var að taka skýrslu af Steingrími var Geir kallaður aftur í vitnastúku til að skýra frekar nokkur atriði. Hann sagði þá að ekkert hafi skort á samtöl og undirbúning varðandi það sem hægt var að gera, það hafi hins vegar ekki verið hægt að gera allt sem var nauðsynlegt að gera. Málið verður flutt munnlega á fimmtudag og föstudag. Landsdómur kemur næst saman klukkan 13 á fimmtudag til að hlýða á málflutning saksóknara Alþingis.
Söluferli á Samskiptum ehf. er hafið og verður Deloitte ehf. ráðgjafi Íslandspósts í sölunni. Söluferli á Samskiptum ehf. er hafið en Íslandspóstur auglýsti allt hlutafé í dótturfélagi sínu til sölu í dag. Samskipti er öflugt þjónustufyrirtæki á prentmarkaði sem leggur áherslu á faglega og persónulega þjónustu en það hefur verið leiðandi á sínu sviði allt frá árinu 1978. Salan á félaginu fer fram í samstarfi við Deloitte ehf. sem er ráðgjafi Íslandspósts í söluferlinu. Frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboði er til klukkan 16:00 þann 10. október næstkomandi en áhugasamir kaupendur eru hvattir til að hafa samband við Deloitte með tölvupósti á netfangið [email protected] til þess að fá nánari upplýsingar. „ Íslandspóstur stendur á tímamótum og nauðsynlegt er að líta á alla hluta rekstrarins og endurmeta hvernig fyrirtækið á að vera byggt upp til framtíðar. Undanfarið hafa stjórnendur og stjórn félagsins unnið saman að gerð áætlunar til þess að umbreyta rekstrinum og hefur meðal annars verið gripið til víðtækra hagræðingaraðgerða og endurskipulagningar. “ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts. „ Salan á Samskiptum er hluti af þessu breytingaferli en okkar helstu markmið eru að stórbæta þjónustu til viðskiptavina, snúa rekstri Íslandspósts úr tapi í hagnað og einbeita okkur að kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Prentsmiðjurekstur er ekki hluti af þeirri kjarnastarfsemi og því var ákveðið að selja félagið. Við vonumst til að söluferlið gangi hratt og örugglega fyrir sig enda er Samskipti þekkt og öflugt fyrirtæki á sínu sviði og er sem slíkt mjög áhugaverður fjárfestingarkostur. “
Í Sviss hefur hluthafi hafið baráttu gegn því, sem hann telur vera óhófleg launakjör stjórnenda almenningshlutafélaga. Í nýjasta heftir brezka vikuritsins Economist er sagt frá tveimur ársfundum bandarísks fyrirtækis, sem heitir Home Depot. Á síðasta ári mætti aðalforstjóri fyrirtækisins einn stjórnenda. Forstjórinn svaraði ekki spurningum, stórar klukkur á veggjum fundarsalar voru notaðar til þess að koma í veg fyrir að fundarmenn töluðu of mikið og fundinum lauk á 40 mínútum. Ári síðar hafði þessi forstjóri verið rekinn vegna þrýstings frá hluthöfum. Engar klukkur voru á veggjum. Nýi forstjórinn baðst afsökunar á fundinum í fyrra og nánast allir stjórnarmenn mættu. Spurningum var svarað. Í Bretlandi og í Bandaríkjunum svo og á meginlandi Evrópu, eins og dæmið frá Sviss sýnir, eru hluthafar í almenningshlutafélögum að láta til sín heyra. Þetta geta verið litlir hluthafar en líka fulltrúar áhættusjóða, sem fjárfest hafa í fyrirtækjum. En í öllum tilvikum er markmiðið hið sama : að koma því til skila að félögin eru eign hluthafanna og að þeir hafi síðasta orðið. Hvenær hefjast hluthafar á Íslandi handa?
Í kvöld varð ljóst í hvaða röð lögin sem keppa til úrslita í Eurovision verða flutt á laugardagskvöld. Daði Freyr og Gagnamagnið eru tólfta atriðið í röðinni, á eftir Sviss og á undan Spáni. Kýpverjar verða fyrstir á svið og síðustu tónarnir verða í flutningi San Marinó. Keppnin á laugardagskvöld stendur á milli 26 laga. Ten Years Daða Freys og Gagnamagnsins verður því rétt fyrir miðju í flutningi. Kýpur Albanía Ísrael Belgía Rússland Malta Portúgal Serbía Bretland Grikkland Sviss Ísland Spánn Moldóva Þýskaland Finnland Búlgaría Litháen Úkraína Frakkland Aserbaíjan Noregur Holland Ítalía Svíþjóð San Marinó
Ljúfur dagur í dag þar sem Eiki Einars tekur lagið, Hugrún les draugasögu í beinni, Röggu Gísla lag dagsins er á sínum stað og Svavar Knútur mætir í þekjuna. Við ætlum líka að gleðja hlustendur með blómum frá íslenskum blómabændum.
Ungverska knattspyrnusambandið hefur greint frá því að ekkert smit hafi greinst í leikmannahópi ungverska karla landsliðsins í knattspyrnu en liðið mætir Íslandi í úrslitaleik um laust sæti á EM 2022 í Búdapest annað kvöld. Fyrr í dag tilkynnti sambandið að Marco Rossi, þjálfari Ungverja, hafi greinst með kórónuveiruna en fyrie helgi var sagt frá sniti Giovanni Constantino, aðstoðarþjálfara liðsins. Þeir eru þar af leiðandi báðir í einangrun og munu ekki stýra liðinu á morgun í leiknum á Puskás-leikvanginum á morgun. Sjá einnig Þjálfari Ungverja smitaður af COVID - 19
Tæknifyrirtækið Google segir starfsmenn fyrirtækisins hafi náð miklum áfanga í þróun skammtatölva. Í grein sem birtist í Nature í dag segir að Google hafi þróað örgjörva sem hafi á 200 sekúndum unnið útreikninga sem hefðbundin ofurtölva þyrfti tíu þúsund ár til að reikna. Örgjörvinn sem um ræðir ber nafnið Sycamore. Stærstu tæknifyrirtæki heims vinna hörðum höndum að þróun skammtatölva og er talið að þær muni að endingu geta breytt heiminum verulega. Nánar tiltekið þá segir Google að örgjörvinn hafi náð „ skammta-yfirráðum “ eða Quantum Supremacy. Það er hugtak sem þýðir að fyrirtækið hafi hannað skammtatölvu sem geti unnið verk sem hefðbundnar tölvur geti ekki unnið á líftíma þeirra. Í viðtali við MIT Technology Review ber Sundar Pichai, forstjóri Google, afrek fyrirtækisins við fyrsta flug Wright-bræðranna. Sú flugvél þeirra bræðra hafi einungis flogið í tólf sekúndur en þrátt fyrir það hafi þeir sannað að flug væri hægt. Sérfræðingar segja enn mörg ár í að hægt verði að nota skammtatölvur á markvissan hátt. Hér má sjá útskýringu Vísindavefsins um skammtatölvur. Grein Google var birt fyrir mistök fyrir mánuði síðan og voru niðurstöðurnar þá gagnrýndar af sérfræðingum og þá sérstaklega sérfræðingum IBM, sem vinna einnig að þróun skammtatölva og byggðu ofurtölvuna sem Google ber getu Sycamore við. IBM segir í bloggfærslu sem birt var á mánudaginn að Google hafi vanmetið getu ofurtölvunnar Summit verulega. Sú tölva gæti gert það sem Google segir á tveimur og hálfum sólarhring en ekki tíu þúsund árum.
Erfiðara verður fyrir lækna að ávísa sterkum verkjalyfjum og amfetamíni með nýrri reglugerð um lyfseðla sem tekur gildi í apríl. Verkefnastjóri lyfjamála hjá Landlækni vonast til að hún gagnist í baráttunni við ofneyslu lyfja. Fimm hafa látið lífið vegna þessa í janúar. Talið er að fimm hafi látist í janúar vegna ofneyslu lyfja og í fyrra voru dauðsföllin yfir þrjátíu. Ólafur B. Einarsson, verkefnastjóri í lyfjamálum hjá Landlækni, segir að þetta sé þó ekki óvenjulega mikið. „ Árið 2016 vorum við með 48 matsgerðir vegna dauðsfalla til skoðunar og það lítur út fyrir að það verði talsverð lækkun fyrir árið 2017, “ útskýrir Ólafur. 32 matsgerðir hafi borist fyrir árið 2017 þótt þeim eigi sjálfsagt eftir að fjölga aðeins. „ Við leggjum áherslu á að það sé farið með réttar tölur þegar verið er að tala um fjölda dauðsfalla. Það virðist svolítið verið að tala um það núna að árið 2017 hafi verið alveg sérstaklega slæmt, en við sjáum það ekki í okkar tölum, “ segir hann. Ólafur segist því telja að aðgerðir Landlæknis hafi skilað einhverjum árangri, og nefnir sem dæmi að allir læknar séu nú komnir með aðgang að lyfjagagnagrunni embættisins og geti þannig séð hvað þeirra skjólstæðingar fái ávísað frá öðrum læknum. Ekkert amfetamín út á pappírslyfseðla Ný reglugerð um gerð lyfseðla tekur gildi í apríl. Ólafur segir að hún þrengi að ávísunum lyfja, sérstaklega örvandi amfetamínskyldra lyfja. Ekki verði hægt að ávísa þeim án lyfjaskírteinis og ekki með útgáfu pappírslyfseðla, heldur einungis rafrænna seðla svo að þeir sjáist í lyfjagáttinni. Eigi einstaklingur útgefinn seðil á lyf í gáttinni verður ekki heldur hægt að gefa út annan seðil á sams konar lyf af sama styrkleika. Ólafur segir að bundnar séu vonir við að reglugerðin muni enn færa þessi mál til betri vegar, þótt ágætlega hafi tekist til með lyfjagáttinni. „ Og við sjáum vissulega viss teikn á lofti um að að það hafi dregið úr ávísunum sumra lyfja, en það á til dæmis ekki við um kódeinlyfin – það er enn dálítið vandamál hér á landi varðandi þau, “ segir Ólafur B. Einarsson.
,, Góður leikur í dag, enn einn baráttuleikurinn, ' sagði Auðun Helgason, leikmaður Fram við Fótbolta.net eftir 2 - 0 sigur þeirra á ÍA í kvöld. Hann segir að Skagamennirnir hafi verið sterkir, en er ánægður með að ná að halda þeim niðri á jörðunni. ,, Skagamenn voru sterkir og þeir eru feykilega góðir fótboltamenn inn á milli og sem betur fer náðum við að halda aftur að þeim í dag. Þeir koma svona eins og maður vissi, með blússandi sóknarleik og það var gott að fá þetta mark í fyrri háflleik því að við vitum alveg hvað Skagamenn gera. Þeir eiga fullt inni. ' Framarar hafa ekki tapað stigi hafa þeir komist yfir í sumar og er það að miklu leyti að þakka öguðum varnarleik. ,, Við spilum bara allt liðið þéttan varnarleik og ógnum þeim. Hjalli ( Hjálmar Þórarinsson ) fékk tvö dauðafæri, kominn einn í gegn og svo launar hann sig í lokin. Hann er að spila frábærlega og setur hann glæsilegt 2 - 0 og þá var þetta komið. ' ,, Við eigum náttúrulega Þróttarana á Valbjarnarvelli í næstu umferð á sunnudaginn. Þróttararnir eru með hörkulið og það verður erfitt. Það er bara svona. Við erum alltaf að færast nær markmiðinu, sem er að eiga gott season þar sem við erum að ná stöðugleika, ' sagði Auðun að lokum við Fótbolta.net.
" Samtök iðnaðarins deila ekki þeirri skoðun, sem fram kemur í frumvarpinu, að skattlagning sykurs sé vænleg leið til að breyta neysluvenjum þjóðarinnar. Ákveði ríkisvaldið hins vegar að afla tekna með sérstakri skattlagningu matvæla geta SI tekið undir það sjónarmið að skattlagning alls sykurs sé sanngjarnari leið en sú sem nú er við lýði að því gefnu að takist að leggja sambærileg gjöld á sykur í tilbúnum vörum og á sykur sem hráefni. " Þetta segir meðal annars í umsögn Samtaka iðnaðarins um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vörugjald og á tollalögum en þar sé lagt til að vörugjöld á matvæli grundvallist á sykurinnihaldi þeirra. Mótmæla samtökin þeirri hækkun vörugjöldum á matvæli sem frumvarpið felur í sér. Breytt fyrirkomulag við innheimtu vörugjalda af sykruðum matvælum breyti ennfremur ekki þeirri staðreynd að iðnfyrirtæki á Íslandi muni bera stærstan hluta vörugjalda á matvæli. Þá lýsa Samtök iðnaðarins " vanþóknum á starfi hins svokallaða starfshóps um endurskoðun vörugjalda á matvæli. Fagþekking þátttakenda í hópnum var ekki nýtt til að ná fram faglegri umræðu um markmið og leiðir við álagningu vörugjalda á matvæli. Þess vegna er þessi breyting á kerfinu ekki eins vel undirbúin og hægt hefði verið. " Í lok umsagnarinnar ítreka samtökin " þá skoðun sína að skynsamlegt sé að afnema vörugjöld á öllum iðnaðarvörum og að það væri í raun til hagsbóta fyrir ríkissjóð sem og neytendur. "
Mikil reiði er meðal félaga í starfsmannafélagi gamla Glitnis vegna neitunar Fjármálaeftirlit ríkisins á að taka ábyrgð á eftirlaunasjóði starfsmannanna. Anna Karen Hauksdóttir, formaður starfsmannafélagsins, segir í samtali við fréttastofu RÚV að eftirlaun um 600 félagsmanna séu í húfi. Félagsmenn eftirlaunasjóðsins eiga það sameiginlegt að hafa hafið störf hjá ríkisbönkunum 1. janúar 1994 eða fyrr, flestir hjá gamla Útvegsbankanum. Rúmlega 200 þeirra eru á eftirlaunum, tæplega 300 við störf utan bankans en rétt um 90 starfsmenn vinna hjá Glitni í dag. Íslandsbanki var á sinum tima dæmdur í félagsdómi til að yfirtaka ábyrgð á sjóðnum. Anna Karen segir ríkið nú firra sig ábyrgð sem upphaflega var þess. Bankinn hefur greitt árlega í sjóðinn og á síðasta ári nam upphæðin rétt um 660 milljónum króna. Anna Karen Hauksdóttir segir ekkert geta bætt félagsmönnum skaðann falli bakábyrgð ríkisins út.
Hérðassaksóknari hefur boðað starfsmenn RÚV, Stundarinnar og 365 til skýrslutöku vegna gagnaleka úr Glitni. Tólf starfsmenn RÚV, Stundarinnar og 365 miðla hafa verið boðaðir til skýrslutöku hjá Héraðssaksóknara vegna rannsóknar á gagnaleka úr Glitni. RÚV greinir frá. Rannsókn Héraðssaksóknara byggir á tveimur kærum sem Fjármálaeftirlitsins. Fyrri kæran er frá því í febrúar vegna umfjöllunar Kastljóss og 365 miðla um viðskipti og hlutabréfaeign hæstaréttardómara fyrir hrun. Seinni kæran er vegna umfjöllunar Stundin og RÚV um viðskipti forsætisráðherra og tengdra aðila við Glitni fyrir hrun í október. Glitnir fékk lögbann á umfjöllunar Stundarinnar um málið. Héraðssaksóknari sagði í samtali við RÚV í síðasta mánuði að málin yrðu að öllum líkindum sameinuð. Um er að ræða fimm starfsmenn 365 miðla, fjóra starfsmenn RÚV og þrjá starfsmenn Stundarinnar. Einhverjir þegar hafa þegar mætt til skýrslutöku en aðrir verða boðaðir á næstunni. Þá sendi Glitnir HoldCo, Kjarnanum nýverið bréf vegna umfjöllunar miðilsins um verðbréfaviðskipti aðila tengdum Glitni síðustu dagana fyrir fall bankans. Í bréfinu kom fram að Glitnir áskildi sér rétt til að grípa til allra lögmætra aðgerða enda stæðist umfjöllunin ekki lög. RÚV segist hafa fengið samskonar bréf í október eftir umfjöllun sína um viðskipti forsætisráðherra fyrir hrun.
Liverpool er yfir í hálfleik, 1 : 0, gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var Robbie Fowler sem skoraði markið eftir sendingu frá Peter Crouch á síðustu mínútu hálfleiksins. Fram að því var leikurinn heldur tilþrifalítill. Stelios Giannakopoulos, leikmaður Bolton, fékk dauðafæri strax á 8. mínútu en José Reina, markvörður Liverpool, varði vel frá honum. Undir lok hálfleiksins skallaði siðan Peter Crouch beint á markvörð Bolton, Jussi Jääskeläinen, af örstuttu færi. Sjá einnig enski.is < / a
Ekstra Bladet segir að lögreglan í Kaupmannahöfn hafi staðfest að einn sé látinn eftir skotárásina við Krudttønden í Fælledparken fyrr í dag. Ekki hefur verið upplýst hvort það sé lögreglumaður eða óbreyttur borgari sem er látinn. Uppfært 17:10 : Sá látni er almennur borgari á fertugsaldri. Þrír eru særðir og eru þeir ekki taldir í lífshættu. Sjá nánar hér
Forstjóri Vegagerðarinnar segir starfsmenn vera harmi slegna yfir banaslysi og endurskoði alla ferla við yfirlagnir. Vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu vill Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar koma því á framfæri að starfsmenn eru harmi slegnir yfir banaslysi á Kjalarnesi í júnílok og því að slíkar aðstæður hafi getað skapast við venjubundið viðhald á vegum. Á dögunum birtist í fréttaþættinum Kveik á RÚV harðorð gagnrýni á Vegagerðina m.a. vegna framkvæmdanna við slitlag á Kjalarnesi og víðar og er væntanlega verið að vísa í umræðuna sem skapast hefur í kjölfarið. Vegagerðin segist nú vinna að umfangsmikilli endurskoðun á öllum ferlum sem lúta að yfirlögnum á vegakerfinu. Markmið þeirrar vinnu sé að tryggja að slys sem þetta geti ekki komið fyrir aftur. Einungis einn verkþáttur í útboði verktakans sem sagður er þó vera með mikla reynslu stenst kröfur samkvæmt rannsókn og því hafa allir hinir vegakaflarnir í útboðinu verið fjarlægðir. Yfirlýsing frá forstjóra Vegagerðarinnar : „ Vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu viljum við hjá Vegagerðinni koma eftirfarandi á framfæri, “ segir Bergþóra í yfirlýsingunni sem birtist á vefsíðu Vegagerðarinnar. „ Í júní síðastliðnum átti sér stað hræðilegt slys á Kjalarnesi. Á umræddum vegarkafla var nýlokið viðhaldi á malbiksyfirborði og beindust sjónir strax að frávikum í framkvæmd þessa verks. Rannsóknir á viðnámi á yfirborði sýndu í framhaldinu að miklu munaði að uppfylltar væru kröfur í útboðslýsingu til verksins. Í rannsóknum sem gerðar voru í kjölfarið og enn eru í gangi kemur berlega í ljós að umrætt malbik stóðst ekki útboðskörfur Vegagerðarinnar. Augljóst samhengi er milli þeirra galla og þeirra aðstæðna sem sköpuðust á slysstað. Við starfsmenn Vegagerðarinnar erum harmi slegin yfir slysinu og því að slíkar aðstæður hafi getað skapast við venjubundið viðhald á vegum. Í framhaldi af þessu hafa allir hlutar umrædds verks verið fjarlægðir utan einn sem sannarlega stóðst kröfur til viðnáms. Verkið sem um ræðir var framkvæmt af verktaka með mikla reynslu. Sú reynsla kom því miður ekki í veg fyrir þær afleiðingar sem við öll þekkjum. Vegagerðin vinnur nú að umfangsmikilli endurskoðun á öllum ferlum sem lúta að yfirlögnum á vegakerfinu. Markmið þeirrar vinnu er að tryggja að slys sem þetta geti ekki komið fyrir aftur. “
Jónsmessugleði Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ, verður haldin kl. 19.30 til 22 í kvöld við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar. Listaverk verða til sýnis milli staura meðfram stígnum og geta gestir því notið sumarsólstaða til jafns við fjölbreytta list. Fjöldi listamanna tekur þátt í gleðinni með ýmis konar listatriðum, s.s. söng, dansi og leik. Gróska hvetur alla til að fjölmenna og taka þátt í að gefa, gleðja og njóta. Í tilefni Jónsmessunætur býður Borgarsögusafn Reykjavíkur upp á menningar - og náttúrugöngu kl. 22.30 til 24 í kvöld. Gengið verður frá Árbæjarsafni niður í Elliðaárdal, en þar verður staldrað við á völdum stöðum og fjallað um íslenska þjóðtrú og sögu svæðisins. Sigurlaugur Ingólfsson, sagnfræðingur, leiðir gönguna og kíkt verður í heimsókn til Jóns Sveinbjörnssonar, prófessors, sem sýnir göngufólki falda perlu í borgarlandinu. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins í handbolta, er afar hrifinn af Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, og segir að hann hafi haft mikil áhrif á sig. Þrátt fyrir að Alfreð hafi þjálfað í þrjá áratugi og samfellt í Þýskalandi síðan 1997 er hann enn tilbúinn að læra og hrífast af öðrum þjálfurum. „ Ég verð að segja að það sem Klopp hefur gert hjá Liverpool fyllir mig innblæstri. Hvernig hann fær liðið með sér, eininguna sem hann býr til og hversu eðlilega hann kemur fyrir. Mér finnst það frábært, “ sagði Alfreð í viðtali við Mannheimer Morgen. Alfreð undirbýr nú þýska landsliðið fyrir Evrópumótið í Ungverjalandi og Slóvakíu í næsta mánuði. Miklar breytingar hafa orðið á þýska liðinu að undanförnu og það er yngra og óreyndara en oft áður. „ Fyrir utan markverðina og Hendrik Pekeler er vöntun á þýskum heimsklassa leikmönnum. Nokkrir geta komist í þann hóp en það tekur tíma, “ sagði Alfreð. Hann segir að styrkur þýsku úrvalsdeildarinnar geri ungum þýskum leikmönnum erfitt um vik að brjótast fram á sjónarsviðið. „ Það er erfitt fyrir unga leikmenn að festa sig í sessi í þýsku úrvalsdeildinni. Það er auðveldara fyrir unga leikmenn í Danmörku og Frakklandi. “ Alfreð er einnig ósáttur með hversu margir sterkir leikmenn gefa ekki kost sér í þýska landsliðið. „ Það er mér hulin ráðgáta af hverju leikmenn velja að spila ekki fyrir landsliðið. Ég er vonsvikinn með hversu margir gefa ekki kost á sér. Ef þú horfir á Norðurlandaþjóðirnar, Frakkland, Spán og Króatíu er landsliðið gríðarlega mikilvægt fyrir alla. Leikmennirnir elska að spila með því, “ sagði Alfreð sem er á leið á sitt þriðja stórmót með þýska landsliðinu. Þýskaland er í riðli með Austurríki, Hvíta-Rússlandi og Póllandi á EM. Fyrsti leikur Þjóðverja er gegn Hvít-Rússum 14. janúar.
Mörg hundruð manns hafa lagt leið sína í Herkastalann, hús Hjálpræðishersins við Kirkjustræti í Reykjavík, í morgun. Þar var blásið til sölu á margs konar gersemum úr húsinu. „ Við erum að selja lausamunina í húsinu okkar, þar sem við erum að flytja úr húsinu eftir 10 daga. Við erum að selja sem sagt það sem við ætlum ekki að nota á nýja staðnum, “ segir Ingvi Kristinn Skjaldarson, flokksleiðtogi hjá Hjálpræðishernum. Hvers konar munir eru þetta? „ Þetta er allt frá því að vera kertastjakar upp í borð og rúm, bara það sem maður notar þegar maður rekur gistiheimili, “ segir Ingvi og tekur fram að viðtökur hafi verið góðar og húsið smekkfullt í allan morgun. Hvað ætlið þið að gera við afraksturinn af þessari sölu? „ Við geymum hann þar til við erum búin að byggja. Og hann fer í það að koma nýjum mublum og nýju dóti inn í það hús sem við byggjum á nýja staðnum. “
ALFREÐ Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir algjörlega fráleitt að gefa það í skyn að kostnaður við byggingu nýrra höfuðstöðva OR hafi farið 4.000 milljónum fram úr áætlun. Það hafi heldur aldrei verið gert ráð fyrir að söluverð eldri eigna myndi duga fyrir byggingu nýrra höfuðstöðva. Alfreð segir að öllum innan borgarkerfisins hafi verið það ljóst að upphafleg kostnaðaráætlun ætti aðeins við um skrifstofubygginguna sem nú er risin við Bæjarháls. Þegar hafist var handa við byggingu hússins hafi þegar verið búið að kaupa svonefnt Norðurhús og kostnaður vegna þess hafi því aldrei verið inni í kostnaðaráætlun vegna skrifstofubyggingarinnar. Það væru því engar forsendur til þess að bæta kostnaði vegna Norðurhúss inn í samanburð við upphaflegu kostnaðaráætlunina. Sama ætti við um tengibygginguna, kostnaður vegna hennar hefði verið inni í áætlunum um Norðurhús en ekki skrifstofubyggingarinnar. " Menn verða að bera saman sambærilega hluti, " segir Alfreð. " Það var bara gerð kostnaðaráætlun um þessa skrifstofubyggingu og í ársbyrjun 2005 nam kostnaðurinn tæplega 3,3 milljörðum, eða 500 - 600 milljónum meira en áætlanir gerðu ráð fyrir. " Þegar hornsteinn var lagður að nýrri skrifstofubyggingu OR við Réttarháls árið 2002 var sagt að kostnaður við húsið myndi nema 2,3 milljörðum. Alfreð segir að seinna hafi verið ákveðið að stækka húsið um 1.000 fermetra og vegna þess hafi verið gerð ný kostnaðaráætlun sem hafi, framreiknuð á verðlag 1. janúar 2003, numið tæplega 2,7 milljörðum. Kostnaðurinn nam á endanum tæplega 3,3, milljörðum, 588 milljónum meira en áætlunin gerði ráð fyrir. Á blaðamannafundi sem Alfreð og Guðmundur Þórhallsson, forstjóri OR, héldu í janúar 2005 var sagt að heildarkostnaður vegna höfuðstöðvanna væri 4,2 milljarðar. Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarformaður OR, greindi hins vegar frá því í gær að heildarkostnaður væri 5,8 milljarðar miðað við áramótin 2005 / 2006. Tæplega 600 milljónir skýrast af því að Guðlaugur Þór tekur tillit til kostnaðar við innréttingar í skrifstofubyggingunni en það gerðu þeir Alfreð og Guðmundur ekki. Aðspurður segir Alfreð að ekki sé venjan að taka tillit til innréttinga í kostnaðaráætlunum sem þessum. En jafnvel þó að kostnaður við innréttingar sé ekki inni í tölum Guðlaugs Þórs munar enn um einum milljarði króna. Spurður um hvernig standi á því segir Alfreð að hann hafi ekki séð þessar tölur Guðlaugs Þórs, en eftir þeim upplýsingum sem hann hafi fengið hjá forstjóra OR, skýrist munurinn á því að Guðlaugur taki tillit til ýmissa þátta sem ekki hafi verið í kostnaðaráætlun og hafi ekki átt þar heima, t.a.m. búnaður fyrir verkstæði, vararafstöð og fleira. Dýrar framkvæmdir 2005 KOSTNAÐUR við skrifstofubyggingu Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls, tengibyggingu, bílastæðahús og lóð var 4.323 milljónir og innréttingar í skrifstofubyggingunni kostuðu 582 milljónir, samkvæmt upplýsingum frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, stjórnarformanni OR. Samtals eru þetta 4,9 milljarðar og þegar kostnaði við Norðurhús er bætt við nemur kostnaður við höfuðstöðvarnar tæplega 5,9 milljörðum. Þetta er langtum meira en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir og einnig mun hærri tala en Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformaður, og Guðmundur Þórhallsson, forstjóri OR, kynntu í janúar 2005. Þá verður að hafa hugfast að tölur Guðlaugs Þórs taka einnig til framkvæmda á árinu 2005. Á blaðamannafundi Alfreðs og Guðmundar var greint frá því að kostnaður við skrifstofubygginguna hefði verið tæplega 3,3 milljarðar og þegar kostnaði við tengibyggingu, bílastæðahús og lóð er bætt við nam kostnaðurinn rúmlega 3,7 milljörðum. Samtals munar því 1,2 milljörðum á þeirri tölu sem Guðlaugur Þór nefnir sem kostnað við þessar byggingar og þeirrar niðurstöðu sem Alfreð og Guðmundur kynntu. Þá á eftir að fjalla um kostnað við svonefnt Norðurhús sem tilheyrir höfuðstöðvunum ásamt hinum byggingunum. Að sögn Guðlaugs Þórs nam kostnaður við það hús 979 milljónum en á blaðamannafundinum í janúar 2005 var sagt að kostnaður við breytingar á Norðurhúsi hefði numið 125 milljónum en húsið verið keypt á 397 milljónir, samtals var kostnaðurinn því 522 milljónir. Þegar allt er dregið saman segir Guðlaugur Þór að heildarkostnaður við höfuðstöðvarnar hafi numið 5.885 milljónum en á blaðamannfundinum í janúar 2005 kom fram að heildarkostnaður hefði numið 4.256 milljónum. Munurinn er um 1,6 milljarðar, þar af eru tæplega 600 milljarðar eingöngu vegna innréttinga í skrifstofu. Enn munar um einum milljarði og segir Guðlaugur Þór að sá munur skýrist af stórum hluta af miklum kostnaði sem hafi fallið á Norðurhús og fleiri framkvæmdir sem hafi verið unnar á árinu 2005. Lengi gagnrýnt kostnað Guðlaugur Þór hefur lengi gagnrýnt mikinn kostnað við byggingu nýrra höfuðstöðva og í viðtali við Morgunblaðið í janúar 2005 gagnrýndi hann harðlega kynningu Alfreðs og Guðmundar á kostnaðartölum. Hann sagði þá m.a. að þegar upphaflega var ákveðið að ráðast í framkvæmdirnar hafi verið sagt að sala á húseignum OR myndi duga fyrir nýrri byggingu. Söluverð þeirra á verðlagi í janúar 2005 hefði numið rúmlega 2,1 milljarði króna. Þá væri blekkjandi að nota einungis kostnað við skrifstofubygginguna enda hefði deilan ekki snúist um það, heldur heildarkostnað. Yfirlýsing ALFREÐ Þorsteinsson sendi í gær frá sér eftirfarandi yfirlýsingu : " Í Morgunblaðinu 15. september er viðtal við Guðlaug Þór Þórðarson nýjan stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur um kostnað við höfuðstöðvar fyrirtækisins á Bæjarhálsi. Er fullyrt að byggingin hafi farið 4 milljarða króna fram úr kostnaðaráætlun. Hér er um svo grófa fölsun að ræða að engu tali tekur. Hið rétta er að deilur um kostnað við nýjar höfuðstöðvar OR snérust um aðalbygginguna en ekki um önnur hús á svæðinu né búnað í byggingunum. Samkvæmt svari forstjóra OR við fyrirspurn sjálfstæðismanna í stjórn OR í ársbyrjun 2005 var kostnaður við aðalbygginguna rúmir 3,2 milljarðar króna en endurskoðuð kostnaðaráætlun nam 2,7 milljörðum króna. Þar skeikar um 500 milljónir króna en ekki 4 milljörðum. Þá er rétt að halda því til haga að því hefur aldrei verið haldið fram að sala á eldri eignum ætti að dekka allan kostnað við aðalbygginguna heldur ætti söluandvirðið að ganga upp í byggingarkostnað nýrra höfuðstöðva. Samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn hlýtur að spyrja sig hvort vinnubrögð formanns OR séu til marks um vinnubrögð sem eigi að innleiða á öðrum sviðum. Alfreð Þorsteinsson fyrrverandi formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. " < / div
Anatolín Alcaraz, varnarmaður enska knattspyrnuliðsins Wigan, hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann fyrir að hrækja á mótherja í leik liðsins við Wolves í úrvalsdeildinni. Alcaraz viðurkenndi sekt sína en tiltækið fór framhjá dómurum leiksins. Það náðist hinsvegar á myndband. Alcaraz, sem er landsliðsmaður frá Paragvæ, missir af leikjum Wigan við Blackburn, Sunderland og Arsenal. Segja má að hann sé kominn í eins mánaðar bann því næsti leikur sem varnarmaðurinn getur spilað, er gegn WBA 10. desember.
Maðurinn sem leitað var að eftir að hann féll í Jökulsá í Lóni á mánudagskvöld fannst látinn nokkrum klukkutímum síðar. Maðurinn var á hestaferðalagi ásamt átta ferðafélögum þegar hann féll af baki í ánni. Fimm félagar hans biðu á eyri í miðri á og hringdu eftir hjálp. Á fjórða tug björgunarsveitarmanna frá Höfn, Djúpavogi og Fáskrúðsfirði, ásamt leitarhundum, tók þátt í leit að manninum ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Fólkið sem var á eyrinni var í sjálfheldu og þurfti á aðstoð þyrlunnar að halda til að komast burt. Eyrin er ofan í gili og voru aðstæður auk þess erfiðar vegna veðurs. Þyrlan gerði nokkrar tilraunir til að komast að fólkinu, en varð alltaf frá að hverfa. Þegar lokatilraun var gerð hafði raunar verið ákveðið að hætta við björgunina, en með hjálp nætursjónauka tókst að lokum að lenda. Flogið var með fólkið, auk hluta hópsins sem var við Múlaskála, á Illakamb þar sem það fór í bíl Landsbjargar. Hinn látni var svo sóttur og flogið með hann á Hornafjörð, en þangað var komið um miðnætti. Tildrög slyssins eru talin vera þau að hestur mannsins hafi hrasað í ánni en hún er nokkuð stórgrýtt. Hrossin, sem eru 38, voru skilin eftir á eyrinni og verður reynt að sækja þau á föstudag. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Afrek þyrluáhafnar Skipti öllu að fá þyrluna " Það skipti öllu máli að fá þyrluna og það var aðdáunarvert að horfa á þá vinna á nætursjónaukanum milli fjallanna og niðri í þessum gljúfrum. Þeir gátu varla flogið á tímabili og þurftu að þrusa sér niður í gljúfur og komast á góðan hraða til að geta lyft sér aftur upp, " sagði Friðrik Jónas Friðriksson, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar, um björgunina.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja hélt ráðstefnuna Dyslexía – nám og kennsla í framhaldsskólum dagana 5. og 6. október. Var hún hugsuð fyrir framhaldsskólakennara, kennara í efri bekkjum grunnskóla, námsráðgjafa, starfsfólk símenntunarmiðstöðva og aðra sem áhuga hafa á málefninu. Markmiðið með ráðstefnunni var að auka skilning á dyslexíu eða leshömlun og að efla og styrkja kennara í kennslu nemenda með dyslexíu. Ráðstefnan tókst í alla staði vel og voru ráðstefnugestir um 150 talsins hvaðanæva af landinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra setti ráðstefnuna. Aðalfyrirlesari var Gavin Reid, dósent við Edinborgarháskóla. Hann er einn helsti sérfræðingur í Evrópu á sviði dyslexíu og hefur skrifað margar bækur um nám og kennslu nemenda með dyslexíu. Gavin Reid hélt mjög áhugaverða fyrirlestra báða dagana auk þess að vera með eina af átta smiðjum. Ýmsir innlendir sérfræðingar sáu um hinar smiðjurnar sem meðal annars fjölluðu um ýmsar kennsluaðferðir og tækninýjungar sem nýtast nemendum með dyslexíu vel.
Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld kom fram að Norðurljós hf. hefðu tilkynnt starfsmönnum útvarpsstöðvarinnar Útvarps Sögu í gær að ekki væri lengur rekstrargrundvöllur fyrir stöðinni og yrði henni lokað í dag. Samkvæmt fréttinni undirbúa starfsmenn Útvarps Sögu nú að taka rekstur stöðvarinnar yfir og voru útsendingar enn í gangi í dag.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, ávarpaði félaga sína í Íhaldsflokknum á ársfundi flokksins í dag og blés þeim von í brjósti með fögrum fyrirheitum um hvernig venja ætti breskt efnahagslíf af því að nýta sér ódýrt erlent vinnuafl, eftir Brexit, og stýra því til betri vegar. AFP-fréttastofan greinir frá. Hann gaf lítið fyrir ástandið sem skapast hefur á bensínstöðvum landsins eftir að áhyggjufullir kaupendur hafa flykkst þangað til að tryggja sér eldsneyti, hálftómar hillur í verslunum og varnarorð kaupmanna um að framundan séu dapurleg jól í viðskiptum. Boris sagði þetta skammvinna erfiðleika sem væru þess virði í stóra samhenginu. Löngu tímabært breyta um stefnu „ Við erum að takast á við mikinn undirliggjandi vanda í hagkerfinu og samfélaginu okkar, vandamál sem enginn ríkisstjórn hefur haft kjark til að takast á við fyrr en nú. Við erum að breyta um stefnu sem var löngu tímabært í breska efnahagkerfinu, “ sagði hann og lofaði því að ekki yrði snúið aftur til þeirra stefnu að leyfa óheft flæði innflytjenda. Þess í stað yrðu atvinnurekendur að fjárfesta í starfsfólki sínu og tækni og stýra þannig landinu í átt til hærri launa, frekari fagkunnáttu og aukinnar framleiðni í efnahagskerfinu. Johnson varaði þó við að þessar umbreytingar tækju tíma og á meðan hefði ríkisstjórnin samþykkt að gefa tímabundið út ákveðinn fjölda atvinnuleyfa fyrir flutningabílstjóra og landbúnaðarverkafólk frá Austur-Evrópu. En skortur á verkafólki hefur skapað töluverð vandræði, meðal annars við flutning á eldsneyti. Ríkisstjórnin vill þó meina að kórónuveiran hafi haft meiri áhrif í þessu samhengi heldur en Brexit nokkurn tíma.
Íslandsmót kaffibarþjóna og Íslandsmót í kaffigerð falla niður í ár vegna ónógrar þátttöku. Aðeins þrír skráðu sig á Íslandsmót kaffibarþjóna og einn í kaffigerð en reglur Kaffibarþjónafélags Íslands kveða á um að lágmarksfjöldi sé átta keppendur. Ísland sendir því ekki keppanda á heimsmeistaramót kaffibarþjóna. Frá þessu er greint á vefsvæði Kaffibarþjónafélag Íslands í dag. Þar segir að þetta sé í fyrsta skipti frá upphafi sem Ísland sendir ekki frá sér meistara á heimsmeistaramót kaffibarþjóna. Heimsmeistaramót kaffibarþjóna var fyrst haldið í Monte Carlo árið 2000 og hefur síðan farið fram árlega. Íslenskum keppendum hefur gengið vel í gegnum árin og oftar en ekki komist í sex manna úrslit. Þá hlutu þær Erla Kristinsdóttir og Ása Jelena Pétursdóttir báðar hlotið silfurverðlaun.
Dönsk stjórnvöld telja að landið sé nú komið í hóp helstu skotmarka al-Qaeda samtakanna. Sé landið þar ásamt Ísrael, Bandaríkjunum og Englandi.
Er ekki allt í lagi í þessum stofnunum? - Júxml : namespace prefix = o ns = " urn : schemas-microsoft-com : office : office " / Hafa menn nokkuð orðið varir við að allt sé í hers höndum í Vegagerðinni? Eða að Flugmálastjórn sé hvorki fugl né fiskur? Finnst mönnum kannski slakur gangur í ferðamálunum í landinu? Hafa máske borist fregnir af því að illa gangi við rannsókn sjóslysa í landinu? Auðvitað er svarið nei. Rekstur allra þessara stofnana gengur vel. Vegagerðin er vel rekin stofnun, Flugmálastjórn sinnir sömuleiðis sínu hlutverki vel, á sviði ferðamála hefur uppbyggingin aldrei verið meiri og vinnulag Rannsóknarnefndar sjóslysa hefur verið með miklum ágætum. En hvers vegna var þá spurt? Jú svarið er þetta. Þannig er mál með vexti að ein algengasta viðbáran gegn flutningi opinberra verkefna og staðsetningu þeirra á landsbyggðinni hefur verið sú einatt að slíkt setti starfsemi viðkomandi stofnana upp í loft. Þær stofnanir sem hér voru nefndar til sögunnar eiga einmitt það sameiginlegt að verkefni á þeirra vegum hafa verið flutt út á land í miklum mæli. Ekki hefur það bakað þessum stofnunum tjón ; öðru nær. Þær eru að minnsta kosti jafn góðar og áður. Goðsögnin um hin neikvæðu áhrif verkefnatilflutningsins út á land er einmitt það ; ómerkileg goðsögn. Samgönguráðherra hefur gefið tóninn Það er með öðrum orðum hægt að flytja verkefni hins opinbera út á land. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur sannað það með verkum sínum. Hann hefur markað lofsvert fordæmi og sýnt að með góðum, fumlausum vinnubrögðum og skýrri stefnumótun í þessa átt er unnt að ná miklum árangri í því að fjölga opinberum verkefnum á landsbyggðinni. Sjálfsagt er að vinna vel að undirbúningi. Eðlilegt er og sanngjarnt gagnvart starfsfólki á höfuðborgarsvæðinu að aðdragandi sé viðunandi og að fólk fái umþóttunartíma. Það er betra að vinna hægar en skila árangri í stað þess að fara af stað með lúðrablæstri og mistakast. Með góðum undirbúningi og vönduðum vinnubrögðum er það vel gerlegt að færa verkefni á landsbyggðina, eins og dæmin úr stofnunum Samgönguráðuneytisins sanna. Sú kyrrð og ró sem bersýnilega ætlar að verða í kring um flutning starfa Fiskistofu út á land, er einnig dæmi um þetta. 95 störf út á land Í svari samgönguráðherra við spurningu Örlygs Hnefils Jónssonar varaþingmanns Samfylkingarinnar á Alþingi á 128 löggjafarþingi eru dregnar fram staðreyndir um þetta mál. Í samantekt um málið segir orðrétt : " Af framansögðu má sjá að markvisst hefur verið unnið að flutningi starfa út á land á vegum stofnana samgönguráðuneytis og hlutafélaga á þess vegum. Meginniðurstaðan er sú að á undanförnum árum, þó sér í lagi frá árinu 1999 fram til dagsins í dag, hefur verið stofnað til 95 nýrra starfa úti á landi á vegum stofnana samgönguráðuneytis og hlutafélaga á þess vegum. " Þetta eru merkilegar upplýsingar. Í svarinu er síðan tíundað ítarlega hvernig þessi verkefnatilflutningur átti sér stað út á land. Dæmi um slíkan flutning starfa má finna í Borgarnesi, Stykkishólmi, Ísafirði, Akureyri, Búðardal, Blönduós og Egilsstaði, svo dæmi séu nefnd. Nánari upplýsingar má svo finna á slóðinnihttp : / / www.althingi.is / altext / 128 / s / 0531. html. Það er í raun merkilegt hversu litla athygli þessar ákvarðanir Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra hafa vakið. Ganga þær þó þvert á umræðuna í landinu og eru til áþreifanlegs sannindamerkis um að leiðin að byggðalegri viðreisn með flutningi ríkisstarfa, er fær og gerleg. Og það sem meira er, þær hafa gengið vel fyrir sig og eru því ágætis dæmi til að benda á. Nákvæmlega það eigum við að gera í baráttunni fyrir því að fleiri fylgi á eftir. xml : namespace prefix = st 1 ns = " urn : schemas-microsoft-com : office : smarttags " / Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins
Akureyrarstofa auglýsir Sigurhæðir til leigu, húsið sem þjóðskáldið séra Matthías Jochumsson lét reisa árið 1903. Húsið verður leigt til 4 ára með möguleika á framlengingu í önnur 4 ár. Húsið er friðað í B-flokki og verður starfsemi í húsinu að samræmast þeim kvöðum sem því fylgja og vera þess eðlis að ekki mæði of mikið á því. Leigjendur hafa ekki heimild til að framleigja húsið. Nánari upplýsingar veitir Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu ; netfang : [email protected]. Sjá einnig : Frétt fengin af vef Akureyrarbæjar
Garðar Thór Cortes tenór og Tinna Lind Gunnarsdóttir eru skilin. Þetta kom fram í nýjasta tölublaði Séð og heyrt. Þau höfðu verið saman síðan árið 2000 en þau giftu sig árið 2007 og eiga einn son saman. Garðar Thór er einn fremsti söngvari landsins og sló ungur í gegn í þáttunum um Nonna og Manna. Tinna Lind er leikkona og lék meðal annars í myndinni Desember og í leikritinu Fló á skinni.
Margir áhugaverðir leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og á morgun en Íslendingar mætast til að mynda í Burnley. Í fyrsta leik helgarinnar klukkan 12:30 mætast Burnley og Everton, lið þeirra Jóhanns Bergs Guðmundssonar og Gylfa Þórs Sigurðssonar. Burnley þarf að taka við sér á næstunni ef ekki á illa að fara í vetur því liðið hefur byrjað tímabilið illa. David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham, fær sitt gamla lið Manchester United í heimsókn seinni partinn og í kvöld gæti orðið verulega fjörugur leikur þegar Chelsea tekur á móti Leeds. Áhugaverðasta viðureign helgarinnar í huga flestra er grannaslagur Tottenham og Arsenal á morgun klukkan 16:30. Mikið verður um að vera um helgina á Símanum Sport og mun Robbie Keane segja áhorfendum á Íslandi skoðanir sínar á leik Arsenal og Tottenham.
Grunnskóla Fjallabyggðar verður slitið á föstudaginn kemur, 2. júní, nánar tiltekið sem hér segir : Kl. 10.00 í íþróttahúsinu í Ólafsfirði ( 1. - 4. bekkur og 5. - 7. bekkur ). Kl. 13.00 í íþróttasalnum við Norðurgötu á Siglufirði ( 1. - 4. bekkur ). Kl. 17.00 í Siglufjarðarkirkju ( 8. - 10. bekkur ).
Serbinn í liði Manchester United, Nemanja Vidic, mun ferðast með liðinu í æfingaferðalag til Skandinavíu um helgina. United mætir Valeranga á sunnudaginn í Noregi áður en liðið fer til Gautaborgar á miðvikudag og mætir stórliði Barcelona. Endurkoma fyrirliðans eftir krossbandaslit er á frábærum tíma fyrir United þar sem þeir Chris Smalling og Jonny Evans verða frá næstu vikurnar vegna meiðsla. Að auki er Rafael með brasilíska landsliðinu á Ólympíuleikunum. ,, Chris Smalling er frá í 10 vikur eftir aðgerð á rist og Evans er enn að æfa mjög létt, ' sagði Sir Alex Ferguson, stjóri liðsins í dag. ,, Þeirra verður sárt saknað og munu þeir missa af byrjun tímabilsins. Rafael er í burtu, en við höfum Phil Jones, Nemanja Vidic, Rio Ferdinand og Patrice Evra. ' ,, Þeir fjórir verða þeir fjórir öftustu í ferðinni. Vonandi bætast ekki við meiðsli þar sem þau myndu valda mér vandræðum. ' David de Gea mun væntanlega snúa aftur í lið United um helgina, fyrr en áætlað var, eftir að Spánverjar duttu út snemma á Ólympíuleikunum.
FISKMARKAÐUR AUSTURLANDS Gullkarfi 74 59 61 213 12,972 Hlýri 95 95 95 651 61,845 Náskata 40 40 40 236 9,440 Skarkoli 153 146 153 822 125,430 Skrápflúra 28 28 28 179 5,012 Steinbítur 86 86 86 62 5,332 Und. Ýsa 17 17 17 108 1,836 Ýsa 77 30 60 675 40,773 Þorskur 146 127 131 1,528 199,422 Samtals 103 4,474 462,062 FISKMARKAÐUR DALVÍKUR Gullkarfi 58 58 58 111 6,438 Hlýri 103 98 99 87 8,614 Keila 39 39 39 134 5,226 Lúða 553 287 516 53 27,345 Skarkoli 149 120 146 736 107,324 Steinbítur 92 76 85 798 68,003 Ufsi 32 32 32 4 128 Und. Þorskur 99 68 94 1,288 121,639 Ýsa 75 32 52 3,904 204,572 Þorskur 195 114 152 1,829 278,599 Samtals 93 8,944 827,888 FISKMARKAÐUR DJÚPAVOGS Steinbítur 80 80 80 194 15,520 Und. Ýsa 31 31 31 139 4,309 Ýsa 72 70 72 798 57,106 Þorskur 264 219 240 169 40,566 Samtals 90 1,300 117,501 FISKMARKAÐUR FLATEYRAR Blálanga 80 80 80 100 8,000 Gullkarfi 38 6 34 402 13,796 Keila 101 101 101 20 2,020 Langa 70 5 46 63 2,915 Lúða 547 205 418 104 43,501 Skarkoli 147 104 137 296 40,545 Skötuselur 226 214 218 24 5,220 Steinbítur 96 70 71 482 34,104 Ufsi 34 34 34 1,300 44,200 Ýsa 72 51 59 10,259 600,608 Þorskur 121 121 121 2,100 254,100 Þykkvalúra 95 95 95 3 285 Samtals 69 15,153 1,049,294 FISKMARKAÐUR GRINDAVÍKUR Hlýri 103 103 103 102 10,506 Lúða 285 285 285 61 17,385 Skarkoli 122 122 122 9 1,098 Ufsi 41 41 41 13 533 Und. Ýsa 44 44 44 1,005 44,220 Und. Þorskur 110 100 104 3,426 356,362 Ýsa 82 82 82 826 67,731 Samtals 91 5,442 497,835 FISKMARKAÐUR GRÍMSEYJAR Keila 6 6 6 8 48 Steinbítur 82 82 82 183 15,006 Ufsi 29 29 29 45 1,305 Ýsa 20 20 20 1,343 26,860 Samtals 27 1,579 43,219 FISKMARKAÐUR HÓLMAVÍKUR Gullkarfi 36 36 36 5 180 Hlýri 86 86 86 10 860 Keila 26 19 23 160 3,750 Steinbítur 59 59 59 10 590 Und. Ýsa 25 25 25 50 1,250 Und. Þorskur 89 87 88 300 26,500 Ýsa 82 59 73 3,600 264,050 Þorskur 200 131 139 3,700 515,500 Samtals 104 7,835 812,680 FISKMARKAÐUR HÚSAVÍKUR Gullkarfi 65 65 65 10 650 Hlýri 109 92 96 120 11,516 Keila 38 38 38 69 2,622 Steinbítur 77 71 75 161 12,025 Ýsa 33 33 33 51 1,683 Þorskur 108 108 108 139 15,012 Samtals 79 550 43,508 FISKMARKAÐUR SUÐUREYRAR Gullkarfi 46 46 46 29 1,334 Keila 25 25 25 25 625 Langa 10 10 10 5 50 Lúða 552 458 499 25 12,484 Skarkoli 162 162 162 143 23,166 Steinbítur 67 67 67 540 36,180 Und. Þorskur 89 89 89 452 40,228 Ýsa 51 51 51 1,388 70,788 Þorskur 236 146 193 1,155 222,998 Samtals 108 3,762 407,853 FISKMARKAÐUR TÁLKNAFJARÐAR Gullkarfi 62 62 62 190 11,780 Hlýri 87 87 87 300 26,100 Keila 29 29 29 800 23,200 Langa 82 82 82 120 9,840 Lúða 376 317 351 207 72,610 Skarkoli 153 153 153 242 37,026 Steinbítur 90 90 90 750 67,500 Ufsi 30 30 30 170 5,100 Und. Ýsa 12 12 12 50 600 Ýsa 70 48 49 5,444 264,736 Þorskur 146 95 140 1,126 157,969 Samtals 72 9,399 676,461 FISKMARKAÐUR VESTFJARÐA Gellur 664 646 655 19 12,454 Lúða 375 278 319 163 52,067 Skarkoli 166 144 148 2,569 380,718 Steinbítur 101 68 84 238 19,971 Ufsi 39 38 39 433 16,841 Und. Ýsa 35 30 33 573 18,760 Und. Þorskur 88 79 81 2,135 172,573 Ýsa 93 28 69 14,675 1,007,469 Þorskur 272 75 174 10,688 1,864,020 Þykkvalúra 204 204 204 17 3,468 Samtals 113 31,510 3,548,341 FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA Blálanga 38 38 38 44 1,672 Gullkarfi 69 69 69 335 23,115 Keila 56 18 41 184 7,549 Langa 75 70 71 1,183 84,001 Lúða 356 208 292 108 31,514 Lýsa 7 7 7 16 112 Skarkoli 108 108 108 3 324 Skata 158 156 157 27 4,244 Skötuselur 233 120 232 701 162,768 Steinbítur 94 41 93 230 21,427 Stórkjafta 7 7 7 31 217 Ufsi 49 31 41 29,413 1,212,314 Und. Ýsa 21 21 21 11 231 Ýsa 92 40 66 638 42,140 Þorskur 240 154 189 624 117,672 Þykkvalúra 202 202 202 22 4,444 Samtals 51 33,570 1,713,744 FISKMARKAÐUR VOPNAFJARÐAR Hlýri 84 84 84 38 3,192 Steinb. / Hlýri 96 96 96 514 49,344 Steinbítur 75 65 68 144 9,800 Ufsi 22 14 20 353 7,214 Und. Þorskur 48 48 48 48 2,304 Ýsa 71 67 70 1,963 137,691 Þorskur 181 79 135 90 12,108 Samtals 70 3,150 221,653 FISKMARKAÐUR ÞÓRSHAFNAR Skarkoli 154 154 154 2,199 338,643 Steinbítur 87 87 87 75 6,525 Und. Þorskur 97 97 97 360 34,920 Ýsa 25 25 25 722 18,050 Samtals 119 3,356 398,138 FISKMARKAÐURINN Á SKAGASTRÖND Keila 34 26 28 117 3,282 Lúða 479 479 479 16 7,664 Und. Ýsa 18 18 18 137 2,466 Ýsa 70 24 58 1,872 108,115 Samtals 57 2,142 121,527 FMS GRINDAVÍK Blálanga 47 47 47 76 3,572 Gellur 600 600 600 19 11,400 Gullkarfi 76 71 75 3,113 233,362 Keila 42 17 29 983 28,061 Kinnfiskur 400 400 400 20 8,000 Langa 66 64 65 1,202 78,343 Litli Karfi 5 5 5 69 345 Lúða 545 301 476 78 37,166 Lýsa 20 20 20 65 1,300 Skarkoli 138 138 138 62 8,556 Skata 152 70 143 62 8,850 Steinbítur 95 94 94 134 12,617 Tindaskata 15 15 15 187 2,805 Ufsi 44 25 41 392 16,146 Und. Ýsa 40 35 38 823 31,160 Und. Þorskur 70 70 70 10 700 Ýsa 90 55 76 6,613 503,935 Þorskur 235 173 202 3,134 634,275 Þykkvalúra 218 218 218 56 12,208 Samtals 95 17,098 1,632,801 FMS HAFNARFIRÐI Gullkarfi 62 5 39 177 6,867 Hlýri 73 73 73 303 22,119 Keila 37 26 29 282 8,201 Kinnfiskur 459 459 459 20 9,180 Langa 54 6 52 306 15,804 Lúða 274 274 274 3 822 Steinbítur 78 50 70 1,839 128,022 Ufsi 39 30 37 89 3,300 Und. Ýsa 17 16 16 331 5,427 Und. Þorskur 80 80 80 150 12,000 Ýsa 76 21 53 3,241 173,192 Þorskur 174 147 166 2,117 351,354 Samtals 83 8,858 736,288 FMS HORNAFIRÐI Gullkarfi 75 55 67 4,061 273,068 Langa 75 64 69 673 46,665 Lúða 482 306 364 181 65,840 Lýsa 17 14 16 321 5,115 Sandhverfa 523 523 523 3 1,569 Skarkoli 141 138 138 338 46,752 Skata 105 105 105 6 630 Skötuselur 229 143 217 133 28,879 Steinbítur 86 50 86 248 21,220 Ufsi 44 6 43 3,084 131,644 Und. Ýsa 25 16 23 760 17,560 Und. Þorskur 91 55 86 76 6,556 Ýsa 88 24 51 6,182 318,189 Þorskur 163 97 150 1,270 190,826 Þykkvalúra 218 218 218 102 22,236 Samtals 67 17,438 1,176,749 FMS SANDGERÐI / NJARÐVÍK Keila 54 29 46 725 33,025 Langa 72 65 68 814 55,108 Lúða 328 328 328 167 54,776 Sandkoli 30 30 30 46 1,380 Skarkoli 148 102 116 83 9,616 Skötuselur 220 166 175 616 107,980 Steinbítur 96 87 93 277 25,674 Tindaskata 5 5 5 15 75 Ufsi 42 30 41 225 9,145 Und. Ýsa 48 24 43 940 40,015 Ýsa 83 23 59 7,937 465,114 Þorskur 261 100 192 2,316 443,535 Þykkvalúra 231 221 229 811 186,023 Samtals 96 14,972 1,431,466 FMS ÍSAFIRÐI Gullkarfi 6 6 6 53 318 Hlýri 105 65 89 33 2,945 Keila 44 31 39 219 8,465 Lúða 475 265 368 72 26,484 Skarkoli 162 146 151 745 112,401 Steinbítur 84 34 73 486 35,588 Ufsi 26 26 26 173 4,498 Und. Ýsa 35 9 32 1,571 50,135 Und. Þorskur 95 84 87 1,693 146,790 Ýsa 92 26 67 14,259 951,996 Þorskur 222 113 141 14,450 2,033,525 Samtals 100 33,754 3,373,146 FISKMARKAÐUR ÍSLANDS Blálanga 74 58 70 1,691 118,948 Gellur 626 620 624 36 22,446 Gullkarfi 67 47 58 12,172 704,165 Hlýri 96 70 95 1,760 166,718 Keila 75 20 37 7,083 263,037 Langa 91 6 70 3,769 265,326 Langlúra 70 70 70 19 1,330 Lúða 551 233 411 1,064 437,298 Lýsa 12 7 10 236 2,467 Sandkoli 70 40 59 222 13,140 Skarkoli 163 108 153 4,410 674,165 Skata 152 152 152 15 2,280 Skrápflúra 65 44 46 108 4,920 Skötuselur 283 160 263 1,232 324,273 Steinbítur 106 70 95 37,253 3,524,970 Ufsi 43 29 40 4,488 178,821 Und. Ýsa 42 15 26 990 25,422 Und. Þorskur 106 58 101 4,930 496,641 Ýsa 124 22 70 42,720 3,009,583 Þorskur 264 103 187 39,342 7,372,376 Þykkvalúra 257 165 246 936 230,206 Samtals 108 164,476 17,838,531
„ Við förum að lögum og reglum. Við höfum engan áhuga á öðru, " segir Páll Winkel fangelsismálastjóri spurður um gang máls Baldurs Guðlaugssonar, W ^ ^ ^ ^ ™ ^ H fyrrum ráðuneytisstjóra, hjá fangelsisyfirvöldum. „ Ég kæmist aldrei upp meö aö bjóöa upp á sérreglur. Hð ^ ^ H fyrir útvalda. " Baldur er við störf hjá lögfræðistofunni sem varði hann fyrir clómi og ætlar með _ ^ _ ^ _ ^ _ ^ _ m máliöfyrir mannréttinclaclómstól Evrópu. Hannervistaðurá Vernd. í dómi Hæstaréttar var innherjabrot Baldurs talið stórfellt en hann seldi bréf sín í Landsbankanum fyrir rúmar 170 milljónir króna eftir að hann vissi um áhyggjur af stöðu bankans. Milljónirnar voru kyrrsettar 2009 og gerðar upptækar með dómi Hæstaréttar. - gag Engar sérreglur fyrir Baldur
Daði og Gagnamagnið komust rétt í þessu í lokakeppni Eurovision, en þau koma fram fyrir Íslands hönd í keppninni sem fram fer í Rotterdam. Líkt og flestir vita þá greindist kórónuveirusmit í herbúðum Íslands stuttu fyrir keppni. Þar af leiðandi þurfti liðið að fara í sóttkví, sem varð til þess að upptaka af atriðinu var spiluð, en það ekki flutt fyrir framan áhorfendur líkt og vaninn er. Löndin sem komust áfram eru : Albanía Serbía Búlgaría Moldóva Portúgal Ísland San Marínó Sviss Grikkland Finnland Íslendingar eru virkilega ánægðir með að vera komnir áfram og frammistöðu Daða og Gagnamagnsins. Á samfélagsmiðlinum Twitter má sjá mikið um fagnaðarlæti, en þar eru margir duglegir að tjá skoðanir sínar á Eurovision.
1. Lögin eru liður í áætlun stjórnvalda um losun gjaldeyrishafta sem birt var í fyrrasumar. 2. Aflandskrónueignir eru eignir í eigu eða vörslu erlendra aðila, sem varðveittar eru hjá innlánsstofnunum og verðbréfafyrirtækjum hér á landi, sem eru líklegir til að leita útgöngu við losun fjármagnshafta með neikvæðum áhrifum á gengi íslensku krónunnar. 3. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að aflandskrónueignir nemi nú um 319 milljörðum króna og eru í eigu fjögurra vogunarsjóða. Ásgeir Jónsson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, sagði í viðtali við Rás 2 í morgun að gangist eigendur aflandskrónanna við skilmálum laganna muni ríkið hagnast um 116 milljarða króna. 4. Samkvæmt lögunum mun Seðlabanki Íslands standa fyrir gjaldeyrisútboði með það að markmiði að greiða fyrir útgöngu aflandskrónueigna án neikvæðra áhrifa á gengisstöðugleika á innlendum gjaldeyrismarkaði og gjaldeyrisforða bankans. Þar verður aflandskrónueigendum gefinn kostur á að skipta aflandskrónueignum sínum fyrir evrur á lágu gengi, 220 krónur á evru, og komast þannig hjá þeim takmörkunum sem lagðar eru til í frumvarpinu. Þátttaka í gjaldeyrisútboði er valfrjáls. 5. Eigendum aflandskrónueigna verður gert skylt að aðgreina sérstaklega þær eignir sem ekki verða nýttar í gjaldeyrisútboði Seðlabankans og flytja þær á vaxtalausa bankareikninga háða sérstökum takmörkunum í síðasta lagi 1. september næstkomandi. 6. Fjárfestingarfélögin Eaton Vance Corp. og Autonomy Capital LP gagnrýndu frumvarpið harðlega í umsögn sinni. Þeir segja lögin brjóta gegn eignarrétti þeirra og að þau mismuni fjárfestum eftir þjóðerni eða búsetu. Lögin brjóti einnig gegn jafnræðisreglu og sjónarmiðum um meðalhóf. Þá er bent á að aðferð ríkisstjórnarinnar geti út á við talist sem greiðslufallsviðburður, sem skapi áhættu fyrir íslenska ríkið. 7. Enn á því eftir að koma í ljós hvort eigendur aflandskrónanna muni samþykkja skilmála laganna. Eins og Ásgeir Jónsson benti á þá eru þeir engir viðvaningar. „ Þeir eru vanir að stunda fjárfestingar. Þeir munu væntanlega fara í mat um hvort betra sé að samþykkja þessa skilmála eða fara í hart við okkur. Við lögðum fyrir ári ekkki ósvipaða skilmála fyrir kröfuhafa gömlu bankana. Þá voru skilmálarnir að þeir legðu sjálfkrafa inn krónurnar sínar eða þeir greiddu stöðugleikaskatt. Sá skattur var á gráu svæði lagalega. Þeir ákváðu að ganga til samninga og ég vona að það sama gerist núna, “ sagði Ásgeir í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. 8. Í nefndaráliti Katrínar Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna, segir að samráðsnefnd um losun hafta, þar sem allir stjórnmálaflokkar eiga fulltrúa, hafi ekki verið höfð með í ráðum um gerð frumvarpsins. Þá segir hún að það sé stórt umhugsunarefni að ekkert sé vitað um raunverulega eigendur aflandskrónueigna. Þingmenn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Pírata sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um frumvarpið.
Hæstiréttur Úkraínu staðfesti í nótt kjör Viktors Jusjenkos í embætti forseta landsins þann 26. fyrra mánaðar. Ekkert er lengur því til fyrirstöðu að hann sverji embættiseið og taki við völdum.
Nú undir kvöld fengust þær upplýsingar frá Umhverfisstofnun að búnaður og skytta frá dýragarðinum í Kaupmannahöfn komi til Keflavíkurflugvallar klukkan hálf þrjú á morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar á síðan að flytja búnaðinn ásamt búri fyrir bjarndýrið norður að Hrauni, þangað verður hann sennilega kominn um sex leytið annað kvöld.
Að mati margra er eftirsóknarvert að stjórna. Flestum finnst það krefjandi en umfram allt gefandi og stjórnendur eru alla ævi að móta sinn stjórnunarstíl. Í stjórnunarnámi mínu opnaðist mér fjársjóðskista full verkfæra til að nýta í stjórnunarstarfinu. Þegar síðan á hólminn var komið og stjórnunarstarfið tók við kom margt í ljós, það sem átti að gefast vel virkaði ekki alltaf. Ég hef fengið tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og þróun þjónustu - og mannauðsmála hjá sveitarfélaginu Garðabæ og langar að deila reynslu minni um hvað hefur gefist vel. Margar stofnanir setja sér gildi til að starfa eftir en það er ekki nóg, gildin þurfa að vera skýr, endurspegla menningu vinnustaðarins og vera sýnileg. Flestum tekst vel upp við gerð gilda en oft er erfitt að fá starfsmenn til að lifa eftir gildunum. Hvort sem verið er að innleiða gildi eða huga að öðrum þáttum stjórnunar er mikilvægt að hlusta á raddir fólksins. Árangursrík leið til að hlusta á þessar raddir er mælingar. Mælingar eru öflugt tæki til að hafa áhrif á stjórnun. Mælt er með því að leggja fyrir kannanir eða hafa rýnihópa en stærsta áskorunin felst í hvað gera eigi við niðurstöðurnar. Í fræðslumálum þarf að nýta vel fjármuni og skilgreina þarfir því margt er í boði. Að nýta þekkinguna sem býr í starfsmannahópnum er ein leið sem hægt er að fara því allir einstaklingar búa yfir hæfileikum og geta miðlað því sem þeir eru góðir í til hinna í hópnum. Miklum fjármunum er varið í námskeið en sjaldan er það krufið til mergjar hvort námskeiðið skilar einhverju til starfsmannahópsins. Mikilvægt er að hafa markmiðin skýr, kerfisbundnar mælingar fari fram og málum sé fylgt eftir til að tryggja árangursríka stjórnun. Þrátt fyrir ógrynni verkfæra til að bæta stjórnun kemur ekkert í staðinn fyrir hið mannlega innsæi, því þegar öllu er á botninn hvolft þá er verkefni stjórnanda að stýra fólki sem hefur tilfinningar. stjornvisi.is
Enn get ég ekki annað en grátið þau mistök að ekki skyldi gert ráð fyrir því að Íslenska óperan hefði aðsetur í Tónlistarhúsinu sem nú rís við Höfnina. Langbestu rökin fyrir því að Óperan hefði átt að eiga þar heima, voru fram reidd í Gamla bíói á sunnudagskvöldið, þegar sem Óperustúdíó Íslensku óperunnar frumsýndi Cosi fan tutte eftir Mozart með ungu fólki, nýbúnu í námi, eða enn í námi, í öllum hlutverkum. Það var stórskemmtileg óperusýning, sem gaf " fullorðins " sýningum Íslensku óperunnar lítið sem ekkert eftir ; og var jafnvel betri en sumar þeirra. Óperustúdíó er ekki fullfleygt óperuhús. Í þessu tilfelli voru valdir úrvalsnemendur úr ýmsum tónlistarskólum eftir að þeir höfðu þreytt áheyrnarpróf í söng og hljóðfæraleik. Uppsetninguna annaðist fagfólk ; Ágústa Skúladóttir var leikstjóri ; Daníel Bjarnason var hljómsveitarstjóri, Guðrún Öyahals hannaði leikmynd, Katrín Þorvaldsdóttir búninga og Páll Ragnarsson lýsingu. Það er því í góðri samvinnu við fagfólk sem krakkarnir fá að spreyta sig við að skapa " alvöru " sýningu, á allt öðru og hærra plani en gengur og gerist með nemendasýningar. Og þvílík ópera að glíma við í fyrstu atrennu. Cosi fan tutte er vel valin að því leyti, að þar er ekki mikið um stórar einsöngsaríur sem reyna í þolrifin á einstaka röddum, en þeim mun meira af dásamlegum samsöngsatriðum. Því reynir meira á samsöng en á einsöng, þótt vissulega hafi allar söngvararnir í aðalhlutverkum sín númer. En það er ekki heldur hægt að segja að Cosi fan tutte sé léttmeti að glíma við, sama hve ljúfur og léttur Mozart kann að virðast. Samsöngurinn er þrælerfiður og krest nákvæmrar inntónunar, nákvæmra innkoma og stöðugra tengsla við aðra á sviðinu. Og þannig er það nánast allan tímann. Aríuleysið hefur hamlað vinsældum Cosi fan tutte miðað við aðrar óperur Mozarts eins og Brúðkaup Fígarós og Töfraflautuna, en algjörlega að ósekju. Mér finnst hún ekki síðri, einmitt fyrir dásamleg samsöngsatriðin. Sagan er mjög í anda Mozarts og segir frá sætum systrum tveim, Fiordiligi og Dorabellu, sem eiga að unnustum vini tvo, Guglielmo og Ferrando, sem báðir eru liðsforingjar og flottir gaurar. Þá kemur að einu af uppáhaldsplottum Mozarts, - að sýna hvað þjónustufólkið er klárt og aðallinn sauðir upp til hópa ; og heimilisþjónnn systranna Don Alfonso telur ungu mönnunum trú um að þeir þurfi að láta reyna á hversu trúar systurnar eru þeim. Hann fær í lið með sér þjónustustúlkuna Despínu, sem er líka súperklár og kann tökin á systrunum. Það þarf ekki að segja meira um söguna, freistingarnar eru sætar, en gætu bitnað harðast á þeim sem þær leggja. Ungu söngvararnir voru fantagóðir. Jón Svavar Jósepsson sem Guglielmo er lýrískur og bjartur bariton með fallega rödd, Sveinn Dúa Hjörleifsson tenor í hlutverki Ferrandos býr yfir einstakri rödd, sem er svo hlý og unaðsleg, að maður gæti hugsað sér að hlusta á hana endalaust. Þessi efnilegi stákur hefur sungið einsöng á tónleikum Karlakórs Reykjavíkur í nokkur ár, en nú er þetta leyndarmál að spyrjast út, og spurning hve lengi enn hann syngur með kórnum. Sólveig Samúelsdóttir sem Dorabella, er hár mezzó, og hennar rödd er mjög fallega skóluð, jöfn og breið á öllu raddsviðinu. Steinunn Skjenstad sópran, í hlutverki Fiordiligi á kannski aðeins lengra í land raddlega, en stóð sig afskaplega vel. Hún þarf að taka út meiri þroska og syngja meira, og henni verða allir vegir færir. Þorvaldur Þorvaldsson og Unnur Möller voru kostuleg og kómísk í hlutverkum möndlaranna. Þá var ekki síður gleðjandi að sjá ungan og sprækan kór á sviði Íslensku óperunnar. Þetta var firnagóð sýning og framúrskarandi skemmtileg, full af húmor, gleði og Mozartískum léttleika. Það var ekki síst stórgóðri hljómsveitarstjórn Daníels Bjarnasonar að þakka hve sýningin rann vel áfram. Sjálfur lék hann resitatívin á sembalinn, og einstöku sinnum mátti heyra hann bjarga söngvurum með innkomur ; það var ekki þess eðlis að það hefði ekki getað gerst á sýningu atvinnufólks. Framtíðin óperu á Íslandi er björt með slíkt á leið inn á sviðið. Stóra spurningin er hvort þetta fólk fái sanngjörn tækifæri á Íslandi, eða haldi áfram eins og kynslóðin á undan þeim, að gleðja þýska óperugesti. Bergþóra Jónsdóttir ( [email protected] )
Þrír særðust er skotárás var gerð á skrifstofur Sameinuðu þjóðanna í Mogadishu, höfuðborg Somalíu, í gærkvöldi. Mohamed Osman Dhagahtur, aðstoðarborgarstjóri Mogadishu, segir sjö menn, klædda einkennisbúningum sómalska stjórnarhersins, hafa ruðst inn á skrifstofur Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar ( WHO ) og Bandahjálpar Sameinuðu þjóðanna ( UNICEF ) seint í gærkvöldi og skotið þar á allt sem fyrir varð uns öryggisverðir svöruðu skothríð þeirra en þá hurfu þeir á brott.
Börnin í leikskólanum Steinahlíð skunduðu í heimsókn á hjúkrunarheimilið Mörk í skrautlegum búningum. Þar slógu þau köttinn úr tunnunni eins og alsiða er á öskudaginn og gæddu sér á pylsu eftir átökin. Ekki fylgdi sögunni hvernig heimilisfólki hafi litist á litlu kynjaverurnar sem gerðu sig heimakomnar í Mörk þennan daginn. Ljósmyndari Morgunblaðsins fór á kreik og fangaði stemningu gærdagsins um bæinn. Krakkarnir í Norðlingaskóla voru skrautlegir að vanda og þótti ákaflega gaman að sprella í búningunum. Þá voru býsna margir krakkar í litríkum búningum á Laugaveginum enda gaman að syngja og fá gotterí fyrir.
Hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu voru 955 í júní samkvæmt mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Það er fjölgun frá síðasta mánuði. Tilkynningum um innbrot og eignaspjöll hefur fjölgað mikið en ofbeldisbrotum hefur fækkað. Tilkynningum um innbrot fjölgaði á milli mánaða og fjölgaði innbrotum á heimili mest. Alls var tilkynnt um 59 innbrot á heimili í júní en ekki hafa borist jafn margar tilkynningar í einum mánuði frá desember 2018. Heildarfjöldi innbrota það sem af er ári er þó svipaður og síðustu tvö ár á undan. Flest innbrot á heimili áttu sér stað á svæði lögreglustöðvar 1, sem nær yfir Miðborg, Vesturbæ, Seltjarnarnes, Háaleiti, Hlíðar og Laugardal. Töluverð fjölgun hefur verið á tilkynningum um eignarspjöll á höfuðborgarsvæðinu. Alls voru 177 tilkynningar skráðar í júní sem eru umtalsvert fleiri tilkynningar en síðustu mánuði á undan. Líta þarf aftur til október 2010 til þess að finna álíka margar tilkynningar um eignarspjöll líkt og bárust í júní. Ekki bara neikvæðar fréttir Tilkynnt var um 116 ofbeldisbrot í júní. Það eru færri tilkynningar en í maí. Það sem af er ári hafa borist álíka margar tilkynningar um ofbeldisbrot líkt og bárust að meðaltali á sama tímabili síðastliðin þrjú ár á undan. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fjölgaði nokkuð á milli mánaða. Alls voru átta slík brot skráð í júní. Tilkynningum um heimilisofbeldi fækkaði nokkuð á milli mánaða. Alls voru skráðar 57 tilkynningar í júní. Það sem af er ári hafa hins vegar borist um 18 prósent fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna fækkaði einnig á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur. Í júní voru skráð 708 umferðarlagabrot, að hraðamyndavélum undanskildum. Það sem af er ári hafa verið skráð um 24 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan
Þrír piltar kepptu undir merkjum UMSB í fyrstu fjölþraut Breiðabliks sem fram fór á Kópavogsvelli 2. september í blíðskaparveðri. Eins og kom fram í síðasta blaði er keppni þessi framhald af fjölþrautamóti sem Frjálsíþróttadeild Skallagríms efndi til í fyrsta sinn í fyrra. Skráðir keppendur voru 52 frá tíu félögum. Í fjórþraut pilta 11 ára og yngri varð Davíð Freyr Bjarnason þriðji með 2279 stig. Hann er aðeins 10 ára. Hann hljóp 60 m á 10,01 sek, stökk 3,69 m í langstökki, varpaði kúlu 5,33 m og hljóp 400 m hlaup á 83,26 sek. Í fjórþraut 12 ára pilta varð Arnar Smári Bjarnason fjórði með 3050 stig. Hann hljóp 60 m á 8,95 sek, stökk 4,33 m í langstökki, varpaði kúlu 7,39 m og hljóp 400 m á 70,36 sek. Í fjórþraut 13 ára pilta varð Helgi Guðjónsson þriðji með 3047 stig. Hann hljóp 60 m á 8,58 sek, stökk 4,32 m í langstökki, varpaði kúlu 8,31 m og hljóp 400 m á 62,21 sek. Ákveðið hefur verið að keppni sem þessi í fjölþraut verður aftur haldin að ári á Kópavogsvelli.
Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, skrifaði í dag undir ný lög um að hækka skuldaþak ríkissjóðs um 2,4 billjónir Bandaríkjadala á sama tíma og útgjöld ríkissjóðs verða lækkuð um 2,1 billjón dala á næstu tíu árum. Obama segir lögin einungis fyrsta skrefið á langri leið til þess að bæta efnahags landsins. Fagnar lagasetningu Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Christine Lagarde, hrósaði áætlun bandarískra stjórnvalda um að hækka skuldaþakið og um leið að draga úr fjárlagahallanum. Segir hún að með samkomulaginu sé dregið úr óvissu á mörkuðum og trú á fjármálum bandaríska ríkisins. Samkomulagið sé bæði gott fyrir Bandaríkin og efnahag heimsins í heild. Með því að hækka skuldaþakið hafi verið komið í veg fyrir upplausn í efnahagsmálum og að draga eigi úr hallanum á sama tíma sé mikilvægt skref í að styrkja efnahag ríkissjóðs. Obama ræddi við fjölmiðla eftir að öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti frumvarpið með 74 atkvæðum 26 greiddu atkvæði á móti.
End of preview. Expand in Data Studio
README.md exists but content is empty.
Downloads last month
21