text
stringlengths
0
19.2M
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að ummæli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í yfirlýsingu í gær, þar sem hann furðar sig á því að í Morgunblaðinu skuli birtast eitthvað um viðskipti hans, sem hann segi falla undir bankaleynd, sýni að hann leyfi ekki að fjölmiðlar í hans eigu segi fréttir af því, sem að hans mati fellur undir bankaleynd. Segir Björn, að þessi afstaða Jóns Ásgeirs geri fjölmiðlana í raun marklausa við núverandi aðstæður. " Raunar er almennt ástæða til að undrast, að fjölmiðlamenn skuli ekki taka undir sjónarmið okkar, sem viljum að bankaleynd sé aflétt, svo að aðgangur að upplýsingum sé greiður og opinn. Kvartanir um skort á upplýsingum hafa verið háværar, en þær eru að sjálfsögðu ekki veittar, ef menn telja sig bundna af þagnarskyldu um það, sem upplýsa þarf, " segir Björn. Hann vísar í ræðu sína á Alþingi í síðustu viku þegar hann mælti fyrir frumvarpi um sérstakan saksóknara vegna bankahrunsins. Þar sagði Björn : " [ V ] erkaskipting milli fjármálaeftirlits og lögreglu hefur bæði kosti og galla. Víst er að málsmeðferð fyrir stjórnsýslueftirlitsaðila getur verið skilvirkari og kostnaðarminni en fyrir refsivörsluaðilum. Hins vegar tel ég að menn verði að gæta þess að aðgangur almennings sé jafn opinn að þessum stjórnsýslumálum eins og í refsimálunum. Ég tel ekki ásættanlegt að þau mál, sem upp koma vegna bankakreppunnar, sem fjármálaeftirlitið rannsakar og lýkur innan sinna vébanda, séu sveipuð leyndarhjúp. Þau mál verða að vera á borðinu rétt eins og refsimál, verði um þau að ræða. Almenningur á kröfu á að vita ef lög voru brotin í aðdraganda hrunsins eða í kjölfar þess. Hugtök eins og þagnarskylda og bankaleynd eiga að heyra sögunni til þegar jafn mikilvægir hagsmunir eru í húfi og nú er. " Grein Björns
Sagt er að hann felli ekki tár við að skera lauk, heldur sé það laukurinn sem væli. Einnig ganga sögur um að hann hafi eitt sinn verið bitinn af baneitruðum snák, sem lést síðan sjálfur af völdum eitrunar eftir að hafa engst um í fjóra klukkutíma. Þeir eru margir naglarnir í Hollywood en Chuck Norris er án efa sá harðasti af þeim öllum. Það er líka sagt að hamborgararnir frá Chuck Norris Grill séu þeir bestu í bænum, en þar er um að ræða lítinn en kröftugan veitingastað í miðbænum, sem selur frábæra borgara, samlokur, steikur og salöt á heiðarlegu verði. Einstakt chili-majónes og sultaður laukur. Banvæn blanda! „ Kjötið sem við notum er alltaf fyrsta flokks. Einnig látum við sérbaka fyrir okkur brauð fyrir borgarana og samlokurnar. Það sem gerir hamborgarana okkar sérstaka er sultaði laukurinn sem við sultum samviskusamlega á hverjum morgni. Hann gefur smá kikk á meðan chili-majónesið okkar gefur léttan kinnhest til að vekja bragðlaukana. Sultaði laukurinn vinnur sérlega vel á móti chili-majónesinu og gefur gott jafnvægi í bragði og styrkleika. Úr verður banvæn blanda sem gerir borgarann epískan eins og Chuck Norris sjálfan, “ segir Jón Bjarni, eigandi Chuck Norris Grill. Sósuhimnaríki Sósubarinn fyrir þá sem vilja „ spæsa “ upp matinn Þeir sem vilja færa matinn sinn upp á næsta stig geta tekið hring á sósubarnum víðfræga sem Chuck Norris Grill býður gestum sínum upp á. „ Þetta er opinn bar með 20 – 30 gerðum af sósum sem eru tilvaldar til þess að „ spæsa “ upp matinn. Við erum með spicy sriracha-sósu, Bbq-sósu, hot sauce og margt fleira. Við látum það ekki fréttast að einhver hafi fengið bragðlausan borgara á Chuck Norris Grill, “ segir Jón Bjarni. Heiðarlegir hamborgarar Fyrir eiturharða nagla eins og Chuck Norris sjálfan, þá mælir Jón Bjarni sérstaklega með tvöfaldum Wabamm með bræddum óðalsosti, sultuðum lauk, tómat, fersku salati og chili-majónesi. Honum fylgja franskar og var hann sérstaklega hannaður með snillinginn Chuck Norris í huga. En Chuck Norris Grill er ekki bara fyrir eiturharða nagla sem kalla ekki einu sinni ömmu sína ömmu sína. Þessi rómaði veitingastaður er fyrir alla sem hafa smekk fyrir bragðgóðum og vel gerðum mat. Skammtarnir eru rausnarlegir og verðið kemur skemmtilega á óvart. Þannig er Chuck Norris-andinn kraftmikill, heiðarlegur, bragðmikill, hreinn og beinn því á Chuck Norris Grill færðu einfaldlega góðan mat á góðu verði. Vilji menn gera sérstaklega vel við sig þá er líka hægt að fá sér sæti á Dillon Whisky bar á efri hæðinni og panta matinn þangað upp og súpa á einhverri þeirra 180 tegunda af whisky sem boðið er upp á þar. Tvöfaldur Wabamm með bræddum óðalsosti, sultuðum lauk, tómat, fersku salati og chilli majónesi Chuck Norris Grill er staðsettur við miðjan Laugaveg, 101 Reykjavík. Opið alla daga frá 11.00 – 01.00 nema sunnudaga, þá er opið til miðnættis. Sími : 561-3333 Email : [email protected] Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðunni Chuck Norris Grill.
Efnahagslífið í Taílandi er nú óðum að ná sér eftir flóðin á síðasta ári. Landsframleiðsla jókst um 11% á fyrsta ársfjórðungi ársins samanborið við sama tíma í fyrra. Á milli áranna 2010 og 2011 dróst landsframleiðsla saman um 10,8%. Þetta er haft eftir Hagstofunni í Taílandi.
Björg Jónsdóttir ÞH - 321 kom í morgun með fyrstu loðnu ársins til Neskaupstaðar í frystingu. Loðnan fékkst á loðnumiðunum norður af Langanesi og kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar, að góð veiði hafi verið hjá skipum þar á miðunum síðustu daga. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson er á Seyðisfirði en heldur aftur til loðnurannsókna í kvöld og ætti að vera á slóðum veiðiskipanna um helgina.
SÉRBLAÐ Morgunblaðsins um sjávarútveg kemur nú framvegis út á miðvikudögum. Úr verinu kom fyrst út sem sérblað með Morgunblaðinu miðvikudaginn 5. september 1990. Það kom síðan út á miðvikudögum til ársins 2001, er Úr verinu og Viðskiptablað Morgunblaðsins voru sameinuð í eitt atvinnuvegablað. Síðustu misserin hefur Úr verinu komið út á fimmtudögum með Viðskiptablaðinu, en hefur nú verið fært yfir á miðvikudaga að nýju.
Sópransöngkonunni Bylgju Dís Gunnarsdóttur hefur verið boðið að syngja á tónleikum í Carnegie Hall tónleikahúsinu í New York. Boðið kemur í kjölfar þess að hún vann til fyrstu verðlauna í alþjóðlegri söngkeppni, sem kennd er við Barry Alexander óperusöngvara. Keppnin er árviss og þykir nokkuð óvenjuleg, en í henni eru iðulega nokkrir söngvarar valdir sigurvegarar og eru sigurlaunin þau að fá að syngja í Carnegie Hall, sem er eitt frægasta tónleikahús heims. Slíkt tækifæri getur haft mikla þýðingu fyrir söngferil ungra söngvara. Bylgja Dís syngur tvær aríur á tónleikunum, sem verða sunnudaginn 24. janúar. Þess má geta að tenórsöngvarinn Rúnar Þór Guðmundsson vakti einnig athygli í keppninni og varð í öðru sæti. Þau Bylgja Dís og Rúnar Þór eru liðsmenn Óp-hópsins, sem hefur haldið hádegistónleika í Íslensku óperunni, frá því að hópurinn hóf starf sitt í september. Á þriðjudagskvöldið kemur heldur hópurinn sína fyrstu kvöldtónleika í Óperunni. Á efnisskrá er óperettutónlist og Vínartónlist, með lögum eftir tónskáld á borð við J. Strauss, E. Kálmán, F. Lehár og R. Stolz.
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr Leyni, lék á parinu á fjórða hring af sex, í lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi í dag. Birgir er því kominn í gegn um niðurskurðinn á tveimur höggum undir pari, samanlagt. 75 kylfingar fá að halda áfram, og spila 36 holur til viðbótar. Björgvin Sigurbergsson Keili lék einnig á parinu í dag, og hann er úr leik, en hann endaði á fjórtán höggum yfir pari samanlagt.
40 ára Vilhjálmur býr á Höfn og rekur Vöruhúsið, list - og verkgreinahús, og Fab Lab, nýsköpunarsmiðju á Höfn. Maki : Ólöf Ingunn Björnsdóttir, f. 1979, fjármálastjóri Hornafjarðar. Börn : Hafdís Rut, f. 2001 ; Björn Ívar, f. 2006, og Magnús Már, f. 2006. Foreldrar : Magnús Már Vilhjálmsson, f. 1958, og Hafdís S. Sveinbjörnsdóttir, f. 1958, d. 2000.
Í tilefni hinnar góðu afkomu Landsbankans okkar að undanförnu, er við hæfi að rifja upp skelegga ályktun aðalfundar Búnaðarfélags Auðkúluhrepps frá í vor : " Aðalfundur Búnaðarfélags Auðkúluhrepps krefst þess af Alþingi og ríkisstjórn að ekki verði seldur fimmeyringur í Landsbankanum. Fundurinn telur að alls ekki megi hleypa erlendum fjárglæframönnum og vogunarsjóðum með krumlurnar í sjóði hans. Það er álit fundarins að Landsbankinn eigi að vera 100% í eigu allra Íslendinga. Viðskiptabanki fyrir venjulegt fólk. Alveg eins og sparisjóðirnir voru. Það þarf að lýsa þessu yfir í eitt skipti fyrir öll fyrir hönd eigendanna. Bankinn á ekki að standa í neinu peningaþvætti. " Þó að þessi ályktun komi frá hjara veraldar, er hún mikið umhugsunarefni fyrir ríkisstjórnina. Það er svo merkilegt með sveitamennina, að þeir hafa stundum rétt fyrir sér! Í þessu máli þarf svolitla stjórnvisku. Hallgrímur Sveinsson.
KB banki hefur ákveðið að lækka fasta vexti sína á KB íbúðalánum úr 4,4% í 4,2%. Sú breyting er einnig gerð að lánshlutfall verður 80% í öllum sveitarfélögum þar sem bankinn starfrækir útibú, en það hlutfall gilti áður einungis á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Lántakendum er heimil uppgreiðsla lánsins hvenær sem slíkt kann að henta. Segir bankinn, að vegna þess að um er að ræða breytta skilmála verði hin nýju kjör afturvirk og gildi því fyrir alla núverandi lántakendur KB íbúðalána. Vextir íbúðalána Íbúðalánasjóðs verða 4,35% í september. Þetta var kynnt á blaðamannafundi í dag. Fram kemur í tilkynningu bankans, að önnur ákvæði skilmála KB lána séu óbreytt, s.s. að ekkert hámark sé á lánsfjárhæð, sem verði þó aldrei hærri en sem nemi brunabótamati viðkomandi fasteignar. Skilyrði fyrir lánveitingu séu sem fyrr að lántakandi sé með launareikning sinn í KB banka og til viðbótar með tvennt af þrennu eftirgreindu hjá bankanum : Greiðslukort, útgjaldadreifingu eða lífeyrissparnað. Umsækjandi má ekki vera á vanskilaskrá og þarf að standast mat bankans á greiðslugetu. Lánið er verðtryggt jafngreiðslulán til 25 eða 40 ára og heimilt er að flytja lán á milli íbúða gegn sambærilegu veði. Einungis er lánað með veði á 1. veðrétti samþykktra íbúða.
Algarve-bikarinn Víðir Sigurðsson Guðmundur Hilmarsson Fjórða árið í röð kvaddi kvennalandsliðið í knattspyrnu Algarve-bikarinn með sigri í lokaleiknum. Ísland hefur slegið eign sinni á 9. sætið í þessu sterka tólf liða móti því þriðja árið í röð varð það lokaniðurstaða liðsins. Í fyrra eftir sigur á Dönum í lokaleiknum, þar á undan eftir sigur á Kínverjum, en árið 2016 vann Ísland sigur á Nýja-Sjálandi í leik um bronsverðlaunin á mótinu. Ísland hefur haft gott tak á Portúgal í viðureignum þjóðanna og það breyttist ekki í gær. Ísland vann öruggan sigur, 4 : 1, og var yfir frá og með 2. mínútu þegar Agla María Albertsdóttir skoraði. Portúgal hefur tekið miklum framförum undanfarin ár, komst á EM í Hollandi og vann óvæntan sigur á Svíum í fyrsta leik sínum í Algarve-bikarnum á þessu móti. Gestgjafarnir voru því sýnd veiði en ekki gefin en íslenska liðið hafði margt að sanna eftir afar slaka frammistöðu gegn Skotum á mánudaginn. Fyrri hálfleikurinn var sérstaklega góður af hálfu Íslands í gær. Selma Sól Magnúsdóttir kom liðinu í þægilega 2 : 0 stöðu fyrir hlé og segja má að liðið hafi siglt sigrinum heim af öryggi í seinni hálfleik. Undir lokin minnti markadrottning landsliðsins, Margrét Lára Viðarsdóttir, á sig. Hún skoraði þriðja mark Íslands og átti síðan stungusendingu á Svövu Rós Guðmundsdóttur sem skoraði fjórða markið strax eftir að portúgalska liðið hafði náð að minnka muninn. Þetta er fyrsta landsliðsmark Margrétar Láru frá því í júní 2016 þegar hún skoraði í 4 : 0 útisigri á Skotum í undankeppni EM. Þar með eru mörkin hennar fyrir A-landslið Íslands orðin 78 talsins og hún er sem fyrr sú langmarkahæsta frá upphafi. Markið gaf aukakraft " Ég var mjög ánægð með útfærslu okkar á leiknum. Það gaf aukakraft að skora strax eftir tveggja mínútna leik. Ég valdi hlutkestið og við ákváðum að byrja á móti nokkuð stífum vindi. Við byrjuðum leikinn af krafti og ungu stelpurnar í okkar liði nýttu hæfileika sína vel. Við höfðum góð tök á leiknum allan tímann og ég var virkilega ánægð með að við skyldum ná að skora fjögur mörk en við hefðum mátt sleppa því að fá eitt mark á okkur, " sagði Sif Atladóttir, en hún bar fyrirliðabandið í gær í stað Söru Bjarkar Gunnarsdóttir sem sat á varamannabekknum allan tímann. Portúgal – Ísland 1 : 4 Parchal, Portúgal, Algarve-bikarinn, miðvikudag 6. mars 2019. Skilyrði : Sextán stiga hiti og hálfskýjað. Nokkur vindur. Skot : Portúgal 9 ( 5 ) – Ísland 10 ( 5 ). Horn : Portúgal 5 – Ísland 0. Portúgal : ( 4-4-2 ) Mark : Patricia Morais. Vörn : Ana Cristina Leite, Silvia Rebelo, Carole Costa, Mónica Mendes. Miðja : Vanessa Marques, Dolores Silva, Cláudia Neto, Cláudia Lima ( Ana Capeta 46. ) Sókn : Andreia Norton, Laura Luis ( Tatiana Pinto 46. ) Ísland : ( 4-5-1 ) Mark : Sandra Sigurðardóttir. Vörn : Ásta Eir Árnadóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir ( Dagný Brynjarsdóttir 73 ), Sif Atladóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir. Miðja : Selma Sól Magnúsdóttir ( Svava Rós Guðmundsdóttir 80 ), Sigríður Lára Garðarsdóttir, Elín Metta Jensen ( Guðrún Arnardóttir 73 ), Andrea Rán Hauksdóttir, Agla María Albertsdóttir ( Rakel Hönnudóttir 80 ). Sókn : Berglind Björg Þorvaldsdóttir ( Margrét Lára Viðarsdóttir 64 ). Dómari : Lydia Tafesse Abebe, Eþíópíu. Áhorfendur : Um 200. 0 : 1 Agla María Albertsdóttir 2. fékk sendingu frá Elínu Mettu, lék að vinstra vítateigshorni og skoraði með föstu skoti neðst í vinstra hornið. 0 : 2 Selma Sól Magnúsdóttir 38. fékk boltann í vítateignum frá Berglindi Björgu eftir snögga sókn og þrumaði honum neðst í vinstra hornið. 0 : 3 Margrét Lára Viðarsdóttir 88. eftir skyndisókn og sendingu Dagnýjar Brynjarsdóttur frá vinstri. 1 : 3 Mónica Mendes 89. með skalla af stuttu færi. 1 : 4 Svava Rós Guðmundsdóttir 90. eftir stungusendingu Margrétar Láru innfyrir vörnina. Gul spjöld : Agla María ( Íslandi ) 55. ( brot ), Ásta Eir ( Íslandi ) 62. ( brot ), Elín Metta ( Íslandi ) 73. ( brot ). * Selma Sól Magnúsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir skoruðu báðar sitt fyrsta mark fyrir A-landslið Íslands og Agla María Albertsdóttir skoraði sitt annað landsliðsmark.
Fyrrum Dallas-stjarnan Victoria Principal ( 59 ) er í slæmum málum eftir að hafa beint byssu að vinnukonunni og hótað að drepa hana. Samkvæmt ákærunni á hendur Victoriu varð hún óð af reiði þegar vinnukonan, Maribel Banegas, eyddi of löngum tíma í að viðra hundinn. Maribel tjáði henni að hún hefði þurfti að bíða eftir að hundurinn gerði þarfir sínar og brást þá Victoria ókvæða við og rak hana á staðnum. Þegar Maribel bað um launin sín æddi frúin upp á efrihæðina og kom til baka með byssu sem hún beindi að vinnukonunni og hótaði að drepa hana. Frávita af hræðslu læsti vinnukonan sig inni í herbergi þar sem hún náði að hringja í 911 en á meðan segir hún Victoriu hafa staðið fyrir utan dyrnar og hótað henni öllu illu. Nú vill vinnukonan að sjálfsögðu fá bætur fyrir árás og andlegar þjáningar.
Landsliðstreyja, árituð af leikmönnum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu var slegin á 405 þúsund krónur á uppboði norður á Þórshöfn í gærkvöldi. Hæstbjóðandi var áhöfnin og eigandi að dragnótabátnum Geir ÞH frá Þórshöfn en boðið var í treyjuna víða á landinu í gegn um netið. Uppboðið var haldið til styrktar eins árs stúlku frá Þórshöfn, sem fæddist með alvarlega hjartagalla og hefur nú þegar gengist undir nokkrar aðgerðir. Sitthvað fleira var á uppboðinu og seldist allt á rúmri klukkustund.
Skammt frá borginni Guangdong í Kína er risin nákvæm eftirlíking af austurríska þorpinu Hallstatt og fjárfestar vonast til að laða að milljónir ferðamanna. Íbúar upprunalega þorpsins eru á báðum áttum og vita ekki alveg hvað þeim á að finnast um þetta framtak. Kínversku arkítektarnir lágu yfir teikningum og myndum og hugsuðu fyrir hverju smáatriði. Hallstatt er í ölpunum þar sem veðurfar er töluvert annað en í suður-Kína en að öðru leyti er vart hægt að sjá mun. Íbúum Hallstatt var boðið til Kína á formlega opnunarhátíð og voru á einu máli um að eftirlíkingin væri afar fullkomin, þó hún snúi reyndar öfugt. „ Við markaðstorgið eru húsin öfugu megin en mjög lík. Svo rennandi vatnið. Þetta er eins og í Hallstatt og þetta er afar vel gert, “ segir Jianbo, forstjóri Minmetals Land Limited. Íbúarnir hefðu þó viljað verið hafðir með í ráðum frá upphafi. „ Ég er ekki reið, bara vonsvikn hvernig þeir stóðu að þessu. Ég er ekki vonsvikin yfir að þeir gerðu þessa eftirmynd, “ segir Alexander Scheutz, íbúi Hallstatt.
Eysteinn Óskar Einarsson fæddist á Siglufirði 18. maí 1923. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 1. febrúar 2011. Foreldrar hans voru Ólöf Þorláksdóttir, f. 20. júní 1989, d. 17. janúar 1985, og Einar Ásgrímsson, f. 6. nóvember 1896, d. 5. október 1979. Hann var alinn upp hjá fósturforeldrum, Stefaníu Margréti Jóhannesdóttur og Birni Hinriki Guðmundssyni á Siglufirði. Systkini hans sammæðra eru : Jónína Kristín, Halldóra, Þóra Guðmunda, Guðrún, Guðmundur, Jón Þorgrímur og Bjarney. Systkini hans samfeðra eru : Jón, Ásta, Ásgrímur, Guðlaug, Margrét Sólveig, Brynjar Óli og Stella Minný. Fyrri kona Eysteins var Þórunn Björnsdóttir, f. 1. september 1924, d. 1972. Börn þeirra eru : Úlfar, f. 1947, Björn Stefán, f. 1948, Bryndís, f. 1951, Hildur, f. 1958, og Ólöf Edda, f. 1968. Barnabörnin eru 13 : Stefán og Guðný Hrönn, börn Úlfars og Sigríðar Jónsdóttur. Hulda María, dóttir Björns og Maríu Ingólfsdóttur. Þórunn, Arnar og Stefán, börn Björns og Bjargar Kristinsdóttur. Þorgrímur og Eysteinn Óskar, börn Bryndísar og Einars Þorgrímssonar. Vífill, sonur Bryndísar og Valdimars Jónssonar. Óskar Þór og Erla, börn Hildar og Gunnars D. Jones. Gylfi Þór og Linda Björk, börn Ólafar Eddu og Rögnvaldar Guðbrandssonar. Barnabarnabörnin eru 22 talsins. Seinni kona Eysteins er Sigríður Sörensdóttir, f. 31. maí 1924, börn hennar frá fyrra hjónabandi eru : Hulda Mary, f. 1947, Heiðar Pétur, f. 1950, og Pálmar, f. 1958. Eysteinn lærði bókbandsiðn og vann mestan hluta ævi sinnar við það starf, fyrst sem verkstjóri hjá Prentsmiðju Hafnarfjarðar og síðar sem verkstjóri hjá prentsmiðjunni Gutenberg í Reykjavík. Eysteinn var virkur í félagsstörfum og var farsæll keppnismaður í bridge. Hann stundaði hestamennsku til margra ára og hafði gaman af tónlist og söng m.a. í kór eldri borgara í Kópavogi. Hann var kjörinn til trúnaðarstarfa hjá Bókbindarafélagi Íslands, var fyrsti formaður Knattspyrnudómarafélags Íslands, fyrsti formaður Bridgedeildar félags eldri borgara í Reykjavík og var bæði stjórnarmaður og formaður í Bridgefélagi Hafnarfjarðar til margra ára. Hann vann til fjölmargra veðlauna í bridge á sinni löngu ævi og var m.a. tólf sinnum Hafnarfjarðarmeistari í sveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar. Útför Eysteins fer fram frá Neskirkju í dag, 11. febrúar 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Í dag kveðjum við ástkæran föður okkar í hinsta sinn. Þakklæti er okkur efst í huga fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og við minnumst hans með þessari kveðju : Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. ( Þórunn Sigurðardóttir ) Bryndís, Hildur og Ólöf. Við bræðurnir litum alla tíð á Eystein sem afa okkar, enda var hann okkur sem afi frá því við fæddumst. Okkur þótti ákaflega gaman að fara í heimsókn til hans og ömmu. Yfirleitt sat hann í stólnum sínum í stofunni eða við borðstofuborðið að leggja kapal þegar við komum. Það var sjaldan sem hann var ekki með spil við hönd, enda margverðlaunaður bridds-spilari. Hann heilsaði okkur með bros á vör, var ávallt glaður í bragði þegar við litum inn og grínaðist með okkur, þó aðallega með Brynjari, sem hann kallaði stöku sinnum " pönnukökukarlinn ". Þegar við strákarnir vorum yngri dáðumst við mikið að þeim ótal bikurum sem afi hafði unnið sér inn í briddsmótum, hann hlyti að vera heimsmeistari, miðað við alla þessa bikara. Sú aðdáun fór ekkert framhjá afa og fyrir áhugasemina fengum við einn bikar á mann að gjöf. Okkur þótti afar vænt um þessa bikara og enn þann dag í dag eru bikararnir uppi í hillu hjá okkur. Afi var sérlegur áhugamaður um íþróttir og í seinni tíð man ég vart eftir því að hafa komið í heimsókn til afa án þess að kveikt væri á íþróttaleik í sjónvarpinu. Heimsókn til ömmu og afa samanstóð alla jafna af því að eftir að hafa snætt pönnukökur, sem amma bakar svo oft af sinni alkunnu snilld, komum við okkur vel fyrir í stofunni og horfðum á sjónvarpið við hlið afa. Þar ræddum við bræðurnir við hann um skólagönguna, íþróttir og hvaðeina sem okkur datt í hug. Í minningunni eru þetta góðar stundir. Við vorum heppnir að hafa Eystein sem afa, og eigum eftir að sakna þess mjög að hafa hann ekki á sínum stað hjá ömmu. Pétur, Valur og Brynjar Pálmarssynir. Kæri afi. Okkur finnst eins og margir menn hafi búið í þér á þinni ævi ; bridsari, prentari, dómari, hestamaður, afi, pabbi, langafi, vinur, bókbindari, ökukennari og lengi mætti telja. En fyrst og fremst varstu góður afi sem var alltaf hægt að koma til. Það rifjast upp fyrir Arnari ferð sem hefur verið honum ógleymanleg af nokkrum ástæðum. Hið fyrsta var að þarna fór hann, 10 ára gamall, í fyrsta skiptið án foreldra sinna, í langferð með afa sínum, alla leið norður á Siglufjörð á ættarmót árið 1986. Farið var á rauðu Lödunni, afi + rauða Ladan = góð minning. Meðal nokkurra atriða er sitja föst í minningunni um þessa ferð er hin frábæra pylsa sem í boði var á Brú, sem skolað var niður með kók. Þá man Arnar vel eftir fyrsta stoppinu á Siglufirði, sem var í einu fyrsta húsinu, sem komið var að, eða hjá Mundu frænku á Bakka. Þar urðu miklir fagnaðarfundir hjá afa og fólkinu fyrir norðan og margt rifjað upp á meðan Arnar litli sat úti í eldhúshorni og reyndi að fylgjast með umræðunum. Svo var náttúrlega farið í samkomuhúsið og veisla haldin í tilefni ættarmótsins. Fyrstu minningar okkar systkina frá afa komu frá Brekkuhvammi og berum við því hlýhug til þess húss. Við kíktum stundum á afa og pabba spila við frændfólk sitt, svokallað Njálsgötulauf, sem er bridsmót ættarinnar af Njálsgötu. Afa þótti mjög vænt um þetta mót og Njálsgötufólkið og lét sig aldrei vanta þar. Nú er afi farinn á vit forfeðra sinna og hvílir lúin bein. Spilamennskunni verður þó örugglega haldið áfram á öðrum stað í góðum félagsskap og við vitum líka að hann mun fylgjast með okkur, þeim sem munu heiðra arfleifð hans. Hvíldu í friði elskulegi afi og blessuð sé minning þín. Hulda, Þórunn, Arnar og Stefán. Er mér bárust fréttir af andláti Eysteins Ó. Einarssonar helltust yfir mig margar minningar um þau heiðurshjón Þórunni og Eystein, en þar sem ég lærði hárgreiðslu hjá Þórunni, föðursystur minni, í því sögufræga húsi Mánabar við Strandgötuna í Hafnarfirði, urðu kynni mín af honum mun meiri fyrir vikið. Það er gott að minnast þessara ára, sem ég vann hjá Þórunni, þeirri brosmildu sómakonu, sem var vel látin og vinsæl í sínu starfi. Þau hjón áttu fallegt heimili sem ég kom að sjálfsögðu oft á og kynni mín af börnum þeirra voru frábær. Alltaf var gaman að hitta Eystein, en við Njálsgötufólkið, eins og við afkomendur Björns Guðmundsonar og Evlalíu Ólafsdóttur köllum okkur, höfum verið með allskonar ættarsamkomur svo sem fjölskylduferðalög, jólaböll, þorrablót, sviðaveislur að ógleymdu Njálsgötulaufinu, en svo var bridsmót ættarinnar kallað, þar naut Eysteinn sín að sjálfsögðu best, var hann nær alltaf í verðlaunasæti þrátt fyrir marga góða bridsara og jafnvel heimsmeistara í ættinni. Hann var frábær spilamaður og man ég vel að í gamla daga þegar við krakkarnir vorum í kringum fermingu og spiluð var félagsvist, þá var hann svo mikill keppnismaður að það var eins og um stórmót í brids væri að ræða. Söngmaður var hann frábær og þar passaði hann sko vel inn í Njálsgötuættina. Við vöknum upp við það frændsystkinin að með Eysteini gengnum er sá síðasti af kynslóð foreldra okkar farinn til betri heima og ábyrgðin því orðin okkar. Ég þakka Eysteini samfylgdina og sendi Sirrý, börnum hans og barnabörnum samúðarkveðjur. Sigríður Friðþjófsdóttir. Fallinn er frá mætur maður, Eysteinn Einarsson. Fyrstu kynni mín af honum voru við spilaborðið í Gullsmáranum í Kópavogi. Mér varð það fljótt ljóst að þar fór snjall spilamaður og bridsíþróttin var hans áhugamál. Fáir munu þeir staðir þar sem brids er spilað á höfuðborgarsvæðinu þar sem hann hefur ekki verið meðal þátttakenda einhvern tíma á ævinni. Hann var því vel þekktur á meðal bridsfólks. Eysteinn var viðfelldinn og gott að eiga orðastað við hann, stutt í glettni og gamansemi. Það var viss tilhlökkun að setjast við spilaborðið þar sem hann var, þótt nokkuð öruggt væri að við erfiðan andstæðing væri að etja. Aldrei skorti umræðuefnið ef stund gafst milli spila. Ekki spillti að hann var vel liðtækur í spjalli um hestamennsku og hrossarækt, enda kona hans Sigríður þar mikil áhugamanneskja. Mig grunar að oft hafi verið tekið í spil hjá fjölskyldu Eysteins og hann áreiðanlega átt þátt í að efla kunnáttu í þeirri skemmtilegu hugaríþrótt, ætli hann eigi ekki nokkurn heiður þar, því sonur hans Björn, landsþekktur bridsspilari, stýrði landsliði Íslands þegar við náum þeim frábæra árangri að verða heimsmeistarar. Það hefur án efa glatt föður hans mikið. Síðustu árin, sem Eysteinn sótti spiladagana í Gullsmáranum, þurfti hann að notast við staf, var orðinn slæmur í fótum, en alltaf þegar hann birtist í dyrunum kom hlýlegt bros, sem gaf gull í mund. Síðustu tvö árin gat hann ekki spilað því heilsunni hrakaði, en þau hjónin gerðu okkur þá ánægju að þiggja boð okkar og koma í heimsókn ef eitthvað var um að vera til hátíðabrigða. Þau voru alltaf aufúsugestir. Nú hefur þessi vinur okkar og spilafélagi kvatt. Þó svo sé komið mun hann ekki gleymast í hugum okkar, sem nutum samvistar við hann. Það er eitt það verðmætasta í lífinu að eignast vini og kunningja, allt annað er hégómi. Ég leyfi mér hér með, f.h. Bridsdeildarinnar í Gullsmáranum, að bera fram þakkir fyrir góðar stundir sem við áttum með Eysteini. Þær gleymast ekki og ylja í minningunni. Með innilegum samúðarkveðjum til fjölskyldunnar. Leifur Kr. Jóhannesson.
Í dag má búast við gasmengun norður af eldstöðinni í Holuhrauni. Almannavarnir segja að um kl. 8 í morgun hafi gasmengun mælst um 1700 µg / m³ ( míkrógrömm á rúmmetra ) á Húsavík en fór svo niður fyrir 300 µg / m³ þegar leið á morguninn. Einnig mældist gasmengun 300 µg / m³ á Fáskrúðsfirði snemma í morgun. Á morgun búast við gasmengun norðaustur af eldstöðinni.
ÞESSA dagana nýtur lesandinn þeirra forréttinda að sjá allar hendur. En vandi fylgir vegsemd hverri - þrautirnar eru enginn barnaleikur : Norður & spade ; 832 & heart ; Á 1064 & diam ; KD & klubs ; ÁKG 3 Vestur Austur & spade ; 975 & spade ; KG 64 & heart ; 832 & heart ; DG 9 & diam ; 654 & diam ; ÁG 1032 & klubs ; D 865 & klubs ; 4 Suður & spade ; ÁD 10 & heart ; K75 & diam ; 987 & klubs ; 10972 Suður spilar fimm lauf og fær út tígul. Austur tekur með ás og spilar aftur tígli. Hvernig á sagnhafi að taka 11 slagi? Greining : Spaðinn liggur vel og hjartað 3 - 3. En fjórlitur vesturs í trompi er til vandræða, því ef tígull er stunginn í borði virðist vestur hljóta að fá slag á tromp. Austur fær alltaf slag á hjarta, svo það verður einhvern veginn að komast hjá því að gefa líka á laufdrottningu. Ekki gengur að dúkka hjarta í þeim tilgangi að losna við tígul niður í fjórða hjartað, því austur svarar með tígulgosa og neyðir sagnhafa til að trompa í borði. Hvað er þá til ráða? Lausn : Sagnhafi tekur trompásinn, svínar spaðatíu, spilar trompi á gosann og svínar spaðadrottningu. Trompar tígul, tekur spaðaásinn og spilar hjarta þrisvar : Norður & spade ; - - & heart ; 10 & diam ; - - & klubs ; K Vestur Austur & spade ; - - & spade ; K & heart ; - - & heart ; - - & diam ; - - & diam ; G & klubs ; D 8 & klubs ; - - Suður & spade ; - - & heart ; - - & diam ; - - & klubs ; 109 Austur er inni í þessari stöðu og kæfir trompslag félaga síns, hvort sem hann spilar spaða eða tígli.
Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi starfsmaður Novators, lagði til í minnisblaði í byrjun árs 2006 að fyrirtæki í eigu Björgólfs Thors byggðu upp 20 milljarða króna skortstöðu í íslenskum hlutabréfum til að bregðast við ójafnvægi í hagkerfinu og minnka áhættu. Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi starfsmaður Novators, segir í minnisblaði sem sent var lykilmönnum í Landsbankanum í ársbyrjun 2006 að spenna á íslenskum fjármálamarkaði sé gríðarleg og leiðrétting óhjákvæmileg. Í minnisblaðinu leggur hann til að fyrirtæki Björgólfs Thors grípi til aðgerða til að minnka áhættu. Það verði meðal annars gert með því að byggja upp skortstöður í íslenskum hlutabréfum. Hreiðar Már ræddi minnisblaðið í beinni útsendingu í Íslandi í dag í gær. Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir : Þetta var kynnt fyrir bankaráðsmönnum og hvernig þeir síðan tóku málið innan síns hóps það þekki ég ekki, en þetta minnisblað náttúrulega snýst fyrst og fremst um það að það var gríðarlegur viðskiptahalli, það var mjög erfitt fyrir bankana að fjármagna sig og ef þú getur ekki fjármagnað viðskiptahallann að þá gefur alltaf gjaldmiðillinn eftir. Eins var í þessu minnisblaði tekið á því að skuldsetning væri of mikil, það væri of mikið af erlendum lánum í kerfinu og þess vegna væri mikil hætta á því að eitthvað myndi bera út af. Og þarna voru lagðar til ýmsar svona mögulegar svona aðgerðir til að vinna á þessu og mér þóttu þetta vera orð í tíma töluð. Hinsvegar hvað varðar þessa skortstöðu að þá er ekki hægt að vera með skortstöðu ef þú átt alltaf miklu meira af eignum heldur en nokkurn tímann þú selur, þá áttu alltaf nóg af eignum eftir í krónum og þannig var það hjá okkur. Heiðar Már segir að hvorki hann sjálfur né Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors, hafi tekið stöðu gegn íslensku krónunni. Heiðar Már Guðjónsson : Nei það gerðum við aldrei.
Stafræn markaðssetning, straumlínustjórnun og fjármálaglæpir er meðal þess sem Opni háskólinn tekur fyrir í vetur. Símenntun eykur samkeppnishæfni, bætir tengslanetið og skilar aukinni verðmætasköpun. Íslenskt atvinnulíf hefur þróast hratt á undanförnum árum og áherslur breyst töluvert. Til að vera samkeppnishæf á vinnumarkaði er mikilvægt að fagfólk viðhaldi og bæti reglulega við færni sína og þekkingu. Salóme Guðmundsdóttir er forstöðumaður Opna háskólans í HR. Hún segir meginhlutverk Opna háskólans í HR að tryggja vandað framboð sí - og endurmenntunar fyrir sérfræðinga og stjórnendur á sviði tækni, viðskipta og laga. " Eitt stærsta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag er að byggja upp og efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og ég er á þeirri skoðun að öflugt samstarf atvinnulífs og háskóla sé forsenda verðmætasköpunar og hagsældar, " segir hún. " Hér hefur verið byggt upp fjölbreytt og vandað framboð námskeiða og námsbrauta sem sniðnar eru að þörfum og verkefnum atvinnulífsins hverju sinni. Eins og venjulega verður mikið um að vera hjá Opna háskólanum í vetur og bætast mörg spennandi ný námskeið við flóruna. " Netið tamið Haustdagskráin er að taka á sig endanlega mynd um þessar mundir og er þar ýmislegt nýtt í bland við það klassíska. " Til dæmis má nefna áhugaverða nýja námslínu í stafrænni markaðssetningu en þar er tæpum vetri varið í að skilja í þaula og kunna að nýta möguleika þess markaðsmiðils sem netið er orðið, " segir Salóme. " Námskeiðið er hugsað fyrir íslenskt markaðsfólk sem vill dýpka þekkingu sína á þessu sviði hvort sem það eru auglýsendur eða auglýsingastofur sem eiga í hlut. Rannsóknir sýna að fyrirtæki verja stöðugt stærri hluta af markaðsfjármagni sínu í stafræna miðla. Þróunin er á þá leið að atvinnulífið kallar eftir sérþekkingu á þessu sviði og er námið hannað til að koma til móts við þær þarfir. " Einnig verður í vetur boðið upp á nýtt og lengra nám í aðferðum straumlínustjórnunar ( e. Lean Management Programme ). " Straumlínustjórnun er tól sem mörg helstu fyrirtæki landsins eru farin að nýta sér í töluverðum mæli. Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og er ætlað að opna augu og huga þátttakenda fyrir tækifærum til umbóta og framfara sem liggja iðulega falin í viðskiptaferlum fyrirtækja. " Opni háskólinn hefur ennfremur sett á laggirnar námslínu sem ber heitið Stjórnun aðfangakeðjunnar ( Supply Chain Management Programme ). " Því námi er ætlað að auka hagkvæmni og skilvirkni heildaraðfangakeðju fyrirtækja. Námið er einnig hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og hentar sérstaklega sérfræðingum og stjórnendum sem starfa á sviði framleiðslu, þjónustu, dreifingar og inn - og útflutnings, " útskýrir Salóme. Sviksemi og glæpir " Við eigum einnig von á nokkrum erlendum sérfræðingum til okkar á haustönn. Í byrjun september fáum við til dæmis til okkar Richard Dull, PhD, sérfræðing við Virginia Tech University í Bandaríkjunum. Hann mun fjalla um sviksemi og fjármálaglæpi á námskeiði sem kallast Accounting Fraud. Hann fer m.a. yfir það hvernig má þekkja merki þess og kynna fyrir þátttakendum fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir slíkt og spara þannig fyrirtækjum stórar fjárhæðir. Gjaldeyrishöftin hafa einnig verið mikið í umræðunni og höfum við því fengið til okkar Jón Karlsson, forstöðumann undanþágudeildar Seðlabankans og Pétur Stein Pétursson, forstöðumann eftirlitsdeildar gjaldeyriseftirlits Seðlabankans til að fjalla um þau, undanþágur og fleiri hagnýt atriði á stuttu námskeiði í lok október. " [email protected] Efla tengslin með fagráðum Starfsemi Opna háskólans í HR grundvallast á virkum tengslum við atvinnulífið. " Við eigum gott samstarf við mörg af stærstu fyrirtækjum og fagfélögum landsins og búum einnig að góðum tengslum við eigendur skólans sem eru Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins, " segir Salóme. Opni háskólinn hefur nú stigið skrefinu lengra og vinnur að því að efla tengslin við atvinnulífið enn frekar með stofnun nýrra fagráða. " Þar koma saman sérfræðingar úr akademískum deildum HR og aðrir sérfræðingar úr atvinnulífinu, fulltrúar fagfélaga og fyrrverandi nemendur HR, " segir Salóme. " Þessi umræðuvettvangur færir okkur sterkari tengsl við atvinnulífið og þar með aukinn skilning á helstu áskorunum sérfræðinga og stjórnenda og er því sannarlega mikilvægur þáttur í því að auka hagvöxt og samkeppnishæfni þjóðarinnar. " Frá örstuttum fyrirlestrum upp í langar námsbrautir Opni háskólinn er sí - og endurmenntun Háskólans í Reykjavík og býður upp á bæði lengri og skemmri námskeið á kjarnasviðum HR. Salóme segir námskeiðaflóruna spanna allt frá klukkustundar hádegisfyrirlestrum yfir í lengri og sérhæfðari námskeið þar sem kafað er djúpt ofan í viðfangsefnið. Aðsóknin eykst með hverju árinu og endurspeglar það bætta vitund bæði fyrirtækja og einstaklinga um gildi símenntunar. Salóme segir ekki hægt að leggja of mikla áherslu á gildi þess að sækja sér stöðugt aukna þekkingu. Sí - og endurmenntun sé líklega ein öruggasta fjárfesting sem einstaklingar og fyrirtæki eiga völ á. " Það skilar sér ekki eingöngu í aukinni samkeppnishæfni, sterkara tengslaneti, starfsánægju og liðsheild heldur skilar sér það einnig í aukinni framleiðni og verðmætasköpun fyrir samfélagið í heild. "
Það fróðlega við að taka þátt í forvali VG nú á síðustu vikum sumars er að fara um hið víðfeðma Norðvesturkjördæmi og hitta fólk. Allt frá Hvalfjarðarbotni um Akranes, Borgarfjörð, Snæfellsnes og Dali, um Vestfirði til Ísafjarðar, um Strandir, Hólmavík í Árneshrepp, um Húnavatns - og Skagafjarðasýslur, norður í Fljót að austan. Ég hef farið víða um þessi svæði á undanförnum árum starfs míns vegna og þekkti því vegalengdirnar af eign raun. Það er stundum sagt að stjórnmál snúist um að tala – og það kann að vera satt upp að ákveðnu marki. En að mínu viti er oft mikilvægara að hlusta. Er mér það fullljóst að til þess að geta talað máli íbúanna í vegabótum, flugsamgöngum, póstflutningum heilbrigðismálum eða skólamálum verður maður að fara til fólksins, aka vegina þar til þeir enda. Og það hef ég reynt að gera. Holóttir og harðið malarvegir Í Norðvesturkjördæmi er fyrsta umræðuefnið ávallt samgöngur, eða vegirnir öllu heldur. Þetta á einkum við um þá sem búa fjarri meginsamgönguæðunum – s.s. eins og þjóðvegi 1, eða hringveginum, sem liggur í gegnum kjördæmið. Norðvesturkjördæmið er víða strjálbýlt og langt á milli byggða. Og oftar en ekki eru það mjóir holóttir malarvegir sem tengja fólk fram með fjörðum, kringum fjöll inn til dala og yfir heiðar. Þessum vegum hefur lítt eða ekki verið haldið við síðustu ár – enda hafa framlög til vegamála aðeins verið um helmingur þess sem var t.d. fyrir árið 2008. Það gerist þrátt fyrir að tekjustofnar ríkisins af eldsneyti, bílum og umferð sem renna eiga til samgöngumála samkvæmt lögum hafi margfaldast. Þeir peningar fara annað. Þeir litlu fjármunir sem hefur verið varið í vegakerfið hafa runnið til stórra umferðamannvirkja en ekki til hinna dreifðu byggða. Mikil fjölgun ferðamanna hefur einnig margfaldað umferðina á þessum vegum og aukið slitið á þeim. Þannig hafa þeir látið verulega á sjá á síðustu árum, holóttir, harðir malarvegir og stórhættulegir í sívaxandi umferð. Vegirnir eru lífæðar byggðanna En þessir héraðs - eða sveitavegir eru jafnframt lífæðar heilu byggðarlaganna, börnum ekið daglega í skóla og fólk sækir vinnu til næstu þéttbýlisstaða. Viðmælendur mínir höfðu margir á orði að þingmenn eða frambjóðendur sæjust sumir aldrei en aðrir sjaldséðir. Það væri þá helst fyrir kosningar. Þá væru þeir ósparir á loforðin : Bundið slitlag hér og bætt heilsugæsla annars staðar og aukið framlag til skóla þar. Síðan að loknum kosningum er loforðið fyrnt eða því er svarað til " að ekki hafi fengist stuðningur til þess að koma því í framkvæmd ". Einn viðmælandi orðaði þetta svo að kosningar hefðu ekki orðið til þess að bæta við neinum malarhlössum á veginn heim til hans. Svo mörg voru þau orð. Ekki ætla ég að dæma um það. " Ég segi fyrir mig " Þar sem ég hef hlustað á þessi orð hefur mér stundum orðið hugsað til afa míns og nafna, Bjarna Jónassonar bónda á Asparvík á Ströndum og síðar á Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi. Það var viðkvæði afa í samtölum við fólk : " ég segi aðeins fyrir mig ". Og trúr þessu viðhorfi byggði hann brú yfir Fossá í Asparvíkurdal árið 1950 eða um tíu árum áður en vegur var lagður. Þetta gerði hann að eigin frumkvæði og brúin var í notkun allt fram á þessa öld. Afa mínum fannst betra að segja ekki meir en hann gæti staðið við. Það þarf stórátak í vegamálum, tekjustofnar og peningar eru fyrir hendi. Vilji og skilningur er allt sem þarf. Ég treysti mér ekki til þess að byggja brýr með malarskóflu og sementi einu saman. Hins vegar " segi ég aðeins fyrir mig " að ég treysti mér til þess að bera fram óskir fólks úr hinum dreifðu byggðum um bætt vegakerfi við fjárveitingarvaldið " fyrir sunnan " og fylgja þeim eftir. Er fiskifræðingur, sveitarstjórnarfulltrúi og formaður Vg í Skagafirði. Býður sig fram til að leiða lista Vg í Norðvesturkjördæmi.
Sökum tíðarfars hefur „ King og the Street “ keppni Kvartmíluklúbbsins verið frestað í tvígang en nú þegar veðurhorfur eru loksins góðar mun keppnin fara fram á laugardaginn kemur. Mótið hefst kl. 14:00. - og er haldið á kvartmílubraut félagsins í Kapelluhrauni. Samhliða þessu móti verður þriðja umferð Íslandsmótsins í kvartmílu keyrð en keppni þar hefst kl. 12:00. - Fyrir þá allra hörðustu þá verða sameiginlegar tímatökur fyrir bæði mótin kl. 10:00 en þar geta menn fylgst með hvernig keppendum gengur fyrir uppröðun í mótin. Keppendalistar fyrir bæði mótin eru komnir í loftið á heimasíðu Kvartmíluklúbbsins www.kvartmila.is
Nei þetta er sko ekki grín! Ég bakaði í alvöru kleinuhringjaköku! Þessi kaka er pínu maus en ef ykkur langar að gera svipað en meikið ekki vesenið þá getið þið keypt allt tilbúið út í búð og bara sett hana saman. Hér erum við sem sagt að tala um Snickers-kleinuhringi, súkkulaðibúðing, smjörkrem með súkkulaði og hnetusmjöri, Snickers-sósu og fullt, fullt af Snickers! Eigum við ekki bara að fá uppskriftina? Hún er tryllt! Hráefni Kleinuhringir 240g hveiti 3/4 bolli kakó 6 msk sykur 1 1/2 tsk lyftiduft 1 tsk salt 9 msk sýrður rjómi 2 egg 4 1/2 msk olía 90g salthnetur 2 Snickers ( söxuð ) Súkkulaðibúðingur 1 1/2 bolli nýmjólk 1/2 bolli rjómi 1 tsk vanilludropar 2 msk kakó 2 msk maizena 4 eggjarauður 2 msk kalt smjör 1 msk kalt hnetusmjör Smjörkrem 100g mjúkt smjör 6 bollar flórsykur 2 tsk vanilludropar 2 msk kakó 2 msk hnetusmjör smá salt 8 - 10 msk mjólk Snickers-sósa 1/8 bolli rjómi 2 Snickers ( grófsöxuð ) Leiðbeiningar Kleinuhringir Hitið ofninn í 180°C og smyrjið kleinuhringjaform vel en þessi uppskrift passar fyrir akkúrat 9 kleinuhringi. Blandið hveiti, kakói, sykri, lyftidufti og salti vel saman í skál. Hrærið því næst sýrða rjómanum saman við og síðan eggjunum, einu í einu. Blandið síðan olíunni saman við og hrærið vel. Hrærið salthnetum og Snickers varlega saman með sleif eða sleikju. Bakið í 12 til 14 mínútur og leyfið hringjunum aðeins að kólna áður en þið takið þá úr mótunum. Súkkulaðibúðingur Best er að gera búðinginn daginn áður en kakan er sett saman. Setjið mjólk, rjóma, vanilludropa, kakó, sykur, maíssterkju og eggjarauður í pott og hrærið vel saman. Hitið blönduna yfir meðalhita og hrærið stanslaust í blöndunni þar til hún byrjar að þykkna. Þegar hún er orðin vel þykk hafið pottinn þá á hellunni í um mínútu í viðbót. Takið af hellunni og hrærið smjörinu og hnetusmjörinu saman við. Hellið blöndunni í gegnum fínt gatasigti til að sigta út ef eggin hafa eldast. Setjið í skál, setjið plastfilmu yfir og setjið inn í ísskáp, helst yfir nótt en allavega í 2 - 3 klukkutíma. Smjörkrem Hrærið smjöri og flórsykri vel saman. Bætið því næst restinni af hráefnunum saman við. Snickers-sósa Hitið rjómann í örbylgjuofni eða potti. Þegar rjóminn er farinn að sjóða er honum hellt yfir Snickers-ið. Leyfið blöndunni aðeins að bíða og hrærið síðan saman þar til allt súkkulaði er bráðnað. Kakan sett saman Takið fram fallegt fat. Hafið þrjá kleinuhringi heila en skerið hina í helminga. Setjið heila hringinn í miðjuna á disk eða fati og raðið fjórum helmingum á hverja hlið. Smyrjið búðingnum í öll göt sem þið sjáið og sprautið síðan smjörkreminu yfir herlegheitin. Saxið niður eitt Snickers og dreifið því yfir smjörkremið. Þetta er endurtekið fyrir næstu tvö lög nema betra er að hringirnir sem eru hálfir fari ekki beint ofan á hvorn annan svo kakan verði ekki óstöðug. Svo er Snickers-sósunni hellt yfir dásemdina og hún skreytt með meira Snickers. Hér getur þú nálgast fleiri uppskriftir á Blaka.is
Guðlaugur Hörðdal og Karl Torsten Stallborn stofnuðu hljómsveitina bara tveir árið 2016. Þá var Kalli sessjónleikari í hljómsveit Gulla, Fufanu. Þeir urðu rosa góðir vinir og fóru að vinna saman. Þetta var svona hliðarverkefni, þeir eitthvað að leika sér uppi í stúdíói. Það er svo seinna sama ár sem ég dett einhvern veginn inn í þetta, " segir Sölvi Magnússon um það hvernig hljómsveitin Skrattar varð til. Fjórða plata þeirra, Hellraiser IV, kom út í ágúst síðastliðnum og var fagnað með útgáfutónleikum í október. Núna eru meðlimirnir fimm, en auk Guðlaugs, Karls og Sölva skipa hljómsveitina þeir Jón Arnar Kristjánsson og Kári Guðmundsson. " Ég hafði aldrei verið í hljómsveit áður. Það er skemmtilegt að í fyrsta tónlistarmyndbandinu þeirra, fyrir lag sem heitir This City's Gonna Cry, þar sést ég, " heldur Sölvi áfram. " Ég þekkti strákana en hafði ekkert heyrt í þessu bandi, þetta voru fyrstu tónleikarnir þeirra. Þar sést ég horfa á þá og þú sérð það bara á svipnum á mér að mig langar að gera eitthvað svona. Það er geðveikt næs að geta skoðað þetta myndband núna og sjá þennan svip, það mætti eiginlega segja að ég hafi sigrað. Þetta átti bara að vera eitthvert eitt lag, ég hafði samið einhvern texta og við ákváðum að prófa það bara. " Margir koma að verkefninu Jón Arnar bættist svo við þegar Skrattar gáfu út aðra plötu sína, Og djöfullinn sjálfur, árið 2017. Kári bættist síðan í hópinn nýlega, til þess að spila á bassa, en hann hafði þó að sögn Sölva komið að gerð allra laga frá upphafi hljómsveitarinnar. " Hann var alltaf með okkur í stúdíóinu. Þess vegna þegar kemur að svona kreditlistum og þannig þá höfum við alltaf bara " Skrattar " og ekkert meira því það eru svo margir sem koma að þessu, sérstaklega á Skúlagötu-tímanum. Þá voru bara allir uppi í stúdíói að vinna og bara gera þetta svo náttúrulega, " segir hann og vísar til þess tíma þegar stúdíói var haldið úti á Skúlagötu, þar sem ýmsir komu saman og sköpuðu tónlist. Sölvi segir hlutverkaskiptinguna innan hljómsveitarinnar vera mjög á reiki. " Við skiptum hljómsveitinni bara bróðurlega á milli okkar því við vitum ekkert hver gerir hvað. " Sölvi og Karl eru báðir í framlínu hljómsveitarinnar og hafa samið sína eigin texta. " Það er svo skrítin pæling að vera með tvo front-menn. Mér finnst eiginlega ekki til neitt hallærislegra en það virkar samt hjá okkur og það kemur mér á óvart. Yfirleitt skrifa ég það sem ég syng og Kalli það sem hann syngur en við hjálpumst líka alveg að. " Fer okkur frekar vel Spurður út í nafn hljómsveitarinnar segir Sölvi : " Ég held að það hafi bara verið töff, svo finnur maður bara fleiri ástæður eftir því sem lengra líður. Okkur finnst svo gaman að breyta svörunum, það eru svo leiðinleg svona viðtöl við hljómsveitir sem eru of einlæg. " Hann nefnir til dæmis að ein af skýringunum sem þeir hafi gefið upp hafi verið að skrattar þýði " að hlæja " á sænsku, ein meðlimanna, Karl, er hálfsænskur svo alltaf þegar þeir strákarnir hafi komið saman þá hafi fjölskyldan hans sagt : " De skrattar så mycket. " " Þannig að það er einhver hugmynd líka. En aðalástæðan er held ég að okkur finnst þetta fara okkur frekar vel. " Hellraiser IV er fjórða plata Skratta. Áður en Sölvi slóst í hópinn höfðu Skrattar gefið út tvær EP-plötur, sú fyrsta var kölluð In the Night en önnur bar titilinn Hellraiser II. " Okkur fannst það geggjað. Hellraiser er rosa hallærislegt nafn, Hellraiser II er svolítið epískt. Mér fannst engin önnur hugmynd virka nema að kalla þessa fjórðu plötu Hellraiser IV. Við vorum búnir að vera að melta þetta lengi og vinnum alltaf með regluna besta hugmyndin vinnur. Ef einhver hefði komið með einhverja hugmynd sem toppaði Hellraiser IV þá mátti það alveg gerast, en það er bara hægara sagt en gert að toppa nafnið Hellraiser IV á plötu. " Dauðarokk og ABBA Sölvi segir það vera erfitt að lýsa tónlist þeirra félaga í Skröttum. " Við förum í alls konar áttir. Ég bjó til eitthvert svar fyrir löngu, sem var að við værum " sígaretturokkhljómsveit með elektrónísku ívafi " en ég er eiginlega kominn á þá skoðun núna að kalla þetta frekar sígarettupopp. Það er miklu skemmtilegra að vera hættulegasta popphljómsveit landsins en rokkhljómsveit, rokk er svo mikið væl og við vælum svo lítið. " Innblásturinn kemur héðan og þaðan. " Ég held að það komi rosalega vel fram í tónlistinni okkar og það er ástæðan fyrir því að það er svo erfitt að setja okkur í einhvern ákveðinn ramma tónlistarlega séð því við sækjum innblástur frá svo mörgum stöðum. Við dýrkum bara gott " shit ". Ég hlusta á klassíska tónlist, dauðarokk, hipphopp og ABBA. Ég elska ABBA, það er eiginlega merkilegt hvað ég hlusta mikið á ABBA. Við getum sótt innblástur á öllum þessum stöðum og erum ekki að reyna að passa inn í einhvern ramma. Við vitum ekki sjálfir í hvaða átt þetta fer. Besta hugmyndin vinnur og " good shit " er " good shit ". " Platan er gefin út hjá útgáfunni bbbbbb recors sem er í eigu techno-listamannsins Bjarka og var það í fyrsta skipti sem hann gefur út eitthvað annað en teknótónlist. " Plötuumslagið hanna vinur okkar Gúndi og grafíski hönnuðurinn Viktor Weisshappel, æskuvinur Gulla og Kára, sem hefur fylgt okkur frá upphafi og hannað allt fyrir okkur. "
29. ágúst 1862 Gefin var út reglugerð um að verslunarstaðurinn Akureyri skyldi fá kaupstaðarréttindi. Þá bjuggu þar 286 manns en nú tæplega átján þúsund. 29. ágúst 1910 Keisaraskurður var gerður í Reykjavík, sá fyrsti hér á landi þar sem bæði móðir og barn lifðu. 29. ágúst 1914 Ráðherra gaf út fyrirskipanir til tryggingar hlutleysi landsins " í ófriði milli erlendra ríkja ". Landsmönnum var meðal annars bannað að styðja ófriðarríkin, ganga í heri þeirra eða veita skipum þeirra leiðsögn. 29. ágúst 1948 Baldur Möller, 34 ára lögfræðingur, varð skákmeistari Norðurlanda, fyrstur Íslendinga, á móti í Örebro í Svíþjóð. Baldur varði titilinn til 1953. Áður hafði hann verið skákmeistari Íslands fimm sinnum. 29. ágúst 1959 Hafmeyjan eftir Nínu Sæmundsson var afhjúpuð í Tjörninni. Styttan var eyðilögð í sprengingu á nýársnótt 1960. 29. ágúst 1971 Kirkjan að Breiðabólstað á Skógarströnd á Snæfellsnesi brann til kaldra kola. Eldsupptökin voru rakin til gastækja. Á sama tíma kom upp eldur í bíl sóknarprestsins. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun Sigurð Frey Kristmundsson í fjórtán og hálfs árs fangelsi fyrir að bana Braga Halldórssyni í íbúð við Hverfisgötu í ágúst síðastliðnum. Sigurður Freyr stakk Braga með hnífi í brjóstholið og lést hann skömmu síðar. Sigurður játaði verknaðinn fyrir dómi en hann neitar að um ásetning hefði verið að ræða. Rannsókn geðlæknis leiddi í ljós að Sigurður er sakhæfur. Þrátt fyrir að hann hafi verið í mikilli fíkniefnaneyslu á þessum tíma þótti dómnum sýnt að hann hefði sjálfur komið sér í það ástand og leysir það hann ekki undan refsiábyrgð.
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Valencia unnu sinn 21. leik í röð í dag gegn Manresa, 74 - 62, á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Það mun vera met hjá félaginu en Jón Arnór tísti einmitt um það að leik loknum. Íslendingurinn skoraði 7 stig í leiknum. Valencia er því sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga.
Ólöf Guðrún Ketilsdóttir fæddist í Reykjavík 1. júlí 1949. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans í Reykjavík 15. desember 2016. Foreldrar hennar voru Margrét Ingunn Ólafsdóttir, f. 16. ágúst 1923, og Ketill Hlíðdal Jónasson, f. 4. júlí 1918, d. 5. desember 1997. Systir Ólafar var Unnur Gréta Ketilsdóttir, f. 10. október 1947, d. 19. september 2005. Bræður hennar eru Jónas Ingi Ketilsson, f. 29. febrúar 1956, og Eggert Ketilsson, f. 23. desember 1958. Ólöf giftist 19. október 1974 Haraldi Ágústi Bjarnasyni, f. 9. maí 1950. Börn Ólafar eru : 1 ) Hrafn Aðalsteinn Ágústsson, f. 14. janúar 1969, maki Joy Chang, f. 2. mars 1973. 2 ) Ólafur Ágúst Haraldsson, f. 15. febrúar 1975, maki Elísabet Hulda Einarsdóttir, f. 15. janúar 1976, börn þeirra eru Atli Hrafn og Helena Dís. Útför Ólafar fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 27. desember 2016, klukkan 13. Elsku mamma. Þú ólst mig og fylltir mig af ást þinni, takk fyrir allt, elsku mamma. Nú ertu sofnuð og farin og ég sit hér fullur af sorg en um leið fullur af þakklæti og yndislegum minningum um glæsilega, dásamlega konu, móðir og vin. Kærleikurinn þinn, húmorinn og gleðin lyftu mér upp og sýndu mér lífið í yndislegu björtu ljósi. Að horfa á eftir þér inn í sjúkdóminn, horfa á lífið fjara út, biðja með þér á dánarbeðinum og finna hvernig þú algerlega óttalaus mættir dauðanum var í senn hughreystandi, aðdáunarvert og lýsandi fyrir hugrakkan dásamlegan persónuleikann þinn. Ég veit í hjarta mínu, fyrir orð frelsarans, að við munum finna hvort annað, á öðrum stað, í annarri vídd. Leggðu' aftur augun þín skær ástin mín, dagur er fjær. Svo vil ég vaka þér hjá ; vernda þig ef að ég má. Er ég horfi' á þig hitnar mín sál. Hverful orð get' ei túlkað mitt mál. Og er sefurðu vært mun ég vak' yfir þér. Sæll af ást ég er. Sefur þú nú sætt og rótt, sveipuð í rökkri og yl. Hvíldu hjá mér, allt er hljótt. Himneskt er að vera til. ( Þorsteinn Eggertsson ) Góða ferð, elsku mamma. Þinn Hrafn ( Hrabbi ). Mamma Grand er dáin. Lóló var frumkvöðull og kvenskörungur sem átti engan sinn líka. Í viðskiptum naut hún virðingar samstarfsfélaga og keppinauta. Hún var langt á undan sinni samtíð í mörgu tilliti. Samstarf hennar og Haraldar heitins Haraldssonar í Andra skilaði ótrúlegum árangri í útflutningi sjávarafurða og allir í greininni báru mikla virðingu fyrir Lóló. Við Lóló og Halli Bjarna, margir frábærir ferðafélagar og síðar Halli Har. og Adda með okkur, fórum í margar frábærar hestaferðir, sem Lóló hafði yfirleitt átt heiðurinn af að hafa skipulagt á sinn frábæra hátt, þar sem ósérhlífni hennar og dugnaður var ráðandi. Mamma Grand var eiginlega " hestamamma " mín, skipulagði fyrstu alvöru hestaferðina mína, smurði nestið á morgnana og lagði mér lífsreglurnar. Umvafði mann þeim kærleik og einlægum vinskap sem alla tíð einkenndi elsku fallegu Lóló. Lóló kenndi mér ekki aðeins hvernig á að ferðast á hestum heldur var hún sérfræðingur í sælkeramatseld og í G & T-fordrykkjum. Lóló var einnig góður bridsspilari og tók þátt í mótum með góðum árangri. Ég sakna mikils húmorista sem alltaf gat séð spaugilegar hliðar tilverunnar. Ég votta Halla og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Guðni Jónsson. Mikið brá mér þegar ég fékk þær fréttir að Lóló, gömul og góð vinkona væri látin. Ef litið er yfir farinn veg, þá reyndist Lóló okkur hjónum afskaplega vel, þó að samband okkar hefði dvínað síðustu ár. Við kynntumst Lóló og Halla í kringum 1990. Við áttum með þeim notalegar og skemmtilegar stundir. Okkar leiðir lágu saman í hestamennskunni. Eins var alltaf gaman í bústaðnum þeirra í Kjarnholtum, og var tekið höfðinglega á móti okkur. Við fórum með þeim í Tungnaréttir ofl. Lóló hafði einstaklega smitandi hlátur og var mikil sögumanneskja. Já, það var oft hlegið dátt í hennar félagsskap. Lóló var umfram allt góð manneskja. Hún var óskaplega barngóð og hændi hún mörg börnin að sér. Einnig var hún mikill dýravinur og fengu hundarnir okkar Ragga notið góðs af því. Hún var mikill kokkur og sá hún meðal annars um matinn í fermingu dóttur okkar og eins þegar ég hélt upp á fertugsafmælið mitt. Þá var nú ekki mikið mál fyrir hana að reiða fram matarveislu fyrir nokkra tugi manna. Fyrir það hugsum við til hennar með þakklæti. Þrátt fyrir að við vitum öll að það kemur að leiðarlokum hjá okkur öllum, þá erum við aldrei sátt við að sjá á eftir fólki á besta aldri. Við Raggi vottum Halla, börnum þeirra og fjölskyldum okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau á þessari stundu. Farðu í friði, elsku vinkona, og takk fyrir öll árin sem við áttum með þér. Helga Kristín Claessen, Ragnar Hinriksson. " Fararstjóri " er fallinn frá. Lóló, eins og Ólöf Guðrún Ketilsdóttir sem hér er minnst, var alltaf kölluð, lést á Landspítalanum 15. des. Lóló og Halla höfum við Gillý þekkt frá fornu fari, en þau kynni endurnýjuðust er þau hjónin urðu þess valdandi að við hófum hestamennsku árið 1989. Lóló og Halli höfðu þá um tíma stundað reiðmennsku og ferðalög á hestum og tóku okkur með í ferðahópinn og voru okkur mikil hvatning og stuðningur er við tókum þar fyrstu skrefin. Lóló valdi fyrir okkur fyrsta hestinn, öðlinginn hann Örvar, og teningnum var kastað. Lóló var full af lífsorku og framtakssemi. Hún var því fremst í flokki að skipuleggja sumarferðir um hálendið og sjálfskipaður fararstjóri. Margar ógleymanlegar voru ferðirnar í góðum félagsskap : Fjallabak, Kerlingarfjöll, Arnarfell hið mikla í Hofsjökli. Ein eftirminnilegasta ferðin var úr Skaftártungum í Fögrufjöll, inn með Langasjó að Skaftárjökli, farið yfir Skaftá og niður með Lakagígum. Þessi leið hafði aðeins einu sinni áður verið farin í hestaferð ( af Haraldi Sveinssyni og félögum ). Í þessa ferð hafði Lóló fengið þrautreynda fjallamenn með okkur, þá Gísla Halldór á Ytri-Áum og Kristinn Siggeirsson frá Hörgslandi. Þarna var hún í essinu sínu, fór hratt yfir á Kolbeini sínum, spjallaði við bændur og var hrókur alls fagnaðar. Þessar ferðir, sem tóku eina til tvær vikur á fjöllum, þörfnuðust mikils skipulags og undirbúnings. Það lék Lóló í hendi og að auki fór hún létt með bæði að ákveða matarkostinn og að framreiða veislumat í mishrörlegum fjallakofum langt uppi í óbyggðum. Lóló var ákveðin og stjórnsöm, þegar á því þurfti að halda, en hún var líka tillitssöm og hlý og hafði frábæra kímnigáfu, ekki síst gat hún gert grín að sjálfri sér. Með góðan hóp með í ferðum átti Lóló stóran þátt í að gera þessar ferðir að ógleymanlegum ævintýrum. Hafi hún og Halli mikla þökk fyrir þetta frábæra tímabil. – Einnig fyrir fjölmargar aðrar skemmtilegar samverustundir m.a. við óviðjafnanleg veisluborð Lólóar eða við bridsspil, þar sem enginn hafði roð við henni, enda frúin meistari í þeirri íþrótt. Síðustu ár hafa verið Lóló erfið vegna veikinda og undir lokin greindist hún með vágestinn krabbamein, – en í veikindum hennar hefur Halli staðið þétt við hennar hlið, nú sem fyrr. Við Gillý kveðjum hér góðan vin og sendum Halla og sonum þeirra, Hrafni og Ólafi og þeirra fjölskyldum, aldraðri móður Lólóar og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur, Haraldur Dungal. Lóló, kær vinkona mín til margra ára, hefur kvatt þetta jarðlíf eftir erfið veikindi. Við höfum átt samleið í tæp 60 ár. Það er langur tími – og þó ekki. Þegar litið er til baka hefur þessi tími liðið ógnarhratt og hefði mátt vera mun lengri. Svo góður var hann. Margs er að minnast og margt höfum við vinkonurnar brallað, allt frá því að við vorum litlar stelpur. Vináttan hélst og við hjónin eigum dýrmætan sjóð minninga frá okkar góðu samverustundum, bæði innanlands og utan. Lóló og Halli voru höfðingjar heim að sækja og oftar en ekki fengum við að njóta gestrisni þeirra, bæði á heimili þeirra og í sumarbústaðnum. Lóló var listakokkur og jafnframt gladdi hún okkur með sinni hlýju og skemmtilegu nærveru. Ég sakna sárlega kærrar vinkonu en jafnframt er mér ofarlega í huga innilegt þakklæti fyrir öll gömlu góðu árin. Stundin líður, tíminn tekur, toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. ( Hákon Aðalsteinsson ) Halla, Hrafni, Óla, Unnu, barnabörnum, tengdadætrum og bræðrum og fjölskyldum sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Áslaug Ágústsdóttir.
Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir það blasa við að ósamræmi milli frídaga atvinnulífsins og skólakerfisins skapi vanda. Með skipulagsbreytingu geti foreldrar minnkað fjarveruþörf sína frá vinnu um tíu daga á ári. Hvert foreldri eigi almennt um 24 frídaga á ári en frídagar grunnskólabarna séu um 70 til 80. Hildur, Árni Helgason lögfræðingur, Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir borgarfulltrúi Pírata, ræddu borgarmál og fleira í Silfrinu. Hér er hægt að horfa á þáttinn í heild sinni. Megi ekki ganga of langt að kröfum atvinnulífsins Sigurborg Ósk sagði að hægt væri að samræma ákveðna hluti betur. Hins vegar verði að passa að vega ekki að sjálfstæði skólanna og þeirra valdi til að stýra sínu faglega starfi og skipuleggja sína vinnu sjálfir. Hún segir að ekki megi ganga of langt að kröfum atvinnulífsins í stað barnanna. „ Skólakerfið er skipulagt á forsendum nemenda, ekki atvinnulífsins. Það skiptir rosalega miklu máli að við séum að gera færri vinnustundir og fleiri gæðastundir fyrir fjölskylduna. “ Allt haldist í hendur Hildur sagði fækkun frídaga ekki á forsendum atvinnulífsins, heldur sé um einfalt skipulagsmál að ræða. Fólk vilji öflugar grunnstoðir, öflugt menntakerfi, velferðarkerfi og heilbrigðiskerfi. Oft vilji gleymast í umræðunni að vinnandi fólk úr atvinnulífinu fjármagni þessi kerfi. Án öflugs atvinnulífs sé ekki hægt að standa undir þessum kerfum. „ Ég er þeirrar skoðunar að ef þú ætlar að standa með menntakerfinu, velferðarkerfinu og heilbrigðiskerfinu, þá verðurðu um leið að standa með atvinnulífinu. Þetta helst allt í hendur. “ Þurfi að lengja skólaárið Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, vill að skólaárið verði lengt hér á landi og verði svipað langt og skólaár Norðurlandanna. Með því verði skólakerfið styrkt. Alþjóðlegar kannanir sýni að skólakerfið hérlendis sé ekki nægilega öflugt og geti orðið öflugra en það er. Sjá einnig : Vilja stytta nám og tryggja leikskólapláss. Hildur benti á að Samtök atvinnulífsins hafi nýlega lagt til að grunnskóli verði styttur í níu ár og skólaárið lengt í staðinn. Reynslan sýni að langt sumarfrí grunnskólabarna dragi úr námsárangri og bitni verst á börnum fátækra og innflytjenda.
Hamar – KR 51 : 62 Hveragerði, úrvalsdeild kvenna, Iceland Express-deildin, miðvikudag 11. nóv. 2009. Gangur leiksins : 2 : 9, 10:15, 10:19, 14:26, 19:31, 24 : 33, 32 : 35, 32 : 45, 35 : 47, 45 : 49, 46 : 58, 51 : 62. Stig Hamars : Kristrún Sigurjónsdóttir 19, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13, Koren Schram 9, Hafrún Hálfdánardóttir 4, Fanney Guðmundsdóttir 3, Guðbjörg Sverrisdóttir 2, Íris Ásgeirsdóttir 1. Fráköst : 27 í vörn – 11 í sókn. Stig KR : Margrét Kara Sturludóttir 23, Hildur Sigurðardóttir 15, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 9, Helga Einarsdóttir 6, Signý Hermannsdóttir 5, Jóhanna Sveinsdóttir 2, Unnur Tara Jónsdóttir 2. Fráköst : 36 í vörn – 9 í sókn. Villur : Hamar 22 – KR 22.
Hlutabréfaverð Facebook hefur hækkað um 10% á síðustu tíu dögum, þrátt fyrir herferð auglýsenda gegn samfélagsmiðlum. Fjölmörg fyrirtæki hafa tekið þátt í herferð gegn hatursorðræðu á netinu sem felst í tímabundinni stöðvun á auglýsingum á samfélagsmiðlum líkt og Facebook. Eftir stutt fall hlutabréfaverðs Facebook föstudaginn 26. júní hefur gengi bréfanna hækkað aftur um 10% og stendur nú í 240 dollurum á hlut, nálægt sínu hæsta gengi frá skráningu sem var rétt yfir 242 dollara þann 23. júní síðastliðinn. Auglýsingastarfsemi Facebook byggir á átta milljónum auglýsenda, flestir þeirra lítil eða meðalstór fyrirtæki með ráðstöfunarfé til auglýsinga í hundruðum þúsunda dollara talsins og oft háðir Facebook sem nauðsynlegum stafrænum vettvangi, segir í frétt Economist. Sjá einnig : Þriðjungur stórra fyrirtækja tekur þátt Hundrað stærstu auglýsendurnir á vefsíðunni vega minna en 20% af auglýsingatekjum Facebook. Sama hlutfall er um 71% hjá bandarískum sjónvarpsstöðvum. Af fimmtíu stærstu auglýsendum Facebook hafa einungis örfá fyrirtæki tekið þátt í herferðinni. Þó sniðgangan fyrirtækja á auglýsingum á samfélagsmiðlum gæti verið vegna prinsippmálum eða félagsþrýstingi, þá virðist þetta einnig vera hentugur tími fyrir fyrirtæki að slíka afstöðu þar sem fyrirtæki hafa dregið úr útgjöldum til auglýsinga sökum kórónakreppunnar. Starbucks hefur til að mynda eytt um 11 milljónir dollara í auglýsingar á Facebook frá því í mars en á sama tímabili í fyrra eyddi fyrirtækið 29 milljónum, samkvæmt gagnaveitunni Pathmatics.
Miðstöð innanlandsflugs á áfram að vera á Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýrinni. Þessari kröfu eru flestir íbúar landsbyggðarinnar sammála og könnun sem gerð var nýlega sýndi að 82% íbúa höfuðborgarsvæðisins eru sama sinnis. Ástæðurnar eru margar en væntanlega er ein af aðalástæðunum nálægð við Landspítalann. Á síðasta ári eða árið 2011 voru sjúkraflugferðir 476 og flogið var með yfir 500 sjúklinga til Reykjavíkur. Tveir af hverjum þremur sjúklingum voru fluttir á Landspítalann til aðhlynningar og því er það nauðsynlegt að flugvöllurinn verði staðsettur í nálægð við best útbúna sjúkrahús landsins því oftar en ekki er þetta spurning um mínútur. Í vikunni mátti sjá frétt á mbl.is að nú þegar hefðu 417 sjúklingar notið þjónustu sjúkraflugsins og árinu er ekki lokið. Miðstöð innanlandsflugs og stjórnsýsla landins til Keflavíkur? Einhverjir hafa bent á að færa eigi miðstöð innanlandsflugsins til Keflavíkur sem þýðir í mínum huga að þá þarf einnig að færa starfsemi og uppbyggingu Landspítalans þangað. Það er vissulega möguleiki ef starfsfólk spítalans og höfuðborgarbúar eru tilbúnir til þess. Þá má búast við að önnur þjónusta muni færast nær flugvellinum. Þetta er vissulega möguleiki. Nýverið kom fram skýrsla um áhrif þess að færa miðstöð innanlandsflugs úr Vatnsmýrinni til Keflavíkur. Meginniðurstöður skýrslunnar gefa til kynna að samgöngur innanlands verða, með aðgerðinni, dýrari og óhagkvæmari kostur fyrir samfélagið. Endurskoða þyrfti samkvæmt skýrslunni núverandi fyrirkomulag allrar stjórnsýslu landsins, meta aðgengi og skipuleggja upp á nýtt uppbyggingu hennar á landsbyggðinni. Í stuttu máli ef flugvöllurinn verður færður úr Vatnsmýrinni mun höfuðborgin einangra sig frá landsbyggðinni. Það er hægt að slengja fram hugmyndinni um að landsbyggðarfólk vilji hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni vegna nálægðar við miðbæinn eins og einn borgarfulltrúi Reykjavíkur hefur leyft sér að segja. Það getur verið ágætis rökstuðningur í sjálfu sér enda hefur miðbær höfuðborgarinnar upp á margt að bjóða því landsbyggðarfólki sem vill njóta þess sem þar er að finna, m.a. verslanir og afbragðs veitingastaði. Öryggi heilbrigðisþjónustu En aftur að kjarna málsins. Það er ekki einungis sjúkraflugið, sem oftast nær fer með sjúklinga í bráðameðferð, sem nauðsynlega þarf á nálægð flugvallarins við Landspítala að halda. Það er fjöldinn allur af sjúklingum sem sækir meðferð á sjúkrahúsið. Fólk sem þarf í ýmiskonar meðferð vegna krabbameins, kransæðasjúkdóma, sérhæfðra skurðaðgerða og fleiri dæmi væri örugglega hægt að nefna. Staðsetning sjúkrahússins við innanlandsflugvöll skiptir öllu máli. Miðstöð innanlandsflugs til Akureyrar? Ég fékk einu sinni þá hugmynd í kollinn að færa ætti miðstöð innanlandsflugsins til Akureyrar. Nýbúið er að lengja flugbrautina og aðstæður með ágætum. Flugstöðina má stækka þar sem pláss er til þess og tillögur að stækkun liggja nú þegar á borðinu. Á sama tíma ætti að færa og byggja upp starfsemi Landspítala – háskólasjúkrahúss við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Þar er einnig nægt landrými fyrir uppbyggingu sjúkrahúss og Háskólinn á Akureyri rétt hjá. Almenningssamgöngur eru til fyrirmyndar, frítt er í strætó og næg leikskólapláss svo eitthvað sé nefnt. Mörgum finnst þetta galin hugmynd og það getur vel verið en hvað á þá að segja um hugmyndir þeirra sem vilja miðstöð innanlandsflugsins burt úr Reykjavík, frá Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Eftir því sem ég best veit er enginn að ræða um að flytja þá starfsemi burt úr höfuðborginni Reykjavík, höfuðborg allra landsmanna. Höfundur er sérkennari og býður sig fram í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi.
Á dögunum gat Twitter út appið Vine. Twitter vonar að Vine geri það sama fyrir myndbandsupptöku og instagram gerði fyrir ljósmyndun. Vine gengur út að taka upp 6 sekúndna myndband og deila því með vinum þínum á Vine. Hægt er að deila myndbandinu á Twitter og Facebook og auðvitað er #hashtag í boði. Myndbrotin sem maður sér eru álíka og gif myndirnar sem flestir kannast við, þau spilast sjálfkrafa með endurtekningu. Sjálfkrafa er slökt á hljóði þannig að auðvelt er að skima yfir fjöldan af myndböndum og virkja svo hljóðið á þeim sem maður vill. Myndböndin eru tekin þannig að maður ýtir á skjáinn og þá tekur síminn upp. Ef maður sleppir takkanum stoppar upptakan og byrjar aftur þegar maður snertir skjáinn á ný. #simonpunkturis vine.co / v / bJ 1 qHwp 5 xTV - Andri Valur Ivarsson ( @andrivalur ) January 28, 2013 Vine er eingöngu til fyrir iOS eins og er. Framleiðandinn segir að appið verði í boði á fleiri stýrikerfum innan skamms. Appið má nálgast hér. Upprunaleg færsla á Símon.is
Breska veðurstofan gaf síðdegis út sína alvarlegustu viðvörun vegna hvassviðris en búist er við vindhraða allt að 45 metrum á sekúndum í kvöld í norð - og vesturhluta landsins. Fólk er hvatt til þess að vera ekki á ferli að óþörfu. Lestarferðir og aðrar samgöngur hafa raskast mjög í dag vegna illviðris. Þá eru tugþúsundir heimila án rafmagns víðsvegar á Bretlandseyjum.
Talibanar sendu í dag frá sér myndband en það sýnir bandarískan hermann sem þeir hafa haft í gíslingu síðan í lok síðasta mánaðar. Talsmaður hersins fordæmir birtingu myndbandsins og segir það brot á alþjóðalögum. Bowe Bergdahl, bandarískur hermaður, tjáði sig í myndbandinu.
BÍLVELTA varð á Reykjarströnd í Skagafirði í fyrrinótt. Fjögur ungmenni voru í bílnum sem fór a.m.k. þrjár veltur. Öll voru þau með öryggisbeltin spennt og sluppu með skrámur. Ökumaður bifreiðarinnar var 15 ára gamall, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.
Valið um hver sé besti leikmaður tímabilsins stendur á milli tveggja manna - LeBron JamesogKevin Durant. Þeir hafa verið í sérflokki í vetur. James hefur verið valinn besti leikmaður deildarinnar síðustu tvö ár og margir eru á því að Durant eigi skilið að vera valinn í ár. " Hann er búinn að vera sá stöðugasti í deildinni í vetur, " sagði James aðspurður um hvort Durant ætti skilið að vinna í ár. Durant er nýbúinn að slá glæsilegt met Michael Jordan með því að skora að minnsta kosti 25 stig í 41 leik í röð. James hefur verið valinn sá besti fjórum sinnum á ferlinum. " Durant hefur átt frábært tímabil. Ef hann verður valinn bestur þá er það frábært fyrir hann og hans fjölskyldu. Hann hefur átt " MVP " tímabil. Ég er annars lítið að spá í hvað fólk er að segja. Það er hópur fólks sem hefur atkvæðisrétt og það nýtir þann rétt á þann hátt sem það vill. "
„ Þetta er eitthvað sem heilbrigðir menn eiga ekki að gera, “ segir nemandi við Keili. Hann varð vitni að því þegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var farþegi í bíl sem lagði í stæði fatlaðra við aðalbyggingu Keilis í gær, fimmtudag. Bjarni sótti þar fund með framkvæmdastjóra skólans, Hjálmari Árnasyni, ásamt öðru sjálfstæðisfólki. Nemendum var brugðið þegar þeir sáu Bjarna stíga úr framsæti bifreiðar sem lagt hafði verið í stæði fatlaðra. Bíllinn var í stæðinu í um klukkutíma eða þar til Bjarni og félagi hans héldu sína leið. „ Við vorum nokkur á leið í skólann eftir hádegishlé. Öll bílastæði voru full og við lögðum þess vegna við íþróttahúsið sem er töluvert frá. Þá sáum við glansbílaflota koma að húsinu, en einum þeirra var lagt í stæði fatlaðra, “ segir nemandi sem tekur fram að það hafi verið blíðskaparveður. Bifreiðin er í eigu ÍAV þjónustu ehf. sem er dótturfélag Íslenskra aðalverktaka. Guðmundur Pétursson er framkvæmdastjóri ÍAV þjónustu en í samtali við DV staðfesti hann að hafa ekið bílnum. Hann kannaðist í fyrstu ekki við að hafa lagt fyrir utan Keili, hvað þá að hafa lagt í stæði fyrir fatlaða : „ Ég tek þetta þá á mig, ég hef hreinlega ekki séð skiltið, “ sagði hann svo eftir að blaðamaður sagðist vera með myndir af bílnum í stæðinu.
Lögreglan í Stokkhólmi handtók í gærkvöldi karlmann sem hefur viðurkennt að hafa hótað að fremja fjöldamorð í Konunglega tækniháskólanum í höfuðborg Svíþjóðar í dag. Maðurinn birti nafnlausa orðsendingu á internetinu á föstudaginn þar sem fram kom að hann ætlaði að mæta með skammbyssu í skólann í dag og skjóta eins marga og hann gæti áður en lögreglan kæmi á staðinn. Yfirvöld tóku hótunina mjög alvarlega höfðu mikinn viðbúnað við skólann.
Skaftárhlaup hefur rénað í nótt við Sveinstind, nálægt upptökum Skaftár samkvæmt sjálfvirkum mælum. Vatnsborð Eldvatnsins við Ytri-Ása í Skaftártungu, sem er nálægt þjóðveginum virðist hafa náð hámarki og hefur vatnsborð verið stöðugt síðan um klukkan 4 í morgun. Hlaupið nú virðist heldur minna en hlaupið í október 2008. Nokkrar skemmdir hafa orðið vegna hlaupsins, einkum á varnargörðum og grónu landi.
vegarins hlykkjótta hönd ° ° ° ° ° # # ° Ótrúleg fjölgun á fávitum varð í kringum mig á stuttum tíma. Útivist, gönguferðir og ferðalög, einkum innanlands, hafa alltaf farið langt með að fylla á orkutankinn og þá hef ég orðið að kyngja helstu fordómum mínum frá því ég kom heim frá sérnámi. Eftir útskrift úr læknadeild, þá 27 ára gamall giftur tveggja barna faðir, vissi ég næstum allt enda ættaður úr Þingeyjarsýslu. Húsið er gul sól ° ° ° ° ° # # ° Hér er víðáttan, fjölbreytt fuglalíf og djúpar rætur, rekaviður og margt forvitnilegt í fjörum, silungur í vötnum og sólin neitar að síga niður fyrir sjóndeildarhringinn vikum saman. grjótið er gullið og rennislétt þýfið. þetta er býsna oft gert, ° ° ° ° ° # # ° baða sig bert, ° ° ° ° ° # # ° Kvenfyrirlitningu, útlendingaandúð og kynþáttafordóma. Laxá í Aðaldal og 15. holan í Grafarholtinu hafa kennt mér auðmýkt fyrir viðfangsefninu og virðingu fyrir náttúrinni og fossbúanum. Ungt skáld ( Andri Snær ) mér nátengt orti um æskuminningar sínar ( brot úr ljóðinu Myndir frá Melrakkasléttu ) : ° ° ° ° ° # # ° Efinn sótti sem sagt að mér snemma. Fordómar fram að fermingu ° ° ° ° ° # # ° Gjarnan í hillingum geymist hér lífið ° ° ° ° ° # # ° og vætan næstum því brakandi þurr. Fallegu fólki og nettu ° ° ° ° ° # # ° Þá minnist ég upphafsorða doktorsritgerðar Valgarðs Egilssonar við Lundúnaháskóla : „ Jörðin er enn flöt, eins og allir hestar sjá “ ( The earth is still flat, as every horse can see ). Hæsta fjallið á Sléttu blasir við, Geflan 180 metrar. Þær eru að mestu byggðar á fölsuðum niðurstöðum á tengslum bólusetninga við einhverfu og hræðslu við aukaverkanir sem eru því miður til staðar. stafar geislandi börnum ° ° ° ° ° # # ° Eftir tvítugt hef ég talið mig nokkuð einlægan jafnréttissinna og reynt að styðja málefni í þá átt og ekki tekið undir tal um að kynþáttur, þjóðerni, aldur eða kyn skipti máli hvað snertir heiðarleika, náms - eða starfsgetu. Til sjávar teygist ° ° ° ° ° # # ° Melrakkasléttan á stóran sess í sálinni, þar fæddist faðir minn og þar var ég í sveit í 5 sumur til 10 ára aldurs. Eftir að hafa lesið öll blöðin komst ég að því að sannleikurinn hefur að minnsta kosti tvær hliðar og hef alltaf átt erfitt með að skipa mér í fylkingu með eða móti. með hús í lófa ° ° ° ° ° # # ° hér í mollunni á Melrakkasléttu. Einnig það sem mest er um vert, nýtt viðhorf, kjark og metnað til að koma okkur á rétta leið. Veðrið getur verið hryssingslegt, stundum gráða á mann, jafnvel í fámenni, en í sumar má minnast orða Hjálmars Freysteinssonar : ° ° ° ° ° # # ° Ég játa að ég hef ekki mikla trú á að meta tónlist, bókmenntir eða aðrar listgreinar eftir kyni höfundar eða flytjenda enda hefur kynjum fjölgað og vafalítið eiga einhverjir eftir að kyngreina suma alveg upp á nýtt. Var ósnertanlegur og að ég held ódauðlegur en eftir bílveltu, viku fyrir brottför til Bandaríkjanna í framhaldsnám, sem skildi Kristínu mína eftir með brot á sjöunda hálslið í 6 vikna strekk og eftir 6 ára sérnám fækkaði fávitum og gáfnafarið stefndi á meðaltalið. Farsóttir hafa í gegnum tíðina opnað sýn á það besta og versta sem í okkur býr, Boccaccio, Camus og Ari skoða þetta hver frá sínu sjónarhorni. Nú horfi ég út á rennislétt Norður-Íshafið, þar sem selur lónar innan um nokkra æðarfugla og einmana himbrima, sól í heiði, framundan ættaróðalið byggt 1909, spegill á silungsvatni á aðra hönd, þar yfir Rauðinúpur með vitann og gíginn. Þrátt fyrir efasemdir er ekki laust við að mér blöskri afstaða andstæðinga bólusetninga. Við lifum á fordæmalausum tímum, heyrist oft í kófinu, en það er jú ekkert nýtt undir sólinni að minnsta kosti hvað snertir mannlega hegðun. Veðrið er sólríkt og vindurinn kjurr ° ° ° ° ° # # ° Sigurbjörn Ólason frá Oddstöðum lýsir prýðilega viðhorfum okkar sem kjósum þennan stað umfram aðra : ° ° ° ° ° # # ° Heimurinn versnandi fer og ungdómurinn er sérstakt áhyggjuefni, má lesa á leirtöflum frá Mesópótamíu löngu fyrir Krist. Ég ólst upp í Smáíbúðahverfinu þar sem fyrstu minningar mínar eru um föður minn að grafa fyrir grunni, hús hlaðið úr hleðslusteinum, milliveggir úr asbesti sem var handsagað og afskurðurinn varð mér að leikmunum. En þekkingarskortur er oft ástæða misskilnings og hræðsla hrekur okkur af leið. Höfundurinn í sínu náttúrulega umhverfi. Unga kynslóðin hefur nú fengið í arf nýja ógn sem er hlýnun jarðar og súrnun sjávar en hún hefur einnig fengið þekkingu, tól og tæki til þess að finna lausnir. Ég hef átt því láni að fagna að eiga frábæra fjölskyldu, vini og vinnufélaga og konur í þeim oft kippt mér mjúklega á rétta braut. finnst að það megi með réttu ° ° ° ° ° # # ° Heima fengum við Tímann og Þjóðviljann, sem var skipt fyrir Moggann úr næsta húsi. Ég nefni nú ekki það skaðræði sem Google hefur gert okkur sem ættir rekja til fyrrnefndar sýslu. Laxveiðar áleit ég setu í leikstjórastól með viskíglas og fylgjast með flotholti við lygnan hyl og golf að ýta lítilli kúlu í stóra holu og metast um árangurinn á barnum. Þegar mín eigin börn voru á unglingsárunum og skiluðu sér ekki heim á tilsettum tíma flaug í gegnum hugann : Ef þau gera helminginn af því sem ég gerði á þeirra aldri, þá skal ég sko … ° ° ° ° ° # # ° Ég verð að játa á mig ýmsa fordóma fram að fermingu. að lygnum lónum ° ° ° ° ° # # ° Mér finnst sjálfum að mikið hafi unnist í jafnréttisbaráttunni en nákvæmlega hvenær fullkominn jöfnuður ríkir verður erfitt að koma sér saman um, eða eins og sagt var á Raufarhöfn á síldarárunum : Það er erfitt að skíta akkúrat í hornið á kringlóttu herbergi.
Landssamband lögreglumanna hefur gefið Mæðrastyrksnefnd 709 þúsund krónur eða þúsund krónur fyrir hvern lögreglumann í landinu. Þá hefur Síldarvinnslan í Neskaupstað gefið nefndinni fjögur bretti eða rúm fjögur tonn af sjófrystum ýsuflökum með þeim orðum að mikilvægt sé að við stöndum vörð um hvort annað á þeim tímum sem við erum að ganga í gegnum. Flytjandi flytur svo ýsuna endurgjaldslaust til Reykjavíkur.
* Snertir meira en 11.000 nemendur í tónlistarskólum og foreldra þeirra. * Kemur við framhaldsskólanemendur sem eru með tónlistarnám sem valgreinar. * Kennsla fellur niður þar sem tónlistarkennarar sinna forskólakennslu í grunnskólum. * 415 tónlistarkennarar voru á kjörskrá þegar atkvæðagreiðsla um boðun verkfalls fór fram og samþykktu um 95% þeirra verkfall. * Samningaviðræður hafa staðið yfir með hléum frá því í fyrrahaust.
Sófus Gústavsson eigandi vefverslunarinnar nammi.is hefur selt ösku til yfir 60 landa um allan heim, þetta kemur fram í viðtali við hann á AFP fréttastofunni í dag. Fólk frá um 133 löndum hefur nú pantað ösku hjá fyrirtækinu og næstum milljónir gesta hafa heimsótt heimasíðuna. Verslunin selur 160 grömm af ösku úr Eyjafjallajökli í krukku á tæplega 24 evrur eða um 4000 íslenskar krónur. Það vekur athygli AFP fréttastofunnar að allur ágóði af sölunni fer í aðstoð við fórnarlömb eldgossins, með því að styðja við björgunarsveitir og aðra sem aðstoða fólk á hamfarasvæðinu. Tvö önnur fyrirtæki selja einnig ösku úr eldgosinu en ólíkt nammi.is er arðsemi markmiðið. „ Mér fannst eitthvað rangt við að græða á einhverju sem er að eyðileggja líf fólks, eins og líf bændanna nálægt eldfjallinu, “ segir Sófus í viðtalinu. Hann segir viðbrögðin hafa verið framar öllum vonum. Faðir hans sé búinn að fara þrjár ferðir til að sækja ösku og í hvert skipti hafi hún breyst frá fyrra skipti.
Tveir fundir er varða kjaradeilu framhaldsskólakennara og ríkisins voru haldnir í dag í húsnæði ríkissáttasemjara. Samninganefndir ríkisins og framhaldsskólakennara funduðu í dag. Sá fundur var tíðindalaus en ríkissáttasemjari hefur boðað til annars fundar á morgun. Einnig funduðu fulltrúar Verzlunarskóla Íslands og samninganefndar framhaldsskólakennara en lögð var fram nánari útfærsla á tilboðshugmynd skólanefndar VÍ frá 6. desember. Framhaldsskólakennarar ætla að funda á ný með fulltrúum Verzlunarskólans á mánudaginn en þangað til verður farið nánar yfir nokkur atriði tilboðsins.
Sky Sports hefur kafað ofan í tölfræðibanka sinn í ensku úrvalsdeildinni á meðan hlé er í deildinni. Sky hefur birt tvö öðruvísi lið tímabilsins í leikkerfinu 4-3-3. Annars vegar er um að ræða þá leikmenn sem hafa hlaupið mest í leikjum. Hins vegar er um að ræða lið leikmanna sem hafa farið í flestar tæklingar. Í báðum liðunum er farið eftir meðaltali í leikjum og þurfa leikmenn að hafa spilað meira en 50% af tímabilinu til að vera gjaldgengir. Hér að neðan má sjá liðin tvö.
Á laugardagskvöldið var haldið hnefaleikamót í Reykjavík og sendi Hnefaleikafélag Vestmannaeyja einn keppenda á mótið. Sæþór Pétursson sigraði sinn bardaga en hann keppti á móti núverandi Íslandsmeistara. Stoppa þurfti bardagann í annarri lotu vegna mikilla yfirburða Sæþórs í bardaganum. Sæþór var svo í enda kvöldsins valinn Hnefaleikamaður kvöldsins. Hnefaleikafélag Vestmannaeyja mun hefja æfingar aftur í lok mars og verður tilkynnt nánar um það í hér á eyjar.net þegar að því kemur.
Franski varnarmaðurinn Jean-Alain Boumsong hjá Juventus er á leið til frönsku meistaranna í Olympique Lyon. Boumsong skoraði í 2 - 2 jafntefli Juventus gegn Inter í ítalska bikarnum í gærkvöldi en það virðist hafa verið hans síðasti leikur fyrir ítalska félagið. ,, Hann mun fljúga hingað og gera þriggja og hálfs árs samning á morgun ( í dag ), " sagði Jean-Michel Aulas forseti Lyon í gærkvöldi eftir 2 - 0 sigur liðsins á Lorient í frönsku deildinni. Lyon hefur verið að leita að varnarmanni þar sem hinn brasilíski Cleber Anderson verður ekki meira með á leiktíðinni vegna meiðsla. Boumsong sem er 28 ára kom til Juventus frá Newcastle United árið 2006 en hann á 22 landsleiki að baki fyrir Frakka.
Mikil hræðsla hefur gripið um sig eftir að heilbrigðisyfirvöld í Texas fullyrtu í dag að starfsmaður hefði smitast af Ebólu, en það er annað smitið sem upp kemur utan Vestur - Afríku. Ef ebólusmitaður einstaklingur kæmi hingað til lands væri Landspítalinn ekki undir það búinn, þar sem viðbragðsteymi vegna Ebólu er ekki orðið fullmannað. Viðbrögð alþjóðasamfélagsins duga hvergi nærri til að stemma stigu við útbreiðslu Ebólu og smituðum fjölgar nú hratt. Páll Matthíasson forstjóri Landspítala segir að lokaundirbúningur vegna viðbragðsáætlunar hér á landi sé nú í gangi, og að leit standi yfir af fólki sem er tilbúið að ganga til liðs við viðbragðsteymi vegna Ebólu. Um þrjátíu stöðugidi er að ræða. „ Ég hef ekki upplýsingar um það núna um hvað sé búið að manna margar stöður. Það var hafist handa við þetta í síðustu viku og mér skilst að það gangi bærilega, “ segir Páll. Þannig að ef það kæmi ebólusmitaður einstaklingur hingað í næstu viku værum við ekki undirbúin? „ Ef það kæmi ebólusmitaður sjúklingur hingað í dag þá myndi ég segja að við værum ekki undirbúin. Ég vona þó að ef að það gerðist í næstu viku verði áætlunin orðin þannig að það sé hægt að virkja hana með litlum sem engum fyrirvara, “ segir hann. Flest smit hafa orðið í Vestur - Afríkuríkjunum Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne, en flogið hefur verið með smitaða sjúklinga til fimm evrópuríkja og Bandaríkjanna. Í vikunni kom svo upp fyrsta smitið utan Vestur Afríku, þegar hjúkrunarfræðingur smitaðist á sjúkrahúsi í Madríd. Í dag bárust síðan fréttir af því að heilbrigðisstarfsmaður í Texas hefði smitast af veirunni. Miklar líkur eru því á að fleiri smit komi upp í þeim löndum sem tekið hafa á móti ebólusmituðum einstaklingum.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna í Kópavogi halda fund síðdegis í dag til að ræða möguleika á að mynda meirihluta í bæjarstjórn. Áður höfðu oddvitarnir og formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins hist á löngum fundi í gærkvöld og því mun þeim fjölga nokkuð sem koma nálægt meirihlutaviðræðunum. Rúmar tvær vikur eru nú liðnar síðan meirihluti Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Næstbesta flokksins og Lista Kópavogsbúa sprakk og hefur ekki enn tekist að mynda meirihluta.
Sigga Beinteins er ein af þeim sem horfði á eignir sínar brenna inni í dag er húsnæði Geymslna í Miðhrauni í Garðabæ brann. Í Magasíninu hjá Hvata og Huldu fengu hlustendur að heyra af raunum dagsins. Karakterinn Masi, sem var einn leikenda í Söngvaborg, var einn af þeim hlutum sem brunnu inni. Tugir jólatrjáa og dýrir hlutir úr sviðsmynd farnir í brunanum Undanfarin átta ár hefur Sigga haldið árlega jólatónleika og þar af nokkur ár í Hörpu, sem kallar á mikla sviðsmynd og leikmuni fyrir svo stórt svið. Sem dæmi nefnir hún 40 jólatré í öllum stærðum, jólaseríur, 5.000 jólakúlur í ólíkum litum og gervisnjó að andvirði tvær milljónir króna. Einnig nefnir hún hreindýr og búninga og annars konar skraut sem sett er inn í sviðsmyndina. „ Maður fékk alveg tár í augun “ Sigga segir ljóst á þessu stigi að allt tjónið verði ekki bætt en nú sé hún að skoða hversu mikið, ef eitthvað, heimilistryggingin dekki. „ Maður fékk alveg tár í augun, “ segir hún er hún lýsir líðan sinni í dag er hún fylgdist með. Hún segist þó hafa minnt sig á það um leið að enginn hafi látist eða slasast alvarlega og það sé það sem skipti öllu máli. Hún segir þetta engu að síður hafa áhrif, enda tilfinningalegt tjón því þarna séu hlutir sem hún hafi sankað að sér í gegnum tíðina enda kosti tónleikahaldið mikið, oft margar milljónir. Segist enn geta sungið og lofar jólatónleikum í ár Hún segir næsta skref að taka saman hlutina sem voru þarna inni „ en sem betur fer þá eigum við það að megninu til skráð, “ segir Sigga sem þakkar fyrir það skipulag á þessum tímapunkti. Annars er Sigga á fullu og lofar jólatónleikum þrátt fyrir áfall dagsins. „ Ég get enn sungið, “ segir Sigga á sinn einstaklega létta og skemmtilega máta og bætir því við að þetta ár verði nýtt vel í að halda upp á 30 ára afmæli Stjórnarinnar.
„ Kæra Deidre, jafnvel þó svo það sé frábært þegar við stundum kynlíf er ég heppin ef að eiginmaður minn og ég gerum það einu sinni á þriggja mánaða fresti. Áður fyrr stunduðum við spennandi kynlíf en nú erum við svo þreytt vegna vinnunnar og barnanna að nú er eins og við séum bara vinir, “ skrifaði kona sem er orðin þreytt á þurrkinum í hjónabandinu og leitaði ráða hjá ráðgjafa The Sun. „ Við erum hætt að kyssast og faðmast og sýnum enga ástúð. Við horfum á sjónvarpið eða förum ein upp í rúm eftir vinnu. Ég er 34 ára og eiginmaður minn er 36 ára. Við höfum verið gift í sjö ár og börnin okkar eru fjögurra og sex ára. Ég elska hann en leiðist og veit ekki hvað ég á að gera. Hann glímdi við þunglyndi og ég stóð við hlið hans á erfiðum tímum á meðan ég sá um heimilið, fjölskylduna og vann. Þrátt fyrir að hann sé betri núna finnst mér eins og ég þurfi að tipla á tánum í kringum hann. Hann verður pirraður ef ég byrja að tala um eitthvað. Ég þarf smá ást, svo á ég að fara? “ Ráðgjafinn segir ekki auðvelt að finna tíma fyrir makann þegar vinna og fjölskylda eru annars vegar. „ Veljið tíma þegar þið eruð bæði afslöppuð og segðu honum hversu mikið þú saknar ástúðarinnar og kynlífsins. Slökkvið á sjónvarpinu og farið um leið og börnin eru búin að vera uppi í rúmi í klukkutíma, þau eru vanalega steinsofnuð þá. “
Það áttu margir von á því að það yrði hörð barátta á milli LeBron James og Kobe Bryant um nafnbótina leikmaður ársins í NBA-deildinni. Íþróttafréttamenn voru þó ekki á því þar sem James hlaut yfirburðakosningu. Alls settu 109 íþróttafréttamenn af 121 James í efsta sætið. Kobe fékk aðeins tvö atkvæði í fyrsta sætið en hann hlaut þessa nafnbót í fyrra. James er fyrsti leikmaður Cleveland Cavaliers sem hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun. Hann skoraði 28,4 stig að meðaltali í vetur. Gaf þess utan 7,2 stoðsendingar í leik og reif niður 7,6 fráköst. Hann varð annar í valinu á varnarmanni ársins. „ Þetta er staðurinn þar sem draumar mínir byrjuðu að rætast og ég vissi að þeir myndu rætast, " sagði James. „ Það er magnað að vera kominn á lista með Jordan, Jabbar, Dr. J, Oscar Robertson. Þessir strákar greiddu götuna fyrir mig, Kobe, Chris Paul, Dwight Howard og Dwyane Wade svo einhverjir séu nefndir, " sagði James sem hrósaði einnig liðsfélögum sínum og þjálfara.
Á þessum stutta kafla í síðari hálfleik snerist leikurinn Slóvenum í vil. Í heildina litið gerðum við okkur þennan leik of erfiðan, misnotuðum tvö vítaköst og alltof mikið af dauðafærum. Liðið mitt lék ekki nógu vel, til þess að vinna varð það að leika fyrsta flokks leik en því miður tókst það ekki. Við þessar aðtæður og á móti svo góðu liði sem Slóvenar hafa á að skipa verða allir leikmenn að eiga toppleik til að fara með sigur af hólmi. Það má hins vegar ekki líta framhjá því að það var margt gott í leik okkar, af því verðum við að draga lærdóm, einnig því sem miður fór. Nú verðum við að setjast strax niður og fara yfir veikleikana sem komu upp að þessu sinni og kippa þeim í liðinn gegn Ungverjum. Það er ennþá mikið eftir af þessu móti. " Áttu allar brottvísanirnar þjár um miðjan síðari hálfleik rétt á sér? " Ég tel það ekki. Eitt skiptið fór Einar Örn inn úr horninu, brotið var á honum, ekkert var dæmt og í staðinn geystust Slóvenar upp, skoruðu og einn okkar var rekinn af velli. Það komu upp nokkur atvik í dómgæslunni sem ég er alls ekki sáttur við en ég ætla ekki að tala um þau núna. Við bara lentum í mótbyr í leiknum á erfiðum tímapunkti og þann mótbyr náðum við ekki að standa af okkur. " Guðmundur sagði ennfremur að honum fyndust leikmenn ekki vera nógu agaðir. " Það vantaði þolinmæði í liðið þegar við vorum einum færri, slíkt getum við ekki leyft okkur. Það verður að leika af aga og þolinmæði frá upphafi til enda ætli menn sér að ná árangri. Of oft skutum við til dæmis of snemma eða sendum ónákvæmar sendingar, fyrir það var okkur grimmilega refsað. " Sóknarleikurinn var ekki nógu góður oft á tíðum? " Við vissum að það gæti orðið þegar vörnin er leikin svo framliggjandi og fast gegn okkur, undir það vorum við svo sem búnir að búa okkur og mér fannst hann á tíðum ganga vel. Ég skal viðurkenna það að sóknarleikurinn hefði mátt vera betri, það er engin launung. Við bara misstum leikinn úr höndum okkar á stuttum kafla í síðari hálfleik af ýmsum ástæðum. Þá komust Slóvenar of langt fram úr og það bil tókst okkur aldrei að brúa. Um leið og Slóvenarnir komust þremur mörkum yfir slökuðu þeir á og léku við hvern sinn fingur eftir það, fengu sína draumastöðu, þá er ekki hægt að ráða við þá. Þetta fór svona, við töpuðum og við því verður ekki gert. Því miður léku nokkrir leikmenn okkar ekki nógu vel, það verður að segjast eins og er. " Viltu nefna hverjir það voru? " Nei, ég vil ekki nefna þá núna, en það er staðreynd, nokkir leikmenn léku ekki nógu vel, hvorki í vörn né sókn. Þegar við bætist að alltof mörg dauðafæri fara forgörðum þá verðum við að líta í eigin barm. Þrátt fyrir það skorum við 28 mörk. Nú er bara að safna kröftum og einbeita sér að næsta verkefni sem er leikurinn við Ungverja. Það var svolítið erfitt að átta sig á styrk Ungverja í leiknum við Tékka fyrr í kvöld. Við ætlum okkur ekkert annað en sigur gegn Ungverjum, það kemur ekkert annað til greina. Fyrsti leikurinn er að baki, nú tekur við annar leikur sem við verðum að vinna, það er ljóst mál. Keppnin er rétt að byrja og við megum ekki hengja haus yfir þessu tapi heldur safna kröfum og gera betur á flestum sviðum í næsta leik, halda ótrauðir áfram í mótinu. " Var þetta tap mikil vonbrigði? " Þetta voru vonbrigði en við því er ekkert að gera og ekki ástæða til þess að velta sér of mikið upp úr því. Við verðum bara að læra af mistökunum og gera betur næst. Við vorum bara ekki nógu góðir að þessu sinni til þess að vinna, " sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik. Ívar Benediktsson skrifar frá Celje
„ Samtök ferðaþjónustunnar eru lifandi og kraftmikil hagsmunasamtök fyrirtækja í ferðaþjónustu. Hátt í 400 fyrirtæki eru innan raða samtakanna, bæði stór og smá fyrirtæki í öllum geirum ferðaþjónustunnar um land allt, “ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, sem var nýlega kjörin formaður samtakanna og hefur um árabil verið framkvæmdastjóri Kötlu DMI. Hún tók við embættinu af Grími Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins. Afar mjótt var á mununum í formannsslagnum. Í formannskjörinu atti hún kappi við tvo mótframbjóðendur, þá Þóri Garðarsson, stjórnarformann Gray Line, og Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóra bílaleigunnar Geysis. Áður hafði Róbert Guðfinnsson dregið framboð sitt til baka. Af um 70 þúsund greiddum atkvæðum munaði aðeins 72 atkvæðum á Bjarnheiði og Þóri. Þannig hlaut hún 44,72% greiddra atkvæða en Þórir 44,62%. Margeir hlaut 10,65%. Bjarnheiður segir að það hafi verið jákvætt hve margir buðu sig fram. „ Það hefur ekki áður gerst að fleiri en tveir hafi verið í framboði til formanns Samtaka ferðaþjónustunnar. Þetta endurspeglar aukið vægi greinarinnar og því er frábært hve margir frambærilegir hafa áhuga á að leggja hönd á plóg. Sömu sögu er að segja af stjórnarkjörinu. Mikill áhugi var fyrir stjórnarsetu í samtökunum. Fleiri buðu fram krafta sína en sem nemur stjórnarsætum sem voru í boði. Átta voru framboði um 4 stjórnarsæti sem kjörið var um að þessu sinni, en alls skipa stjórnina 6 manns auk formanns. “ Brennandi áhugi Spurð hvers vegna hún hafi boðið sig fram í embætti formanns Samtaka ferðaþjónustunnar, segir Bjarnheiður að hún hafi brennandi áhuga á málefnum ferðaþjónustunnar. „ Ég hef unnið við fagið í 30 ár, allt frá því ég var í námi. Alla tíð hef ég haft mikinn áhuga á uppbyggingu ferðaþjónstunnar, þróun hennar og framgangi, og stjórnmálum sem eru alltumlykjandi í starfinu. Þetta hefur verið mitt helsta áhugamál árum saman. Samtökin fagna 20 ára afmæli síðar á árinu og ég hef frá upphafi tekið virkan þátt í starfinu, þótt ég hafi ekki áður setið í stjórn samtakanna. Ég þekki því starfsemina nokkuð vel. Mér þykir gaman að hafa áhrif og gera eitthvað sem skiptir máli. Ég tel að ég geti lagt mitt af mörkum. “ Stofnaði Kötlu í Þýskalandi Bjarnheiður lærði stjórnun ferðaþjónustufyrirtækja í München í Þýskalandi. Samhliða námi starfaði hún hjá þýsku fyrirtæki við að selja Íslandsferðir. „ Í náminu kynntist ég Pétri Óskarssyni. Árið 1997 ákváðum við að stofna saman Kötlu Travel München í Þýskalandi, sem er enn starfrækt þar í landi og er með tólf manns í vinnu. Fáeinum árum síðar stofnuðum við Kötlu DMI á Íslandi sem einnig er með tólf starfsmenn. Katla Travel í München er ferðaheildsali sem selur bæði ferðaskrifstofum og einstaklingum ferðir til Íslands. Fyrirtækið á Íslandi skipuleggur ferðir fyrir Kötlu Travel München og fjölda annarra þýskra ferðaskrifstofa. “ Á meðal ferða sem Katla DMI skipuleggur eru hringferðir um landið á bílaleigubílum og rútuferðir fyrir hópa. „ Ferðamenn bóka bíl og gistingu hjá okkur sem við höfum valið. Þeir fá leiðarlýsingu með alls kyns fróðleik og tillögur að stöðum til að skoða. Rútuferðirnar eru yfirleitt vika með leiðsögumanni. Margir kjósa að nýta sér þessa þjónustu því þá losna viðskiptavinir við að eyða miklum tíma í að finna gistingu, veitingastaði, áhugaverða staði til skoða og fleira. “ Stefnumótun fyrir greinina Bjarnheiður tiltekur nokkur mál sem ferðaþjónustan setur á oddinn. „ Það þarf að klára í eitt skipti fyrir öll heildstæða stefnumótun fyrir greinina. Margoft hefur sú vegferð verið hafin á vegum hins opinbera en þeirri vinnu hefur ekki verið fylgt eftir sem skyldi. Það þarf að ljúka þessari vinnu á vettvangi Stjórnstöðvar ferðamála þar sem stjórnvöld, Samband íslenskra sveitarfélaga ásamt Samtökum ferðaþjónustunnar taka höndum saman í mikilvægum forgangsverkefnum er snúa að greininni. Ferðaþjónusta er burðaratvinnugrein og það þarf að meðhöndla hana sem slíka. Atvinnugreinin er þjóðarbúskapnum gríðarlega mikilvæg og því þurfum við að marka stefnu um hvert við viljum fara. Í slíkri stefnumörkun kæmi fram hvernig uppbyggingu ferðamannastaða og innviða yrði háttað, hvernig haga skuli umhverfisvernd, rannsóknum og menntun. Þá kæmi slík stefnumörkum einnig inn á heilbrigðiskerfið þar sem ferðamenn þurfa að geta gengið að góðri heilbrigðisþjónustu um land allt. Í raun má líta á ferðaþjónustu sem tækifæri fyrir heilbrigðiskerfið, þar sem ferðamenn greiða fullt gjald fyrir þjónustuna. Snertifletirnir eru nánast við allt samfélagið. Við þurfum að binda enda á umræðuna um gjaldtöku af ferðamönnum sem hefur verið ítrekað haldið á lofti undanfarin ár. Fyrir fáeinum árum stóð til að ferðamenn yrðu að kaupa náttúrupassa og nú er stefnt að því í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að leggja komugjöld á flugfarþega árið 2020. Gjaldtakan mun leiða til þess að verð á Íslandsferðum hækkar. Komugjöldin myndu leggjast jafnt á ferðamenn sem Íslendinga, og ég tel að það myndi falla í grýttan jarðveg. Það myndi sömuleiðis þurfa að leggja komugjöld á innanlandsflugið vegna Evrópskrar reglugerðar sem hér er í gildi. Það er því að mörgu að huga. Það er útbreidd skoðun innan ferðaþjónustunnar að ferðamenn leggi nú þegar nóg af mörkum til hins opinbera. Mikilvægt er að skoða þá skatta og gjöld sem ferðamenn greiða nú þegar í heildrænu samhengi, áður en ákvörðun verður tekin um frekari gjaldheimtu. Í fyrra er áætlað að beinar tekjur hins opinbera, þ.e. ríkisins og sveitarfélaga, að frátöldum kostnaði hafi numið 65 milljörðum króna. Það er há fjárhæð. Og að gjaldeyristekjur þjóðarbúsins af ferðaþjónustu hafi numið 503 milljörðum króna, sem eru 42% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar, “ segir hún. Stóra-Hafró Bjarnheiður fagnar hugmyndum ferðamálaráðherra um að koma á fót rannsóknarstofnun fyrir ferðaþjónustuna. „ Það vantar gögn og rannsóknir til þess að hægt sé að taka skynsamlegar ákvarðanir til lengri tíma. Við þurfum áreiðanlegar tölur um fjölda ferðamanna, gistinætur, útgjöld, dvalarlengd og almenna ferðahegðun. Einnig upplýsingar um markaðina, þróun þeirra og svo auðvitað lykiltölur um rekstrarafkomu fyrirtækja og tekjur ríkis og sveitarfélaga, svo eitthvað sé nefnt. Þolmarkarannsóknir eru þar að auki mjög mikilvægar fyrir framtíðaruppbyggingu. Allar þessar rannsóknir þarf að gera með reglubundnum hætti, til að hægt sé að fylgjast með þróun á milli tímabila. Ráðherra hefur talað um slíka rannsóknarstofnun sem Litlu-Hafró. Ferðaþjónustan er orðin stærri atvinnugrein en sjávarútvegur og því væri nær að tala um Stóru-Hafró. “ Það þurfi enn fremur að ríkja félagsleg sátt um ferðaþjónustuna hér á landi. „ Íslendingar þurfa að lifa í sátt og samlyndi með ferðaþjónustunni. Án sáttar er erfitt að halda áfram að byggja upp ferðaþjónustu. Ef gestrisnin, sem við erum þekkt fyrir, fer að láta undan síga vegna pirrings út í ferðamenn, sem er aðeins farið að bera á á örfáum stöðum á landinu, er hætt við að ferðaþjónustunni muni fatast flugið, “ segir Bjarnheiður. Að hennar sögn virðist óþols gæta einkum í miðbæ Reykjavíkur og afmörkuðum svæðum úti á landi, eins og Mývatni og Vík í Mýrdal. „ Þar er mikið af ferðamönnum á litlu svæði. Það er mikilvægt að Íslendingar séu jákvæðir gagnvart ferðaþjónustunni því þeir eru hluti af ferðalaginu. Flestir ferðamenn vilja eiga í vinsamlegum samskiptum við hinn almenna Íslending – við starfsfólkið á bensínstöðinni og starfsfólkið í bakaríinu. Íslendingar hafa alla tíð verið góðir gestgjafar og þannig viljum við auðvitað hafa hlutina. “ Til að halda Íslendingum í liði með ferðaþjónustunni er t.d. hægt að benda á hvað ferðaþjónustan hafi gert fyrir land og þjóð og hve mikilvæg hún er efnahagslífinu. „ Halda ber til haga að ferðaþjónustan bjargaði íslensku efnahagslífi úr djúpri kreppu eftir bankahrun. Það er henni að þakka að á undanförnum árum hefur verið mikill hagvöxtur og uppbygging í samfélaginu. Ferðaþjónustan hefur gert það að verkum að ný tækifæri hafa orðið til víða um land. Fjárfesting hefur aukist gríðarlega, sveitarfélög hafa eflst og rekstur þeirra víða snúist við til hins betra. Fólk hefur getað flutt aftur heim í byggðarlögin vítt og breitt um landið. Og miðbær Reykjavíkur iðar af lífi. Þar hefur sprottið upp fjöldi veitingastaða og önnur þjónusta sem rekja má með beinum hætti til aukins ferðamannastraums, “ segir Bjarnheiður. Að hennar mati hafa ferðamannastaðir ekki verið undirbúnir nægilega vel fyrir komu ferðamanna. „ Við bjóðum þeim að koma og skoða landið en höfum ekki tryggt að girðingar, göngustígar, merkingar, aðgangsstýringar og fleira sé með æskilegum hætti. Þetta er mikilvægt verkefni, bæði til að bæta upplifun ferðamanna og til að gæta að náttúrunni. “ Ríkið fjármagni ferðamannastaði Hún segir að ríkið eigi að fjármagna uppbyggingu ferðamannastaða. „ Eins og komið hefur fram hagnast hið opinbera um 65 milljarða af komu ferðamanna. Það er margsannað að fjárfesting í innviðum margborgar til baka. Uppbygging innviða er lykillinn að blómlegri ferðamennsku. Ferðamenn eiga að njóta dvalarinnar. “ Talið berst að ástandi gatnakerfisins. „ Þekkt er að ástand vega er bagalegt. Það hefur verið vanrækt að fjárfesta í vegakerfinu frá bankahruninu. Við erum að súpa seyðið af því núna enda vegirnir meira og minna ónýtir víðast hvar á landinu. Það skapar vegfarendum hættu. “ Samkvæmt úttekt Samtaka iðnaðarins þarf að leggja 110 - 120 milljarða króna í vegakerfið til að koma því í gott horf. „ Hefja þarf stórsókn í að efla vegakerfið okkar, það mun ekki bara nýtast ferðaþjónustunni heldur landsmönnum öllum, “ segir hún. Bjarnheiður segir að sóknarfærin í ferðaþjónustunni liggi meðal annars í því að fara vel með náttúruna. „ Náttúran er alltumlykjandi í ferðaþjónustu hér á landi. Hún er á við stærðarinnar gullnámu. Náttúran er án nokkurs vafa verðmætust ósnortin nú á dögum. Ósnortnu víðernin sem við eigum eru hvergi til lengur í Evrópu. Þar er búið að skipuleggja hvern einasta fermetra. Þetta er einstakt og verður að skoðast sem stór auðlind. “
Lauren, fyrrum leikmaður Arsenal, telur að það yrði áhætta hjá Arsenal að fá Kólumbíumanninn James Rodriguez. Sama þó hann kæmi á láni. James hefur verið orðaður við Arsenal en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Bayern München, þar sem hann er á lánssamningi frá Real Madrid. „ Ég er ekki viss um að Arsenal sé alvarlega að íhuga að fá James, jafnvel þó það yrði lán, " segir Lauren. „ James hefur mikla hæfileika en það eru ákveðin aðvörunarljós. Hann hefur ekki náð að festa niður rótum, hvorki hjá Real né Bayern. " „ Hann er með háar launakröfur svo Arsenal þarf að vita það hvort hann sé alveg um borð varðandi hugmyndafræði félagsins. Ég efast ekki um hæfileika hans, hann hefur spilað í stórum leikjum. " „ Ef Emery getur náð því besta út úr honum þá er þetta leikmaður sem gæti haft áhrif á það hvort Arsenal komist í Meistaradeildina. En þetta er eins og að kasta teningi. "
Sú stórmerkilega frétt birtist um helgina að Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, væri nú loksins farinn að borga aftur skatta í Svíþjóð, eftir að hafa flust þaðan árið 1973. Í fréttinni var það sérstaklega tilgreint að hann hefði flutt til Sviss til þess að forðast hina háu skatta sem lagðir eru á efnafólk í Svíþjóð. Núna hefði hins vegar hægri stjórn lækkað skattana, og það ásamt andláti konu hans árið 2011, hefði sannfært Kamprad að nú væri rétti tíminn til að snúa aftur heim. Ég verð að játa að ég þurfti nánast að lesa þessa frétt tvisvar, svo mikið brá mér. Eftir að hafa lifað í landi, þar sem stjórnmálastéttin nánast í heild sinni hefur talað um " hámörkun skattstofna " eins og sjálfsaflafé almennings sé ekkert nema tala í Excel-líkani, vildi ég varla trúa því að sjálfur IK í EA væri " skattaflóttamaður, " í hópi með æði skuggalegum kónum eins og Gerard Depardieu, Tom Jones og Rolling Stones. Það var þá ekki rétt, sem íslenskir skattspekingar hafa haldið fram í öll þessi ár, að skattgreiðendur væru eins og svampur, sem einungis þyrfti að kreista nógu mikið. Það var þá ekki rétt að alltaf mætti hækka skatta og gjöld, án þess að það hefði nokkur áhrif á hegðun almennings, að þessu sinni með því að viðkomandi hreinlega fluttist búferlum erlendis og bjó þar bróðurpart ævinnar. Í þessu samhengi má geta að auðæfi Kamprads eru metin á um fjóra milljarða Bandaríkjadala og hann borgaði að þessu sinni um 2 milljónir Bandaríkjadala, eða um 17,7 milljónir sænskra króna til sænska ríkisins. Það er hægt að kaupa nokkrar Billy-hillur fyrir það. Það liggur við að það sé ótrúlegt að þurfa að nefna hin sjálfsögðu sannindi sem felast í Laffer-kúrvunni víðfrægu, nefnilega að þegar skattar eru of háir, dragast tekjurnar af þeim saman. Að sama skapi þegar hinir of háu skattar eru lækkaðir aukast tekjurnar, þar sem fleiri eru þá tilbúnir til þess að greiða þá og verða um leið ólíklegri til þess að reyna að víkja sér undan þeim, eða hreinlega að svíkja undan skatti. Stundum þegar skattamál eru rædd er notuð samlíking af tíu manns á veitingahúsi sem skiptir reikningnum eftir efnahag. Ef reikningnum er skipt nægilega ójafnt þannig að hinn efnamesti telji sínum hag betur borgið annars staðar þá fer hann og borðar þar. Hinir níu sitja eftir með sárt ennið. Það má því segja að í þessu dæmi hafi Ingvar Kamprad ákveðið að snúa aftur til borðsins. Sett fram á annan hátt : Hvað skyldi Svíþjóð hafa orðið af miklum tekjum frá Ingvari Kamprad á þessum 42 árum sem hann hefur búið erlendis? Með því að hrekja hann ( og eflaust marga fleiri ) annað hefur byrðin á þá sem eftir voru aukist nokkuð, þar sem það hefur þurft hærri skatta á þá sem eftir stóðu til þess að ná inn sama fé. Væntanlega hefur það ekki verið hugmyndin þegar skattarnir voru hækkaðir til að byrja með. [email protected] Stefán Gunnar Sveinsson
Kröfur forystu verkalýðshreyfingarinnar um að lægstu laun veðri skattfrjáls eru stórkarlalegar, óraunhæfar og óútfærðar að mati Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. Þær hefðu í för með sér stóraukna skattheimtu á millitekjufólk. VR og Starfsgreinasambandið kefjast þess í komandi kjarasamningum að í ársbyrjun 2021 verði lægstu laun 425 þúsund krónur á mánuði. Þá gera félögin einnig kröfur á stjórnvöld, meðal annars um mikla íbúðauppbyggingu, afnám verðtryggingar á neytendalánum, að fæðingarorlof verði lengt og að lægstu laun verði skattfrjáls. Bjarni segir stjórnvöld leggja áherslu á góð samskipti við vinnumarkaðinn. Fara þurfi yfir væntingarnar af yfirvegun. Hann segir að þegar hafi verið tekið upp nýtt húsnæðisbótakefi og verulegir fjármunir settir í stofnstyrki fyrir félög sem reisa leiguíbúðir fyrir tekjulága. „ Varðandi skattkerfið þá finnast mér það nokkuð stórkarlalegar hugmyndir sem við fyrstu sýn eru algjörlega óútfærðar nema menn segja bara það væri gott ef laun upp að 400 þúsund yrðu skattlaus, þá þarf að botna þá vísu. Ef menn ætla að láta tekjuskattskerfið skila sömu tekjum, þá þarf að stórhækka skatta á millitekjufólk og öll laun sem eru þar fyrir ofan, “ segir Bjarni. Hann segir að ef forystufólk verkalýðshreyfingarinnar sé að meina eitthvað annað, þá þurfi að gera betur grein fyrir því. „ Mín fyrstu viðbrögð varðandi skattamálin eru að þetta algjörlega óútfært og mér sýnist að þetta sé algjörlega óraunhæft. “ Það er óhætt að segja að það sé nokkuð harður tónn í aðdraganda þessara kjarasamninga og áherslur verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins ólíkar. Bjarni segir ríkisstjórnina viljuga til að mæta væntingum vinnumarkaðarins, en það verði ekki hægt að fara í kollsteypu. „ Ég sakna þess að menn tali meira um þætti sem ég held að skipti miklu fyrir heimilin í landinu og fyrirtækin. Stöðugt verðlag, lægri vextir, hvað getum við gert til að halda betur um stöðugleikann. hvað getum við gert sameiginlega til að ná slíkum árangri. Vegna þess að þetta hangir allt saman. Mér finnst að menn eigi að leggja mikið virði í að viðhalda hér lágum vöxtum og lítilli verðbólgu, “ segir Bjarni.
Borðtennissamband Íslands sendi eitt karlalið til keppni í Heimsmeistaramótinu í borðtennis sem lauk í Moskvu í Rússlandi í gær. Íslenska liðið vann þrjá leiki af átta. Liðið skipuðu Guðmundur E. Stephensen, Magnús K. Magnússon og Daði Guðmundsson, allir úr Víkingi. Ísland sigraði Madagaskar, Laos og Kosta Ríka og fóru allir leikirnir 3 : 1. Ísland tapaði svo tvívegis fyrir Makedóníu og einu sinni fyrir Líbanon, Angóla og San Marínó. Öllum tapleikjunum lauk 3 : 2 fyrir andstæðinga Íslands. Guðmundur Stephensen stóð sig best af íslensku keppendunum og vann allar sínar 16 viðureignir. Kínverjar urðu heimsmeistarar í liðakeppni í karlaflokki eftir sigur á Þjóðverjum 3 : 1 í úrslitlaleik. Í kvennaflokki var það landslið Singapúr sem hampaði heimsmeistaratitlinum. Singapúr hafði betur gegn Kína í úrslitum, 3 : 1.
Nýsjálenskt veftímarit hefur tekið upp hanskann fyrir herferð sem hvetur ungar konur til að taka myndir af sér berum að ofan og senda vefsíðunni sem síðan birtir þær í því skyni að vekja athygli fólks á brjóstakrabbameini. Þrátt fyrir að málefnið sé gott hefur herferðin sem kallast " Ég státa af fögru pari " eða " I've got a lovely pair " verið harðlega gagnrýnd. Vefsíðan umrædda er aðallega hugsuð fyrir konur og fjallar hún um tísku, verslun og matreiðslu. Vinsældir hennar hafa rokið upp á síðustu dögum eða allt frá því að síðan hóf að birta myndir af berbrjósta konum. Mikið álag á vefsíðunni á miðvikudag varð til þess að hún lá tímabundið niðri. Fyrir hverjar 50 myndir sem berast lætur vefsíðan 750 bandaríkjadollara, eða 87 þúsund íslenskar krónur, af hendi rakna til krabbameinsrannsókna. Slagorðið " Sýndu brjóstin fyrir stelpurnar, " er notað til að hvetja konur til að senda inn myndir. Ritstjóri veftímaritsins, Tee Twyford, segist hafa fengið mjög góð viðbrögð frá þeim sem hafa greinst með sjúkdóminn, en herferðin er ekki á vegum neinna krabbameinssamtaka. Markmiðið með herferðinni er að fá konur til að tengjast brjóstunum sínum betur, sem eykur líkurnar á að heilsufarsvandamál uppgötvast fyrr en ella. Vefsíða tímaritsins
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Farið var yfir leiki helgarinnar í 2. og 3. deild. Áfram halda vandræði Völsungs og Bondhornið var kynnt til leiks Hlustaðu í spilaranum hér að ofan eða í gegnum Podcast forrit.
Reykjavíkurborg hefur fallist á að taka við lóð í Úlfarsárdal og greiða þeim Brynjari Gunnlaugssyni og Ásdísi Ósk Smáradóttur til baka lóðargjöld ásamt dráttarvöxtum og verðbótum vegna lóðar sem þau fengu úthlutað árið 2007. Með því lauk þriggja ára harðri baráttu hjónanna við borgina. " Ég vil meina að borgin haldi frá okkur gögnum og hún leggur engin gögn fram nema henni sé stefnt til að afhenda þau, " segir Brynjar. Borgin gerði samkomulag við hjónin í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur sem borgin áfrýjaði ekki. Brynjar bendir á að áður hafði borgin tekið við flestum öðrum lóðum í sama hverfi og leyft öðrum lóðarhöfum í sambærilegri stöðu að skila sínum lóðum. Mágur Brynjars og svilkona voru í sambærilegri stöðu. Eftir að þau fóru í mál við borgina í janúar 2010 samdi borgin við þau en Brynjar og Ásdís fengu enga lausn sinna mála og neyddust þau því til að höfða mál gegn borginni í maí 2011.
Olav Øyahals fæddist 7. júní 1938. Hann lést 20. maí 2015. Útför Olavs fór fram 1. júní 2015. Það voru mikil sorgartíðindi að heyra að besti vinur minn til 61 árs væri fallinn frá. Við kynntumst fyrst um borð í hurtigruta á leið frá Stafangri til Björgvinjar en báðir höfðum við skráð okkur til náms á skólaskipinu MS Gann. Olav valdi vélvirkjun, sem átti vel við hann. Strax var ljóst að hann hefði mikla hæfileika á því sviði. Eftir útskrift fór Olav til Liverpool þar sem hann fór til sjós á MS Prominent sem messagutti í vél. Fljótlega kom í ljós að hann átti auðvelt með að eiga við vélarnar og var gerður að smyrjara. Þegar hann var 17 ára fluttist hann burt frá Noregi til Íslands. Aðeins tveimur dögum eftir að hann kom til Reykjavíkur var hann kominn með fasta vinnu í Stálsmiðjunni. Þar sýndi hann fljótt mikla hæfileika, meðal annars í vélfræði, við skipasmíði, viðgerðir og fleira, og var boðið að fara í iðnnám. Ekki leið á löngu þar til hann var orðinn lærlingur í faginu. En hafið kallaði á hann og löngunin til starfa til sjós var sterk. Eftir tveggja ára nám hóf Olav störf á Guðmundi Júní frá Flateyri. Þegar hann hafði verið til sjós í nokkur ár á enskum togara, togskipum og bátum fór hann til Reykjavíkur til náms í Vélstjóraskólann. Þar með rættist draumur hans sem hann hafði borið í brjósti frá 15 ára aldri. Þegar Olav var 26 ára lenti hann í harmþrungnum skipskaða úti fyrir Vestfjörðum. Þá var hann vélstjóri á Mumma frá Flateyri. Sex menn voru um borð. Fjórir fórust. Aðeins skipstjórinn og Olav komust af. Þeir voru á svamli í ísköldum sjónum og útlitið ekki bjart þegar kistunni með björgunarbátnum skaut skyndilega upp. Olav synti að kistunni og það varð þeim til lífs að hann var með vasahníf á sér og gat þannig skorið á frosna festinguna. Þeir blésu björgunarbátinn upp og tókst loks að komast um borð. Í 30 kaldar og dramatískar stundir, þar sem björgunarbátnum hvolfdi nokkrum sinnum, biðu þeir eftir björgun, sem barst loks frá enskum togara. Olav varð mjög fljótt íslenskur, bæði í tali og hegðun. Hann var stoltur af að hafa tekið þátt í að smíða tvö fyrstu stálskip landsins, dráttarskipið Magna og vaktskipið Albert. Olav var félagslyndur og tók fólki fagnandi. Smitandi hlátur hans hafði jákvæð áhrif á alla í kringum hann. Hann var hreykinn af stóru og fallegu fjölskyldunni sinni og eiginkonu, Huldu. Olav varð fyrst pabbi 20 ára og eftir því sem árin liðu bættust börnin við þar til hann hafði eignast sex yndisleg börn. Síðar bættust við barnabörn og barnabarnabarn. Skapgerð Olavs var mjög góð og hann var með sterka siðferðiskennd. Honum var umhugað um aðra og ef honum þótti einhver utangarðs tók hann viðkomandi upp á sína arma og bauð velkominn. Olav var já-manneskja, nei var næstum því óþekkt orð í orðaforða hans. Ég talaði síðast við Olav í mars á þessu ári. Þá var hann mjög jákvæður og glaðbeittur og með húmorinn í lagi. Ég sagði við hann að hann hljómaði alveg eins og þegar við kynntumst fyrst fyrir 61 ári, rödd hans var svo ungleg. Við rifjuðum upp gamla og góða tíma og sögur frá unglingsárunum á Íslandi og vorum sammála um að allir dagar hefðu verið skemmtilegir. Við vissar aðstæður í sumum samtölum okkar gat Olav verið einlægur og innilegur. Það góða uppeldi sem hann fékk á sínum æskuárum í Noregi kom iðulega fram og hvatti hann til þess að varðveita barnatrúna. Elsku besti vinur, ég gleymi þér aldrei. Matheus ( Matti ). Olav var einn af stóru hetjunum í lífi mínu. Lítill snáði lá ég yfir bátabylgjunni að hlusta, skynjaði að eitthvað mikið var að en vissi ekki að stórslys hefði orðið. Fann sorgina liggja yfir, fullorðna fólkið var ekki sjálfu sér líkt. Ég elti mömmu með þvottinn út í hjall til að fá botn í málið en á þessum árum var þögnin talin börnum mikilvægust ef eitthvað bjátaði á. Þá var líka talið til æðstu dyggða að bera harm sinn í hljóði. Skynjunin varð að raunveruleika, hræðilegir atburðir höfðu átt sér stað. Tveir bátar frá Flateyri höfðu farist. Barnið skynjaði heiminn haltan og dofinn, smátt og smátt komu fréttir. Tveir höfðu fundist eftir ævintýralegt erfiði. Þeir Olav Öyahals og Hannes Oddsson háðu ógnarbaráttu við náttúruöflin í veðravíti út af Vestfjörðum. Þeir hröktust um í frumstæðum gúmmíbát í 30 klukkustundir. Brotsjóir buldu á þeim og hvolfdu bátnum skipti eftir skipti. Af óendanlegri hreysti og krafti tókst þeim að rétta bátinn við jafnharðan. Það voru hetjur sem komu heim í dofna sorgmædda þorpið sitt. Sjö höfðu farist. Ég var svo heppinn að fá að fara, ásamt fleirum, í bíltúr með Hannesi og Olav fyrir fáum dögum, það var einstaklega skemmtileg stund að fá að vera með hetjum æskunnar. Ósjaldan ræddum við börnin þessar hetjudáðir, því var stundin mér kannski enn dýrmætari en ella. Þau voru því döpur tíðindin að Olav hefði skutlast af heimi brott. Þessi hugprúða hetja sem sigraði Atlantshafið fór of fljótt. Ég votta fjölskyldu Olavs samúð mína og bið þeim birtu. Eigðu góða ferð, minn kæri. Guðmundur Sigurðsson.
Reynir S. 0 - 4 Einherji 0 - 1 Todor Hristov ( ' 6 ) 0 - 2 Todor Hristov ( ' 25 ) 0 - 3 Viktor Daði Sævaldsson ( ' 39 ) 0 - 4 Sigurður Donys Sigurðsson ( ' 44 ) Reynir Sandgerði átti fá svör við sprækum drengjum frá Vopnafirði í 3. deildinni í dag. Einherji fór létt með Reyni, en leikið var í Sandgerði. Hinn búlgarski Todor Hristov gerði fyrstu tvö mörk og Einherja og eftir 25 mínútur var staðan 2 - 0, Vopnfirðingum í vil. Viktor Daði Sævaldsson gerði þriðja markið á 39. mínútu og fimm mínútum síðar gerði Sigurður Donys Sigurðsson fjórða markið. Það var ekkert skorað í seinni hálfleiknum og lokatölur urðu því 4 - 0 fyrir Einherja. Frábær byrjun á mótinu hjá Einherja! Markaskorarar af urslit.net
Á 69. ársþingi Knattspyrnusambands Íslands sem haldið var í Reykjavík um síðustu helgi voru eins og jafnan á þingunum veittar viðurkenningar og fólk heiðrað. Íþróttabandalag Akraness hlaut tvær viðurkenningar. Það var Dragó styttan sem veitt er prúðasta knattspyrnuliði á Íslandsmóti í meistaraflokki, sem að þessu sinni kom í hlut karlaliðs ÍA í 1. deildinni síðasta sumar. Hin viðurkenningin var fyrir öflugt starf að dómaramálum, sem ÍA hlaut nú þriðja árið í röð. Tvö félög fengu þá viðurkenningu, ÍA og FH. Sem fyrr þurfti að uppfylla tíu skilyrði til þess að teljast fyrirmyndarfélag í þeim efnum. FH og ÍA stóðust skilyrðin og teljast því vera fyrirmyndarfélög í dómaramálum 2014. Öflugt starf er í Knattspyrnudómarafélagi Akraness og á félagið fimm dómara sem eru að dæma í efstu deild í fótboltanum. þá
Atið var gríðarlegt, fullt af baráttu, pústrum og mörkum þegar Björninn og SA mættust í gærkvöldi í troðfullri Egilshöllinni. Með sigri gat Björninni tryggt sér Íslandsmeistaratitil en þrautreyndir Akureyringar komnir með bakið upp að vegg bitu rækilega frá sér og unnu 3 : 2 svo að það ræðst ekki fyrr en oddaleikurinn fer fram á Akureyri annað kvöld hver hampar bikarnum. Eftir Stefán Stefánsson [email protected] LÖNGU áður en leikurinn hófst var hvert sæti í húsinu setið og þegar leikurinn hófst höfðu 450 áhorfendur komið sér fyrir allt í kringum svellið og létu rækilega í sér heyra. Spennan skilaði sér til leikmanna því strax í byrjun leiks byrjaði leikmönnum að hitna í hamsi. Bjarnarmenn fengu oftar refsingu með tveggja mínútna kælingu í þeim átökum en lögðu því harðar að sér og Akureyringum tókst ekki að skora tveimur fleiri í hálfa mínútu. Sjálfir voru Akureyringar öflugir er þeir vörðust í eina mínútu tveimur færri. Baráttan tók sinn toll og færa varð síðustu mínútu fyrsta leikhluta til þess næsta því þrífa varð blóð af svellinu. Í öðrum leikhluta voru menn aðeins rólegri og á 8. mínútu skoraði Róbert Freyr Pálsson fyrir Bjarnarmenn sem voru eitthvað of lengi að orna sér við það því 47 sekúndum síðar jafnaði Jóhann Már Leifsson í 1 : 1. Aftur hitnaði á svellinu og Bjarnarmenn voru 3 gegn 5 í tæpa mínútu og síðan aftur utan vallar í tvær mínútur en gestunum tókst ekki að nýta sér það. Þegar kom í þriðja leikhluta var spennan í húsinu orðin mikil, hvort sem var á troðfullum áhorfendabekkjunum eða á ísnum en eftir tæpar tvær mínútur koma Daði Örn Heimisson Birninum í 2 : 1. Akureyringar, margir hoknir af reynslu, létu það ekki slá sig útaf laginu og þegar Björninn var manni færri skoraði Sigurður Sveinn Sigurðsson á 8. mínútu og sama gerðist á 11. mínútu þegar Josh Gribben skoraði sigurmark SA. Mætum miklu sterkari næst Sergei Zak þjálfari Bjarnarins var ekki sáttur til niðurstöðuna. " Við vorum tilbúnir að spila eins og venjulega og lékum mjög vel en dómarar leiksins eru ekki nógu góðir til að dæma svona leiki, eins og áhorfendur sáu, " sagði þjálfarinn eftir leikinn. " Annars fannst mér þetta góður leikur og við komum sannarlega tilbúnir til leiks. Við lékum eins og við gerum venjulega, enda ætluðum við að gera það en við munum koma miklu sterkari í næsta leik. Okkur er sama hver er á ísnum, hver dæmir leikinn, hvað áhorfendur segja, við ætlum að leika okkar besta leik í vetur sem gott samhent lið með mikilli baráttu. " Með bakið upp að vegg Josh Gribben, þjálfari og leikmaður Skautafélags Akureyrar, var öllu brattari eftir sigurinn. " Við hefðum ekki getað verið hungraðri og spenntari fyrir þennan leik. " Ég held að þetta hafi án efa verið mjög skemmtilegur leikur og okkar strákar spilað vel, rétt eins og gærkvöldi nema þá fengum við ekkert fyrir það en í kvöld gekk það. Við vorum komnir með bakið upp að vegg og þá kemur oft í ljós andlegi styrkurinn. Við ætluðum að koma pekkinum upp í hornið hjá þeim og reyna síðan að koma honum fyrir markið en Bjarnarmenn vörðust vel og við vildum einmitt reyna að brjóta það upp. Það gekk upp að mestu leyti og þess vegna unnum við í kvöld. Við erum svo heppnir að hafa leikmenn í okkar liði sem hafa verið lengi að og oft í svona stöðu en við erum líka með unga menn sem láta til sína taka enda þarf hvort tveggja til að vinna leik, " sagði Gribben og vill launa stuðningsmönnum SA stuðninginn. " Næsti leikur er oddaleikur í úrslitum og við erum einmitt í þessari íþrótt fyrir það. Ég veit að mínir menn verða tilbúnir í þann leik og Bjarnarmenn verða það líka. Stuðningsmenn okkar er frábærir, ég gæti ekki beðið um þá betri og okkur finnst frábært að geta spilað skemmtilegan leik fyrir þá. " Björninn – SA 2 : 3 Egilshöll, fjórði úrslitaleikur Íslandsmótsins í íshokkí, mánudaginn 8. mars 2010. Mörk / stoðsendingar Bjarnarins : Róbert Freyr Pálsson 27. ( stoðsending Gunnar Guðmundsson ), Daði Örn Heimisson 42. ( stoðsending Bergur Árni Einarsson ). Varin skot : Snorri Sigurbergsson 44. Utan vallar : 18 mínútur. Mörk / stoðsendingar SA : Jóhann Már Leifsson 28. ( án stoðsendingar ), Sigurður Sveinn Sigurðsson 48. ( stoðsending Ingvar Þór Jónsson ), Josh Gribben 51. ( án stoðsendingar ). Varin skot : Ómar Smári Skúlason 21. Utan vallar : 8 mínútur. * Staðan er 2 : 2 og oddaleikur á Akureyri annað kvöld.
Í tilefni af 60 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands þann 27. júní sl. var ákveðið á hátíðarfundi stjórnar félagsins að kjósa þrjá nýja heiðursfélaga til setu í heiðursráði félagsins. Þetta eru Guðrún Sigurjónsdóttir, Jóhannes Tómasson og Steinunn Friðriksdóttir. Í ráðinu voru níu heiðursfélagar fyrir. Guðrún Sigurjónsdóttir var formaður Samhjálpar kvenna frá 2000 - 2010. Hún var í stjórn Krabbameinsfélags Íslands frá 2005 - 2011, síðast sem varaformaður. Jóhannes Tómasson var í stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur frá 1996 - 2007, þar af formaður í 9 ár. Hann var í stjórn Krabbameinsfélags Íslands frá 1999 - 2007, lengst af sem varaformaður. Steinunn Friðriksdóttir hefur verið formaður Styrks síðan 1989 og átti mikinn þátt í því að fyrstu íbúðirnar fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur voru keyptar fyrir 20 árum og hefur alla tíð verið tengiliður Krabbameinsfélagsins við Landspítalann vegna þeirra.
Iðnhönnuðnum Siggu Heimis brá heldur betur í brún þegar hún fór í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar nýverið. Örtröðin var hvílík að henni leist alls ekki á blikuna. Vinnu sinnar vegna ferðast Sigga töluvert og hefur því talsverða reynslu af ástandi flugvalla í faraldrinum. Henni blöskraði svo á Keflavíkurflugvelli að hún ritaði af því tilefni færslu á Facebook : Fjölmargir vinir Siggu taka undir með henni og lýsa slæmri upplifun af komu þeirra í flugstöðina íslensku síðustu daga. Helga Jósepsdóttir er ein þeirra : „ Sammála … ég hef aldrei lent í meira rugli á þvælingi um heiminn heldur en þegar ég kom til Íslands um daginn! Biðum í marga klukkutíma og það var einn ( mjög ungur ) starfsmaður að filtera ALLT folkið, úr fleiri fleiri flugvélum … greyið unglingurinn, hann var ekki öfundsverður, og enginn annar kom á neinum tímapunkti að reyna að bjarga málunum eitthvað aðeins. “ Saga Jónsdóttir virðist líka hafa sömu upplifun. „ Vá hvað ég er sammála. Á undanförnum 6 vikum er ég búin að fara til Mílanó, Barselóna og Kaupmannahafnar. Engar biðraðir, ekkert vesen við komu og brottför. Alltaf vesen við komu til Íslands, beið í a.m.k. klukkutíma í biðröð við komu til landsins í nótt til að sýna þennan kóða í sal troðnum af fólki. -talandi um smithættu … “ segir Saga. Helga Valfells telur þetta ekki boðlegt. „ Fáránlegt Leifsstöð sprungin – eina skiptið í utanlandsferð inni sem að maður óttaðist að smitast af Covid, segir Helga. Helena Sveinsdóttir er sammála. „ Algjör kæfa !!! Og svo er komusalurinn fullur af fólki að sækja þar að auki! , “ segir Helena. Páll Sævar Guðjónsson, sem oftast er kallaður „ Röddin “ en hann er vallarþulur Laugardalsvallar, tjáði sig líka undir færsluna og birti þar myndir sem hann tók af örtröðinni í Leifsstöð. Við myndirnar segir Páll :
Ljósmyndasýningin " Svipmyndir eins augnabliks " verður opnuð á morgun, laugardag, í Myndasal Þjóðminjasafnsins þar sem sýnar verða ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar sem hann tók á ferðalögum sínum um landið á árunum 1930 - 1965. Þar er að finna merkar heimildir um Ísland og lífshætti á þessum árum. Steinar Örn Atlason, sem setti saman sýninguna, kom í Síðdegisútvarpið í dag og talaði um Þorstein og ljósmyndir hans. Við bendum hlustendum á Facebook síðu Síðdegisútvarpsins, þar er hægt að senda inn fyrirspurnir og ábendingar : https://www.facebook.com/siddegisutvarpid/
Mick McCarthy, knattspyrnustjóri Sunderland, vonar að með sigrinum í dag gegn Middlesbrough hafi Sunderland náð að snúa við blaðinu og að bjartari tímar séu nú framundan. Sunderland sigraði Middlesbrough 2 : 0 á útivelli með mörkum frá Tommy Miller og Julio Arca. " Ég beið í sjö leiki eftir þessum sigri og ég er mjög ánægður. Við lögðum mjög hart að okkur en Middlesbrough gerði okkur erfitt fyrir. Ég held að við höfum átt þennan sigur skilið og ég get ekki annað en hrósað leikmönnum mínum. Þessi sigur veitir okkur trú og sjálfstraustið mun aukast. Við höfum lagt hart að okkur í leikjunum í úrvalsdeildinni en þangað til í dag höfðum við ekki náð að vinna leik, " sagði Mick McCarthy. Með sigrinum komst Sunderland úr neðsta sæti deildarinnar, liðið er með 4 stig í 19. sæti en Everton er nú í neðsta sætinu með 3 stig. Middlesbrough er í 11. sæti með 8 stig.
Breski miðillinn Daily Star tók saman þá átta leikmenn sem valdið hafa mestum vonbrigðum í búningi Manchester United í gegnum tíðina. Listinn er gerður í kjölfar þess að Jadon Sancho hefur átt erfitt uppdráttar í Manchester eftir komu sína frá Dortmund í sumar á 73 milljónir punda. Sancho sjálfur er þó ekki á listanum, enda ekki verið hjá Man Utd nógu lengi til að leggja slíkan dóm á frammistöðu hans. Hér fyrir neðan má sjá listann. Memphis Depay Kostaði Man Utd 31 milljón punda fyrir sex árum síðan. Átti 18 mánuði hjá félaginu þar sem lítið gekk upp. Var seldur fyrir helmingi minna fé en hann var keyptur á til Lyon. Það hefur þó ræst úr ferli hans á síðustu árum. Hann var keyptur til Barcelona í sumar og hefur farið vel af stað. Henrikh Mkhitaryan Kostaði um 40 milljónir punda en stóð ekki undir væntingum. Fór til Arsenal í skiptum fyrir Alexis Sanchez. Lítið gekk upp hjá Armenanum í Norður-Lundúnum. Mkhitaryan hefur þó fest sig í sessi hjá Roma í dag. Juan Sebastian Veron Varð dýrasti leikmaður í enska boltanum þegar Man Utd keypti hann fyrir 28 milljónir punda árið 2003. Stóð ekki undir væntingum og var síðar seldur til Chelsea fyrir 15 milljónir punda. Ekki gekk þó mikið betur hjá honum þar. Bebe Kaupin á Bebe eru af mörgum talin þau furðulegustu í stjóratíð Sir Alex Ferguson. Hann kostaði Man Utd 7 milljónir punda árið 2010. Leikmaðurinn var þó engan veginn á sömu hillu og aðrir leikmenn félagsins. Fór oft út á láni eða lék með varaliði Man Utd. Radamel Falcao Man Utd borgaði Monaco 7 milljónir punda til að fá hann á láni árið 2014. Enska félagið átti svo möguleika á að kaupa hann eftir tímabilið. Man Utd nýtti sér þann rétt hins vegar ekki þar sem leikmaðurinn gat ekkert á tíma sínum á Englandi. Hann fór á láni til Chelsea tímabilið á eftir en það gekk ekki upp hjá honum heldur. Falcao hefur þó átt ágætis feril eftir tímann á Englandi. Hann lék aftur fyrir Monaco, svo fyrir Galatasaray og nú Rayo Vallecano. Angel Di Maria Var keyptur á 60 milljónir punda frá Real Madrid á sama tíma og Falcao. Það var ekki ánægja með Argentínumanninum þrátt fyrir að hafa lagt upp 11 mörk í 27 leikum í ensku úrvalsdeildinni. Di Maria var seldur til Paris Saint-Germain eftir eitt tímabil í Manchester. Morgan Schneiderlin Stóð sig frábærlega með Southampton og fékk í kjöfarið 25 milljóna punda skipti til Man Utd. Það gekk þó ekkert upp hjá Schneiderlin á Old Trafford. Alexis Sanchez Skoraði um það bil í öðrum hverju leik fyrir Arsenal á tíma sínum þar. Honum tókst þó aðeins að skora fimm mörk á 18 mánuðum hjá Man Utd. Sílemaðurinn var einnig á risalaunapakka í Manchester sem hann borgaði aldrei til baka inni á vellinum.
Björgunarsveitir voru kallaðar að tjaldstæðinu í Þakgili norðan Víkur í Mýrdal í morgun til að aðstoða gesti sem höfðu fest bíla sína á leiðinni frá gilinu og að þjóðveginum. Helga Ólafsdóttir, eigandi tjaldsvæðisins : Ja, það er nú bara held ég kominn 10 cm snjór svona krapasnjór. En það voru, lítill hópur hérna í nótt sem að fór sko snemma í morgun og komst ekki og þannig að björgunarsveitin ætlar að koma og hjálpa þeim bara. Fréttamaður : Og er þetta stór hópur fólks sem að er í Þakgili núna? Helga Ólafsdóttir : Ætli það séu ekki svona, ætli það hafi ekki verið 10 - 15 manns, eitthvað svoleiðis, ég var ekki búin að taka það saman. Hún segist ekki hafa lent í öðru eins í þau 20 ár sem hún hefur rekið tjaldsvæðið. Aðeins er opið í Þakgili á sumrin, frá 1. júní fram í miðjan september. Helga Ólafsdóttir : En þetta eru náttúrulega bara fólksbílar sem eru komnir á sumardekk og það er náttúrulega bara, þetta eru brekkur og beygjur og það þarf ekki mikið til sko til að komast ekki.
Kaku Yamanaka, sem var elst allra Japana, er látin, 113 ára, að því er greint var frá í dag. Hún var flutt á sjúkrahús í morgun eftir að hún veiktist á elliheimilinu sem hún bjó á í Yatomi-borg, að því er talsmaður heimilisins greindi frá. Yamanaka fæddist 11. desember 1894. Hún varð elsti Japaninn í síðasta mánuði, þegar Tsuneyo Tyonaga, sem einnig var 113 ára, lést. Ekki liggur fyrir hver er nú elstur Japana eftir fráfall Yamanaka.
Loðnuskipin eru nú dreifð um Faxaflóann og hafa þau náð góðum köstum vítt og breitt. Ekki er alveg ljóst hvort ný ganga er komin inn á Flóann, en sjómenn leggja nú kapp á að veiða sem allra mest áður en loðnan hryggnir og drepst. Enn er talsvert eftir af kvótanum, en tvívegis hefur verið bætt við hann frá upphafi vertíðar.
UM LÍKT leyti og Windows 98 kom á markað fylgdu þau skilaboð að ekki yrði lengra haldið í þá átt með stýrikerfi ; NT 5 / Windows 2000 myndi taka við sem stýrikerfi í ýmsum útgáfum eftir þörfum hvers og eins. Heldur hefur þó tekið lengri tíma en ætlað var að berja saman Windows 2000 og nú er ljóst að lappað verður upp á Windows 98 eitthvað frameftir ári að minnsta kosti. Ætlun Microsoft var að senda frá sér NT 5 / Window 2000 snemma á þessu ári og síðan kæmi almenn útgáfa síðar á árinu. Nú er því aftur á móti svo komið að búið er að seinka eiginlegri útgáfu á Windows 2000 fram á næsta ár og almenn útgáfa dregst að sama skapi. Hugbúnaðarsmiðir Microsoft hugðust skipta út Windows 98 kjarnanum og setja í hans stað NT 5 kjarnann, enda er sá miklu stöðugri. Eftir því sem dregst að setja NT 5 á markað verður brýnna að fyrirtækið sendi frá sér uppfærslur og viðbætur á Windows 98 og að minnsta kosti tvær slíkar uppfærslur eru í undirbúningi samkvæmt upplýsingum frá Microsoft. Ein verður svonefndur viðhaldspakki og kemur út í sumar, en síðan er uppfærsla fyrir endursöluaðila á Windows 98 á dagskrá um svipað leyti.
Viðskipti Ráðgjafarfyrirtæki Guð - finnu Bjarnadóttur, fyrrverandi þingkonu Sjálfstæðisflokssins, fékk 1,5 milljón króna fyrir vinnu fyrir menntamálaráðuneytið í lok síðasta árs og byrjun þessa og samtals 17,2 á kjörtímabilinu. Ráðgjafafyrirtæki Guðfinnu Bjarnadóttur, fyrrverandi þingkonu Sjálfstæðisflokksins, fékk greiddar 1,5 milljónir króna vegna vinnu fyrir menntamálaráðuneytið í lok árs 2015 og byrjun árs 2016. Vinnan var vegna undirbúnings á breytingum á innra skipulagi ráðuneytisins samkvæmt svari frá menntamálaráðuneytinu. Menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson, er fyrrverandi samstarfsmaður Guðfinnu úr þing - flokki Sjálfstæðisflokksins. Í október á síðasta ári var greint frá því að fyrirtækið, LC Ráðgjöf ehf., hefði unnið fyrir menntamálaráðuneytið fyrir samtals 15,7 milljónir króna án þess að verkin hefðu verið boðin út. Menntamálaráðuneytið benti á að verkefnin hefðu ekki verið útboðsskyld sökum þess að upphæðirnar hefðu verið það lágar. Í heildina fékk félag Guð - finnu því 17,2 milljónir fyrir vinnu fyrir menntamálaráðuneytið á kjörtímabilinu. Auk þess fékk félagið 14,6 milljónir frá atvinnuvega - og nýsköpunarráðuneytinu. Út frá ársreikningi LC ráðgjafar ehf. er ljóst að stór hluti vinnu fyrirtækisins var fyrir opinbera aðila á síðasta ári en launatekjur til Guð - finnu og eiginmanns hennar, Vilhjálms Kjartanssonar, námu rúmum sextán milljónum. Auk þess var greiddur út 10 milljóna króna arður til hluthafa. Hagnaður félagsins var tæpar sjö milljónir króna. Guðfinna vill ekki tjá sig um starfsemi félagsins við Fréttatímann, meðal annars svara þeirri spurningu hversu stór hluti af tekjum félagsins hafi komið frá opinberum aðilum eins og ráðuneytum. Guðfinna Bjarnadóttir sat á þingi fyrir Sjálfstæðis - flokkinn á árunum 2007 og 2009 og hefur unnið talsvert fyrir opinbera aðila á síðustu árum, meðal annars menntamálaráðuneytið.
Lýsi hf. hagnaðist um 408 milljónir árið 2015 og hefur þar með aukið afkomu sína gríðarlega. Stjórn félagsins lagði til að ekki yrði greiddur arður. Hagnaður Lýsis hf. á árinu 2015 nam 408 milljónum króna. Samkvæmt efnahagsreikningi nema eignir félagsins tæpum 11 milljörðum. Bókfært eigið fé í árslok nemur tæplega 1,4 milljörðum króna og er eiginfjárhlutfall félagsins 13%. Í lok ársins voru hluthafar í félaginu sjö talsins. Þrír stærstu hluthafar félagsins eru Ívar ehf. sem á 85,64%, Hydrol ehf. sem á 6,42% og Pétur Pétursson sem á 2,44%. Stjórn félagsins lagði til að ekki yrði greiddur arður til hluthafa á árinu 2016. Rekstrartekjur samstæðunnar námu alls 7,7 milljörðum króna árið 2014, en 9,5 milljörðum árið 2015. Félagið hefur almennt náð miklum framförum og skilaði eins og fyrr kom fram rétt rúmum 408 milljón króna hagnaði. Samstæðan tapaði aftur á móti rúmum 243 milljónum í fyrra. Heildar eignir Lýsi hf. hafa hækkað milli ára. Árið 2014 námu þær rúmum 9 milljörðum, en þær nema tæpum 11 milljörðum í dag. Eigið fé Lýsis nam tæpum 974 milljónum árið 2014, en nam um 1,4 milljörðum króna árið 2015. Skuldastaða fyrirtækisins hefur hækkað milli ára. árið 2014 voru heildarskuldir samstæðunnar 8 milljarðar, en þær nema tæpum 9,6 milljörðum í dag.
Eitt af lykil stefnumálum Garðabæjarlistans er að virkja lýðræðið og vinna að gagnsærri stjórnsýslu. Við viljum að Garðabær verði leiðandi í lýðræðislegum vinnubrögðum með fjölbreyttum hætti en ekki síður leggjum við áherslu á víðtækt samráð og aukna samvinnu, þar sem unnið er markvissar að því að tryggja aðkomu allra kjörinna fulltrúa að þeirri stefnu sem markar framkvæmdir. Bæjarfulltrúum ber skylda til þess að þjónusta og vinna að bættum hag allra íbúa. Við viljum gagnsæja stjórnsýslu með þjónustuhlutverkið í forgrunni. Á bæjarstjórnarfundi í dag legg ég fram tvær tillögur til breyttra vinnubragða. Önnur kallar eftir víðtæku samráði og samstarfi í allri vinnu sem snýr að fjárhagsáætlun bæjarins þannig að fulltrúar minnihlutans séu við borðið frá upphafi til enda. Með því að allir kjörnir fulltrúar leggi hönd á plóg frá upphafi er ýtt undir víðtæka sátt um þær áherslur sem sterkastar verða. Við erum öll kosin til þess að leiða Garðabæ áfram veginn. Slíkt skiptir máli þegar ráðstafa á fjármunum úr sameiginlegum sjóðum. Því hvetur Garðabæjarlistinn til þessarar nýbreytni í vinnulagi bæjarstjórnar í Garðabæ. Ýtum undir sættir og samstarf, í þágu allra íbúa. Hin tillagan kallar síðan eftir því að meirihlutinn leggi fram forgangsröðun stefnumála fyrir hvert ár kjörtímabilsins. Þannig má efla og treysta samstarf allra kjörinna fulltrúa en ekki síður gefa minnihluta meira svigrúm til þess að koma að þeim verkefnum sem fyrirhuguð eru. Um leið nýtum við þekkingu og sýn fleiri kjörinna fulltrúa hverju sinni. Við hjá Garðabæjarlistanum höfum fulla trú á að sýndur vilji meirihlutans til samstarfs feli það í sér að styðja frekari formfestu á lýðræðislegri vinnubrögðum í þágu allra íbúa. Höfundur er Oddviti Garðabæjarlistans.
Herra forseti. Ég á hér nokkrar brtt. á þskj. 446, sem miða að því að fella burt úr frv. nokkur ákvæði varðandi innflutning sauðfjár, þau er ég tel ekki eiga heima í þessu frv. Mþn. , sem samdi þetta frv., hafði í huga fjárskipti og jafnframt innflutning á erlendu fé í trausti þess, að blendingarnir yrðu síður móttækilegir fyrir sjúkdóma. Ég legg til, að síðari hluti 2. gr. falli niður, enda er síðar í frv. gert ráð fyrir að fella úr gildi öll þau lög, er snerta innflutning sauðfjár. Enn fremur legg ég til að fella niður 7. kafla, sem hvorki er fugl né fiskur, þar sem hann gerir ráð fyrir einangrunarstöð fyrir innflutt fé. Er merkilegt, að slík ákvæði skuli standa eftir í frv., um leið og bannað er að flytja inn erlent fé, og finnst mér þetta því illa samrýmast. 3. brtt. á þskj. 446 miðar að því að fella niður l. nr. 75 27. júní 1941 og l. nr. 88 9. júlí 1941, en með 48. gr., eins og hún er nú, eru öll lagaákvæði um innflutning sauðfjár niður felld. Til vara er svo brtt. um að fella niður l. nr. 45 19. júní 1933 og reglur nr. 6 20. jan. 1936. Ég vil benda á, að ef menn vilja halda síðari hluta 2. gr. og 7. kafla, þá má ekki fella niður ákvæðið um blendingsræktun, því að ef ráð er gert fyrir innflutningi fjár, má ekki fella burtu allt eftirlit með honum og sleppa blöndun fjárins lausri við hvern sem er, eftir hans eigin geðþótta. Herra forseti. Ég á, á þskj. 443 brtt. , þar sem ég legg til að breyta 42. gr. þannig, að orðin „ í eyju í nágrenni Reykjavíkur “ falli niður. Það er vissulega nauðsynlegt að hafa sóttvarnastöð, en ég sé ekki ástæðu til, að hún þurfi endilega að vera í eyju í nágrenni Reykjavíkur. Mætti t.d. hafa hana á Keldum, enda er sjáanlegt, að það kostar mikið fé. ef fara á að kaupa einhverja eyju hér í nágrenninu. Ég er ekki alveg sammála hv. 1. þm. N-M. um nauðsyn þess að fella niður hluta af 2. gr., því að ef einhver tilraunastöð er, þá má þetta standa. Gert er ráð fyrir í 48. gr., að margar reglugerðir og lög falli niður, og finnst mér einkennilegt, að það, sem frsm. leggur til, að falli niður, er í fullu ósamræmi við það álit, sem n. skilaði. Ég vil að svo stöddu ekki fjölyrða um þetta, en legg að lokum til. að brtt. mín á þskj. 443 verði samþykkt. Herra forseti. Það er ekki efnishlið þessa máls, sem ég vildi gera að umtalsefni, heldur orðið tæknifrjóvgun, sem hér á að lögfesta í fyrsta sinn. Hér er um að ræða flutning á sæði, og er því rétt að láta þetta heita tæknisæðingu, því að frjóvgunin gengur sinn gang. hvernig sem sæðingin verður. Um þetta atriði mun ég nú afhenda hæstv. forseta skriflega brtt. Forseti ( ÞÞ ) : Mér hefur borizt hér skrifleg brtt. frá hv. 3. landsk. , sem er svo hljóðandi : Hvarvetna þar. sem orðið „ tæknifrjóvgun “ kemur fyrir í frv., komi : tæknisæðing. - Vil ég leita afbrigða fyrir þessa till. Herra forseti. Ég hef heyrt frá góðum heimildum. að landbn. Nd. hafi mælt með því, að Engey væri keypt til þess að koma þar upp sóttvarnastöð : Eyjan er föl fyrir 225 þús. kr., og hefur slíkt tilboð komið í hendur ríkisstj. Þetta vildi ég láta vitnast, þótt ég telji ákvæðið um sóttvarnastöð ekki eiga heima í þessu frv. Hv. þm. Barð. undraðist, að ég skyldi flytja þessar brtt. , en ekki n., þar sem ég legg til, að aðeins verði eftir l. um pesta - og varnargirðingar. Hitt er sumpart lög og sumpart reglugerðir. Ég hélt, að það væri regla, að reglugerðir, sem grundvallaðar eru á sérstökum l. , féllu úr gildi um leið og viðkomandi l. eru niður felld. Lögin í 48. gr. eru í fyrsta lagi l. frá 1931 um innflutning á holdakyni. Næst eru I. frá 1933 um innflutning á holdanautgripum og hvernig blanda skuli. Þá eru l. frá 1934 viðvíkjandi hinum lögunum, t.d. um innflutning karakúlfjár, svo og reglugerðir. Þá eru l. um, hvernig blanda skuli erlent fé innlendu og hver skuli hafa umsjón með því. En eins og frv. er nú úr garði gert, á að sleppa öllu eftirliti með blöndun, en það er auðvitað stórhættulegt og má aldrei verða. Út af brtt. frá hv. 3. landsk. get ég lýst yfir því, að „ sæðing “ er komið inn í málið og er fyrst notað af Guðmundi Gíslasyni. Mþn. hefur bara ekki athugað muninn á sæðingu og frjóvgun. Ég er alveg samþykkur till. hv. 3. landsk. , enda veit enginn, hvort frjóvgun verður af sæðingu, hvernig svo sem sæðingin fer fram. Herra forseti. Ég vildi beina því til hæstv. forseta, hvort hann sæi sér fært að taka þetta mál út af dagskrá nú. Ég tel ástæðu til þess að athuga gaumgæfilega þær brtt. , sem hv. 1. þm. N–M. flytur við frv., og mundi ég nota tækifærið til næsta fundar til að skapa mér skoðun um það, á hvaða rökum þær eru byggðar, sem ég hygg, að séu á nokkrum rökum byggðar. Frsm. ( Ásmundur Sigurðsson ) : Herra forseti. Síðan þetta mál var hér til 3. umr. í hv. d., hefur menntmn. haldið fund tll þess að athuga þær brtt. , sem lágu fyrir á þskj. 369. N. hefur tekið afstöðu til þeirra, og yfirleitt mælir hún móti þeim, og skal ég gera nokkra grein fyrir því. Fyrsta brtt. á þessu þskj. er við 11. gr. frv. og kveður svo á, að gr. skuli falla niður. Þessi gr. er um kennsluskyldu kennara, sem er hliðstætt ákvæði við það, sem er í l. um aðra skóla hér á landi, og nákvæmlega sams konar og samþ. voru viðkomandi menntaskólunum. N. er því á móti því að fella þessa gr. niður. Hún telur mikið ósamræmi í því að hafa ekki slíkt ákvæði í l. um þennan skóla eins og er í gildandi l. um aðra hliðstæða skóla. Þá er 2. brtt. við 15. gr. frv., og er hún um það að breyta frá því, sem frv. gerir ráð fyrir, kennslukröftum við kennslustofnun í uppeldisvísindum við háskólann, og breytist gr. þannig, að 1. og 2. málsl. falli niður og orðin „ enn fremur “ í 3. málsl. falli niður. Ég vil benda á, að það, sem hér er farið fram á með brtt. , er það að svipta þessa kennslustofnun alveg eðlilegri forstöðu. Að vísu kann það að vera hugmynd hv. flm. brtt. , að prófessorinn í forspjallsvísindum eigi að hafa þessa forstöðu, en á það vil ég í þessu sambandi benda, að þessi kennari er aðalkennari við aðra deild háskólans, og eru þess vegna engar líkur til þess, að hann mundi geta tekið að sér að sinna sem vera ber forstöðu þeirrar stofnunar, sem hér er um að ræða, þó að hins vegar mætti gera ráð fyrir því, að hann gæti kennt þar eitthvað af þeim fræðum, svo sem almenna sálarfræði. Og enn fremur má benda á það, að þó að þessi prófessor verði sérfræðingur í almennri sálarfræði, eru ekki líkur til þess, að hann sé svo menntaður í uppeldisfræðum eins og prófessor í uppeldisfræðum á að vera. Og með því að samþykkja þessa brtt. má segja, að búið sé að svipta þessa stofnun þeim kennslukröftum, sem eru svo nauðsynlegir, að hún mundi ekki geta komið að fullu gagni. Þess vegna mælir n, á móti því, að þessi brtt. verði samþ. Þá eru 3., 4. og 5. brtt. um það, að skólaráð æfinga - og tilraunaskóla og starf þess falli niður. Það eru brtt. um, að 20. gr., 1, málsl. 21. gr. og 1. málsl. 22. gr. falli niður. Í þessu sambandi vil ég benda á það, að þessi skóli, æfinga - og tilraunaskóli, er í fyrsta lagi barnaskóli, sem kemur til með að hafa um 200 nemendur, miðað við, að þar verði jafnmargir bekkir og aldursflokkar skólabarna eru Nú hefur aldrei verið deilt um það, að við barnaskóla eigi að vera skólan. , og þetta skólaráð á einmitt að vera skólan. þessa æfinga - og tilraunaskóla. En þessi skóli kemur til með að hafa meira hlutverk með höndum en venjulegir barnaskólar, og erfiðara hlutverk, þar sem hann á að hafa á hendi æfinga - og tilraunakennslu við tilraunaskólann og að einhverju leyti í uppeldisvísindum við háskólann. Þess vegna hefur þótt sérstök nauðsyn, að einmitt skólaráð þessa skóla væri vel skipað, og er þess vegna gert ráð fyrir því hér í 20. gr., að skólaráð þessa skóla skuli vera skipað í fyrsta lagi skólastjóra Kennaraskóla Íslands, enn fremur prófessor í uppeldisvísindum við háskólann og sérfræðingi í uppeldis - og fræðslumálum, sem kennslumálarh. skipar til fjögurra ára í senn, og sé hann formáður. Það hefur þótt sérstök ástæða til þess að vanda til þessa skóla, og þess vegna væri það óneitanlega einkennilegt að fara að fella þessa gr. burt og fela stjórn þessa skóla algerlega einum manni, sem sé skólastjóra. Ég vil enn fremur benda á, að það þarf að vera svo mikið samstarf á milli kennaraskólans og uppeldisdeildar háskólans, að út frá því einu sjónarmiði virðist alveg nauðsynlegt að hafa þetta skólaráð, sem tengi þetta saman. Þá eru 6. og 7. brtt. um það, að 30. gr. falli niður og orðin „ og skólanefndar “ í 31. gr. falli niður. Þessar gr. fjalla einmitt um skólan. íþróttaskólans, og ég hef áður á það bent, að hér er alls ekki um nein nýmæli að ræða, heldur hefur skólan. starfað við íþróttaskólann á Laugarvatni, sem er skipuð eins og hér er gert ráð fyrir, og hefur það þótt nauðsyn vegna þess, að sú fræðslumálastjórn, sem fer með þessi mál á hverjum tíma, hefði ekki þá sérþekkingu, sem þyrfti, ef ekki væri að ræða um neinn ráðgjafa í þeim efnum, og þess vegna er ætlazt til, að íþróttafulltrúi sé form. þessarar skólanefndar. Þá er 8. brtt. við 38. gr. frv. um það, að Húsmæðrakennaraskóli Íslands skuli starfa í Rvík frá 15. sept. til 15. maí ár hvert, en annan tíma árs í sveitum, þar sem skilyrði eru fyrir húsmæðrakennslu og bú rekið í sambandi við húsmæðraskóla. Hv. flm. þessarar brtt. kom inn á það við 2. umr. þessa máls, hvort ekki væri stofnað til óþarflegs kostnaðar með því að hafa orðalagið þar eins og það er í frv. Og mér skilst, að meining hans með þessari brtt. sé að koma í veg fyrir það. Ég vil þá gefa þær upplýsingar, að eins og þetta er starfrækt nú, þá er það mjög svipað því, sem hv. þm. Barð. leggur hér til í sinni brtt. , að öðru leyti en því, að þessi sumarkennsla fer ekki fram nema annað hvert ár ( kennslutímabilið er tveir vetur og eitt sumar ). Þess vegna er það, að þótt þessi brtt. yrði samþ., þá getur hún ekki staðizt eins og hún er, vegna þess að það er ekki þörf á þessari kennslu nema annað hvert sumar. Og enn fremur get ég upplýst það, að það er alls ekki meiningin, að farið verði að setja upp neitt stórt bú eða kaupa stórar jarðir hér í námunda við Rvík til þess að hafa þessa starfsemi fyrir skólann yfir sumartímann, heldur er meiningin að halda áfram eins og verið hefur, þannig að hafa þessa sumarkennslu við einhvern skóla úti á landi. Hún hefur hingað til ekki verið við unglingaskólann á Laugarvatni, heldur við gagnfræðaskólann þar. Það gæti vel verið, að hentugast þætti að hafa þessa kennslu við einhvern bændaskólann, t. d. þegar hinn nýi bændaskóli í Skálholti tekur til starfa. N, leggur til, að þessi brtt. verði ekki samþ., því að eins og ég hef bent á, þá er hún ekki í samræmi við þá þörf, sem hér er um að ræða. Þá er hér 9. brtt. við 39. gr. frv. um það, að gr. falli niður. Það er það ákvæði, að heimavist skuli vera fyrir þá nemendur, sem búa sig undir kennarastörf við húsmæðraskóla. Á meðan svo er háttað sem nú er, að Húsmæðrakennaraskóli Íslands hefur mjög takmarkað húsnæði í háskólanum, þá er ekki hægt að koma við heimavist fyrir þá nemendur. Hins vegar leit n. svo á, að þegar til þess kæmi, að hægt væri að hafa heimavist fyrir þessa nemendur, - og mér er kunnugt, að forstöðukona skólans telur það nauðsynlegt, til þess að þeir nemendur fái æfingu í að stjórna skóla, sem þeir fá bezta með því að vera í heimavist sjálfir, - en auk þess hefur n. litið svo á, að húsnæðisleysið í Rvík væri nóg til þess, að keppa bæri að því, að heimavist verði við þennan skóla í framtíðinni. Hins vegar flytur n. brtt. við þessa gr, á þskj. 430, þar sem gert er ráð fyrir því, að þegar hús verði reist fyrir skólann, þá skuli þar verða heimavist fyrir þá nemendur, er búa sig undir kennarastörf við húsmæðraskóla, svo og aðra nemendur, er heimili eiga utan Rvíkur. Það ber að því að stefna, vegna þess húsnæðisleysis, sem nemendur utan af landi eiga við að stríða, að við þá skóla, sem staðsettir eru hér í Rvík, en eiga hins vegar samkvæmt eðli sínu að vera fyrir allt landið, - að sköpuð sé aðstaða fyrir nemendur utan af landi til þess að búa í heimavist þann tíma. Og má í þessu sambandi minna á, hvernig þetta vandamál nemenda háskólans hefur verið leyst, þar sem þeir hafa nú hinar ágætu heimavistir í stúdentagörðunum, sem allir munu vera sammála um, að var mikil nauðsyn. N. vill því eindregið mæla með því, að þessi brtt. verði samþ. Þá er 10. og 11. brtt. við 46. og 47. gr. frv. 10. brtt, er um það, að 46. gr. falli niður, og 11. brtt. um það, að orðið „ skólanefnd “ falli niður. Þar er átt við, að þar sem gert er ráð fyrir skólan. húsmæðrakennaraskólans, falli niður, og er 47. gr. því viðkomandi. En um þessar brtt. var meiri hl. n. ekki sammála, og einstakir nm. hafa áskilið sér rétt til þess að hafa óbundnar hendur við atkvgr. um þær. Meiri hl. n. mælir samt á móti þeim. Þá er hér 12. brtt. við 50. gr. frv., um það, að sú gr. skuli falla niður. Eins og hv. þm. er kunnugt, er sú gr. um orlof kennara. Það er sams konar og sett var á síðasta þingi inn í l. um bæði gagnfræðaskóla og menntaskóla, og það sýnist því vera mjög mikið ósamræmi í því að ákveða kennurum við þá skóla orlof tíunda hvert ár til þess að mennta sig erlendis, en kennurum við kennaraskólann skuli ekki þá líka vera ákveðið slíkt orlof. N. mælir því með, að þetta verði samrímt og þessi brtt. verði felld, en leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt að öðru leyti en því, að samþ. verði brtt. n. á þskj. 430, við 39. gr. En eins og ég sagði áðan, þá hafa einstakir nm. óbundnar hendur um atkvgr. við 10. og 11. brtt. hv. þm. Barð. Herra forseti. Mér þykir vænt um, að hæstv. menntmrh. er hér viðstaddur þessar umr., enda hefur þessu máli, að mér skilst, verið frestað til þess að hann gæti sett sig inn í efni frv., sem hér er um að ræða, sem er rétt, ef þetta frv., sem gert er ráð fyrir, að verði að l. , á að verða eitthvað meira en pappírsgagn. Ég skal þá gera grein fyrir brtt. mínum. Um flestar brtt. er það að segja, að þær eru í samræmi við það, sem ég hef haldið fram um fræðslul. yfirleitt. Ég álít, að þessi ákvæði eigi að standa í reglugerð, en ekki í l. , þ. e. ákvæðið um kennslustundir kennara, og þarf ég ekki að ræða frekar um það. Það er kunnugt, hver afstaða mín hefur verið gagnvart því máli. Í 15. gr. frv. er sagt, að stofnuninni skuli veita forstöðu sérstakur maður, sem skipaður sé sem prófessor. Ég tel ekki ástæðu til þess að skipa málinu á þennan hátt. Ef brtt. mín verður samþ., þá er gert ráð fyrir, að prófessor í forspjallsvísindum og almennum vísindum annist þar kennslu eftir því, sem samrýmist starfi hans. Að öðru leyti skal kennslan falin aukakennurum, er heimspekideildin ræður, og greiðist kostnaður úr ríkissjóði, eftir því sem fé er veitt í fjárl. Það er þá gert fullkomlega ráð fyrir, að þessi stofnun fái þá kennslukrafta, sem hún þarf, þegar hún er komin á fót, en að öðru leyti verði hún undir stjórn háskólans. Ég skil mjög vel þá menn, sem sjá ekkert athugavert við það, þó að hrúgað sé upp prófessorum við háskólann, eins og gert hefur verið undanfarið, en ég sé ekki, að beri nein nauðsyn til þess að bæta einum prófessor þarna við. Þess vegna vænti ég, að mín brtt. verði samþ. Um 3. brtt. mína við 20. gr. er það að segja, að ég er yfirleitt á móti því, að verið sé að setja sérstakar skólanefndir. Þetta er einn af æðri skólum, og þeir heyra flestir undir ráðh. og fræðslumálastjóra. Ég álít, að skólan. hafa þarna í raun og veru mjög litla þýðingu, og veit mörg dæmi til þess, að slíkt samstarf hefur ekki gengið sem greiðlegast, og mætti nefna í því sambandi mörg dæmi, og má þá minna á ósamkomulagið, sem verið hefur t. d. við skólann á Akranesi og fleiri skóla í landinu. Ég vonast því eftir, að till. mín verði samþ. Um brtt. við 21. gr. er það að segja, að hún er afleiðing af því, sem ég hef borið fram, og sama máli gegnir um 22. gr., og brtt. við 30. gr. er um íþróttaskólann, hún er líka afleiðing af hinum og í samræmi við þær. Ég sé ekki, hvers vegna á að vera sérstök n. yfir íþróttaskólanum, frekar en yfir öðrum skólum í landinu, og byggist á því sama. 31. gr., þarf ekki að ræða um. Þá er brtt. við 38. gr., og er hún í sambandi við Húsmæðrakennaraskóla Íslands. Ég veit ekki, hvort hv. n. hefur átt tal um þetta mál við forstöðukonu skólans. Ég hef rætt um þetta við hana, og hún hefur verið mér fullkomlega sammála um, að þessi brtt. , sem ég hef borið fram hér, væri ekki aðeins eðlileg, heldur líka mjög æskileg. Annaðhvort hefur skólastjórinn sagt mér ekki satt eða sagt n. allt annað eða þá, að n. hefur gengið þvert á móti vilja skólastjórans í málinu. Skólastjórinn hefur tjáð mér, að í fyrsta lagi telji hann enga þörf á að hafa 38. gr. frv., og í öðru lagi séu engar líkur til þess, að það ákvæði verði framkvæmt, eins og reyndar hv. frsm. tók fram, að það væri sjálfsagt að hafa þetta, þó að það yrði ekki framkvæmt. Skólastjóri hefur tjáð mér enn fremur, að það fyrirkomulag, sem verið hefur með sumarkennsluna, hafi verið heppilegt, og sé ekki ástæða til þess að breyta neitt þar um, og þess vegna þarf þessi gr. ekki að standa í frv. Forstöðukonan hefur einnig tjáð mér, að í framtíðinni sé hér ekki um að ræða nema fámennan hóp, 10 – 12 stúlkur, og ekki verði nemendur útskrifaðir frá skólanum nema annað hvert ár. Þá sér hver maður, hvaða vit er í því að fara í því sambandi að setja upp stórbú, - hvort sem það væri nú á Korpúlfsstöðum eða annars staðar í nágrenni Rvíkur, - sem kostaði tugi millj. kr. að koma upp. Forstöðukonan hefur tjáð mér, að ekki væri nauðsynlegt, að byggingin rúmaði heimavist, en skólanum sé á öðru meiri þörf en heimavist fyrir nemendur. Og ef fara á inn á þá braut að skaffa heimavist fyrir alla nemendur, sem stunda nám hér í Rvík, en eiga ekki hér heima, þá verður að afla einhverra tekna til þess. Það þýðir ekkert í þessu sambandi að benda á Stúdentagarðinn. Hann er byggður með frjálsum samskotum og fyrir fé, sem háskólinn hefur að einhverju leyti yfir að ráða. - Ég álít því, að brtt. mín við 39. gr. frv. eigi tvímælalaust að samþykkjast. Þá ber ég fram brtt. við 46. gr., um, að gr. falli niður, þ. e. gr. um skólanefnd. Skólastjórinn sjálfur er á móti því, að slík skólanefnd sé sett upp, en telur betra að hafa samband við fræðslumálastjóra um stjórn skólans, og því eigi þessar tvær málsgr. í 46. gr. frv. að falla niður. 11. brtt. er við 47. gr., frv., um að orðið „ skólanefnd “ falli niður úr þeirri gr., sem er sjálfsögð brtt. , ef brtt. við 46. gr. verður samþ. Þá kemur 50. gr. frv., um þessi sérréttindi, sem eftir þeirri gr. kennarar eiga að fá að njóta. Hef ég lagt til, að sú gr. félli með öllu niður úr frv., og er það alveg í beinu áframhaldi af því, sem ég hef haldið fram hér áður um það atriði. Ég tel, að ákvæði 50. gr. frv. eigi ekki að vera í l. Hv. þm. sagði, að það væri ranglátt að fella þetta ákvæði burt úr þessu frv. Ég tel það líka ósamræmi við önnur l. , sem samþ. hafa verið, að fella það niður. En ég tel það að fella þetta ákvæði niður úr þessu frv. spor í þá átt að byrja að lagfæra ólag, sem komizt hefur inn í löggjöf okkar í sambandi við aðra skóla, þannig að þetta væri byrjun á því að nema slík ákvæði burt úr öllum l. um kennara, sem svona ákvæði hafa komizt inn í, því að það álít ég, að ætti að gera. Ég tel, að slíkt ákvæði sem þetta hefði aldrei átt að setja í nein fræðslul. , og ætti þá ekki fremur að vera í þessum l. heldur en öðrum. Ég vænti, að brtt. mínar verði samþ. Herra forseti. Ég ætla ekki að segja mikið um þetta mál. Hv. frsm. n, mun hafa gert grein fyrir skoðun n. um málið, þannig að ekki mun þörf að bæta þar um. - Það eru aðeins örfá atriði, sem ég vil minnast hér á, sem ræða hv. þm. Barð. gaf mér tilefni til, sérstaklega sökum þess, að ég er nú form. þeirrar n., sem hér á hlut að máli. Hv. þm. Barð. dró t. d. í efa, að n. hefði rætt við skólastjóra húsmæðrakennaraskólans. En ég vil þá upplýsa það, að n. hefur rætt við þann skólastjóra, ekki einu sinni, heldur oftar en einu sinni. Það er alveg rétt, sem hv. þm. Barð. sagði, að skólastjóri þessa skóla var ákveðið á móti ákvæðinu um heimavist, eins og það var í frv. En ég veit ekki betur en hún sé alveg samþykk þeirri breyt. , sem n. ber fram, að það sé ætluð heimavist við skólann, þegar hann fær sitt sérstaka húsnæði, og þá ekki sízt með tilliti til þess, að henni hefur verið sýnt fram á það af n., að þörf væri á, að stúlkur utan af landi gætu sótt skólann. Ég hygg, að í raun og veru sé ekkert ósamræmi milli þess, sem skólastjóri talaði við hv. þm. Barð, annars vegar og n. hins vegar. Annars vegar er um ákvæði frv. að ræða, en hins vegar er um brtt. n. að ræða. Ég hygg, að ég megi einnig fullyrða það, bæði af viðtali við skólastjóra þessa skóla og af viðtali við fræðslumálastjóra, að það sé alls ekki tilætlunin viðvíkjandi húsmæðrakennaraskólanum að setja upp stórbú hér í grennd við Rvík, sem rekið væri af skólanum, heldur muni vera miðað í frv. við það fyrirkomulag, sem nú er, að skólinn hafi aðgang að búrekstri á sumrin, eins og nú er, og hygg ég, að skólastjórinn sé mjög ánægður með þetta fyrirkomulag. Það mætti náttúrlega deila um það og getur verið álitamál, hvort skólanefnd eigi að vera við einn slíkan skóla eða annan. Þó held ég, að ekki verði deilt um það, að skólanefnd er náttúrlega alveg sjálfsögð við þann æfingaskóla, sem ráðgert er að stofna samkv. þessu frv. Sá skóli er barnaskóli, og það er skólanefnd við alla barnaskóla landsins. Og hvers vegna ætti ekki að vera skólanefnd við þennan skóla eins og aðra barnaskóla? Íþróttakennaraskólinn hefur nú talsvert mikla sérstöðu, þar sem hann er í sambandi við annan skóla. Og það mun þykja eðlilegt og hagkvæmt, að t. d. skólastjórinn við Laugarvatnsskólann geti haft aðgang að því að geta haft eitthvað um íþróttakennaraskólann að segja. Hið sama má segja að því er snertir íþróttafulltrúa ríkisins. Þess vegna er næsta eðlilegt, að skólanefnd sé við þennan skóla, eins og gert er ráð fyrir í frv. - Hitt skal ég svo játa, að mér sýnist það orka mjög tvímælis, hvort nauðsynlegt er að hafa skólanefnd við húsmæðrakennaraskólann, sem er hér í Rvík rétt undir handarjaðri á fræðslumálastjórninni. Þar sé ég fyrir mitt leyti ekki beina þörf á skólann. Svo er þessi brtt. hv. þm. Barð. við 50. gr. frv., um að hún falli niður. Það hefur nú verið deilumál á þinginu áður tilsvarandi ákvæði í l. Það kom ekki fram nú hjá hv. þm. Barð. , en hann hefur áður í umr., um skólamál æ ofan í æ talað um „ frí fyrir kennara tíunda hvert ár “. Í fyrsta lagi er það nú að segja, - þó að ekki þurfi beinlínis að leiðrétta það út af ræðu hans nú, - að hér er ekki um tíunda hvert ár að ræða, heldur er beinlínis tekið fram, að engum kennara megi veita þetta frí nema einu sinni á æfinni. Og þetta er enn fremur aðeins heimild, en ekki neinn réttur, sem kennarar geti heimtað. Auk þess er þetta ekki neitt „ frí “ í eiginlegum skilningi. Þetta orlof ekki að veita til þess, að kennari hvíli sig. Það á að veita það til þess að hann starfi og hann verður að gera grein fyrir því starfi að því loknu og missa fríðindin, ef hann ekki getur gert fullnægjandi grein fyrir því. - Því hefur náttúrlega verið haldið fram, bæði af hv. þm. Barð, og fleirum, að það væru fleiri embættismenn, sem kynnu að koma í kjölfarið og heimila sams konar fríðindi sem þessi. En ég er nú ekki viss um, að nokkur starfsmannastétt landsins hafi eins mikla þörf á því eins og einmitt kennarastéttin að geta einu sinni á æfinni losað sig við starf eitt ár, til þess að fullkomna sig í sínu starfi, t. d. í útlöndum. Það mundi þá helzt vera læknastéttin. En ég hygg, að þegar fyrir löngu sé nokkurn veginn séð fyrir því, að efnalitlir læknar fái frí frá störfum til þess að sigla til útlanda og stunda þar framhaldsnám. Mörg dæmi hef ég vitað um það, þó ég muni ekki beinlínis eftir, að svo hafi verið ákveðið í l. - Það er svo langt frá því, að ég sé sammála hv. þm. Barð. um þetta atriði, að ég held, að ákvæði 50. gr, frv. sé eitthvað þarfasta ákvæði, sem sett hefur verið inn í hin nýju l. um skólakerfi landsins. Þetta er mín skoðun. Það er nú búið að breyta skólakerfinu á síðasta þingi, þannig að það verður mörgum millj. kr. dýrara en áður var. Og það var gert fyrir forgöngu hæstv. fyrrv. ríkisstj., sem hv. þm. Barð. studdi. Það hefur sjálfsagt verið margt gott í þeim breyt. , sem þá voru gerðar á skólalöggjöfinni, en þó því aðeins kemur það að gagni, að séð sé um það, að nægilega hæfir menn starfi að kennslunni og eftirlitsmálum við fræðslustarfið. Og mér finnst, að það sé einhver sú mesta heimska, sem hægt sé að gera, að eyða tugum milljóna kr. við rekstur skóla, en hafa svo ekki tryggingu fyrir því, að við þessa skóla starfi hæfir kennarar. Náttúrlega skal ég játa, að ekki er full trygging fyrir því, að þessir menn, sem verða þess aðnjótandi að fá lausn frá starfi einhvern tíma á ævinni í eitt ár til þess að fullkomna sig í starfinu, verði svo ágætir, að ekki geti betra orðið. En þegar þess er gætt, að fræðslumálastjórnin á að velja þessa menn, - það liggur ekkert fyrir um það, að aðrir kennarar verði þess aðnjótandi, - þá má gera ráð fyrir, að hún velji þá, sem hæfastir eru. Og það er ég viss um, að yfirleitt verða þessir menn hæfari eftir en áður, - með kannske örfáum undantekningum, sem alltaf má gera ráð fyrir, - en höfuðreglan mun verða, að þessir menn verði hæfari sem kennarar eftir þetta orlof en áður. - Nú, og svo er það, eins og hv. frsm. tók fram, að þegar þetta er komið inn í l. um aðra kennara og aðra skóla, þá mætti undarlegt heita að fella þetta niður að því er snertir þá kennarana, sem eiga að mennta aðra kennara. Það mætti mjög undarlegt heita, og er ekkert víst, þó að t. d. hv. þm. Barð. tækist að fella þessa gr. úr þessu frv., að hann gæti komið tilsvarandi formi - „ lagfæringu “, sem hann kallar - á hina almennu fræðslulöggjöf í landinu og l. um gagnfræðaskóla og l. um menntaskóla. Það er ekkert víst. Og þá gæti farið svo, að það væru einmitt aðeins kennaraskólakennarar, sem ekki hefðu rétt til þessara fríðinda, en allir aðrir kennarar hefðu hann. - Ég vona, að jafnvel hann sjálfur, hv. þm. Barð. , sjái, að þessi till. hans til breyt. á frv. að því er 50. gr. snertir er alls ekki frambærileg eins og sakir standa. Ef þessi fríðindi ættu ekki að gilda til handa kennaraskólakennurum, þá ætti að byrja á því að nema tilsvarandi ákvæði úr hinum öðrum l. , sem það hefur verið sett inn í, en ekki lofa því aðeins að gera það á eftir, eftir að búið væri að koma þessu ákvæði í þessu frv. fyrir kattarnef. Menntmrh. ( Eysteinn Jónsson ) : Herra forseti. Afgreiðsla þessa frv. hefur nú nokkuð beðið, eftir minni ósk, sem var vegna þess, að ég var málinu mjög lítið kunnugur áður en ég tók við starfi sem menntmrh., og langaði mig til að kynna mér það áður en frv. væri afgr. og sérstaklega brtt. , sem fyrir lægju. Ég hef reynt að kynna mér þetta mál eftir ástæðum og hafði tal af ýmsum, sem starfað hafa að undirbúningi málsins og eiga hlut að máli. Ég þarf ekki að vera langorður um afstöðu mína í málinu. Hún er, í sem stytztu máli, í samræmi við afstöðu hv. menntmn. - Viðvíkjandi einstökum atriðum skal ég taka fram mína skoðun. Það eru eitthvað 4 eða 5 atriði, sem meiningamunur er um í hv. þd. Fyrst, hvort ákveða skuli kennslustundafjölda í þessum l. Get ég um það vísað til þess, sem hv. frsm. menntmn. og hv. 1. þm. Eyf. sagði. Ég er því sammála. Og sama gildir um það ákvæði, sem er í 50. gr. frv. og lýtur að möguleikum kennara til að fá frí. Mér sýnist eðlilegt, að þessi ákvæði hvor tveggja séu í samræmi við það, sem er í þeim fræðslul. , sem nýlega hafa verið sett. Og ef breyta ætti stefnu í þessu viðkomandi þessu frv., þá álít ég, að það ætti að gera með því að breyta þá um leið tilsvarandi ákvæðum fræðslul. Þá hef ég komizt að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa athugað þetta mál nokkuð, að ekki muni vera fært að gera ráð fyrir því, að prófessor í forspjallsvísindum annist kennslu, sem ráðgerð er í II. kafla frv., heldur verði að gera ráð fyrir því, að sérstakur prófessor hafi það starf með höndum. Þá er eftir að minnast á skólanefndirnar. Það má auðvitað nokkuð mikið um það ræða, fram og aftur, við hvaða skóla skynsamlegt sé að hafa skólanefndir og við hvaða skóla ekki. En ég geri ráð fyrir, að flestum finnist sjálfsagt að hafa skólanefnd við æfinga - og tilraunaskólann. Og þá er spurningin um íþróttakennaraskólann og húsmæðrakennaraskólann, og að athuguðu máli vil ég mæla með því, að ákvæði frv. um skólanefnd við þá skóla verði ekki felld niður. Það er vegna þess, að þessir skólar hafa nokkra sérstöðu, eins og komið hefur fram hjá hv. frsm. menntmn. , og virðist ekki óeðlilegt, að skólanefndir starfi við þessa skóla. Ég veit, að sumir álíta ekki meiri þörf á að hafa skólanefndir við þessa skóla en ýmsa aðra skóla, t. d. kennaraskólann og ýmsa aðra skóla sjálfstæða. En þess ber að gæta, að gera má ráð fyrir, að fræðslumálastjórnin hafi heldur minni þekkingu um þau efni, sem þessir tveir skólar eiga að fjalla um, heldur en þau, sem aðrir skólar hafa með höndum, og því hygg ég, að ekki sé óskynsamlegt að gera ráð fyrir, að við þessa skóla séu einmitt skólanefndir. Ég skal ekki fara langt út í að ræða það fram og aftur, en aðeins láta í ljós þessa skoðun. Um heimavistina, sem hér hefur verið um rætt nú, er það að segja, að ég hygg, að skynsamlegt sé að gera ráð fyrir því ákvæði, sem hv. menntmn. leggur til, að sett verði í frv. þar um, og að það sé sjálfsagt að stefna að því, að í framtíðinni geti orðið heimavist við þennan skóla, þannig að stúlkur utan af landi, sem þennan skóla vilja sækja, geti átt þar fullkomið athvarf. Viðvíkjandi 38. gr. frv. og brtt. við hana, þá lít ég svo á, að ákvæði 38. gr. geri beinlínis ráð fyrir því, að þessu verði fyrir komið framvegis þannig, að skólinn starfi í Rvík að öðru leytinu og að hinu leytinu á Laugarvatni, við ekki ólíka aðstöðu til búrekstrar og hann hefur haft þar, og skilst mér, að það sé talið allvel viðunandi og við eigandi af þeim, sem bezt þekkja til. Ég hygg, að það sé réttast að ákveða það ekki nánar í l. , hvaða mánuði þessi skóli skuli starfa í Rvík og hvaða mánuði annars staðar, heldur en gert er í frv., af því að ég hygg, að það sé betra að hafa það opið eins og frv. gerir ráð fyrir. Ég hef svo ekki meira um þetta að segja, en endurtek það, að ég vil mæla með því, að frv. verði afgr. á þá lund, sem hv. menntmn. hefur gert að sinni till. Herra forseti. Það hefur komið fram, að n. er ekki eiginlega sammála um afgreiðslu málsins. Því að hv. 1. þm. Eyf. lýsti yfir, að hann gæti fellt sig við ýmislegt í mínum brtt. Bara eitt atriði . Enda kom það berlega fram, sem ég hélt fram, að skólastjóri húsmæðrakennaraskólans er ekki sammála n. í þessu máli. Það, sem hv. 1. þm. Eyf. lagði sérstaka áherzlu á í ræðu sinni, var, að skólalöggjöfinni hefði verið breytt af stjórn, sem ég hefði stutt. Ég vil leyfa mér að benda á, að ég hef alltaf haft ákveðna skoðun í þessum skólamálum, hvaða ríkisstj. sem setið hefur, og greitt atkv. út frá því sjónarmiði. En það kom fram, að það hefur ekki verið tilfellið með hv. 1. þm. Eyf. , því að hann hefur skoðanir til skiptanna, og notar eftir því, hverjir eru við stjórn á þjóðarskútunni. Hann hefur verið á móti fræðslulöggjöfinni, þar til annar ráðh. var kominn í menntmrh. - stólinn en var, þegar fræðslul. voru sett. Nú þykir honum allt gott í þessum efnum, sem kemur frá allt öðrum ráðh. en þeim, sem nú situr í menntmrh. - stólnum, af því að það er maður af öðrum flokki, sem nú fer með menntamálin heldur en þegar fræðslul. voru sett. Í sambandi við ummæli hv. 1. þm. Eyf. um 50. gr. frv., þá get ég ekki séð, að nein afgerandi rök hafi komið frá hans hendi í þessu atriði málsins. Það má að vísu kalla rök út af fyrir sig, að ósamræmi væri í því að fella þetta ákvæði úr þessu frv., ef ekki væri hægt að fella sams konar ákvæði úr öðrum l. En ef þingfylgi er fyrir því að fella þetta ákvæði úr þessu frv., þá ætti það líka að vera fyrir hendi til þess að fella hliðstætt ákvæði úr öðrum l. Ég sé ekki, að ástæða sé til þess, að ríkið kosti þannig í orlofi einu sinni á hverjum tíu árum mann, sem hefur þriggja mánaða frí á hverju ári á fullum launum. En það er það, sem þessir menn vilja, sem vilja samþ. 50. gr. frv. Sumir kennarar hafa meira að segja meira frí. Ég hygg, að þessir menn, kennararnir, hafi undirbúið sig þannig undir sitt lífsstarf, að þeir þurfi ekki að fá þessi fríðindi til þess að bæta þar um. En ef þess þyrfti samt sem áður með, væru þessir menn ekki of góðir til þess að nota til þess þennan þriggja mánaða frítíma sinn, sem þeir hafa á hverju ári á fullum launum. Auk þess ber þess að gæta, að nú er stefnt að því að láta þessa menn læra innan lands, og ættu þeir því ekki að þurfa að fara til annarra landa til þess að læra betur. Þeim er enn fremur leyft að sækja ýmis mót, til þess að aðrir menn geti talað við þá og kennt þeim með samræðum. Ég sé ekki ástæðu til að samþ. þessi fríðindi, sem 50. gr. inniheldur fyrir kennara. Hins vegar eru þetta fríðindi, sem kennarastéttin hefur sótt allmikið eftir, undir stjórn fyrrv. hæstv. menntmrh. Er ekki hægt að segja það til áfellis á þann mann, sem þá skipaði sæti menntmrh. Hann hefur verið tryggur sinni stétt. Það er allt og sumt. Í sambandi við yfirlýsingu hæstv. ráðh. mun þetta verða tekið til athugunar í fjvn. , hvaða stefnu hann lýsir. Hann hefur, að mér skilst, talið sig bundinn í báða skó af annarra manna vilja um að veita fé til skólabygginga. Hann hefur haldið því fram, að hann yrði að halda sig við till., sem gerðar eru af öðrum. Og með því finnst mér hann leggjast á þá sveif að binda hér bagga, sem ekki sé þörf á að binda á þessu stigi málsins, þegar hann leggur til, að 38. gr. frv. verði samþ. Og hvað sem sagt er um, að þetta og þetta skuli skilið svo eða svo, þá heimilar 38. gr. frv. a. m. k. að setja upp búrekstur hér í nágrenni Rvíkur fyrir þennan skóla, og tel ég þá miklu varlegra að fella gr. alveg niður og hafa það fyrirkomulag á þessu, sem nú er í sambandi við þennan skóla. Um þetta atriði verður náttúrlega annað hvort samþ. 38. gr. eða mín brtt. Ég sé ekki, hvers vegna þykir nauðsynlegt, að þetta ákvæði standi í l. þessum, til þess að gefa kost, ekki þessum hæstv. ráðh., heldur eftirmanni hans á því að veita svo og svo margar þús. kr. til þess að uppfylla þetta ákvæði l. Frsm. ( Ásmundur Sigurðsson ) : Herra forseti. Þá er aðeins aths. út af hv. þm. Barð. Í fyrsta lagi vill hann, að samþ. sé brtt. um 15. gr, til sparnaðar, og vildi ég bera hana upp þannig breytta,. með leyfi hæstv. forseta, og er hún þá þannig : „ Prófessorinn í forspjallsvísindum og almennri heimspeki annast þar kennslu, eftir því sem samrýmist störfum hans. Að öðru leyti skal kennsla falin aukakennurum, er heimspekideild ræður, og greiðist kostnaður úr ríkissjóði, eftir því sem fé er veitt í fjárlögum. “ Svona vill hv. þm., að búið sé að þessari stofnun. Það er sem sagt kennari við aðra deild, sem á að hafa kennsluna með höndum, og nær slíkt vitanlega engri átt. Þá vill hv. þm. Barð. fella niður gr. um orlofsár kennara, og hafi ég tekið rétt eftir, sagði hann, að þetta væri komið í önnur lög, en það er eingöngu útúrsnúningur. Í sambandi við það, að hv., þm. sagði, að ekki væri ástæða til að kosta kennara tíunda hvert ár, þá benda þessi orð hans á, að hann hefur ekki lesið gr., því að í gr., segir, með leyfi hæstv. forseta : „ Nú hefur kennari gegnt embætti í 10 ár við þá skóla, er í lögum þessum greinir, og óskar að hverfa frá störfum í eitt ár til að efla þekkingu sína og kennarahæfni, skal hann, þá senda fræðslumálastjórn beiðni um orlof ásamt grg. um, hvernig hann hyggst að verja orlofsárinu. Ef fræðslumálastjórn telur þá grg. fullnægjandi, getur hún veitt kennaranum árs orlof með fullum launum. Engum kennara skal þá veita slíkt orlof oftar en einu sinni : O. s. frv. Um þetta var rætt á fundi fyrir nokkrum dögum, en samt fullyrðir hv. þm. Barð. , að þetta sé rangt og ekki forsvaranlegt. Menntmrh. ( Eysteinn Jónsson ) : Herra forseti. Það er misskilningur hjá hv. þm. Barð. , að samkv. 38. gr. eigi að vera fullkominn búrekstur í sambandi við húsmæðrakennaraskólann, en gert er ráð fyrir, að fyrirkomulagið verði svipað og verið hefur í því efni. Enn fremur þarf hv. þm. ekki að vera kvíðinn, að ég komi með kröfur á fjvn. í sambandi við skólahús, en ég vona, að hann sýni skilning í sambandi við fjárveitingar til menntamála yfirleitt, eins og hann hefur reyndar sýnt áður, og breytist það að sjálfsögðu ekki, þótt ný stjórn sé setzt að völdum, þar sem hann er stuðningsmaður hennar eins og hinnar fyrrv. stjórnar. Þá vildi ég aðeins segja það viðvíkjandi skólanefndunum, að mér er kunnugt um, að skólastjórar vildu engar skólanefndir hafa, og þykir mér það leitt í sambandi við þetta frv. Þessir skólastjórar hafa góða hæfileika, en allmikil stoð ætti þó að verða í skólanefndunum. Ég vona því, þó að frv. verði samþ., að góð samvinna verði á milli skólastjóra og skólanefnda og að það verði skólunum til góðs. Ég vil svo biðja hv. d. afsökunar á því, að ég þarf að fara á fund, en það ætti að vera saklaust, því að aðalatriði þessa máls hafa þegar komið fram. Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því, að þegar hv. þm. Barð. ræddi síðustu brtt. sína, þá sagði hann, að hann hefði haft sömu skoðun á þessum málum, þótt stjórnarskipti hafi orðið, en hins vegar hefði ég snúizt. Ég vil því skjóta því til hæstv. fyrrv. menntmrh., hvort ég hafi snúizt á hæli í skólamálunum. Og ég vil taka það fram, að ég hef ekki verið á móti fyrrv. ríkisstj. hvað þau mál snertir, því að þótt hún hafi farið afkeipa að ýmsu leyti, þá á það sízt við um skólamálin. Það er því alveg út í hött, að ég hafi sýnt þessu fjandskap. Þá hefur hv. þm. haldið því fram, að skv. frv. eigi að veita kennurum orlof tíunda hvert ár, og býst ég við, að hann geri það enn, en slíkt er auðvitað alger fjarstæða og bendir til, að hv. þm. Barð. hafi ekki athugað frv. gaumgæfilega. En e. t. v. finnst hv. þm., að það þurfi þá ekki að vera svo nákvæmt, eins og haft er eftir einum góðum stjórnmálamanni. Herra forseti. Ég skal ekki tefja málið og mun ég ekki verða langorður. Ég vildi aðeins segja örfá orð um 46. gr., um skólanefnd við húsmæðrakennaraskólann. Skólanefndin á að vera skipuð þannig, að Félag húsmæðrakennara tilnefni einn, Kvenfélagasamband Íslands annan, en fræðslumálastjórn þann þriðja, og skal hann vera formaður nefndarinnar. Það er efalaust styrkur fyrir skólann að hafa skólanefnd sem millilið milli skólastjóra og fræðslumálastjórnar, og einnig er það styrkur fyrir skólastjórann að láta skólanefnd bera mál skólans fyrir fræðslumálastjórn. Hv. þm. Barð. sagði, að stjórn húsmæðrakennaraskólans væri andvíg þessu, og það er rétt, en engu að síður er það nauðsynlegt, að skólanefnd sé skipuð við skóla þar, sem fáir fastakennarar starfa, og á það fremur við en þar, sem margir kennarar starfa að skóla. En ég skil hv. þm. Barð. vel, að hann fellir sig illa við, að 12 brtt. hans hverfi allar með tölu, og er það eðlilegt. En sem betur fer er hann lífsreyndur maður og vanur að horfa á eftir brtt. sínum fara í fjöldagröf, og vil ég votta honum samhryggð mína. Herra forseti. Í tilefni af ræðu hv. 3. landsk. vil ég taka það fram, að ég ber ekki fram mál til hrossakaupa og til að tryggja mér frið, heldur þegar þau eru þess virði, að þau séu borin fram. Ég vil því heldur sjá þau falla í eina gröf en að kaupa mér fylgi með hrossakaupum.
Grein um hugbúnaðinn Decode-GT, sem búinn var til af starfsmönnum Íslenskrar erfðagreiningar, birtist í nýjasta hefti bandaríska vísindatímaritsins Genome Research, en hugbúnaðurinn hraðar og auðveldar vinnslu á gögnum við erfðagreiningu. Hugbúnaðurinn Decode-GT er kynntur á vefsíðum Íslenskrar erfðagreiningar, www.decode.is, og í frétt frá fyrirtækinu segir að hann hafi vakið töluverða athygli. Aðalhöfundur hugbúnaðarins er Frosti Pálsson verkfræðinemi og vann hann í nánu samstarfi við Birgi Pálsson lífefnafræðing, sem er jafnframt fyrsti höfundur greinarinnar í Genome Research. Aðrir höfundar eru Mark Perlin frá bandaríska hugbúnaðarfyrirtækinu Cybergenetics ( Cybgen ), Hákon Guðbjartsson yfirmaður upplýsingatæknisviðs Íslenskrar erfðagreiningar, Kári Stefánsson forstjóri og Jeffrey Gulcher yfirmaður rannsóknasviðs.
Myndbandavefurinn Youtube fagnar tíu ára afmæli sínu nú um helgina, en vefurinn hefur lengi verið einn sá vinsælasti í heimi. Einn milljarður manna heimsækir vefinn í hverjum mánuði og 300 klukkustundum af myndböndum er deilt þangað inn á hverri mínútu. Youtube er í eigu Google, sem keypti vefinn árið 2006 fyrir 1,6 milljarða bandaríkjadala, eða rúmlega 200 milljarða króna. Á þeim tíma var kostnaður af rekstri Youtube mun meiri en tekjurnar og fór Google því í það að snúa rekstrinum við. Var þetta annars vegar gert með því að tryggja höfundarrétt myndbanda, svo svindlarar gætu ekki deilt myndböndum sem þeir ekki ættu, og hins vegar með því að bjóða upp á áskriftarþjónustu sem gerir notendum kleift að sleppa við auglýsingar á þeim myndskeiðum sem þeir skoða. Þessar auglýsingar eru þrisvar sinnum dýrari en þær sem ekki er hægt að sleppa við að horfa á og hafa tekjur Youtube aukist mikið við þetta. Tímaritið Forbes áætlar að tekjur Youtube verði 18 milljarðar dollara árið 2021, eða yfir 2.000 milljarðar króna. Frá upphafi hefur Youtube haft sérstöðu hvað varðar deilingar á myndböndum, en notendur eru ekki rukkaðir fyrir neitt þegar þeir setja myndbönd sín inn á síðuna ólíkt fyrirkomulaginu á öðrum myndbandavefjum. Þá er Youtube önnur stærsta leitarvél í heiminum, á eftir Google. Milljónum myndbanda af öllum stærðum og gerðum hefur verið deilt á vefinn, en tónlistarmyndbönd virðast vera þau sem standa upp úr ef horft er til áhorfstalna. Myndbandið við lagið Gangnam Style eftir kóreska tónlistarmanninn Psy er þar fremst í flokki, en yfir tveir milljarðar manna hafa horft á myndbandið, sem slær öll áhorfsmet Youtube. Myndbandið sem kemst næst Gangnam Style í vinsældum er tónlistarmyndband við lagið Baby með Justin Bieber. Hefur rúmlega einn milljarður manna horft á myndbandið á vefnum. Í þriðja sæti eru svo félagarnir í hljómsveitinni LMFAO með lagið Party Rock Anthem, en um 800 milljónir manna hafa horft á myndbandið.
Stelpum er ekki kennt að fá útrás fyrir reiði eins og strákum. Það leiðir til þess að þeim er hættar við þunglyndi og kvíða þegar kemur að unglingsárum segir mannfræðineminn Esther Ösp Valdimarsdóttir sem hyggst rannsaka málið í meistaraverkefni sínu. Esther Ösp fékk í vikunni úthlutað styrk frá Styrktarsjóði Margrétar og Bents Schevings Thorsteinssonar til þess að gera rannsókn á reiðitengdum tilfinningum stelpna og mögulegum afleiðingum þess, séu þær bældar niður. " Stelpum sem kunna ekki að takast á við reiðitengdar tilfinningar sínar er hætt við að fallast hendur þegar mótlæti dynur á. Það getur leitt til þess að þær ná síður markmiðum sínum en strákar. Þegar eilíft er haft fyrir stelpum að þær eigi að vera stilltar og prúðar getur það leitt til þess að innra með þeim safnist upp reiði sem getur brotist út allt í einu í ofsatengdum köstum, " segir Esther og bendir á að stelpum á unglingsaldri sé hættara við þunglyndi og kvíða en strákum. Hún hyggst vera með námskeið fyrir stúlkur í vinnuskólanum næsta sumar. Út frá reynslu sinni og stúlknanna mun hún svo gera rannsókn sem meistaraverkefni hennar byggist á. Hún hvetur allar stúlkur sem hafi áhuga á því að taka þátt í rannsókninni að vera með. " Ég mun notast við gagnvirka þátttökuathugun og stelpurnar í hópnum munu fá ýmsar leiðir til þess að tjá sig. Fyrst og fremst vil ég að venjulegar stelpur sendi umsókn. Ekki endilega stelpur sem eiga við reiðitengd vandamál að glíma, " segir Esther. Vinnan verður uppbyggð eins og sjálfstyrkingarnámskeið og er ætluð stúlkum sem eru að klára 10. bekk í vor. Esther gerir þetta í samvinnu við foreldra. Hún hefur meðal annars reynslu af vinnu við barnavernd og í félagsmiðstöð. Leiðbeinandi hennar í verkefninu er Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands.
( Eftir 2. umr., 4. maí. ) 1. gr. Ákvæði reglugerðar um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins nr. 1612 / 68 / EBE, sbr. reglugerð nr. 312 / 76 / EBE, eins og henni var breytt með ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, skulu hafa lagagildi hér á landi. Reglugerðin, eins og hún hefur verið aðlöguð, sbr. 1. mgr., er prentuð sem fylgiskjal með lögum þessum. 2. gr. Félagsmálaráðherra skal skipa þriggja manna nefnd til að hafa eftirlit með framkvæmd þessara laga og getur hún beint tilmælum til viðkomandi aðila þar að lútandi. Alþýðusamband Íslands skal tilnefna einn fulltrúa, Vinnuveitendasamband Íslands annan fulltrúa og þriðji fulltrúinn skal skipað ur án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Skipunartími nefndar skal vera fjögur ár. Komi upp ágreiningur um hvort ákvæði 7. gr. reglugerðar 1612 / 68 séu haldin er heimilt að vísa þeim ágreiningi til nefndarinnar, sbr. 1. mgr., sem leitast skal við að leysa þann ágreining. Í þessum tilgangi getur nefndin leitað eftir upplýsingum hjá stofnunum, samtökum eða einstökum fyrirtækj um sem veita nefndinni nauðsynlegar upplýsingar um almenn ráðningar - og starfskjör í atvinnu greinum og fyrirtækjum. Verði sátt eigi komið á með aðilum er heimilt að leita til dómstóla. Þegar nefndin fjallar um mál sem varðar sérstaklega opinbera starfsmenn er falla undir atvinnu - og búseturéttindi Evrópska efnahagssvæðisins skulu auk fulltrúa skv. 1. mgr. tveir fulltrúar taka sæti í nefndinni. Skal annar þeirra tilnefndur af hlutaðeigandi heildarsamtökum opinberra starfs manna og hinn af fjármálaráðherra eða Sambandi íslenskra sveitarfélaga eftir því sem við á. Þegar nefndin fjallar um mál sem varða sérstaklega önnur heildarsamtök launþega eða atvinnu rekenda en þau sem kveðið er á um í 1. og 3. mgr. skulu fulltrúar þeirra samtaka taka sæti í nefnd inni. 3. gr. Ráðherra getur með reglugerð gefið nánari fyrirmæli um framkvæmd eftirlits skv. 2. gr. 4. gr. Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið öðlast gildi að því er Ísland varðar. Fylgiskjal. Ákvæði reglugerðar um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins nr. 1612 / 68 / EBE eins og henni var breytt með reglugerð nr. 312 / 76 / EBE, með þeim breytingum og við bótum sem leiðir af V. viðauka, bókun 1 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og öðrum ákvæðum hans. * * Aðlögun reglugerðarinnar er með fyrirvara um framkvæmd EFTA-ríkjanna á einstökum þáttum hennar, sbr. t.d. d-lið 4. tölul. bókunar 1. ( Tölvutækur texti ekki til. )
RÍKISSJÓÐUR verður rekinn með um það bil 33,9 milljarða króna tekjuafgangi á næsta ári miðað við þær breytingatillögur sem meirihluti fjárlaganefndar Alþingis hefur lagt fram á Alþingi fyrir þriðju og síðustu umræðu um frumvarp til fjárlaga 2001. Í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram á Alþingi í haust var hins vegar gert ráð fyrir 30,3 milljarða kr. tekjuafgangi. Þriðja og síðasta umræða um fjárlög næsta árs fer fram á Alþingi í dag. Samkvæmt þeim tillögum sem nú liggja fyrir verða tekjur ríkissjóðs á næsta ári rúmlega 253 milljarðar kr. og útgjöld um 219 milljarðar kr. Í breytingartillögum meirihlutans sem lagðar voru fram á Alþingi í gærkvöldi er reiknað með því að tekjur af sölu eigna verði um 8,2 milljörðum kr. meiri en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu í haust. Meginhluta þeirra tekna á að afla með sölu á a.m.k. 20% hlutafjár í Landssíma Íslands hf. Samtals er því reiknað með að tekjur af sölu eigna verði um 15,5 milljarðar kr. á næsta ári. Þá er í breytingartillögunum reiknað með því að útgjöld hækki um 5,4 milljarða frá því sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu eftir aðra umræðu. Að sögn Jóns Kristjánssonar, formanns fjárlaganefndar Alþingis, er stærstur hluti þeirra útgjalda til kominn vegna meiri vaxta á innlendum lánum en upphaflega var gert ráð fyrir eða vaxta upp á um 3,2 milljarða kr. Auk þess eru tekjuskattar lögaðila, þ.e. fyrirtækja, um 2,7 milljörðum kr. lægri en upphaflega var gert ráð fyrir ( vegna lakari afkomu fyrirtækja á þessu ári ), en skattar á tekjur einstaklinga um 1,6 milljörðum kr. hærri en ráð var gert fyrir. 40 milljónir vegna vöktunar á Suðurlandi Af einstökum útgjaldatillögum meirihluta fjárlaganefndar fyrir þriðju umræðu má nefna 150 m.kr. tímabundið framlag til Landspítala - háskólasjúkrahúss vegna greiðslu kostnaðar við sameiningu Ríkisspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þá má nefna um 67 m.kr. hækkun á beingreiðslu til bænda vegna mjólkurframleiðslu, um 66 m.kr. hækkun á framlagi til Búnaðarsjóðs og um 30 m.kr. hækkun á framlagi til Lánasjóðs landbúnaðarins. Ennfremur má nefna um 40 m.kr. fjárveitingu sem varið verði til að mæta kostnaði við vöktun og rannsóknir í kjölfar jarðskjálfta á Suðurlandi. Auk þess um 10 m.kr. fjárveitingu til undirbúnings stofnun þjóðgarðs á utanverðu Snæfellsnesi og um 25 m.kr. hækkun á framlagi til virkjanarannsókna til að flýta framkvæmd rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.
Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri segir að lausn kunni að vera í sjónmáli í deilu hans og borgaryfirvalda. Hrafni hefur verið gert að fjarlægja ýmsa muni og mannvirki sem hann hefur komið fyrir fyrir utan lóðarmörk hjá sér á Laugarnestanganum. „ Lausnin væri að stækka lóðina, þannig að þetta yrði innan lóðarmarka, “ segir Hrafn og þakkar frænda sínum Jónasi Kristjánssyni, fyrrverandi ritstjóra, fyrir hugmyndina. Hrafn ætlar á fund með framkvæmdasviði borgarinnar í dag. „ Þannig að ég býst við að ég muni nota tækifærið og sækja um að lóðin verði stækkuð, “ segir hann. Borgin hafði áður framlengt tiltektarfrest Hrafns til föstudags en samt komu verktakar á vegum borgarinnar á svæðið í gær. „ Þeir eru á fullu að dæla úr tjörninni. Ég setti seiði þarna fyrir tuttugu árum og þetta verður til þess að silungarnir drepast allir, “ segir Hrafn, sem segist ekki skilja þessar aðgerðir yfirvalda. Þau gangi gegn fyrri orðum sínum með þessu. Hrafn og borgaryfirvöld hafa rætt þessa hluti um árabil. Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi segir til að mynda að Hrafn hafi þegið tíu milljónir frá Reykjavík fyrir að hætta framkvæmdum á svæðinu árið 2003, en ekki staðið við það samkomulag. - kóþ
Kvennaskólinn sigraði Menntaskólann í Reykjavíkur 30 : 29 í úrslitum Gettu betur í kvöld. Úrslitin fóru fram í Austurbæ og voru sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Er þetta í þriðja skipti sem Kvennaskólinn vinnur Gettu betur. Lið Kvennaskólans skipa þau Fjóla Ósk Guðmannsdóttir, Hlynur Ólason og Berglind Bjarnadóttir en í liði MR eru Sigrún Vala Árnadóttir, Hlynur Blær Sigurðsson og Ármann Leifsson. Eins og lokatölurnar gefa til kynna var keppnin æsispennandi. Lið Kvennaskólans tryggði sér sigurinn í næst síðustu spurningu, sem var vísbendingaspurning. Þá var spurt um dýr. Svarið var lundi, Kvennó fékk tvö stig og komst stigi yfir MR. Hvorugt lið hafði svarið við þríhöfða kvöldsins sem þýddi að Kvennó tryggði sér sigurinn og voru fagnaðarlæti liðsmanna og stuðningsmanna eftir því.
Tveir leikir verða spilaðir í ensku úrvalsdeildinni í dag. Nýkrýndir Englandsmeistarar Manchester City ferðast til höfuðborgarinnar og mæta West Ham. West Ham er í 15. sæti deildarinnar og er í mikilli fallbaráttu. Í seinni leik dagsins eigast Manchester United og Arsenal við. Man Utd eru í öðru sæti og á tvo leiki inni á Liverpool og eru í góðri stöðu. Gestirnir í Arsenal eru í sjötta sæti deildarinnar og eiga litla sem enga möguleika á að enda í topp fjórum og þar með sæti í Meistaradeildinni. Arsenal er þó komið í undanúrslit Evrópudeildarinnar en sigur í þeirri keppni tryggir sæti í Meistaradeildinni. Leikir dagsins : 13:15 West Ham United - Manchester City 15:30 Manchester United - Arsenal
BANK of New York Mellon hefur viðurkennt að hafa í annað sinn tapað gögnum viðskiptavina. Varagögnin voru á spólum sem týndust í lok apríl og innihéldu 4,5 milljónir skýrslna fyrir 47 fyrirtæki, þeirra á meðal Disney og Eastman Kodak. Talið er að áhrifin verði meiri á hluthafa heldur en viðskiptavini, en BNY Mellon varð fyrir sams konar áfalli í febrúar sl. Í bæði skipti týndust spólurnar hjá sendingaraðilum. Bankinn hefur tilkynnt nýja stefnu þess efnis að gögn verði framvegis dulkóðuð og mun takmarka notkun spóla til að geyma trúnaðargögn.
Robinho vonast eftir því að Kaka gangi til liðs við félag sitt, Real Madrid, í sumar. Eftir að AC Milan varð Evrópumeistari í vikunni ganga sögurnar fjöllunum hærra um að Kaka vilji færa sig um set frá Ítalíu en Real hefur lengi haft augastað á þessum magnaða leikmanni. „ Kaka er mjög hrifinn af Real Madrid og hann sagði mér að hann vilji spila hérna. Ég held að það yrði erfitt fyrir hann að komast frá Milan þar sem þeir vilja ekki leyfa svona frábærum leikmanni að fara en Real yrði í góðum málum kæmi hann hingað, " sagði Robinho.
Martin Hermannsson fór úr lið á fingri á æfingu hjá þýska liðinu Alba Berlín í síðustu viku. Martin tjáði Morgunblaðinu að meiðslin væru þó ekki alvarleg. Hann hefði farið í myndatöku og þar var ekki að sjá að nein eftirmál yrðu af atvikinu. Martin fékk spelku til að vera með í nokkra daga en verður svo gott sem ekkert frá æfingum vegna þessa. Martin er í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í dag.
Tveimur leikjum var að ljúka í Pepsi-deild kvenna, en Stjarnan vann þægilegan sigur á ÍBV á meðan FH og Þór / KA skildu jöfn. Stjarnan varð fyrsta liðið á Íslandsmótinu í sumar til þess að vinna í Eyjum, en Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir, Elva Friðjónsdóttir og Megan Anne Lindsey skoruðu mörk Stjörnunnar. Stjarnan er örugglega í fyrsta sæti með 30 stig af 30 mögulegum. FH og Þór / KA gerðu þá 2 - 2 jafntefli þar sem Íslandsmeistararnir jöfnuðu á síðustu mínútu leiksins. Thanai Annis kom Þór / KA yfir áður en Ashlee Hincks jafnaði metin. Hugrún Elvarsdóttir, sem var nýkomin inn á sem varamaður kom FH svo yfir áður en Annis jafnaði undir lokin. Þór / KA er í sjötta sæti með 13 stig, en FH í sjöunda sæti með 12 stig. Úrslit og markaskorarar af Úrslit.net : FH 2 - 2 Þór / KA 0 - 1 Thanai Annis ( ' 12 ) 1 - 1 Ashlee Hincks ( ' 32 ) 2 - 1 Hugrún Elvarsdóttir ( ' 75 ) 2 - 2 Thanai Annis ( ' 90 ) Rautt spjald : Þór / KA ( ' 57 ) ÍBV 0 - 3 Stjarnan 0 - 1 Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir ( ' 13 ) 0 - 2 Elva Friðjónsdóttir ( ' 35 ) 0 - 3 Megan Anne Lindsey ( ' 83
Tæplega er hægt að hugsa sér álitlegri stað til sýningar á myndlist hér í Reykjavík heldur en Berg Contemporary, gallerí þeirra hjóna Ingibjargar Jónsdóttur og Friðriks Kristjánssonar við Klapparstíg. Hér leggst allt á eitt, staðsetning gallerísins í miðbænum, útlit, umfang og innbyrðis hlutföll sýningarsalanna, birtuskilyrði og ótal frágangsatriði sem bera jafnt arkitektum sem eigendum fagurt vitni. Eins og stendur er sýningarstefna Bergs sennilega ekki jafn frágengin og húsnæðið, því inn á milli markverðra sýninga slæðist stundum myndlist sem gerir sig ekki alveg innan þessara veggja. Ætla má að stefnan fái á sig endanlega mynd um það leyti sem ný álma gallerísins verður tekin í notkun. Hulda Stefánsdóttir er einn af þeim listamönnum sem Berg hefur tekið upp á arma sína, bæði hér innanlands og á alþjóðlegum kaupstefnum. Það hefur verið lærdómsríkt að fylgjast með myndlist hennar á undanförnum árum. Segja má að um nokkurt skeið hafi myndlistarleg sérstaða hennar ekki síst falist í því hversu kænlega hún villti á sér heimildir. Við fyrstu sýn virtust verk hennar, vatnslita / gvassmyndir í venjulegum pappírsstærðum, vera nokkurs konar framlengingar á mjög svo frjálslegri abstraktlist, tassisma eða öðru í svipuðum dúr. Annað var það einnig að þessi verk virtust ekki gerð til að hanga kórrétt á veggjum, heldur var þeim dreift óreglulega og stundum þvert á rýmið, ofan eða neðan við hefðbundna sjónlínu, utan í hornum eða niður við gólflista, oft í mismunandi stórum „ klösum “, fyrirkomulag sem virtist hafa þann tilgang einn að torvelda of venjubundna skynjun áhorfandans. Ummerki tímans Síðan rann það upp fyrir glöggum áhorfendum að verk Huldu voru ekki abstrakt – óhlutlæg – í venjulegri merkingu þess orðs, til þess uppfylltu þau ekki ákveðin formræn skilyrði, heldur virtist liggja beinast við að líta á þau sem hlutlæg fyrirbæri, sem eins konar yfirfærslur á ummerkjum tímans, eins og þau birtast jafnt í manngerðu sem náttúrulegu samhengi : skellum eða flekkjum á múrveggjum, ryðblettum á málmplötum, núningsflötum á hlutum, skófum á trjám – jafnvel skrámum á holdi. Þessi „ ummerki “ staðsetti Hulda vítt og breitt og óreglulega í sýningarrýminu, ekki til að draga athygli að þeim sjálfum, heldur sjálfu rýminu allt um kring, gefa því dramatískt vægi, ekki ósvipað því sem amerískir mínimalistar gerðu með verkum sínum á árum áður. Hulda Stefánsdóttir myndlistarmaður fréttablaðið / eyþór Fyrir rúmlega tveimur árum, og einmitt hér í Berg Contemporary, gat svo að líta nokkuð svo róttækt uppgjör Huldu við þessa aðferðafræði, nefnilega tilfærslu frá ofangreindu innsetningarfyrirkomulagi og glímu við eiginleika rýmisins, til klassískrar veggmyndlistar, þar sem áhorfanda er skipulega beint frá einu sjálfstæðu akrýlmálverki til annars. Um leið snýr listakonan baki við tiltölulega opnu og frjálslegu athafnarými innsetningarinnar og axlar í staðinn „ fullkomlega óþolandi og ótrúlega innspírandi “ byrði hinnar stóru listasögu, svo notuð séu hennar eigin orð. Ýmsar vísbendingar eru um að þessi umskipti hafi ekki reynst henni auðveld. Vöntun á krækjum Eftir sem áður er tíminn inni í myndinni, því listakonan lítur á sérhvert verk sem nokkurs konar tímahylki, samantekt um eigið sköpunarferli. Sjálf er hún í hlutverki fornleifafræðings sem vinnur sig, hægt og bítandi, í gegnum lagskiptan jarðveg nútímaskynjunar og nútímalistar og á í leiðinni í stöðugu samtali við hvort tveggja sína eigin fortíð í myndlistinni og það sem hún rekst á við „ uppgröftinn “. Sú samlíking er a.m.k. sterklega gefin til kynna í aðfaraorðum Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur í „ Time Map “, bók sem fylgir sýningunni. Það sem rekur Huldu áfram er meðvitund um það sem hún nefnir „ samslátt skynheima “, það sem gerist þegar efni, upplifanir og minni skarast. Og hvernig upplifanir „ blæða “ milli sviða veruleika og ímyndunar, vitundar og undirvitundar, uns ekkert stendur eftir nema kannski eftirmynd einhvers sem aldrei gerðist, sjá fyrirlestur hennar frá 2017, sem fylgir ofangreindri bók. Allt er þetta áhugaverð innsýn í atburðarásina í myndlist Huldu. En getur hugsast að ferlið, þessi samþjöppun tíma, efnis og upplifunar, sem listakonan telur sig ástunda, sé henni mikilvægara en niðurstöðurnar, „ eftirmyndirnar “ sem blasa við okkur á veggjum sýningarsalarins? Því einhvern veginn tekst henni ekki að búa til úr þeim nægilega áhugavekjandi niðurstöður fyrir augað. Í popptónlist er góð „ krækja “ ( hook ), það er laglína eða frasi, talin forsenda vinsælda ; þessi krækja situr eftir í vitund áheyranda og verður upp frá því hluti af ímynd lagahöfundar eða flytjanda. Í mörgum mynda Huldu er einfaldlega vöntun á slíkum krækjum, eins ankannalega og það kann að hljóma. En heiti sýningarinnar, in medias res, eða „ í miðjum klíðum “, bendir, sem betur fer, til þess að fyrir listakonunni sé þetta ferli ekki enn til lykta leitt.
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, tilkynnti í dag leikmannahóp sinn fyrir vináttulandsleiki gegn Frakklandi og Svíþjóð sem fram fara síðar í mánuðinum. Lagerbäck valdi 25 leikmenn í hópinn og þar af tvo nýliða. Varnarmanninn Hólmar Örn Eyjólfsson hjá Bochum og markvörð Fram, Ögmund Kristinsson. Leikurinn við Frakka fer fram á á Stade du Hainaut í Valenciennes en leikurinn við Svía fer fram í Gautaborg, nánar tiltekið á Gamla Ullevi. Frakkar og Svíar eru hlið við hlið á nýjasta styrkleikalista FIFA, Frakkar í 16. sæti og Svíar í 17. sæti. Íslendingar og Frakkar hafa mæst 10 sinnum áður hjá A landsliðum karla. Frakkar hafa farið með sigur sjö sinnum og þrisvar hafa leikar endað með jafntefli. Leikirnir við Svía hafa hinsvegar verið 14 talsins. Ísland hefur tvisvar farið með sigur af hólmi, tvisvar hefur verið jafntefli og Svíar hafa sigrað tíu sinnum. Hópurinn : Markverðir : Gunnleifur Gunnleifsson - FH Hannes Þór Halldórsson - KR Ögmundur Kristinsson * - Fram Stefán Logi Magnússon * * - Lilleström Varnarmenn : Hjálmar Jónsson - IFK Göteborg Ragnar Sigurðsson - FCK Sölvi Geir Ottesen - FCK Hjörtur Logi Valgarðsson - IFK Göteborg Hallgrímur Jónasson - SönderjyskE Hólmar Örn Eyjólfsson - Bochum Birkir Már Sævarsson * * - Brann Bjarni Ólafur Eiríksson * * - Stabæk Miðjumenn : Aron Einar Gunnarsson - Cardiff Helgi Valur Daníelsson - AIK Kári Árnason - Aberdeen Jóhann Berg Guðmundsson - AZ Alkmaar Rúrik Gíslason - OB Eggert Gunnþór Jónsson - Wolves Ari Freyr Skúlason - Sundsvall Sóknarmenn : Birkir Bjarnason - Standard Liege Kolbeinn Sigþórsson - Ajax Alfreð Finnbogason - Helsingborg Gylfi Þór Sigurðsson - Swansea Eyjólfur Héðinsson - SönderjyskE Björn Bergmann Sigurðarson * * - Lilleström * er í hópnum gegn Frakklandi * * er í hópnum gegn Svíþjóð
Atvinnuvega - og nýsköpunarráðuneytið áréttar í tilkynningu á vef stjórnarráðsins að ekkert liggi fyrir um það að verkefni félagsins Atlantic Superconnection ( ASC ) um að leggja sæstreng á milli Íslands og Bretlands muni uppfylla íslenskar kröfur. Tilefni tilkynningarinnar er frétt Morgunblaðsins þar sem fjallað er um skrif breska blaðsins Financial News um sæstrengsverkefnið. Í frétt Morgunblaðsins segir orðrétt að áform ASC hafi þegar uppfyllt kröfur sem gerðar séu í þeim efnum samkvæmt íslenskum lögum “ og að „ það sem einkum vanti sé grænt ljós frá breskum stjórnvöldum “. Vegna þessa vill atvinnu - og nýsköpunarráðuneytið árétta eftirfarandi : • Engar forsendur eru til að fullyrða að sæstrengsverkefni ASC muni uppfylla íslenskar kröfur. • Íslenskt regluverk um sæstrengi er mjög takmarkað. Ljóst er að til þess að af slíku verkefni geti orðið þarf að gera margvíslegar lagabreytingar, til að mynda um skipulagsmál, umhverfislega þætti og fleira. Eðli málsins samkvæmt er útilokað að meta hvort verkefni ASC muni samræmast reglur sem ekki hafa verið settar. • Ástæða er til að árétta að þriðji orkupakkinn er því fjarri því að innihalda fullnægjandi regluverk til að sæstrengur geti orðið að veruleika og hann tekur ekki ákvörðunarvald um lagningu nýrra strengja af íslenskum stjórnvöldum. • Augljóst er að verkefni ASC hefur ekki heldur hlotið það samþykki Alþingis sem verður skilyrði fyrir lagningu sæstrengs verði lagafrumvarp og þingsályktunartillaga ferðamála -, iðnaðar - og nýsköpunarráðherra þess efnis samþykkt. • Fulltrúar ASC hafa á undanförnum árum að eigin frumkvæði kynnt áform sín á nokkrum fundum með ráðuneytinu. Engir fundir hafa verið haldnir að frumkvæði ráðuneytisins, engar formlegar viðræður hafa átt sér stað og ráðuneytið hefur ekki tekið afstöðu til verkefnisins.
Maðurinn sem slasaðist í veltu á Reykjanesbraut í eftirmiðdaginn á föstudag er á batavegi en er enn á gjörgæsludeild. Þetta kom fram í fréttum NFS í dag. Hann meiddist töluvert og fór í aðgerð strax á föstudagskvöld en ekki þurfti þó að setja hann í öndunarvél.
Fylkir 1 : 2 ÍBV Leikskipulag : 4-5-1 Landsbankadeild karla, 8. umferð Fylkisvöllur Þriðjudaginn 29. júní 2004 Aðstæður : Strekkingsvindur en þurrt, ágætur völlur. Áhorfendur : 1.040 Dómari : Gylfi Þór Orrason, Fram, 3 Aðstoðardómarar : Gunnar Gylfason, Gunnar Sv. Gunnarsson Skot á mark : 11 ( 7 ) - 11 ( 5 ) Hornspyrnur : 6 - 9 Rangstöður : 1 - 3 Leikskipulag : 4-4-2 Bjarni Halldórsson M Kristján Valdimarsson M Þórhallur Dan Jóhannsson M Valur Fannar Gíslason Gunnar Þór Pétursson ( Kjartan Ágúst Breiðdal 79. ) Eyjólfur Héðinsson ( Albert B. Ingason 63. ) Helgi Valur Daníelsson M Ólafur Ingi Stígsson Finnur Kolbeinsson Sævar Þór Gíslason Björgólfur Takefusa M ( Þorbjörn Atli Sveinsson 80. ) Birkir Kristinsson M Mark Schulte M Einar Hlöðver Sigurðsson Tryggvi Bjarnason Matt Garner M Ian Jeffs M Bjarnólfur Lárusson M Jón Skaftason Einar Þór Daníelsson M ( Bjarni Geir Viðarsson 85. ) Magnús Már Lúðvíksson ( Andri Ólafsson 80. ) Gunnar Heiðar Þorvaldsson M ( Bjarni Rúnar Einarsson 89. ) 1 : 0 ( 19. ) Brotið var á Björgólfi Takefusa rétt utan vítateigs ÍBV, aðeins til vinstri. Björgólfur tók spyrnuna sjálfur og lyfti boltanum laglega yfir varnarvegginn og í markhornið nær. 1 : 1 ( 26. ) Gunnar Heiðar Þorvaldsson fékk boltann frá Bjarnólfi Lárussyni inn í miðjan vítateig Fylkis, sneri þar laglega af sér varnarmann og renndi boltanum í markhornið. 1 : 2 ( 59. ) Gunnar Heiðar braust í gegnum vörn Fylkis og lék fyrst á Þórhall Dan og síðan á Bjarna markvörð. Á markteignum hirti Valur Fannar Gíslason boltann af honum með snyrtilegri tæklingu. Gylfi Þór Orrason taldi að Valur Fannar hefði brotið á Gunnari, dæmdi vítaspyrnu og rak hann af velli. Bjarnólfur Lárusson skoraði úr vítaspyrnunni af miklu öryggi. Gul spjöld : Einar Hlöðver Sigurðsson, ÍBV ( 20. ) fyrir brot * Ólafur Ingi Stígsson, Fylkir ( 24. ) fyrir brot * Björgólfur Takefusa, Fylkir ( 74. ) fyrir mótmæli * Jón Skaftason, ÍBV ( 75. ) fyrir að sparka bolta í burtu * Tryggvi Bjarnason, ÍBV ( 84. ) fyrir mótmæli * Ian Jeffs, ÍBV ( 87. ) hljóp of fljótt úr varnarvegg Rauð spjöld : Valur Fannar Gíslason, Fylkir ( 58. ) fyrir brot
Vetur konungur heimsótti Norðlendinga á ný í nótt og í morgun var alhvít jörð á Akureyri. Bíleigendur þurftu að grípa til sköfunnar og töluverð hálka er á götum bæjarins. Líkt og venjulega eru það börnin sem fagna snjónum og börnin á leikskólanum Holtakoti voru komin út með snjóþoturnar og léku sér glöð í bragði á leikskólalóðinni.
Hagnaður af rekstri Lyfjaverslunar Íslands hf. nam 32 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins en var um 37 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Rekstur félagsins gekk heldur betur en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir, en neikvæð áhrif gengisbreytinga í lok júní koma þar á móti. Veltuaukning félagsins er 31% miðað við sama tímabil árið áður, en veltan var 1.070 milljónir hjá samstæðunni á fyrri hluta ársins. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir allt að 40% veltuaukningu á árinu. Rekstrargjöld lyfjaverslunarinnar nema rúmum 817 milljónum króna sem er einnig 31% aukning frá fyrra ári. Laun og launatengd gjöld standa nánast í stað milli ára, eru nú um 87 milljónir króna er voru fyrir ári um 83 milljónir króna. Fjármunatekjur félagsins eru rúmar 13 milljónir samanborið við tæplega fjögurra milljón króna fjármunagjöld á fyrstu sex mánuðum síðasta árs, samkvæmt Morgunpunktum Kaupþings í gær. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta eru nú rúmar 39 milljónir króna en í fyrra var hagnaður félagsins 13 milljónir króna. Á sama tíma í fyrra var félagið með 28 milljónir króna í söluhagnað. Lítil viðskipti með félagið á Verðbréfaþingi Íslands Í fréttatilkynningu frá lyfjaversluninni kemur fram að jákvæð þróun var á hlutabréfaeign félagsins á tímabilinu. Til að mynda hækkaði gengi hlutabréfa Delta hf. úr 16,5 í 21,5. Lyfjaverslun á 34,2 milljónir króna að nafnvirði í Delta. Lyfjaverslun Íslands hf. er skráð félag á Verðbréfaþingi Íslands og eru hluthafar nú um 940. Aðeins einn hluthafi á yfir 10% hlut í félaginu. Lítil viðskipti hafa verið með félagið það sem af er ári eða fyrir rúmar 224 milljónir króna. Fyrstu viðskipti ársins voru á genginu 3,0 en síðustu viðskipti voru á genginu 5,0. Hjá samstæðunni störfuðu að jafnaði 54 starfsmennn á fyrri hluta ársins.
Sá orðrómur er nú uppi að vinsælt sé hjá ungmennum á Suðurnesjum að sniffa kveikjaragas. Sá leikur er stórhættulegur og mörg dæmi sýna að fólk hefur hlotið varanlegan heilaskaða eftir að hafa stundað slíka iðju. Fíkniefnalögreglan í Keflavík beinir þeim tilmælum til foreldra og forráðamanna að vera vel á verði. Sími fíkniefnadeildar lögreglunnar er opinn allan sólarhringinn og númerið er 421-5525.
Margir hafa sett sig í samband við Neytendasamtökin vegna breytinga eða afpöntunar utanlandsferða. Samskiptastjóri Play segir fólk hikandi við að bóka flug en að ferðahugur sé í fólki þrátt fyrir uppsveiflu í faraldrinum. Margir virðast efins um bókaðar utanlandsferðir vegna uppsveiflu í faraldri kórónuveirunnar. Formaður Neytendasamtakanna segir marga hafa samband við samtökin til að kanna rétt sinn komi til afpöntunar eða breytinga á ferðum. „ Sér í lagi hvað varðar pakkaferðir til útlanda en einnig varðandi gistingar á stöðum þar sem hætt hefur verið við skemmtanahald núna um helgina, “ sagði Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Hann segir að lög geri ráð fyrir að ef uppi séu óvenjulegar og óviðráðanlegar aðstæður á áfangastað eða á ferðalagi þangað, geti fólk afpantað pakkaferðir með rétt á endurgreiðslu. „ Það eru önnur lög sem gilda um flugferðir og þar er fólk meira upp á sitt eigið ágæti komið. Situr uppi með kostnað sem hlýst af því að hætta við ferðir. “ Hér má sjá upplýsingar um rétt til að afpanta pakkaferðir. Merkir breytingar vegna uppsveiflu í faraldrinum Samskiptastjóri Play merkir einnig breytingar vegna uppsveiflunnar. Hún segir Íslendinga hikandi við að bóka flug og að mikið sé spurt um regluverk og breytingarskilmála. „ Varðandi þá Íslendinga sem hafa nú þegar bókað miða hjá okkur, þeir eru margir að biðja um gjafabréf í staðinn og svo er nokkuð mikið um það að fólk sé að breyta um dagsetningar. Ætli að fara seinna en við finnum klárlega að það er mikill ferðavilji í Íslendingum og fólk ætlar sér að ferðast áfram en ætlar þá kannski að fara á annan áfangastað eða fresta ferðinni sinni um nokkra daga eða vikur, “ sagði Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play.
Lögreglan hefur handtekið mann í tengslum við innbrot og þjófnað í verslunina Úr og gull í verslunarmiðstöðinni Firði um síðustu helgi. Yirheyrslur yfir honum hafa þegar farið fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Maðurinn neitar sök. Honum var sleppt eftir yfirheyrslur og húsleit. Rannsókn málsins hófst um leið og innbrotið uppgötvaðist að morgni sunnudagsins. Í kjölfarið fundust föt sem talin eru hafa verið notuð við innbrot á tveimur stöðum í miðbæ Hafnarfjarðar. Einnig fundust umbúðir utan af hluta þeirra skartgripa sem stolið var. Verðmæti þess sem stolið var hleypur á milljónum króna, samkvæmt upplýsingum frá rekstraraðilum verslunarinnar.